DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wednesday Mood

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Puna eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-30
DROPS Design: Mynstur pu-027
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 04, grábrúnn

Eða notið:
DROPS Daisy frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 11, ljós nougat

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 27,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 27. og 28. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppsláturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Fram- og bakstykki skiptist við klauf, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-115-120-125-135-145 lykkjur á hringprjón 3,5 með Puna eða Daisy. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-7-10-9-11-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 114-122-130-134-146-162 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18-22-26-28-34-42 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 19 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 19 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18-22-26-28-34-42 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 19 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 19 lykkjur).
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í annarri hverri umferð alls 24-27-30-33-36-39 sinnum = 306-338-370-398-434-474 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið mælist stykkið ca 17-19-21-24-26-28 cm. Prjónið síðan mynstur og sléttar lykkjur, en án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-24-26-29 cm (stillið af að næsta umferð í mynstri sé prjónuð með sléttum lykkjum).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 75-85-95-103-115-129 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 69-75-81-87-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-94-104-112-124-138 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 69-75-81-87-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 9 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-204-224-240-264-292 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út.
Haldið áfram hringinn og prjónið A.2 (= 26 lykkjur) yfir 8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum og 9 lykkjur hvoru megin við þær (þ.e.a.s. 13 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 7½ cm. Haldið síðan áfram hringinn með sléttum lykkjum og í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út svona með 3 cm millibili alls 3 sinnum = 196-216-236-252-276-304 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 16-16-16-17-17-16 cm. Nú skiptist stykkið í fram- og bakstykki og stykkin eru prjónuð til loka fram- og til baka hvort fyrir sig. Setjið 98-108-118-126-138-152 lykkjur á milli prjónamerkja í hliðum á 1 band fyrir framstykki. Prjónið bakstykkið þannig:

BAKSTYKKI:
= 98-108-118-126-138-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 23-23-23-24-24-23 cm er aukið út um 30-30-30-37-40-41 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 128-138-148-163-178-193 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir garðaprjón.
Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið svona stroff í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 4. Öll peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

FRAMSTYKKI:
= 98-108-118-126-138-152 lykkjur. Setjið til baka lykkjur á hringprjón 4 og prjónið alveg eins og bakstykki.

ERMI:
Setjið 69-75-81-87-93-99 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-89-95-101-107 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað síðar þegar lykkjum fækkar mitt undir ermi. Prjónið A.3 (= 28 lykkjur) mitt undir ermi (þ.e.a.s. 14 lykkjur af A.3 hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi). Aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar slétt. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 18 lykkjur = 59-65-71-77-83-89 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með sléttum lykkjum og í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur undir ermi. Haldið síðan áfram hringinn með sléttum lykkjum og í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 10.-7.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 7-9-11-13-15-17 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum þar til ermin mælist 37-35-34-33-32-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-8-6-9-7-10 lykkjur jafnt yfir = 50-55-55-60-60-65 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 4.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2019
Mynsturteikning A.3 hefur verið uppfærð: Leiðrétting á lykkjufjölda á eftir úrtöku í umferð 3 + brugðnum lykkjum bætt inn í umferð 19 og 20

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Pia wrote:

A.2 skal det diagram læses oppefra og ned eller nedfra og op.

26.03.2024 - 17:54

DROPS Design answered:

Hej Pia. Det skal læses nedfra og op. Mvh DROPS Design

27.03.2024 - 14:02

country flag Diana wrote:

Hallo,in der Anleitung steht,nach den letzten Raglanzunahmen hat die Arbeit eine Lävon 26cm ( Gr.Xxl) .Es soll weiter gearbeitet werden,bis die Arbeit eine Länge von 26cm hat. Heisst das,ich beginne gleich mit dem Rumpfteil?

11.02.2024 - 18:50

DROPS Design answered:

Liebe Diana, in diese Größe wird die Arbeit nach der letzten Zunahmen verteilt, Viel Spaß beim stricken!

12.02.2024 - 09:07

country flag Vicki Hood wrote:

I\'m on the part of A.2 chart. Just starting. What does the black square on space 14, on A.12 chart mean? Is this a knit or purl.? Pattern is very confusing.

