DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Twinkle Sweater

Prjónuð peysa með blaðamynstri, kúlum, hringlaga berustykki og ¾ ermum. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora, ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 200-12
DROPS Design: Mynstur fl-040
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 17, gulur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3).

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 117 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 39) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Aukið út hvoru megin við stroff eins og útskýrt er að neðan:
Prjónið fram að A.3, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 16-16-16-22-22-22 lykkjur – prjónamerki situr mitt á milli þessa 16-16-16-22-22-22 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næst umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Fækkið lykkjum hvoru megin við stroff eins og útskýrt er að neðan:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.3
(= 16-16-16-22-22-22 lykkjur – prjónamerki situr mitt í þessum 16-16-16-22-22-22 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 117-120-123-129-132-138 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Þegar stroffið er lokið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 39-40-41-43-44-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 156-160-164-172-176-184 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-7-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 12-32-40-44-52-56 lykkjur jafnt yfir = 168-192-204-216-228-240 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar blaðamynstur, þ.e.a.s. prjónið A.1 hringinn (= 14-16-17-18-19-20 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 308-352-374-396-418-440 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2 er aukið út um 16-8-10-28-34-40 lykkjur jafnt yfir = 324-360-384-424-452-480 lykkjur í umferð.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-53-56-62-68-74 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 65-73-79-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 97-107-113-125-137-149 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 65-73-79-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 49-54-57-63-69-75 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-230-250-274-302-330 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með A.3 yfir miðju 16-16-16-22-22-22 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki (prjónamerkið situr mitt í A.3). Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.3 í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 190-210-230-254-282-310 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 210-230-250-274-302-330 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm til loka).
Í næstu umferð er aukið út fyrir stroffi þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 8-8-8-11-11-11 lykkjur í umferð, prjónið 89-99-109-115-129-143 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 27-26-31-34-35-39 lykkjur jafnt yfir þessar 89-99-109-115-129-143 lykkjur, haldið áfram með A.3 yfir næstu 16-16-16-22-22-22 lykkjur eins og áður, prjónið 89-99-109-115-129-143 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 27-26-31-34-35-39 lykkjur jafnt yfir þessar 89-99-109-115-129-143 lykkjur, haldið áfram með A.3 yfir þær 8-8-8-11-11-11 lykkjur sem eftir eru eins og áður = 264-282-312-342-372-408 lykkjur. Lykkjum er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm og passið uppá að stroffið haldi áfram fallega yfir A.3 í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (fellið af með grófari prjón til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur). Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 65-73-79-87-89-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 73-81-91-99-103-107 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-14-16 lykkjurnar. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og umferðin byrjar við prjónamerkið.
Prjónið A.3 mitt undir ermi (prjónamerkið situr mitt í A.3), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 2-2-1-1-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 1½-1-1-1-1-1 cm millibili alls 6-9-13-12-12-13 sinnum = 61-63-65-75-79-81 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 13-13-15-14-14-15 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – sjá ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 8-7-6-7-5-4 sinnum = 77-77-77-89-89-89 lykkjur.
Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 25-24-22-22-20-19 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis).
Útaukningum er nú lokið og gatamynstur neðst á ermum byrjar hér. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.3 eins og áður yfir fyrstu 8-8-8-11-11-11 lykkjur, prjónið 0-0-0-3-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 yfir næstu 60 lykkjur (= 5 mynstureiningar í öllum stærðum með 12 lykkjum), prjónið 1-1-1-4-4-4 lykkjur sléttprjón og endið með A.3 yfir þær 8-8-8-11-11-11 lykkjur sem eftir eru eins og áður.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist ermin ca 28-27-25-25-23-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón og A.3 eins og áður þar sem aukið er út um 19-19-19-25-25-25 lykkjur jafnt yfir þær 61-61-61-67-67-67 lykkjur sem ekki er stroff = 96-96-96-114-114-114 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón/stuttan hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) og passið uppá að stroffið haldi fallega áfram yfir A.3 mitt undir ermi. Þegar stroffið mælist 2 cm er aukin út önnur hver af 2 lykkjum brugðið yfir í 3 lykkjur brugðið = 112-112-112-133-133-133 lykkjur. Þegar storffið mælist 4 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru yfir í 3 lykkjur brugðið 128-128-128-152-152-152 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 34-33-31-31-29-28 cm frá skiptingu (stroffið mælist ca 6 cm). Skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.10.2019
Nýr texti undir mynsturteikningu á kúlu
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
Tákn 8 og 9 í mynsturteikningu hafa skipt um stað (ekki mynsturtexti)

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kúla: Prjónið í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt = 5 lykkjur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur (1. umferð = ranga).
Steypið síðan (frá réttu) 4. lykkju yfir 5 lykkju, steypið 3. lykkju yfir 5. lykkju, steypið 2. lykkju yfir 1 lykkju og steypið 1. lykkju yfir 5. lykkju (= 1 lykkja eftir).
symbols = Útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Riia Leppämäki wrote:

Hei! En ymmärrä miten piirroksen A.1 rivi 9 pitäisi neuloa. Kuvio ei kohdistu oikein jos jatkan kerroksen vaihtumiskohdasta

16.10.2023 - 09:05

DROPS Design answered:

Tällä rivillä aloitetaan neulomalla seuraavasti: 1 langankierto, nosta 1 silmukka oikein neulomatta. neulo 2 silmukkaa oikein yhteen, vedä nostettu silmukka kavennuksen yli, 1 langankierto.

