DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 179-22
DROPS Design: Mynstur fa-388
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf DROPS Fabel ca:
200 g litur nr 602
100 g litur nr 901
100 g litur nr 911

SJAL:
Mál:
Mælt meðfram miðjulykkju ca 70 cm.
Mælt meðfram kanti efst ca 164 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki A)
100 g litur 911, lautarferð
100 g litur 901, candy
150 g litur 602, silfur refur

FINGRAVETTLINGAR:
Stærð: S/M - L/XL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki A)
50-50 g litur 911, lautarferð
50-50 g litur 602, silfur refur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 39 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

RENDUR-1 (á við um sjal):
Fyrsta umferðin í hverri rönd er frá réttu.
RÖND 1: Prjónið 12 umferðir garðaprjón með litnum silfur refur.
RÖND 2: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum silfur refur, 2 umferðir garðaprjón með litnum candy *, prjónið frá *-* í 10 cm, mælt meðfram miðju lykkju, stillið af að endað sé á 2 umferðum garðaprjón með litnum candy.
RÖND 3: Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum silfur refur, 2 umferðir garðaprjón með litnum lautarferð *, prjónið frá *-* í 0 cm, mælt meðfram miðjulykkju, passið uppá að endað sé með 2 umferðum garðaprjón með litnum lautarferð.
Endurtakið rönd 2 og rönd 3 þar til stykkið mælist 40 cm, mælt meðfram miðjulykkju.
Prjónið rönd 1 einu sinni til viðbótar.
Endurtakið rönd 2 og rönd 3 þar til stykkið mælist 67 cm, mælt meðfram miðjulykkju.
Prjónið rönd 1 einu sinni til viðbótar.

RENDUR-2 (á við um fingravettlinga):
Fyrsta umferðin í hverri rönd er frá réttu.
RÖND 1: Prjónið * 2 umferðir með litnum lautarferð, prjónið 4 umferðir með litnum silfur refur *, prjónið frá *-* í 8 cm, stillið af að síðasta röndin sé með litnum lautarferð.
RÖND 2: Prjónið * 2 umferðir með litnum silfur refur, prjónið 2 umferðir með litnum lautarferð *, prjónið frá *-* til loka.

ÚTAUKNING (á við um fingravettlinga):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur.
Prjónað er ofan frá og niður með GARÐAPRJÓN og RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum silfur refur.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 5 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju = miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 9 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkju fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur fram þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 13 lykkjur.
Endurtakið umferð 4 og 5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka á hæðina mælist stykkið ca 78 cm, mælt meðfram miðjulykkju. Fellið laust af. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í ytri kant í lokin.

HÆGRI FINGRAVETTLINGUR:
Fitjið upp 64-72 lykkjur á 2 prjóna nr 2,5 með litnum silfur refur (þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Dragið út annan prjóninn og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með litnum silfur refur. Prjónið síðan stykki í RENDUR-2 – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan stroff í næstu umferð frá réttu: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 11-12 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú allar 2 lykkjur brugðið saman í 1 lykkju brugðið = 49-55 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón til loka.
JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 7-5 lykkjur jafnt yfir = 42-50 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í 20. – 24. lykkju í umferð (séð frá réttu).

ÞUMALL:
Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 lykkju fyrir þumal hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 4. hverri umferð 2-3 sinnum til viðbótar = 7-9 þumallykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20 cm eru 7-9 þumallykkjur settar á þráð. Fitjið síðan upp 1 nýja lykkju aftan við þumallykkjur = 42-50 lykkjur, haldið áfram í garðaprjóni eins og áður.
Þegar stykkið mælist 22-24 cm eru miðju 34-40 lykkjur settar á þráð og litli fingur er prjónaður yfir 8-10 lykkjur sem eru eftir á prjóni (setjið lykkjur saman þannig að saumurinn verði yst í hlið á hönd, ekki í hlið að þumli). Hver fingur er nú prjónaður til loka fyrir sig í garðaprjóni, fram og til baka.

