DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-2
DROPS Design: Mynstur nr w-573
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 g nr 16, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð.
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni = 1 fl, heklið síðan 8 fl um lykkjuna, endið á 1 kl í fyrstu fl = 9 fl. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í garnendann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í umf er skipt út fyrir 1 ll. Endið umf á einni kl í fyrstu ll í byrjun umf.
Fyrsti st í umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á einni kl í þriðju ll í byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

4-TBST:
Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um ll-bogann og dragið þráðinn í gegnum ll-bogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni:

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni) heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, síðan í ferhyrning frá miðju að aftan. Að lokum er það heklað upp meðfram annarri hlið á ferhyrning fyrir öxl/háls.

BAKSTYKKI:
Heklið GALDRAHRINGUR með heklunál nr 4,5 með Paris – sjá útskýringu að ofan = 9 fl um hringinn. Heklið nú eftir A.1 (í fyrstu umf í A.1 eru heklaðar 2 fl í hverja og eina af 9 fl = 18 fl).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 120 st í umf og stykkið mælist ca 22 cm að þvermáli.

Heklið síða eftir A.2, heklið 4 mynstureiningar af A.2 um hringinn – byrjið á annarri umf í A.2. ATH! Kl í byrjun á A.2 er einungis hekluð í byrjun umf.

Þegar A.2 hefur verið heklað til loka er haldið áfram að hekla eftir A.3. A.x sýnir 1 mynstureiningu af A.3 á breidd. Heklið A.3, í hvert horn er heklað 1 tbst + 3 ll + 1 tbst, heklið 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli allra horna fyrir hverja umf sem er hekluð. Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist 23-25-27-29-33-36 cm frá miðju (alls 46-50-54-58-66-72 cm), nú eru ca 18-20-22-24-28-30 mynstureiningar af A.3 meðfram hvorri hlið á ferhyrning. Stykkið á nú að hekla fram og til baka og það á að fækka l fyrir hálsmáli mitt í fyrstu hliðinni á ferhyrning. Klippið frá og hoppið yfir miðju 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar (= hálsmál) í fyrstu hlið á ferhyrning, haldið áfram með A.3 með útaukningu í horni þar til umf hefur verið hekluð til loka, ekki er heklað yfir 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar sem hoppað var yfir í byrjun umf. Klippið frá og festið enda, stykkið mælist 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju (alls 50-54-58-62-70-76 cm), nú eru ca 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar á hvorri öxl og ca 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar meðfram hverri og einna af 3 hinum hliðum. Setjið 1 prjónamerki í hverja hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl, þau sýna hvar sauma á ermina í.

FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 17-19-21-23-27-30 cm frá miðju (alls 32-36-40-44-52-58 cm), nú eru ca 14-16-18-20-24-26 mynstureiningar af A.3 meðfram hverri hlið á ferhyrning. Hekla á nú stykkið fram og til baka og það á að fækka l fyrir hálsmáli mitt í fyrstu hlið á ferhyrningi. Klippið frá og hoppið yfir miðju 2 mynstureiningarnar (= hálsmál) á fyrstu hlið á ferhyrning, haldið áfram með A.3 (með útaukningar í horni) þar til umf hefur verið hekluð til loka, ekki er heklað yfir 2 mynstureiningar sem hoppað var yfir í byrjun umf. Snúið við og heklið eina umf frá röngu. Klippið frá, hoppið yfir fyrstu 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar, haldið áfram með A.3 og útaukningar í horni, en snúið við þegar eftir eru 2-2-3-3-4-4 mynstureiningar í umf, nú hefur fækkað um 6-6-8-8-10-10 mynstureiningar við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram fram og til baka með A.3 og útaukningar þar til stykkið mælist 25-27-29-31-35-38 cm frá miðju (alls 50-54-58-62-70-76 cm), þá eru ca 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar á hvorri öxl og ca 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar meðfram hverri og einni af 3 hinum hliðunum, stillið af eftir bakstykki. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hverja hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl, þau sýna hvar sauma á ermina í.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Heklið 64-64-69-69-74-74 ll og tengið saman í hring með einni kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hverja af næstu 6-6-3-3-0-0 ll, hoppið yfir 1 ll, * heklið 1 st í hverja af næstu 7 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 56-56-60-60-64-64 st. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan í hring og eftir A.3. Í umf A.3 er fækkað um 8 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hvert skipti sem umf 3 í mynstri er heklað, alls 3 sinnum = 32-32-36-36-40-40 st. Heklið A.3 þar til stykkið mælist 33-32-31-30-27-25 cm, endið eftir 2. eða 4. umf í A.3. Heklið alls 40-40-40-48-48-48 st um ll-boga. Heklið eftir A.4 (5-5-5-6-6-6 mynstureiningar á breidd, mynstrið sýnir 2 mynstureiningar á breidd), fyrsta umf er hekluð þannig: * Heklið 1 st í hvern og einn af 7 fyrstu st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar. ATH! Keðjulykkjurnar í byrjun á A.4 eru einungis heklaðar í byrjun umf. Heklið A.4 einu sinni á hæðina. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 48-47-46-45-42-40 cm.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki á hlið og niður. Saumið ermar í.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í kringum hálsmál.
Klippið 8 þræði ca 20 cm. Þræðið endana í gegnum endann á snúrunni og leggið þá saman tvöfalda. Vefjið einum að þráðunum um toppinn á kögrinu. Gerið annað kögur til viðbótar í hinn endann á snúrunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.01.2016
Leiðrétting á galdralykkju
Yfirfarið á vefsvæði: 17.05.2017
ERMI:..ATH! Keðjulykkjurnar í byrjun á A.4 eru einungis heklaðar í byrjun umferðar. Heklið A.4 einu sinni á hæðina. Heklið síðan 1 umferð með 1 st í hvern st, 3 st um hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.08.2017
Leiðrétting í síðustu umferð í mynstri A.2

