DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Baby Business Set

Prjónuð húfa og smekkur fyrir börn úr DROPS BabyMerino í sléttprjóni og garðaprjóni. Stærð fyrirburar til 4 ára.

DROPS Baby 33-20
DROPS Design: Mynstur bm-098-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
ca (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-100-100-100 (100-100) g litur 43, ljós sægrænn

HÚFA:

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
ca (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 43, ljós sægrænn

SMEKKUR:

STÆRÐ: 1/9 - 9/18 mánaða
MÁL: Lengd fyrir miðju (mælt meðfram miðjulykkju): ca 16-19 cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 43, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 eða 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 stykki í báðar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið upp (60) 72-84-88-96 (104-108) lykkjur á sokkaprjóna 3 með Baby Merino. * Prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur garðaprjón *, haldið áfram með mynstrið hringinn (= (15)-18-21-22-24 (26-27) mynstureiningar). Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca (10) 11-12-13-14 (14-15) cm. Fækkið síðan lykkjum hvern cm þannig:

ÚRTAKA 1: Prjónið 2 fyrstu lykkjur í hverri einingu í garðaprjóni slétt saman = (45) 54-63-66-72 (78-81) lykkjur. Haldið áfram með 1 lykkju slétt, 2 lykkjur garðaprjón yfir allar lykkjur.
ÚRTAKA 2: Prjónið 2 síðustu lykkjur í hverri einingu í garðaprjóni slétt saman = (30) 36-42-44-48 (52-54) lykkjur. Haldið áfram með 1 lykkju slétt, 1 lykkju garðaprjón yfir allar lykkjur.
ÚRTAKA 3: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = (15) 18-21-22-24 (26-27) lykkjur.
ÚRTAKA 4: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = (8) 9-11-11-12 (13-14) lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.
Húfan mælist ca (14) 15-16-17-18 (19-20) cm.

-------------------------------------------------------

SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

SMEKKUR:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Setjið 1 prjónamerki í 4. lykkju (= miðjulykkja), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið þannig – frá réttu: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, A.1 (= 1 lykkja), 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), A.2 (= 1 lykkja), 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón = 11 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, það eru auknar út 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu og 2 lykkjur í hverri umferð frá röngu.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram alveg eins með mynstur, ásamt útaukningum í hliðum og útaukningu við miðjulykkju. Þegar stykkið mælist 14-17 cm (mælt meðfram miðjulykkju), prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur, haldið áfram með útaukningu í hliðum og útaukningu að miðjulykkju eins og áður. Prjónið sléttprjón í 1 cm, síðan eru prjónaðar 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur án útaukninga. Fellið síðan af. Smekkurinn mælist ca 16-19 cm.

Festið tölu í annan endann á smekknum (tölunni er hneppt á milli 1 lykkju í garðaprjóni og 1 lykkju slétt í hinum endanum).

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, svo ekki myndist gat
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Baby Business Set

Franmade, Italy

Baby Business Set

@maschemitlinks, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Claudia wrote:

1. Reihe:1M re, 1M re, 1U, 1M re, 1U, 1Mre( MittelM), 1U, 1M re, 1U, 1M re, 1M re = 11M 2. Reihe: 1M re, 1M li, 1U, 1M re, 1M li, 1M re, 1M li ( MittelM), 1M re,, 1M li, 1M re, 1U, 1M li, 1M re = 13 M

03.03.2024 - 11:30

country flag Claudia wrote:

Fortsetzung: 3.Reihe:1M re, 1M re, 1U, 4M re, 1U, 1MittelM (re), 1U, 4M re, 1U, 1M re, 1M re 4. Reihe: 1M re, 1M li, 1U, 3M re, 1M li, 2M re, 1 MittelM( li), 2M re, 1M li, 3 M re, 1U, 1M li, 1M re Im aktuellen Diagramm fehlen jeweils die Randmaschen, sowie die Mittelmasche. Ich würde auch A1 direkt neben A2 darstellen, damit man das versteht, dass es nacheinander gestrickt wird. Vielleicht können Sie das Diagramm nochmal ändern:-)

03.03.2024 - 11:17

country flag Shari Allen wrote:

Ok, I have read and reread the pattern and the lesson on how to read the chart for the bib pattern. I even consulted an avid knitter who I believe to be and expert. In the first row of this bib you cast on 7 stitches and when you knit your first row you supposedly end up with 11. There is no place in the instructions as to where to add on and the diagram only shows 2 stitches in the beginning. I’ve been knitting for years, why can I not figure this out. I need more clarity please!