18.10.2023 - 16:48

country flag Margit wrote:

A.1 rida 25,27 ja 29. Kas need kolmnurkadega sümbolid ei praks vastupidi olema? Järgmiste ridade parempidised silmused muidu ei klapi ju.

06.02.2022 - 19:12

DROPS Design answered:

Tere Margit! Antud juhendis on need pandud niipidi, aga alati võib teha nii nagu omale rohkem meeldib. Head kudumist!

08.03.2022 - 22:33

country flag Guinevere Phaneuf wrote:

On row 8 of chart A.1 it say to yarn over slip one then knit two together pass slip stitch over. But on next row there are to many stitches.

15.08.2021 - 14:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Phaneuf, start row 9 in A.1 2 sts before the end of the round and work: YO, slip 1 as if to K, K2 tog, YO, P4, YO, K1, YO, P4 = 14 sts (2 sts increased in each A.1). On next round, work: P5, K3, P6 = 14 sts. Hope this will help, happy knitting!

16.08.2021 - 08:50

country flag Pichard wrote:

Bonjour je suis en train de faire le modele mais i doit avoir une erreur pour les augmentation je fait la grande taille avant de commence la feuille j ai 240 mile t coment obtenir apres la fin de la feuilles 440 maille sans avoir fait des augnntation

05.10.2020 - 10:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pichard, dans la grande taille, vous tricotez 20 fois A.1 en largeur (= 20 fois 12 mailles = 240 mailles. Quand le diagramme A.1 est terminé, vous avez 22 mailles x 20 fois = 440 mailles. Vous trouverez ici comment lire un diagramme si besoin. Bon tricot!

05.10.2020 - 11:44

country flag BEAUCLAIR wrote:

Bonjour. Est il possible de faire le modèle à deux aiguilles au lieu de l'aiguille circulaire avec laquelle je ne suis pas à l'aise,merci de votre réponse. Cord

07.09.2020 - 10:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Beauclair, vous trouverez comment adapter un modèle sur aiguilles droites ici. Bon tricot!

07.09.2020 - 10:24

country flag Hanne wrote:

Hej. Hvordan tænker I, at man skal strikke A3 over blot 8 masker på ærmet, når A3 går over 16 masker? Venlig hilsen, Hanne

07.04.2020 - 21:28

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Du har satt en merketråd midt under ermet. Merketråden markerer midt under ermet og omgangen starter ved merketråden. Når du skal strikke etter A.3 avpass slik at du starter midt i A.3, slik at du strikker 4-6-6-7 -8 masker av A.3, deretter glattstrikk og så strikkes det etter A.3 igjen, enten 4-6-6-7 -8 masker. God Fornøyelse!

15.04.2020 - 14:14

country flag Mello wrote:

Hi, I am currently knitting this beautiful jumper, however do you have the cables in the pattern the wrong way round?

28.08.2019 - 15:38

DROPS Design answered:

Dear Mello, not sure what you are meaning here, the small cables over 2 stitches (= 8th and 9th symbols) are worked as explained under diagram key. Should this help you? Happy knitting!

28.08.2019 - 16:43

country flag Elena wrote:

Hei. Har dere oppskrifter på russisk?

21.07.2019 - 23:37

DROPS Design answered:

Hei Elena, Dessverre har vi ikke fått oversatt oppskriftene til russisk ennå. Vennlig hilsen, DROPS-teamet.

22.07.2019 - 07:35

country flag Karin wrote:

Jag undrar om beskrivningarna för de vridna maskorna på rad 25, 27, 29 har blivit omkastade. Som de är ritade borde det var tvärt om (räta maskan på vänstersidan ska luta åt höger och vice versa), och det borde även se bättre ut (som en sammanhängande gren), men beskrivningen ger ju motsatt effekt.

11.07.2019 - 20:28

country flag Hochet Valérie wrote:

Bonjour à toute l'équipe Je réalise la première manche en taille M, et j'en suis après les 7 x augmentations, j'ai doc bien 77 mailles. Seulement je ne comprends pas la suite, car je ne retrouve ^pas le bon nombre de mailles, soit 77. d'après vos explications, je dois faire : 4 m de A3, 60 m de A4 (15m x 5 dessins), 1m, 4m de A3 = 4 +60+1+4= 69 m au lieu de 77 m Pouvez vous m'aider s'il vous plait. Cordialement.

29.04.2019 - 22:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hochet, on tricote A.3 au-dessus des 8 premières mailles et des 8 dernières mailles, A.3 = 16 m du milieu sous la manche, vous tricotez ainsi les 16 m de A.3 comme avant, puis 5 x A.4 (= 60 m ) et 1 m jersey = 8 (= les 8 dernières m de A.3 = début du tour) + 60 + 1 + 8 (= les 8 premières m de A.3 = fin du tour) = 77 m. Bon tricot!

30.04.2019 - 10:02