DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Seaside Dream Cardigan

Peysa prjónuð ofan frá og niður með laskalínu, ¾ ermum, gatamynstri og bylgjukanti úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-29
DROPS Design: Mynstur bs-123
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 7402, ljós sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 06, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 - fyrir kanta með garðaprjóni.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir bylgjulaga kant við miðju að framan.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,75. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 8. og 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.1 endar mismunandi eftir stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Allar útaukningar eru gerðar frá réttu!
Byrjið 1 lykkju á undan A.1 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki, prjónið A.1 og aukið út um 2 lykkjur eins og sýnt er í mynsturteikningu, prjónamerki, 1lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir brugðið svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu. Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt.

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagati í fyrstu umferð frá réttu eftir garðaprjón í hálsi. Næstu 6-6-6-6-7-7 eru felld af með ca 8-8-9-9-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 76-80-80-88-92-104 lykkjur (meðtaldar 3 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð eru prjónaðar sléttar lykkjur frá réttu og aukið út um 8-8-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1. JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 84-88-92-100-108-120 lykkjur á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 14-15-16-18-20-23 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur brugðið (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 28-30-32-36-40-46 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 11 lykkjur brugðið (= vinstri ermi), setjið 1 prjónamerki, 14-15-16-18-20-23 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og A.1 á milli prjónamerkja á hvorri ermi. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri – ATH: Útaukningar á ermum eru skrifaðar inn í A.1). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 20-22-24-26-29-30 sinnum.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð eru útaukningar fyrir laskalínu lokið og það eru 244-264-284-308-340-360 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 22-24-26-28-30-31 cm frá öxl og niður.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 37-40-43-47-52-56 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 68-74-80-88-98-106 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 51-55-59-63-69-71 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja = í hlið á fram- og bakstykki) og prjónið þær 37-40-43-47-52-56 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 142-154-170-186-206-226 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4 þegar stykkið mælist 33-33-33-33-33-34 cm frá skiptingu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af – Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.
Setjið 51-55-59-63-69-71 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-8-10 lykkjunum undir ermi = 57-61-67-71-77-81 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – umferðin byrjar hér.
Prjónið síðan þannig: 0-2-1-3 2-0 lykkjur sléttprjón, A.2A (= 4 lykkjur – byrjið á A.2 þar sem A.1 endaði í þinni stærð), A.2B yfir næstu 48-48-56-56-64-72 lykkjur (= 6-6-7-7-8-9 mynstureiningar 8 l), A.2C (= 5 lykkjur) og 0-2-1-3-2-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona alls 8-10-12-13-15-17 sinnum í S: Í 4. hverri umferð, í M: Í 3. hverri umferð, í L + XL: Í annarri hverri umferð, í XXL + XXXL: Í hverri umferð = 41-41-43-45-47-47 lykkjur – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að það passi með fjölda úrtöku og útaukninga í mynstri.
Þegar stykkið mælist 18-16-15-14-12-11 cm frá skiptingu undir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) er skipt yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið aftur yfir á sokkaprjóna 5. Takið frá 1 þráð BabyAlpaca Silk og prjónið 1 umferð slétt með 2 þráðum Kid-Silk. Hver lykkja samanstendur nú af 2 lykkjum þar sem prjónað er með 2 þráðum = 82-82-86-90-94-94 lykkjur. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk þannig: * Prjónið í fyrstu af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið aðra af 2 fyrstu/næstu lykkjum slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 123-123-129-135-141-141 lykkjur á prjóni. Prjónið 5 umferðir slétt. Fellið síðan af þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Setjið lykkjur af þræði í hini hliðinni á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið alveg eins og fyrri ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

BYLGJUKANTUR VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN MEÐFRAM VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu efst við háls á vinstra framstykki (þegar flíkin er mátuð). Notið heklunál 5 og 2 þræði Kid-Silk og prjónið upp 1 lykkju í aðra hverja sléttu lykkju innan við kantlykkjur að neðan meðfram miðju að framan – setjið næstu lykkjur jafnóðum inn á hringprjón 5.
Nú eru 2 lykkjur í hverri lykkju þar sem prjónað er með 2 þráðum = ca 116 til 138 lykkju. Takið frá 1 þráð Kid-Silk og prjónið með 1 þræði Kid-Silk frá röngu þannig: Prjónið ystu lykkjuna slétt (prjónið í gegnum báðar lykkjurnar), * prjónið aðra af þeim 2 fyrstu/næstu lykkjum brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið hina af 2 fyrstu/næstu lykkjum brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina, en endið með 1 lykkju slétt í síðustu lykkju (prjónið í gegnum báðar lykkjur) = ca 170 til 204 lykkjur á prjóni. Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið síðan af frá réttu þannig: * Fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af.