Mynstur

symbols = gerið GALDRALYKKJA - sjá skýringu að ofan
symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl um ll-boga
symbols = fl í þriðju ll efst á picot
symbols = hst um ll-boga
symbols = st í l
symbols = st um ll-boga
symbols = tbst um ll-boga
symbols = tbst í l
symbols = þbst um ll-boga
symbols = 4-tbst um ll-boga - sjá skýringu að ofan
symbols = picot: Heklið 3 ll, 3 st í fyrstu ll
symbols = þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
symbols = heklið 2 st saman
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (165)

country flag Belinda wrote:

Bij a2 hoeveel picots moet ik in totaal hebben in de hele ronde. Ik ben nu 2 keer opnieuw begonnen met a2 maar kom steeds bij de laatste toer niet uit.

26.05.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Dag Belinda,

Er staan 10 zwarte bolletjes (=picot) in het telpatroon en omdat je A.2 4 keer haakt, zou je 40 picots moeten hebben.

29.05.2023 - 15:32

country flag Monica Donati wrote:

Salve, ho iniziato il modello DROPS 170-2 . Per lavorare il secondo diagramma A.2 si dice di "iniziare sul 2° giro di A.2". Vorrei sapere perché dal 2° giro ? Grazie

15.10.2022 - 12:04

country flag Susana Gonzalez Prieto wrote:

Hola, que tal , me gustaría saber si hay algún video tutorial que poder seguir del jersey al completo desde el principio, ya que con los gráficos me manejo peor. gracias , un saludo.

12.08.2022 - 12:06

DROPS Design answered:

Hola Susana, todos los vídeos para realizar este patrón se encuentran bajo las instrucciones del patrón y los diagramas. Puedes leer la siguiente lección para enteneder mejor cómo leer los gráficos: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7411&cid=23

14.08.2022 - 21:43

country flag Rokky wrote:

What did u mean by A2 4 repetition does it’s means I have to work A2 4 time

17.02.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Dear Rokky, correct, you repeat A.2 a total of 4 times in the round. Happy crocheting!

18.02.2022 - 08:26

country flag Agnieszka wrote:

Jak zrobić pikotek w schemacie A2 w trzecim rzędzie? Zaczynam od słupka (trzy oczka łańcuszka jako pierwszy) a później pikotek, czyli... kolejne trzy oczka łańcuszka i słupek w te pierwsze oł, czyli bezpośrednio nad słupkiem?

24.11.2021 - 18:59

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, zaczynasz od 1 słupka, później wykonujesz 3 oczka łańcuszka i przerabiasz 3 słupki w pierwsze z tych przerobionych 3 oczek łańcuszka (czyli w 3-cie oczko łańcuszka od szydełka). To jest bezpośrednio nad 1-szym słupkiem, dokładnie jak piszesz. Pozdrawiamy!

25.11.2021 - 17:20

country flag Stefanie Baggott wrote:

I watched the video about how to crochet the neck, but why are you starting at the (picot, DC)repeat, instead of (DC, Ch3)repeat? Why are the instructions not clear? How many repetitions of A3 do I do around the circle, for a size L? What do you mean by back and forth? I'm so confused 😕!Please help 😭

24.06.2021 - 17:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baggott, the video shows how to crochet A.3, reason why it starts with 3 ch as 1st dc then 1 picot. For the neck on back piece, you have to cut the y arn at the end of previous round, and now count the middle 8 A.3 on the first side that will be unworked for neck, start on the left side of these 8 A.3 and crochet along all sides back to this one stopping before these 8 repeats. Turn and continue A.3 back and forth leaving these 8 repeats unworked, continue like this back and forth (= alternately from RS and from WS). Happy crocheting!

25.06.2021 - 07:15

country flag Deb Bell wrote:

Hi Is the pattern for UK crochet stitches or US crochet stitches?

12.11.2020 - 02:12

DROPS Design answered:

Hi Deb, If you use the UK version of the pattern the stitches will be UK. If you use the US version they will be US. You can choose your version by clicking on the language box under the photograph. Happy crocheting!

12.11.2020 - 08:20

country flag Marga Van Dijk wrote:

Ik zou willen weten wat de beste manier is om de panden en de mouwen aan elkaar vast te maken het liefst hakend

02.05.2020 - 19:44

DROPS Design answered:

Dag Marga,

Je kan de delen met de goede kanten tegen elkaar aan leggen en dan vasten door beide lagen(/steken) haken.

07.05.2020 - 10:49

country flag Charlotte wrote:

I've just started the pattern and I'm on my second round of A2 but my corners don't seem to be lining up. Any ideas why that might be? Thank you in advance 😊

25.04.2020 - 17:43

DROPS Design answered:

Dear Charlotte, insert a marker at the beg of each A.2 and check your number of stitches in each A.2 so that each A.2 is matching the diagram - this sounds the best to check your stitches and rows. Happy crocheting!

27.04.2020 - 08:41

country flag Chantelle wrote:

Hi, I am busy with A1, but mine is curling up. Not sure what I am doing wrong. Can I please get some advise? I'm using a 4.5 mm needle and hopefully the right wool.

24.04.2020 - 14:03

DROPS Design answered:

Dear Chantelle, make sure your tension is right, the chains should be as wide as a treble/double crochet, so that the chain-spaces will not make A.1 weavy. You can show your work to your store (even per mail) or/and ask other crocheters' advices in our DROPS Workshop. Happy crocheting!

24.04.2020 - 14:12