LITLI FINGUR:
Aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 11-13 lykkjur. Þegar fingurinn mælist ca 5-7 cm eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.
Setjið til baka 34-40 lykkjur af þræði á prjóninn. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur og setjið til baka miðju 23-27 lykkjur á þráð.

BAUGFINGUR:
Setjið til baka 11-13 lykkjur næst hvorri hlið á litla fingri á prjóninn og aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 14-16 lykkjur. Þegar fingurinn mælist ca 7,5-9 cm eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

LANGATÖNG:
Setjið ystu 6-7 lykkjur í hvorri hlið af þræði á prjóninn og aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 15-17 lykkjur. Þegar fingurinn mælist ca 7,5-9 cm eru lykkjurnar prjónaðar saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

VÍSIFINGUR:
Setjið þær 11-13 lykkjur sem eftir eru á prjóninn og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 15-17 lykkjur. Þegar fingurinn mælist ca 6-,75 cm eru lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

ÞUMALL:
Setjið til baka 7-9 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 7-9 lykkjur aftan við þessar lykkjur = 14-18 lykkjur. Prjónið garðaprjón í ca 5,5-6 cm, síðan eru lykkjur prjónaðar saman 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið fingurna kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið vettlinginn saman í hlið innan við 1 lykkju í garðaprjóni.

VINSTRI FINGRAVETTLINGUR:
Prjónið eins og hægri, nema spegilmynd, þ.e.a.s. setjið 1 prjónamerki í 18.- 22. lykkju í umferð og aukið út fyrir þumal hvoru megin við merkið.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Mireille wrote:

Bonjour J’aimerai faire le châle mais je ne comprends la partie 5, et aussi comment peut-on n’avoir que 2 trous au centre si on fait 4 jetés sans les tricoter torse au retour ?

23.08.2023 - 08:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, entendez-vous "rang" 5 pour "partie" 5? Si tel est le cas, au rang 5, vous allez augmenter 4 mailles en faisant 1 jeté à 1 maille des bords de chaque côté (après la 1ère maille et avant la dernière maille du rang) + 1 maile de chaque côté de la maille centrale. Les seuls jours visibles sur la photo sont ces derniers, ceux de chaque côté ne seront pas vraiment visibles car ils se trouveront en haut du châle sur l'envergure. Bon tricot!

23.08.2023 - 09:57

country flag Hannelore Müller wrote:

Meine Freundin wünscht sich von mir ein Tuch gestrickt aus dickerer Wolle. Wenn ich dieses Tuch aus Modell 179-22 als Muster nehme, welche Wolle würden Sie mir vorschlagen und wieviel benötige ich dafür?

07.12.2022 - 00:50

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, je nach Maschenprobe und Wolle wird es unterschiedlich sein, hier finden Sie alle unsere Tücher, kraus rechts gestrickt - gerne können Sie extra filtern (kraus rechts weglassen, neue Filtern wählen, Garngruppe wählen usw). Viel Spaß beim stricken!

07.12.2022 - 08:16

country flag Kristina Boberger wrote:

Hej. Beställde två stick-sett, med garn o mönster från er, via nätet,av Garnius. Men när dom kom var hela beskrivningen på norska! Hopplöst för mig att använda! Trots att jag betalat 40 kr st ,för textat på svenska. Företaget hänvisar till er o tycker att jag annars kan hitta en svensk text på nätet. Men där jag bor saknas ofta täckning o jag föredrar faktiskt på papper! Kan ni hjälpa mig? Gäller mönster DROPS 195-5 och DROPS 196-10

02.07.2021 - 13:36

DROPS Design answered:

Hei Kristina. Alle våre oppskrifter finner du GRATIS på nett, på mange språk. Om du ønsker 195-5 og 196-10 på svensk er det bare å velge svensk som språk på vår hjemmeside og deretter skrive ut sidene. Bare husk å klikk på SKRIV UT ikonet. mvh DROPS design

05.07.2021 - 14:08

country flag France wrote:

Peut on avoir le patron en français il est très joli merci le chale

02.06.2019 - 16:47

DROPS Design answered:

Bonjour France, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur la flèche du menu déroulant sous la photo pour sélectionner "français". Bon tricot!

