DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 1.67 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18.37€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Listen to Nature Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-2
DROPS Design: Mynstur r-756
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-700-750-800-900 g litur 82, silfur refur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 1.67 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18.37€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 4 síðustu lykkjur eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8½-7½-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 111-111-117-129-129-135 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. Fellið af HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), A.1 (= 6 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur) þar til eftir eru 14 lykkjur (= 14-14-15-17-17-18 sinnum á breidd), A.3 (= 7 lykkjur) og yfir kant að framan prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 303-335-355-395-431-453 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 14-16-16-16-18-18 cm frá prjónamerki.
Prjónið kantlykkju að framan eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, sléttprjón yfir næstu 41-45-49-53-60-64 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið sléttprjón yfir næstu 81-93-99-107-119-131 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 63-69-72-84-89-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 41-45-49-53-60-64 lykkjur sléttprjón og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 189-209-223-239-269-293 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 51-55-59-63-71-76 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 87-99-105-113-127-141 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki eins og áður.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 4 cm millibili alls 5-4-4-5-5-5 sinnum = 209-225-239-259-289-313 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, aukið út 13-12-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 222-237-252-273-303-327 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. Stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu.

ERMI:
Setjið 63-69-72-84-89-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-78-90-97-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-6-8-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að fækka síðar lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur fleiri). Fækkið lykkjum með 3-2-2-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-14-19-21-22 sinnum = 47-49-50-52-55-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm, aukið út 1-2-1-2-2-1 lykkjur í næstu umferð = 48-51-51-54-57-57 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm. Ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónað
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn inn í mynstur
symbols = lyftið lykkjunni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónuð var yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna slétt 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur
symbols = í fyrstu mynstureiningu af A.1 færist umferðin til með 1 lykkju þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni yfir á hægri prjón án þess að prjóna þau, prjónið síðan A.1 hringinn
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Listen to the nature

Claudia, Italy

Listen to Nature Jacket

Michèle, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Terhi wrote:

Hei. Kuviossa A1 koko L. Rivi 15. Tuleeko kuvioon 1 lisäys? Kun silmukat lisääntyvät 2:lla seuraavalla kierroksella.(Lisäys kukan lehden varren vieressä,lisäys kuvion alussa)

01.04.2024 - 17:56

DROPS Design answered:

Hei! Kuvioon tulee kaksi lisäystä. Kun neulot suljettua neuletta ensimmäinen lisäys tehdään piirroksen A.1 mukaan ja toinen lisäys tehdään piirroksen A.2 alussa.

05.04.2024 - 18:10

country flag Caroline wrote:

Hi when I have finished the first row of pattern before last 14 I have 16 repeats including A-1. When I have completed the row I have 17 repeats, is this correct Regards Caroline

30.03.2024 - 08:35

DROPS Design answered:

Dear Caroline, could you specify which size are you working?

01.04.2024 - 00:40

country flag Vaux Martine wrote:

Je vous remercie pour vos explications Bonne année à vous Amicalement

08.01.2024 - 12:52

country flag Martine Vaux wrote:

Je tricote le modèle 213 2 Je n arrive pas à commencer le Diagramme Il y a 5 mailles, Mais dans les explications de l empiècement A1 6 mailles Que veut dire les symboles,de ces premières lignes En vous remerciant

07.01.2024 - 18:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vaux, notez que la 1ère maille de A.1, A.2 et A.3 doit être tricotée exactement comme indiqué dès le début (= à l'endroit, tout comme la dernière maille de A.3), comme on va augmenter au milieu de chaque diagramme, il y a un trou dans le diagramme entre la 1ère maille et les 5 suivantes (dans A.1 et A.2, les 6 suivantes dans A.3), mais vous tricotez bien ces 6 ou 7 mailles d'affilée, comme indiqué. Bon tricot!

08.01.2024 - 10:31

country flag Tineke Van Steinvoorn wrote:

Door elke keer na 1 x patroon een markeerdraad in te voegen wordt het heel overzichtelijk en niet moeilijk. Als je patroon klopt hoef je steken ook niet te tellen want dan heb je automatisch het juiste aantal steken

11.03.2023 - 16:34

country flag Avril wrote:

Sorry I meant the extra square on row 16. Thank you

28.02.2023 - 14:24

DROPS Design answered:

Yes that's because of the increases worked on row 15 - see 6th symbol (beg of A.1 and end of A.3) and 8th symbol (beg of A.2 and A.3). Happy knitting!

28.02.2023 - 17:49

country flag Avril wrote:

Hi. I am having problems with rows 15 and 16. At the beginning of the pattern , row 1, it says to work A1 then A2 until 14 stitches remain then work A3. I have continued to work like this only using A3 for the last repeat. This seems ok but in row 17 there is an extra white square in A2 and I don’t have a corresponding stitch. Please can you advise. Thank you

28.02.2023 - 14:22

DROPS Design answered:

Dear Avril, on row 15, start with A.1 and: K1, YO (increase 1 stitch) then work as before - then work (and repeat A.2): starting with work 3 sts in the same stitch (increase 2 sts = 1st of these belong to A.1, next 2 belong to A.2), then work as before to the end of diagram and repeat A.2, then work A.3 starting as A.2 working 3 sts in the same stitch (1st st belong to previous A.2, last 2 sts belong to next A.2/A.3), and increase 1 stitch before the last stitch in diagram. Hope it can help. Happy knitting!

28.02.2023 - 17:48

country flag Avril wrote:

Hi. I am really confused with rows 15 and 16. I have looked at some of your replies but I’m still lost. From the instructions at the beginning of the pattern it says to work A1 and A2 until 14 stitches remain and then work A3. So I have continued the pattern working A1 then A2 until the last repeat where I did A3. This seems to be right but when I get to row 17 there is an extra white square at the end of A2 and I do not have a corresponding stitch. Please can you help? Thank you

28.02.2023 - 14:13

DROPS Design answered:

Dear Avril, you should work first A.1 then repeat A.2 until 14 sts remain and then work A.3, so that A.1 is the beginning of the pattern and A.3 the end of the pattern. Reason why on this row you will work the last stitch A.1/A.2 together with the first 2 stitches next repeat (A.2 then A.3). Happy knitting!

28.02.2023 - 17:44

country flag Avril Boulton wrote:

I’ve just started knitting the Listen to Nature jacket. I have never followed diagrams before to knit a pattern. I knitted the first row right to left A1 A2 and finished the row with A3 up to the button band. For the second (purl) row I understand that I should read the pattern from left to right. Does this mean I start with A3 then A2 and then finish the row with A1? Thank you.

25.02.2023 - 13:46

DROPS Design answered:

Dear Avril, yes, when working back and forth, the diagram will have to be worked in the opposite order from the wrong side. Remember to also work the symbols opposite to how they are shown. You can check the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

26.02.2023 - 21:01

country flag Nicole wrote:

Bonjour Talle M dans le diagramme A1 et A2 sur l'envers au rang 16 il y a une maille carrée blanc sans symbole au rang faut t'il faire un jeté ou rajoute une maille pour que le rang 17 soit juste car il manque un symbole pour avoir un rang juste pouvez vous svp me donner une réponse claire par rapport au maille carrée blanc de la façon de les insérer J'ai lu vos commentaire d'une même question et je n'y comprends rien merci beaucoup pour votre compréhension

05.11.2022 - 08:44

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, vous trouverez la réponse ci-dessous, si vous ne l'avez pas comprise, n'hésitez pas à nous le dire, nous reformulerons. Bon tricot!

07.11.2022 - 08:14