DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Petronella Top

Prjónaður toppur með laskalínu og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-32
DROPS Design: Mynstur r-707
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 20, ljós mynta

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út í annarri hverri umferð þannig:
Aukið svona út á undan prjónamerki:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki.
Aukið svona út á eftir prjónamerki: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt.

Aukið út í 4. hverri umferð þannig:
Aukið ú á undan prjónamerki:
UMFERÐ 1: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki.
UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki. Ekki er aukin út nein lykkja, en gataumferðin heldur áfram eins og áður.

Aukið út á eftir prjónamerki þannig:
UMFERÐ 1: Prjónamerki, prjónið 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Ekki er aukin út lykkja, en gataumferðin heldur áfram eins og áður.
UMFERÐ 4: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt.

ÚRTAKA:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

ÚRTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjóna 4 með Muskat. Prjónið 4 GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: fyrsta prjónamerki eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur (= hálft bakstykki), annað prjónamerki eftir 12 nýjar lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki eftir 38-40-42-44-46-48 nýjar lykkjur (= framstykki), fjórða prjónamerki eftir 12 nýjar lykkjur (= ermi), nú eru eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Byrjið með útaukningu fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er að ofan og prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki og framstykki og A.1 yfir lykkjur á ermum. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Mismunandi er aukið út á framstykki/bakstykki og ermum þannig:

FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umferð 12-15-17-25-30-35 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 7-7-7-4-3-2 sinnum.

ERMAR:
Aukið út í annarri hverri umferð 18-23-27-29-26-25 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-3-2-2-5-7 sinnum.

Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. Útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Eftir næst síðustu útaukningu á ermi (nú eru eftir 4 umferðir), prjónið áfram í garðaprjóni yfir lykkjur á hvorri ermi, lykkjur frá framstykki/bakstykki halda áfram í sléttprjóni eins og áður.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 264-296-320-352-372-396 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), fellið af næstu 56-64-70-74-74-76 lykkjur, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 56-64-70-74-74-76 lykkjurnar, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjurnar (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið síðan þannig: Prjónið hálft bakstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið framstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið hálft bakstykki. Nú eru 168-184-200-224-248-272 lykkjur á fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið áfram í sléttprjóni, en yfir nýjar 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur færri), fækkið með 3 cm millibili alls 4 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-19-19-18-18-19 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri), aukið út með 2 cm millibili alls 6 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 176-192-208-232-256-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-32-32-33-33-32 cm prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum, stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Petronella Top

Anna, Poland

Petronella Top

Veerle, Belgium

Petronella Top

Magda, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (96)

country flag Linda Medhus wrote:

Just below the raglan info there are 2 paragraphs. Increase every 4 round as follows: and Increase as follows, after the marker thread: Is the 1st paragraph for the body and the 2nd paragraph for the sleeve?

02.05.2020 - 22:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Medhus, these both p aragraphs apply to the increases, first it explains how to increase for raglan on every other round, then how to increase for raglan on every 4th round before the marker thread, then how to increase on 4th round after the marker thread. You will increase for body and sleeve first on every other round then on every 4th round. You will increase on each piece (front, back and sleeves) first after the marker (raglan) then before the marker (next raglan). Happy knitting!

04.05.2020 - 12:28

country flag María José Ayala wrote:

Porfavor si pudieran contestar la última pregunta 🙏🙏🙏\r\nMuchas gracias

08.02.2020 - 18:34

country flag María José wrote:

Buen día, después de aumentar cada dos vueltas 12 veces (talla s) en delantero espalda sigo aumentando solo en mangas por 6 veces más, y luego cuando termine estos aumentos en mangas comienzo simultáneamente aumentando cada 4 vueltas? O cuando termine de hacer los aumentos cada dos vueltas de espalda /delantero comienzo inmediatamente cada 4 vueltas? En la foto el raglán no deja de tener agujeros, y si no sigo con los aumentos no quedarán agujeros Muchas gracias

04.02.2020 - 12:03

DROPS Design answered:

Hola Maria Jose. Los aumentos en el raglán se trabajan sin interrupciones, es decir, cuando termines de aumentar cada 2ª vuelta, continuamos aumentando en cada 4ª vuelta. Los aumentos en el cuerpo y en las mangas se trabajan diferente, no se trabajan simultáneamente. La linea de raglán no se interrumpe en ningún momento.

09.02.2020 - 19:26

country flag María José wrote:

En el diagrama A.1 las líneas horizontales representan las vueltas 2,4,6,8 .. etc o es vuelta 1,2,3,4,5,6 ...y terminado A.1 realizar A.2 y luego repetir A.1 y así sucesivamente?