03.06.2019 - 10:53

country flag G. Rischar wrote:

Ich habe nun den ganzen Abend an der Beschreibung rumgerätselt und komme nicht dahinter, wie zum Schluss der graue Rand entsteht. Und muss ich die Umschläge verschränkt abstricken? Vielen Dank für ihre Antwort! Vielen Grüße, G.R.

19.10.2018 - 02:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rischar, die grauen Streifen entsehen durch die Streifen mit Farbe 602, Silver Fox - siehe STREIFEN-1 (gilt für das Tuch) - Die Umschläge bei dem Tuch werden nicht verschränkt gestrickt, damit Löcher enstehen. Viel Spaß beim stricken!

19.10.2018 - 08:45

country flag Markéta wrote:

Dobrý den, prosím vás, jak se u vzoru šátku pletou krajová oka? Vzorek šátku začíná na tři oka...je to včetně krajových ok ? děkuji za odpověď Markéta

29.08.2018 - 14:55

DROPS Design answered:

Dobrý den, Markéto, ano, oka jsou uváděna všechna, která vidíte na jehlici, tj. včetně krajových. Krajová oka pleteme v lícových i rubových řadách hladce. Hodně pohody při pletení! Hana

31.08.2018 - 07:49

country flag Angela wrote:

Ho iniziato a fare questo scialle, ma mi sembra che il lavoro non venga "piano" sembra quasi un cappello; un'amica mi ha detto di aumentare i m per parte anche nei ferri pari; quindi la sequenza delle maglie diventerebbe F1=5maglie, F2=7 maglie, F3=11m, F4 13 m eccetera. Dove sbaglio ? grazie

29.03.2018 - 18:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Angela, non ci sono errori nelle spiegazioni del modello e si aumenta solo sul diritto del lavoro. Tenga presente che la lavorazione dello scialle parte dal bordo superiore e non dalla punta. Se preferisce può mandare una mail a italian@garnstudio.com con la foto del suo lavoro. Buon lavoro

30.03.2018 - 14:04

country flag Pia Anderberg wrote:

Hej! I mönstret till sjalen Autumn Joy står det att det är färgerna "picknick" och "candy" (+ silver fox). Kan det vara riktigt? Det finns ju gult i Candy och jag ser inte alls något gult på bilden. Jag frågar för jag tycker färgerna på bilden är så vackra. Skulle gärna vilja sticka i just den kombinationen. Tack. Vänligen Pia

27.03.2018 - 15:01

DROPS Design answered:

Hej, färgerna på bilden stämmer med dem som anges i mönstret. Ibland kan färgerna avvika från det riktiga beroende på skärm och skärminställningar.

18.04.2018 - 17:38

country flag Katarina wrote:

Hej! I svar till Camilla står det: du startar nederst på sjalen, men i beskrivningen startar man uppifrån (vilket är rätt)

24.01.2018 - 19:04

country flag Camilla wrote:

Hej Det står inget om hur många maskor man ska lägga upp inte heller när man ska avmaska eller öka!! Hur gör jag??? Med vänlig hälsning, Camilla

26.09.2017 - 15:06

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Når det gjelder sjalet står det slik i oppskriften: SJAL: .... Lägg upp 3 maskor på rundsticka 4,5 med silver fox. VARV 1 (= rätsidan): Sticka 1 rätmaska, 1 omslag, 1 rätmaska, 1 omslag och 1 rätmaska = 5 maskor. VARV 2 (= avigsidan): Stickas rätt....osv Du starter nederst på sjalet og strikker som en slags trekant. Du legger opp 3 masker og øker allerede med 2 masker på 1. rad, så øker du på annenhver rad (se oppskriften for nærmere forklaring). Når arbeidet måler ca 78 ( målt langs midtmasken) feller du løst av. God Fornøyelse!

27.09.2017 - 09:01