DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Weekend Vibe

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-39
DROPS Design: Mynstur ml-041
Garnflokkur D + D eða F
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
350-400-450-500-550-600 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
8 lykkjur á breidd og 10 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum Melody = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 12.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12: lengd 60 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 162 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 13,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 13. og 14. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð tilskiptis 12. og 13. hver lykkja og 13. og 14. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum):
Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur þegar fellt er af, er hægt að nota grófari prjón eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum Melody.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 42-45-48-51-51-54 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 2 þráðum Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 70-75-80-85-85-90 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er mælt frá prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið A.1 hringinn (= 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 5 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.2 hringinn = 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 126-135-144-153-153-162 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.3 hringinn (= 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 9 lykkjum). Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 18-20-22-22-24-24 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Í næstu umferð er prjónað slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
S: Fækkið um 4 lykkjur, M: Fækkið um 1 lykkju, L: Aukið út um 4 lykkjur, XL: Aukið út um 3 lykkjur, XXL: Aukið út um 7 lykkjur, XXXL: Aukið út um 12 lykkjur = 122-134-148-156-160-174 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 19-21-23-25-26-28 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 39-43-46-50-52-57 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 20-22-23-25-26-29 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 86-94-100-108-116-126 lykkjur. Byrjið mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjum undir ermi í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 28 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-1-1-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 84-93-99-105-114-123 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 22-24-28-28-28-30 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 12 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-4-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-32-32-34-36 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-5-7-4-4½-5 cm millibili alls 8-7-5-8-7-6 sinnum = 42-42-42-48-48-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykki.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 21-21-21-24-24-24 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju – þessi lykkja kallast nú klukkuprjónslykkja
symbols = prjónið 5 lykkjur í klukkuprjónslykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að steypa lykkjunni af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið sömu lykkju slétt án þess að steypa lykkjunni af vinstra prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni af vinstra prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri)
symbols = byrjið hér
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Recordon Aurélie wrote:

Cela fait seulement un mois et demi que je tricote et je ne suis pas du genre à commencer par des choses simples. Alor je me suis lancée tête baissée dans la réalisation de ce modèle. J’ai bien suivi les explications et j’ai réussi. Les vidéos a l’appui sont très claires et très utiles. Je suis vraiment fan de votre site et de vos modeles. Je ne pensais pas y arriver si facilement.

23.02.2022 - 20:20

country flag Julia wrote:

Hi! This is a question about the diagrams - compared to the picture of the jumper it looks as though the knit & purl stitches are the reverse of the diagrams instructions? Am I reading these incorrectly?

04.10.2021 - 11:41

DROPS Design answered:

Dear Julia, No. The pattern on the shoulders are a few stitches knitted with english ribbing / fisherman stitches, on a purled background, and that is what the diagram shows as well. Happy Stitching!

04.10.2021 - 22:24

country flag Mindy wrote:

Can the ballon sleeve technique be adapted to use on other cardigans ?

18.08.2020 - 03:38

DROPS Design answered:

Hi Mindy! Why not? Give it a try! Happy knitting!

18.08.2020 - 07:03

country flag Marie wrote:

Hej, hur många nystan "drops melody" beräknas till 3xl?

30.04.2020 - 13:07

DROPS Design answered:

Hej Marie, GARNÅTGÅNG: DROPS MELODY från Garnstudio (tillhör garngrupp D) 350-400-450-500-550-600 g färg 03, pärlgrå. Dvs 12 nystan i XXXL :)

30.04.2020 - 13:13

country flag Louise wrote:

Kan det virkelig passe at den strikkes på pind 12? Modellen på billederne ser mere tæt ud?

26.11.2019 - 19:19

DROPS Design answered:

Hei Louise! Ja, denne genseren er strikket på pinne nr 12, husk at det er alltid lurt å sjekke strikkefastheten. God fornøyelse!

27.11.2019 - 08:34

country flag Andrea wrote:

Hallo, könnte man diesen Pulli auch mit Alpaca Boucle stricken? Und wieviel bräuchte man dafür? Im Garnumrechner klappt das nicht.

14.11.2019 - 12:24

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, mit Garnumrechnet klappt es nicht, denn Alpaca Bouclé gehört zur Garngruppe C und Melody zur Garngruppe D - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen - Ihr DROPS wird Ihnen gerne weiter helfen. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2019 - 14:31

country flag Luisa De Paiva wrote:

I love your patterns but have yet to try and knit any of them. It seems that the translation to US English may not be as accurate as we would like. Also the format used is also different making it difficult to follow the pattern. Your videos are wonderful, but no sound. Would you consider using English as the universal language? That would help knitters in all countries. Please do consider my recommendations. So far, knitters are telling to stay away from Drops patterns. :-(

13.11.2019 - 05:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Paiva, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos (with no sounds because all our customers around the world cannot understand English) as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!

13.11.2019 - 09:17

country flag Nina wrote:

Blir det lagt ut oppskrift på denne og evt. når?

11.10.2019 - 21:58

country flag Anette Rasmussen wrote:

Håber snart at der kommer en opskrift :-)

09.09.2019 - 13:56

country flag Ingrid wrote:

Lovely!

04.07.2019 - 15:01