DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Romance

Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.

DROPS 188-22
DROPS Design: Mynstur w-698
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 16, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LASKALÍNA:
Aukið út um 8 lykkjur í umferð.
Á bakhlið og ermum er útaukning teiknuð inn í mynsturteikningu A.1 og A.3.
Á framstykki er aukið út þannig:
Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á undan prjónamerki: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki er staðsett hér.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat!

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 13,7.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 14. hverja lykkju.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Gatamynstur er prjónað á ermum og bakstykki. Framstykki er prjónað í sléttprjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 82-85-88-92-95-99 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Paris.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-3-0-8-17-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 88-88-88-100-112-112 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptingu á milli bakstykkis og vinstri ermi), setjið eitt prjónamerki á eftir nýjar 31-31-31-37-43-43 lykkjur (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki á eftir 13 nýjar lykkjur (= hægri ermi), setjið eitt prjónamerki á eftir nýjar 31-31-31-37-43-43 lykkjur (= framstykki), nú eru 13 lykkjur eftir á vinstri ermi.
Prjónið mynstur þannig: 1 lykkja slétt, A.1 (= 2 lykkjur), A.2 yfir næstu 24-24-24-30-36-36 lykkjur (= 4-4-4-5-6-6 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur), A.3 (= 3 lykkjur), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 29-29-29-35-41-41 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur), A.3 (= 3 lykkjur), 1 lykkja slétt (prjónamerki í byrjun á umferð er hér). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstrið hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-20-22-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem útskýrð var að ofan = 224-248-264-292-320-336 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar fyrir laskalínu og umferð með ör í þinni stærð í A.1-A.1 er lokið mælist stykkið ca 16-19-21-23-25-26 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt framan á topp.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið næstu umferð í mynsturteikningu (= umferð með sléttum lykkjum) yfir fyrstu 65-71-75-85-95-99 lykkjur, setjið næstu 47-53-57-61-65-69 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttprjón eins og áður yfir næstu 65-71-75-85-95-99 lykkjur, setjið næstu 47-53-57-61-65-69 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í hlið undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 146-158-170-190-214-226 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Byrjið umferð í vinstri hlið og haldið áfram með mynstur hringinn þannig: 6-3-6-2-5-2 lykkjur slétt, haldið áfram með A.2 yfir næstu 60-72-72-90-96-108 lykkjur (= 10-12-12-15-16-18 mynstureiningar með 6 lykkjum), 7-4-7-3-6-3 lykkjur slétt (prjónamerki í hlið er hér), prjónið sléttar lykkjur yfir 73-79-85-95-107-113 lykkjur á framstykki. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 17 sinnum = 214-226-238-258-282-294 lykkjur. JAFNFRAMT í hvert skipti sem aukið hefur verið um 6 nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri á breiddina á bakstykki. Á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar slétt. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-35-36 cm skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.
Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
= 47-53-57-61-65-69 lykkjur. Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 55-61-67-71-77-83 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir ermum og prjónið mynstur í hring þannig: 0-3-0-2-5-2 lykkjur slétt, A.2 alls 9-9-11-11-11-13 sinnum (ATH: Passið uppá að mynstrið á ermi haldið áfram eins og áður og að byrjað sé í sléttri umferð í mynstri), 1-4-1-3-6-3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Evelyne Louaked wrote:

Bonsoir,je tricote la taille S du modèle.je suis arrivée à l exécution du dos/devant faut il tricoter A2 sur 60m.a partir du 1er rang du motif ou continuer après la flèche ? Par avance je vous remercie

18.04.2023 - 23:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Louaked, continuez A.2 comme avant, autrement dit, tricotez le rang ajouré suivant après la flèche et quand A.2 est terminé en hauteur, reprenez-le au 1er rang. Bon tricot!

19.04.2023 - 07:59

country flag Céline Francoeur wrote:

Bonjour j'ai suivi les instructions pour le premier et deuxième tour et j'arrive tel qu'indiqué. par contre au 3ième tour à la fin il reste plus qu'une maille à la fin du tour...j'ai fait tel qu'indiqué et quand j'arrive au dernier A3, il devrait rester une maille à tricoter endroit mais j'en ai plus? Je fais quoi? j'ai fait une endroit, A1 et une autre endroit...Je suis confuse. Merci

03.04.2022 - 14:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francoeur, difficile de vous dire ce qui s'est passé, essayez de placer des marqueurs pour bien délimiter chaque diagramme sur votre aiguille, ainsi, vous pourrez vérifier le nombre de mailles de A.1 (=3 m après le 1er rang) et de A.3 (= 4 m après le 1er rang) et de A.6 - vous devez toujours avoir 2 mailles endroit entre chaque pièce/partie = mailles des raglans, et vous augmenterez de chaque côté de ces 2 mailles endroit (vous commencez toujours le tour par 1 m endroit et le terminez par 1 m endroit). Bon tricot!

