DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Spruce Jacket

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-15
DROPS Design: Mynstur no-032-NY
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 09, djúpsævi
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-125-150 g litur 27, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7 stykki í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 8,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á ermi innan við prjónamerki og 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 82-86-90-94-94-98 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði Nord + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona í 3 cm - munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 91-95-95-99-99-103 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni til loka). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni,1 lykkja slétt, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar á breidd), A.1b yfir næstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-8-8-10-10-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis), A.1c yfir næstu 3 lykkjur, A.1a yfir næstu 14 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkinu – prjónamerkin fylgja nú með í stykkinu). Fyrir utan útaukningar í mynsturteikningu, hefur nú verið aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 18-19-22-21-20-20 sinnum til viðbótar og í 4. hverri umferð 2-2-2-3-5-6 sinnum (= alls 21-22-25-25-26-27 útaukningar í hvorri hlið á ermi). JAFNFRAMT í 21. umferð í A.1a er prjónað eins og útskýrt er við hvíta stjörnu eftir kantlykkjum að framan í byrjun á umferð (séð frá réttu) og eins og útskýrt er við svarta stjörnu á undan kantlykkjum að framan (séð frá réttu) – sjá útskýringu í mynsturtáknum.
Þegar gA.1a, A.1b og A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. prjónið A.1b og A.1c að röngu í hliðum á framstykki og bakstykki og prjónið blaðamynstur (= A.1a) eins og áður á milli laskalínu og bakstykkis (= A.1b og A.1c) og á milli laskalínu og kanta að framan á framstykki þar til prjónaðar hafa verið 36-46-48-48-48-48 umferðir með mynstri á hæðina og það eru 42-47-49-49-49-49 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 75-85-89-89-89-89 lykkjur á bakstykki. Nú eru 3-4-4-4-5-5 blöð meðfram laskalínu. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð M:
Nú heldur blaðamynstrið áfram alveg eins, en að prjónamerkjum í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur A.2 (þ.e.a.s. ekki eru auknar út fleiri lykkjur fyrir laskalínu). Nú eru 47 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og 85 lykkjur á bakstykki.
Prjónið nú upp til og með umferð með ör í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 287 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 22 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

STÆRÐ S. L, XL, XXL og XXXL:
Nú heldur blaðamynstur áfram alveg eins, en við prjónamerki í hverri laskalínu (á framstykki og bakstykki) er prjónað mynstur eins og útskýrt er í A.2b og A.2c. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, eru 45-52-53-57-59 lykkjur á hvoru framstykki (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) og það eru 81-95-97-105-109 lykkjur á bakstykki. Þegar prjónað hefur verið upp til og með umferð með ör í þinni stærð í mynsturteikningu (og öll útaukning á ermum hefur verið gerð til loka), eru 271-319-327-347-363 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 21-25-25-28-30 cm. Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið áfram með blaðamynstri (án þess að auka út fyrir laskalínu) að réttu máli.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð (= umferð eftir þessa með ör) frá röngu er prjónuð þannig - ATH: Í stærð XXL og XXXL prjónið 1-3 af lykkjum í hvorri hlið á ermum inn á bakstykki/framstykki.
Prjóni fyrstu 45-47-52-53-58-62 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 81-85-95-97-107-115 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 50-54-60-62-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 45-47-52-53-58-62 lykkjur (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 179-195-215-227-251-267 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í nýjar 4-8-8-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið mynstur frá réttu þannig - ATH: Mynstrið á að passa yfir mynstur frá berustykki, passið uppá að byrja í réttri umferð í mynsturteikningu:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, blaðamynstur yfir næstu 15-29-29-29-36-36 lykkjur, A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, A.3c yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 28-56-56-56-70-70 lykkjur (= 2-4-4-4-5-5 mynstureiningar A.1a á breiddina), A.3b yfir næstu 16 lykkjur, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, prjónamerki situr hér, 12-2-7-10-9-13 lykkjur sléttprjón, A.3c yfir næstu 17 lykkjur, blaðamynstur eins og áður yfir næstu 14-28-28-28-35-35 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm = 187-203-223-235-259-275 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 17-16-14-13-15-14 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er eins og 12. umferð í A.1a, eru eftir ca 5 cm með mynstri og 5-6-7-9-6-7 cm með sléttprjóni á undan stroffi neðst á fram- og bakstykki. Prjónið nú mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, M, L og XL:
4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.4a yfir næstu 14-28-28-28 lykkjurnar (= 1-2-2-2 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 28-56-56-56 lykkjur (= 2-4-4-4 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 14-4-9-12 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 14-28-28-28 lykkjur (= 1-2-2-2 mynstureiningar), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri þar til A.4a-A.4c hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