BYGLJUKANTUR VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN MEÐFRAM HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið alveg eins og meðfram vinstra framstykki, nema byrjið á að prjóna upp lykkjur frá réttu neðst niðri á hægra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Nafula wrote:

This looks fab,might give it a go.

12.07.2023 - 18:00

country flag Geneviève wrote:

Hello, My granddaughter (aged 10) would like me to knit this model for her too (as I did for her mum) would it be possible to get a description (i.c. a stich calculation) for her size? Thank you!

04.07.2022 - 17:50

DROPS Design answered:

Dear Geneviève, please see answer below.

04.07.2022 - 19:11

country flag Geneviève wrote:

Hello, My granddaughter (aged 10) would like me to knit this model for her too (as I did for her mum) would it be possible to get a description (i.c. a stich calculation) for her size? Thank you!

04.07.2022 - 17:49

DROPS Design answered:

Dear Geneviève, we don't make custom patterns. You could work the same pattern as for size S (for the neck and charts) and then adjust the yoke (make it shorter) and the length of the jacket and the sleeves (the desired length). The amount of stitches to be picked up in the flounces will depend on the final length of the front piece Remember that for this to work you need to use the gauge indicated in the pattern. Happy knitting!

04.07.2022 - 19:11

country flag Susanne Mathiasen wrote:

Hej igen, Er den angivede strikkefasthed efter “blocking” eller før. Strikker normalt stramt, men synes pind 5 til de to nævnte garnkvaliteter giver et meget løst udtryk? Er det meningen?

18.03.2021 - 12:50

DROPS Design answered:

Hej Susanne, hvis du har 17 masker på 10 cm med de 2 kvaliteter, så bør din strikkeprøve se ud som på billedet (se gerne på nærbilledet som er forstørret) uden "blocking" God fornøjelse!

18.03.2021 - 14:01

country flag Delphine Lees wrote:

Bonjour, je trouve ce modele magnifique ! En regardant le nuancier, je m'interroge, a-t'il vraiment ete realise avec du baby alpaca silk 7402 vert ocean clair ? Pour moi cela ressemblerait beaucoup plus au 6235 gris bleu. Merci par avance de confirmer la couleur du modele presente, que je voudrais reproduire.

03.03.2019 - 20:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lees, ce modèle a bien été tricoté en BabyAlpaca Silk 7402 + Kid-Silk 06, ce qui peut faire apparaître la couleur différemment. L'éclairage le jour de la prise de photo peut également jouer. Pour toute aide dans le choix de la couleur, n'hésitez pas à demander conseil à votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

04.03.2019 - 11:14

country flag Lelletta wrote:

Grazie mille! Lelletta

24.01.2019 - 19:03

country flag Elena Cordoni wrote:

Thank you so much ! Good bye.

10.11.2017 - 19:12

country flag Elena Cordoni wrote:

Ok, but after the new 6 sts I find the beginning of the work at the end of the sts ; Have I to do a stripe of St st and, after, begin... Thanks again

09.11.2017 - 16:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cordoni, beg of round should be in the middle of the 6 new sts mid under arm, knit the first 3 new sts if necessary, place marker and start new round from here. Happy knitting!

10.11.2017 - 07:45

country flag Eena Cordoni wrote:

Hello, I have difficulty starting to work on the sleeves. After taking the 6 points under the sleeve I should start the pattern straight away, there is no space for the two knit stitches ... Then, will the 6 jersey shoots become perforated? Thanks and regards.

08.11.2017 - 09:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cordoni, when you continue the sleeve, beg of round is in the middle of the new 6 sts and now work 2 sts stocking st, the work A.2A, A.2B over the next 48 sts, A.2C and finish with 2 sts in stocking st. Continue pattern from previous round on yoke. Happy knitting!

08.11.2017 - 09:54

Elize wrote:

Would I be able us use Drops delight for this pattern.

18.02.2017 - 23:45

DROPS Design answered:

Hello, yes, instead of DROPS BabyAlpaca Silk you can use DROPS Delight - both of them are from the same Yarn group A. Happy knitting!

19.02.2017 - 09:45