19.02.2024 - 00:19

DROPS Design answered:

Hi Shari, The first row of A.1 includes 2 yarn overs (2 increased stitches) as does the first row of A.2. These diagrams are worked on each side of the mid-stitch and the 4 increases bring the total of stitches on the first row to 11. Happy knitting!

19.02.2024 - 06:45

country flag Shari Allen wrote:

I am an experienced knitter, but, I am struggling with the bib portion of this pattern. It is very vague. Is there another version of this bib? I would really like to knit this.

08.02.2024 - 04:19

DROPS Design answered:

Dera Mrs Allen,, there is only diagram to this pattern, read all rows from RS from the right towards the left and from WS from the left towards the right. This lesson can help you understanding how to follow diagrams. Happy knitting!

08.02.2024 - 08:45

country flag Cecile THOBIE wrote:

Petite correction de ma part, pour le début du bavoir, j\'arrive à 9 mailles avec les jetés et non à 7.

29.01.2024 - 14:40

country flag Cecile THOBIE wrote:

Bonjour dans le modèle du bavoir au début, je ne comprends pas comment arriver à 11 mailles ? même en y ajoutant le jeté, si je suis vos explications, j'arrive à 7. Sur quelles mailles se font les augmentations ? Merci de m'éclairer.

29.01.2024 - 14:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thobie, en tricotant le 1er rang des diagrammes A.1 et A.2, vous augmentez 2 mailles dans chacun de ces diagramme, autrement dit, vous allez tricoter au 1er rang de A.1 et de A.2: 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, vous avez ainsi augmenté 2 mailles x 2 diagrammes = vous avez désormais 11 mailles. Bon tricot!

30.01.2024 - 07:42

country flag Sattler Brunhilde wrote:

Hallo liebes Team Ich glaube die Anleitung des Lätzchens müsst ihr nochmal komplett überarbeiten. ich habe einen ganzen Tag ausprobiert, diese und jene Weise nichts sah annähernd aus wie auf dem Bild. Bin am verzweifeln. Lg

28.12.2023 - 19:40

country flag Nina Jessen wrote:

Jeg vil gerne strikke hagesmækken , forstår bare ikke hvordan man strikker A1 og A2 samtidig

10.12.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Hei Nina. Jo, diagrammene strikkes på hver sin side av midtmasken. Du starter med å legge opp 7 masker, sett 1 merke i den midterste masken (4. maske). Start fra retten slik: Strikk 1 maske rett (denne masken skal alltid strikkes rett både fra retten og vrangen) + 1 rett + A.1 + 1 rett (midtmasken/masken med merke) + A.2 + 1 rett + 1 rett (kantmaske). mvh DROPS Design

11.12.2023 - 13:06

country flag Laura Campanari wrote:

Buongiorno, non riesco a capire il secondo ferro. Dopo la prima riga mi ritrovo 11 maglie compresi i gettati,a sullo schema mi cnella seconda riga c'è la spiegazione con sei maglie. Cosa non capisco? Grazie mille

12.10.2023 - 06:32

DROPS Design answered:

Buonasera Laura, deve lavorare i diagrammi A.1 e A.2 solo sul numero di maglie indicato. Buon lavoro!

19.10.2023 - 23:39

country flag Alison Wyse wrote:

I am trying to knit one of your bib patterns. It says: *knit 1, 1 garter stitch, work from * over the next 6 stitches. I don’t understand the difference between a knit stitch and a garter stitch. Can you please help? Thank you!

30.08.2023 - 21:22

DROPS Design answered:

Hi Alison, From the right side there is no difference between knit and garter stitch, but when you work back from the wrong side, the garter stitches are still knitted whereas the other stitches change. Happy knitting!

31.08.2023 - 06:51