Stærð XXL og XXXL:
4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.5a yfir næstu 7 lykkjurnar, A.4a yfir næstu 28-28 lykkjurnar (= 2-2 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 70-70 lykkjur (= 5-5 mynstureiningar), A.4b yfir næstu 16 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur, prjónamerki situr hér, sléttprjón yfir næstu 11-15 lykkjur. A.4c yfir næstu 17 lykkjur, A.4a yfir næstu 28-28 lykkjur (= 2-2 mynstureiningar), A.5b yfir næstu 7 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstri þar til A.4a-A.4c, A.5a og A.5b hefur verið prjónað til loka á hæðina. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan í garðaprjóni þar til fram- og bakstykki mælist 27-27-26-27-26-26 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður) þegar aukið er út um 27-31-35-35-39-43 lykkjur jafnt yfir = 214-234-258-270-298-318 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 50-54-60-62-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna/hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-12-14-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi í hlið = 54-62-68-74-76-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 2-4-4-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-13-15-17-17-16 sinnum = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 37-37-35-36-34-33 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2019
Allt mynstrið hefur verið endurskrifað og ný mynsturteikning gerð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = á við um eftir kant að framan (séð frá réttu): Eftir kantlykkjur að framan í garðaprjóni í byrjun á umferð, prjónið fyrst 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) áður en prjónað er áfram eins og útskýrt er í mynsturteikningu
symbols = á við um undan kanti að framan (séð frá réttu): Á undan kantlykkjum að framan í garðaprjóni í lok umferðar eru ekki 3 síðustu lykkjurnar í mynsturteikningu prjónaðar í þessari umferð, en prjónað er í staðin þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
symbols = örin sýnir hvaða umferð í mynsturteikningu er endað á í mismunandi stærðum – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Donna wrote:

Hi there, can the instructions of the pattern for the Blue Spruce Jacket be given in Avery simpler way for beginners to follow. I am so I love with jacket .Thank you Donna ( Australia)

27.06.2022 - 05:29

DROPS Design answered:

Dear Donna, you will find a list of tutorials in videos and of step-by-step tutorials at the bottom of the pattern page, they might help you to understand how to work the pattern. For any individual assistance you are welcome to contact your DROPS store, they should be able to help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

27.06.2022 - 09:11

country flag Gudrun wrote:

Ich habe Probleme mit der ersten Reihe nach dem Stillegen der Ärmelmaschen. Verlangt ist:4 Maschen kraus rechts, 36 Machen Blättermuster wie vorher, dann 16 Maschen Muster 3b. Bei mir zerstört das das bestehende Blättermuster. Ist das so gewollt? Kann man dann nicht einfach aus dem bestehenden Muster heraus 13 Masche rechts bis zur Markierung stricken? Ich finde nicht, das das Musterwechseln gut aussieht.

12.06.2022 - 18:28

country flag Odile wrote:

Bonjour et merci pour votre reponse , donc si je comprends bien , sur tous les rangs endroits , il,faut faire des jetés? et sur les rangs envers lorsqu'on tricote les jetes , doivent ils former des trous ou faut il les tricoter torse ? Y a til une video explicative sur comment tricoter les jetes au rang suivant ?

26.04.2021 - 09:38

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, les jetés (ceux du point fantaisie + ceux des raglans) se font effectivement uniquement sur l'endroit; les jetés des points fantaisie (= diagrammes) se tricotent à l'envers pour qu'ils forment des jours, mais ceux des raglans se tricotent torse pour éviter des trous. Cette vidéo montre comment tricoter un jeté - dans le brin avant (= trou) + dans le brin arrière (= torse = dans le brin arrière= pas de trou). Bon tricot!

26.04.2021 - 09:46

country flag Odile wrote:

Bonjour Je ne comprends pas bien les explications pour l'empiecement .Au debut , sur le deuxieme rang ( donc sur l envers) apres les 4 mailles endroit de la bordure , que faut il,faire ?faut il faire 1 maille endroit + A1a ou une maille envers ?de meme apres A1b sur les rangs envers, faut il,fqire une maille endroit , un jete et 8 mailles endroit ou bien est ce que cela ne se fait que sur le premier rang ? Merci de m'eclairer

23.04.2021 - 23:34

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite et tricotez: 4 m point mousse, A.1a, A.1c, mailles envers, A.B, A.1a, A.1c... (les cases blanches sont des mailles jersey endroit, la croix une maille jersey envers). Dans cette leçon, vous verrez comment tricoter des diagrammes en rangs. Bon tricot!