24.01.2020 - 23:23

DROPS Design answered:

Hola María Jose. El diagrama representa todas las filas del patrón vistas por el lado derecho, es decir la fila 1 (= lado derecho) se lee de derecho a izquierda y se trabaja como se presentan los puntos, la fila 2 (= lado revés) se lee de izquierda a derecho y los puntos se trabajan al contrario de lo que ves ( si ves un derecho debes trabajar un revés).

26.01.2020 - 21:02

country flag María José Ayala wrote:

En raglán dice aumentar en 2 da vuelta, y luego en 4ta vuelta, no entiendo como contar las vueltas para hacer raglán, si luego se va repitiendo, o se hace solo una vez, la verdad me confunde un poco las vueltas El delantero/espalda aumentar 12 veces y cada 4 vueltas 7 veces? Soy talla s , porfavor si pudieran explicarme mejor el tema de las vueltas. Gracias

19.01.2020 - 15:58

DROPS Design answered:

Hola Maria José. Los aumentos para el raglán se trabajan como sigue: aumentar cada 2ª vuelta ( es decir, trabajar una vuelta sin aumentos y la siguiente con aumentos) y repetir para la talla S 18 veces en las mangas y 12 veces en el cuerpo (delantero/espalda), después cada 4ª vuelta ( es decir, 3 vueltas sin aumentos y 1 vuelta con aumentos) las veces indicada según el patrón y la talla.

19.01.2020 - 23:36

country flag Iselin wrote:

Hei. Jeg sliter litt med å forstå hva jeg skal gjøre. Det står at jeg skal øke ved hver merketråd hver andre omgang under der det står om erme/raglan. Slik jeg da forstår det skal jeg øke før og etter merketråden, altså tilsammen 8 ganger hver andre runde. Det står også under forstykke og bakstykke at jeg skal øke hver andre omgang. Betyr det før og etter merketråden? For det er jo det jeg allerede skal gjøre når jeg øker for ermet. Eller skal det økes en annen plass?

11.09.2019 - 16:28

DROPS Design answered:

Hej Iselin, det er fordi du skal øke til raglan lidt forskelligt på selve ærmet og på ryg og forstykket. I starten øker du på hver 2.omgang på hver side af alle mærketråde. Men på bolen øker du på hver 4. omgang lidt tidligere end på ærmerne alt efter hvilken størrelse du strikker: FORSTYKKE/BAKSTYKKE: Øk på hver 2.omgang 12-15-17-25-30-35 ganger, deretter på hver 4.omgang 7-7-7-4-3-2 ganger. ERMER: Øk på hver 2.omgang 18-23-27-29-26-25 ganger, deretter på hver 4.omgang 4-3-2-2-5-7 ganger.

02.10.2019 - 12:12

country flag Cori wrote:

I wish I had looked at this pattern before I bought yarn for it. I cannot understand how to read this at all!? What are the diagrams about? Why isn\'t it written with the usual standard abbreviations so it\'s legible? Does anyone have a translation/rewrite to make this clearer/more like a normal pattern? I keep trying to read it and figure it out but I am totally lost. Might have to find something else to do with the yarn, I doubt I can return it because I ordered internationally. Argh.

28.08.2019 - 04:40

DROPS Design answered:

Dear Cori, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and 28.08.2019 - 08:58

country flag Caroline wrote:

I'm stuck at the beginning of this pattern. Knitting size M I've made the 20 stitches evenly, now trying to place my markers, what are the 12 new stiches mentioned for the second and fourth marker. Where are they written in the pattern please?

25.07.2019 - 12:25

DROPS Design answered:

Hi Caroline, after increasing 20 stitches evenly you have 104 stitches in size M. Now you will place 4 marker threads to separate the different parts of your work: starting from mid back count 20 stitches, first marker (mid-back); 12 stitches between the first and second marker = left sleeve; 40 stitches between the second and third marker = front; 12 stitches between the third and fourth marker = right sleeve; and 20 last stitches after fourth marker = mid back (in total 104 stitches in the round). Happy knitting!

25.07.2019 - 18:26

country flag Charlotte B wrote:

Hei. Denne toppen er veldig søt. Har lest gjennom oppskriften og kommentarfeltene. Jeg sliter med beskrivelsen av «øk på hver 2 omg 12-15-17 osv ganger» har vurdert om det er antal masker, men da blir antallet for mange totalt. Kan dere vennligst utdype.

07.07.2019 - 18:15

DROPS Design answered:

Hei Charlotte, Du øker til raglan som beskrevet på toppen av oppskriften; Det økes forskjellige antall ganger på ermene og på for/bak-stykkene som beskrevet. Du øker på begge sider av hvert merketråd slik at det blir 4 masker økt på ermene og 4 masker økt på for/bak-stykkene hver øke-omgang. Håper dette hjelper og god fornøyelse!

08.07.2019 - 07:26

country flag Miriam wrote:

Grazie mille della risposta. Ora mi è chiaro come procedere

28.06.2019 - 21:06