04.04.2022 - 09:58

country flag Maili911 wrote:

This is a follow up to my previous question. From the point where the last round on the yoke ends to the "front" of the piece, there are only 106 stitches. Pattern states to start body on left side for a total of 113 stitches. If I start first body round at this point, after casting on second underarm stitches, it will run into the "front" of the piece by 7 stitches. Then, all stitches under right arm (14) will be in pattern, while stitches under left arm (14) will be stockinette.

29.03.2021 - 13:58

DROPS Design answered:

Dear Maili911, you can cut the yarn and start round as explained so that you will have 113 sts for each back and frpnt piece. Happy knitting!

06.04.2021 - 08:58

country flag Maili911 wrote:

Yoke final round ends after added cast on stitches on transition between left sleeve and back. Pattern indicates body starts on left side after marking front and back in the middle of added cast on stitches under each sleeve. What do I knit from end of yoke to middle point under left sleeve to start knitting body as per pattern, stockinette?

29.03.2021 - 00:52

DROPS Design answered:

Hi Maili, You continue in the round from where you are after casting on the stitches under the left sleeve. The markers are there for when increasing stitches under the sleeve later. Happy knitting!

29.03.2021 - 07:50

country flag Maili911 wrote:

Yoke final round ends at transition between left sleeve and back. Do I just do plain knitting to get past left sleeve middle marker to start knitting the body as per pattern (on left side)?

29.03.2021 - 00:31

DROPS Design answered:

Dear Maili911, last round on yoke end with front piece (= stocking stitch) + the new sts cast on mid under 2nd sleeve, then join in the round and continue as explain under BODY. Happy knitting!

06.04.2021 - 08:40

country flag Lene wrote:

Forstår ikke opskriften. Efter at have sat mærker i efter halsen. Skal mønster begynde ved de 13 masker, eller ved omg start? og A2 over de næste 24 masker 4 gange?? som jeg ser det vil det betyde hulmønster over forstokket også, men på billedet er der kun mønster på ærmerne?? skal diagrammerne komme lige efter hinanden eller hvordan?

15.07.2020 - 06:44

DROPS Design answered:

Hej Lene, Du starter ved ærmet og strikker mønsteret A2 over ærmet, A1 og A.3 er selve raglanudtagningerne som strikkes i hver overgang. God fornøjelse!

30.07.2020 - 14:21

country flag Dagmar wrote:

How come the diagram explanation doesn’t show the stitches, I see blank squares where it should show how to knit stitches together

19.02.2020 - 15:22

DROPS Design answered:

Dear Dagmar, this lesson about knitting diagrams should help you to understand how to read diagrams. Happy knitting!

19.02.2020 - 16:14

country flag Rikke wrote:

Hei Jeg strikker i str S, og jeg får ikke første økningene til raglan til å stemme på maskmakørene. Jeg treffer ikke på dem slik oppskriften tilsier. Jeg har en maske for lite. Er det en feil her i oppskriften, eller er det bare jeg sm driver å gjør feil? :)

13.01.2019 - 00:11

DROPS Design answered:

Hei Rikke. Du har 88 masker på pinnen, fordelt slik med merker mellom, 31 (bakstykke), 13 (erme), 31 (forstykke), 13 (erme). Du strikker bakstykket slik: 1 rett, A.1 (2 m), A.2 over 24 m, A.3 (3 m), 1 rett (merket sitter etter denne) = 31 m + 2 kast. Ermet strikkes slik: 1 rett, A.1, A.2, A.3, 1 rett (merket sitter etter denne) = 13 m + 2 kast. Forstykket: 1 rett, 1 kast, 29 rett, 1 kast, 1 rett (merket sitter etter denne) = 31 m + 2 kast. Siste erme strikkes som det første. Du har strikket over alle 88 m, og du har også økt 8 masker til raglan. God fornøyelse

16.01.2019 - 11:22

country flag Toni wrote:

Hi, this is a first time attempting a drops design pattern. I've inserted my marker threads but am now stuck at readingredients what to do next. Could someone explain it me please?

15.10.2018 - 14:25

DROPS Design answered:

Dear Toni, when the marker are inserted, work next round as follows: K1, A.1 (= 2 stitches), A.2 over the next 24-36 sts (see size = 4-6 repetitions of 6 sts), A.3 (= 3 sts), K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), A.1 (= 2 sts), A.2 (= 6 sts), A.3 (= 3 sts), K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), 1 YO, K 29-41 sts, 1 YO, K2 (marker thread is in the middle of these 2 sts), A.1 (= 2 sts), A.2 (= 6 sts), A.3 (= 3 sts), K11 (marker thread at beginning of round is here) = you have increased for the raglan for the first time, continue increasing as under RAGLAN every other round. Happy knitting!

15.10.2018 - 15:59