26.04.2021 - 07:24

country flag Synnøve Vea wrote:

Er i starten: bærestykke. Siden rad 1 er stolpe-A1a-A1b/arm/A1c-A1a-A1a-A1b/arm/A1c-A1a-stolpe, skal rad2 (vrangen) strikkes motsatt? altså stolpe-A1a-A1c/arm/A1b. osv

17.03.2021 - 16:23

DROPS Design answered:

Hei Synnøve, Ja, når du strikker tilbake fra vrangen blir rekkefølgen reversert, som du sier. God fornøyelse!

19.03.2021 - 07:54

country flag MARIE THERESE DAVID wrote:

Je fais le modèle DROPS 205-15 taille M. Je suis rendue au milieu de l'empiècement devant, j'ai fait les grilles A1a-A1b-A1c comme indiqué c'est très joli, j'ai termine les 24 rangs et là je ne sais plus du tout comment agencer les diagrammes pour continuer et je ne comprends pas les exlications... merci de m'éclairer! M.T.DAVID

19.02.2021 - 17:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme David, lorsque vous avez tricoté les diagrammes 1 fois en hauteur, vous les répétez, mais cette fois-ci, vous avez suffisamment de mailles pour tricoter une fois de plus A.1a en largeur, autrement dit, répétez A.1a 1 fois de plus en largeur et tricotez lesA.1b et A.1c (augmentations raglan) comme avant. Bon tricot!

22.02.2021 - 07:20

country flag Monique wrote:

Hallo liebes Serviceteam! Hier scheitere hier anscheinend gleich in Reihe eins. Ist der Chart A.1c um eine Zeile nach oben verrutscht oder hat es eine besondere Bewandtnis, dass die drei Charts nicht horizontal auf einer Ebene dargestellt sind? Und lesen sich die drei Charts in Reihe 1 durchgehend von rechts nach links, also wie üblich? Und in allen Rückreihen von links nach rechts? Herzlichen Dank für Ihre Mühe und liebe Grüße 🍀

22.09.2020 - 16:59

DROPS Design answered:

Liebe Monique, A.1c wird bei der 1. Reihe über 3 Maschen gestrickt (= 1 M re, 1 M li, 1 Umschlag, 1 M re) - nach der 1. Reihe haben Sie 4 Maschen, die, bei den Rückreihen so stricken (links nach recht)s): 2 M li (Umschlag verschränkt), 1 M re, 1 M li. Viel Spa ß beim stricken!

23.09.2020 - 08:06

country flag Samia wrote:

Bonjour j'ai commencé ce magnifique gilet en taille L, mais au premier rang de l'empiècement à la fin du rang j'ai 3 mailles en plus ! Vous précisez qu'il y a des modifications ou les trouver pour le modèle DROP 205-15 MERCI

16.09.2020 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Samia, tricotez ainsi: 4 m point mousse, 1 m endroit, A.1a (= 14 m), A.1b (= 2 m), (= devant gauche), 1 m endroit, 1 jeté, 8 m endroit, 1 jeté, 1 m endroit (= manche gauche), A.1c (= 3 m), 2 x A.1a (= 28 m), A.1b (= 2 m), (= dos), 1 m endroit, 1 jeté, 8 m endroit, 1 jeté, 1 m endroit, (= manche droite), A.1c (= 3 m), A.1a ( = 14 m) et 4 m point mousse (devant droit). Vous avez augmenté 2 m pour chaque manche (cf jetés soulignés) + 1 m dans chaque A.1b/A.1c = 8 m au total soit 95+8= 103 m sur l'aiguille. Vous pouvez mettre un marqueur entre chaque diagramme pour bien vérifier votre nombre de mailles à chaque fois. Bon tricot!

16.09.2020 - 14:35

country flag Gro E Hammerstad wrote:

Strikker str. XXXL. Når 48 omg i høyden og 49 m på forstykket har jeg IKKE 5 blader langs raglan men 3,5. Hva har jeg gjort feil?

10.08.2020 - 23:02

DROPS Design answered:

Hej Gro, Strikker du i DROPS Nord og Kid-Silk? Holder du strikkefastheden med 17m x 22pinde på 10x10 cm. Det lyder til at du eventuelt kan strikke lidt løsere... Men hvis du er tilfreds med strukturen, gør det så noget?

19.08.2020 - 12:03

country flag Cho Cho Lwin wrote:

Thank you very much for your quick and informative response. Happy with the customer services and quality products. Always Thumbs up for Drops products!!!

30.05.2020 - 08:12