DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Water Stripes

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Sky. Stærð börn 3-14 ára

DROPS Children 27-25
DROPS Design: Mynstur nr me-016-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-250-250-300-300-350g nr 01, natur
150-150-150-200-200-200g nr 19, ljós blágrár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-250g nr 01, hvítur
100-100-100-150-150-150g nr 13, ljós gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

STROFF: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).

RENDUR:
* Prjónið 1-1-2-2-2-2 umf í natur, skiptið yfir í ljós blágrár og prjónið 3-3-5-5-5-5 umf *, endurtakið *-* 7-8-7-7-7-7 sinnum = alls 8-9-8-8-8-8 rendur í ljós blágrár.

ÚRTAKA:Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftirr á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 92-92-96-96-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með ljós blágrár Merino Extra Fine eða ljós gallabuxnablár Sky. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið 1 umf slétt og haldið áfram með að prjóna STROFF = 2 l sl, 2 l br í 6-6-8-8-11-14 umf, JAFNFRAMT þegar stroffið er prjónað þá eru prjónaðar rendur þannig: ljós blágrár/ljós gallabuxnablár í 1-1-2-2-3-3 umf, skiptið yfir í natur/hvítur í 2-2-3-3-4-5 umf, skiptið yfir í ljós blágrár/ljós gallabuxnablár í 3-3-3-3-4-6 umf. Prjónið síðan upphækkun aftan við hnakka þannig (haldið áfram með stroff og ljós blágrár/ljós gallabuxnablár): Prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 48-48-64-64-64-64 l, snúið við og prjónið 1 umf aftur fram og til baka.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf sléttprjón með natur/hvítur JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-10-10-8 l jafnt yfir = 102-102-106-106-106-108 l.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig: Prjónið 17-17-18-18-18-18 l frá prjónamerki fyrir miðju að aftan, setjið 1. prjónamerki hér (takið jafnframt í burtu prjónamerki fyrir miðju að aftan), prjónið síðan 17 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 34-34-36-36-36-37 l (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki, prjónið 17 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki og prjónið aftur fram að fyrsta prjónamerki (nú eru 34-34-36-36-36-37 l á milli prjónamerkja á bakstykki).
Haldið síðan áfram í sléttprjóni til loka.
Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT, í 1. umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 4 prjónamerki fyrir laskalínu (= 8 útaukningar) – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf 4-6-7-7-9-10 sinnum til viðbótar (5-7-8-8-10-11 sinnum alls). Síðan í annarri hverri umf 7-6-7-10-10-11 sinnum og í lokin í 3. hverri umf 3-4-4-3-3-3 sinnum = 222-238-258-274-290-308 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjum á þræði, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 47-51-55-59-63-67 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir lykkjum á þræði, prjónið aftur fram að 1. prjónamerki = 144-152-164-172-180-190 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið síðan áfram með rendur og sléttprjón. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með natur/hvítur. Prjónið þar til stykkið mælist 36-40-44-46-50-54 cm frá öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 44-44-48-52-52-58 l jafnt yfir = 188-196-212-224-232-248 l. Prjónið 5-5-5-8-8-8 umf, skiptið yfir í ljós blágrár/ljós gallabuxnablár og haldið áfram með 6-6-6-9-9-9 umf = ca 4-4-4-6-6-6 cm stroff. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 40-44-48-52-56-60 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið l af öðru bandinu á sokkaprjóna nr 4 og fitjið að auki upp 8 nýjar l undir ermi = 55-59-63-67-71-75 l. Haldið síðan áfram með rendur og sléttprjón. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með natur/hvítur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. mitt í 8 nýja l). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar prjónaðir hafa verið 3 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2,5-2-2,5-2-2,5-2,5 cm millibili alls 9-11-12-14-14-15 sinnum = 37-37-39-39-43-45 l. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 28-31-35-37-40-44 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 11-11-13-13-13-11 l jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 l. Prjónið 5-5-5-8-8-8 v, skiptið yfir í ljós blágrár/ljós gallabuxnablár og haldið áfram með 6-6-6-9-9-9 umf = ca 4-4-4-6-6-6 cm stroff. Alls mælist ermin nú ca 32-35-39-43-46-50 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Séverine Guillin wrote:

Bonjour, pour la ré hausse du dos il faut faire les rangs raccourcis en côtes ? Sur les photographies il semblerait que ce soit en jersey. Cordialement, Séverine.