04.06.2023 - 05:16

DROPS Design answered:

Dear Vicki, the black square represents an empty space. On the first round of A.2, you decrease 1 stitch; this black square would represent the position of the decreased stitch. Since it has been decreased already, when working the chart, simply ignore this symbol and go to the next symbol of the chart (you don't need to skip any stitches). Happy knitting!

04.06.2023 - 17:44

country flag Vicki Hood wrote:

Problem with the YOKE. I worked the first round of the RAGLAN. But having a problem with the following: "Continue this pattern and increase every 2nd round a total of 24-27-30-33-36-39 times = 306-338-370-398-434-474 stitches." Looking at the A-1 Chart, and What would be every 2nd round on the Chart? 1st row is the knit purl purl knit etc. 2nd row knit purl purl knit etc, 3rd row is a knit row then it repeats. On what row is considered "every 2nd round" ?

26.03.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Hi Vicki, The first increases for raglan are worked on the first (bottom row) of diagram A.1. The 2nd set of increases will be on row 3, the third on row 5, etc, so every other row in the diagram. Happy knitting!

27.03.2023 - 06:50

country flag Hansson wrote:

Tycker mycket om Drops och alla lektioner som lärt mig sticka! Tack😀 MEN varför visar ni inte foto med baksidan av tröjorna också, det skulle underlätta mycket för mig att förstå mönstret lättare då.

02.09.2022 - 09:59

country flag Theresa wrote:

I am working on the first size. Please could you help me with marking the Raglan increases in the first round. I am confused as to where to place the markers . Kind regards Theresa

26.04.2021 - 20:58

DROPS Design answered:

Dear Theresa, before you start knitting, it helps, if you take a colored pen, and whenever you see a string of numbers cisrcle the number corresponding to the size you knit (if you are making the smallest size, that should be the first number, everywhere). Increases are done on both side of each pattern A.1. If you need markers to see where you at, when you follow the first round for the raglan increases, put a marker before and after A.1. Happy Knitting!

26.04.2021 - 23:13

country flag Inger Marie Greger Huun wrote:

Mønster A.3 Går utfra at der hvor symbol for felling u arm møtes er midt under ermet, og for hver gang felles d 2 masker. Jeg får ikke mønsteret til å stemme videre oppover. - Ser at det er forsøkt å beskrive en korrigering. Den skjønner jeg ikke noe av! Mvh Inger Huun

24.02.2021 - 21:15

DROPS Design answered:

Hej Inger, jo men det er allerede korrigeret i diagrammet, så følger du diagrammet så bliver det korrekt. God fornøjelse!

26.02.2021 - 08:28

country flag May-britt Dalgaard wrote:

Første del af bærestykke, jeg har 134 masker på pinden i str. Xl men følger jeg hvad der står i opskriften bliver det til 132 masker når der er strikket 4xa1 + 2 x 28 masker så er en smule forvirret.

28.07.2020 - 14:51

DROPS Design answered:

Slå om, 28 ret (= bagstykke), slå om, strik A.1 (= 19 masker), slå om, 1 ret (= ærme), slå om, strik A.1 (= 19 masker), slå om, 28 masker ret (= forstykke), slå om, strik A.1 (= 19 masker), slå om, 1 ret (= ærme), slå om, strik A.1 (= 19 masker) = 134 m + 8 omslag. God fornøjelse!

04.08.2020 - 13:16

country flag Maja wrote:

Hej, jeg vil gerne strikke blusen i en anden garn, som giver 19m pr 10 cm. På grund af garnets kvalitet, viljeg ikke går ned i pinde str, men vil høre om det kan anbefaldes, at jeg strikker blusen i størrelse S isf M? Mange tak, Maja

29.04.2020 - 09:48

DROPS Design answered:

Hej Maja, ja det kan du gøre, eller så vælger du en bluse med raglan som er lavet til 19 masker :) DROPS 202-8

29.04.2020 - 10:07

country flag Monika wrote:

Czy pierwszy ściągacz ten przy szyji nie powinno być jedno oczko lewe i 3/2 prawe? Zdaje się, że jest błąd w tłumaczeniu?

18.01.2020 - 21:06

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, faktycznie był tam błąd: powinien być ściągacz: 3 oczka prawe / 2 oczka lewe (poprawione we wzorze). Dziękujemy i pozdrawiamy!

20.01.2020 - 09:28