11.03.2023 - 02:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guillin , effectivement, la styliste a choisi finalement de tricoter la réhausse dos en côtes probablement pour qu'elle soit moins visible. Bon tricot!

13.03.2023 - 09:10

country flag REINE MARIE wrote:

Bonjour ,alors voilà ,j'ai un problème au niveau des rayures pour la démarcation comme il y a 1rg naturel et 3rg jersey bleu il y a une marge .Pouvez- vous m'expliquer merci de votre réponse cela fait 3fois que je défais .

27.11.2022 - 13:35

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, cette vidéo montre comment tricoter des rayures sans démarcation entre les tours. Bon tricot!

28.11.2022 - 09:39

country flag REINE MARIE wrote:

MERCI BEAUCOUP Bonsoir ,merci beaucoup de votre réponse ,j'ai fais la rayure plus large j'espère que ça rendra bien sinon je recommencerai .Bonne soirée

24.11.2022 - 20:25

country flag REINE MARIE wrote:

MERCI BEAUCOUP Bonsoir ,merci beaucoup de votre réponse ,j'ai fais la rayure plus large j'espère que ça rendra bien sinon je recommencerai .Bonne soirée

24.11.2022 - 20:06

country flag REINE MARIE wrote:

BONJOUR comment se fait le début de ce joli pull (col)car on dit de tricoter 1RGendroit bleu gris ensuite faire 2rg naturel et continuer en bleu gris mais cela ne fait pas comme le modèle où il y a une bande blanche .Merci d'une réponse

24.11.2022 - 14:53

DROPS Design answered:

Bonjour Reine Marie, les rayures sont différentes dans les petites tailles, mais rendront le même effet (le même rapport hauteur rayure bleue/rayure naturel). Bon tricot!

24.11.2022 - 16:04

country flag Marie wrote:

Der står man skal the masker UD inden rob mener du ikke ind?

23.05.2022 - 22:28

country flag Tonika wrote:

Ich stricke Größe 13/14 Jahre.

14.12.2021 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Tonika, die 49 Reihen für Streifen zählen Sie ab Anfang an, wenn diese 49 Reihen bei der Ärmel gestrickt sind, stricken Sie einfarbig, die 3 cm werden ab der Verteilung gemessen. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2021 - 07:50

country flag Tonika wrote:

Hallo! Wird beim Ärmel erst nach der Fertigstellung der Streifen gemessen und nicht direkt ab Zunahme der 8 Maschen (unter dem Arm)? Muss ich, da ich einfarbig stricke, erst 49 Reihen stricken und erst ab dann den Ärmel messen? Liebe Grüße

14.12.2021 - 17:17

DROPS Design answered:

Liebe Tonika, unter ÄRMEL messen Sie die 3 cm ab den neuen 8 Maschen angeschlagen, dh ab der Verteilung. Stricken Sie die Streifen zur Ende dann stricken Sie einfarbig. Die Streifen bei den Ärmeln sind die selben als für Rumpfteil, die restlichen Runden können Sie dann vom Rumpfteil prüfen. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2021 - 07:48

country flag Marcela Revollo wrote:

Estoy tejiendo una talla 5/6 , y según sus instrucciones entiendo que en la pechera debo aumentar en total 152 puntos (7x8/ 6x8/ 6x8). Se indica que al final debo tener 238 puntos, a partir de los 102 iniciales. Sin embargo, la suma total me da 254 puntos y no 238. ¿Qué estoy entendiendo mal?

28.02.2021 - 17:23

DROPS Design answered:

Hola Marcela, el patrón es correcto. El fallo en tus cálculos es que en los aumentos, la tercera multiplicación es 4x8 (4 veces 8 aumentos en la fila) en vez de 6x8. De esta forma, salen 238 puntos.

28.02.2021 - 18:10

country flag Ann Allen wrote:

Do you have this pattern in a larger size? I'm looking for a top down raglan measuring 100 cm around chest.

11.01.2021 - 19:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Allen, have you looked at our jumpers for men? Some of them might have the desired measurements. Happy knitting!

12.01.2021 - 08:55