DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 170-26
DROPS Design: Mynstur nr w-581
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
650-800-900-1000 g litur nr 01, apríkósa

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st x 8,5 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með fl byrjar á 1 ll (kemur í stað fyrstu fl).
Hver umf með st byrjar á 3 ll (kemur í stað fyrsta st).
Hver umf með tbst byrjar á 4 ll (kemur í stað fryst tbst).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í/um sömu l.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermar):
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram til næstu umf með 1 fl um næsta ll-boga (= fyrsti ll-boginn í næstu umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu ll í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ATH: PASSIÐ VEL UPPÁ AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI TIL!

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næstu fl um næsta ll-boga (ekki eru heklaðar 5 ll á milli fl), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA
Heklið 207-229-252-275 ll með heklunál nr 5 með Paris. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-5-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 165-183-201-219 st.

Heklið síðan NÆST SÍÐUSTU umf í mynstri A.1 til A.5 – sjá ör í mynstri – þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 4 st, heklið A.2 yfir næstu 6 st, endurtakið A.3 þar til 11 st eru eftir (= alls 24-27-30-33 sinnum á breiddina), heklið A.4 yfir næstu 7 st og endið á A.5. Heklið síðustu umf af A.1 til A.5.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Endurtakið síðan A.1 til A.5 á hæðina. ATH: Fyrsta umf í mynstri er ekki hekluð, hún sýnir hvernig næsta umf er hekluð í l frá fyrri umf. Þegar stykkið mælist 37-38-41-42 cm, passið uppá að næsta umf sé með st og frá réttu (klippið frá ef næsta umf sé frá röngu), skiptið stykkinu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1 og A.2 eins og áður, endurtakið A.3 yfir næstu 36-42-48-54 st (= alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina), heklið A.4 og síðan A.5, snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar l þar til stykkið mælist 18-19-20-21 cm frá þar sem stykkinu var skipt upp, passið að næsta umf sé með st og frá röngu (klippið frá ef næsta umf sé frá réttu).

BAKSTYKKI:
Heklið frá réttu þannig: Heklið A.1, A.2, endurtakið A.3 yfir næstu 30-36-42-48 st (= alls 5-6-7-8 sinnum á breidd), A.4, endið á A.5. Haldið svona áfram með mynstur yfir þessar l þar til stykkið mælist 18-19-20-21 cm, mátið mynstrið við hægra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki.

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Heklið síðan stykkin saman frá röngu (þ.e.a.s. heklið frá vinstra framstykki, yfir bakstykki og að hægra framstykki) með mynstri eins og áður, þ.e.a.s. heklið frá röngu þannig: Heklið A.5 og A.4 eins og áður, A.3 alls 24-27-30-33 sinnum á breidd, A.2, endið á A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 63-67-73-77 cm alls, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 4-2-0-14 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 169-185-201-233 st. Heklið síðan næstu umf þannig: A.6 yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.7 þar til 5 st eru eftir (= 10-11-12-14 sinnum á breiddina), A.8 yfir næsta st, endið á A.9 yfir síðustu 4 st. Þegar A.6 til A.9 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 71-75-81-85 cm alls. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Heklið 78-78-83-83 ll með heklunál nr 5 með Paris.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 13. ll frá heklunálinni, * 5 ll, hoppið yfir 4 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* yfir ll, heklið 1 fl um fyrstu 3 ll = 14-14-15-15 ll-bogar – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

Haldið áfram að hekla 5 ll og 1 fl um hvern ll-boga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 ll-boga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA!

Endurtakið úrtöku til skiptis hvoru megin við prjónamerki með 4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 9-9-10-10 ll-bogar.
Þegar stykkið mælist 26 cm, endið umf á 1 kl í síðustu ll mitt undir ermi. Heklið síðan í hring þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 4 st umf fyrsta/næsta ll-boga, 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32-32-35-35 st. Klippið frá og festið enda.

Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermarnar á peysuna, saumið í ysta lykkjubogann, passið að saumurinn verði ekki of stífur.

Mynstur

symbols = fl í l
symbols = st í l
symbols = ll
symbols = st um ll
symbols = 1 kúla með 4 tbst: Heklið 1 tbst í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern og einn af næstu 3 st alveg eins, dragið síðan bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni.
symbols = tbst í l
symbols = fyrsta umf er útskýrð í uppskrift
symbols = 1 fl um ll
symbols = 2 st í sömu l
symbols = heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st í hvern og einn af næstu 2 st alveg eins, dragið síðan bandið í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
symbols = 7 st í sömu ll/st
symbols = byrjið að hekla þessa umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Mariangela wrote:

Buonasera, vorrei cambiare il filato per questo modello, anzichè Paris utilizzare Muskat. Come posso calcorare la quantità per una taglia L/XL. La tensione generalmente è di mezzo numero di ferro in meno. Grazie per l'aiuto.

03.04.2022 - 19:02

DROPS Design answered:

Buonasera Mariangela, per lavorare questo capo in Muskat le serviranno circa 24 gomitoli. Buon lavoro!

05.04.2022 - 22:34

country flag Joan O’Keeffe wrote:

Would like to get pattern for Granny Squares Jacket Cardigan. Could you please help.

29.08.2019 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs O'Keeffe, make sure you are choosing the Crochet-language the most accurate for you, either US- or UK- ; there are some videos to this pattern, and maybe the FAQ can be helpful. Happy crocheting!

30.08.2019 - 09:16

country flag Lorna Espinas wrote:

Hello, I have never worked with diagrams before but I love this design enough that I am up for the challenge. Question: when done with divided pieces, do I join them together? The next instruction was work together and I assume that this pertains to next row which links the pieces but what about the sides or am I totally wrong in reading the pattern? I’m not there yet but just looking ahead. Thanks.

24.07.2019 - 18:31

DROPS Design answered:

Hi Lorna! You divide your work in order to create armholes: dividing means that you work only above a piece of work (ex. above right front), the rest is waiting. After doing right front, back and left front, you put all pieces together like in the section FRONT AND BACK PIECE. Happy crocheting!

25.07.2019 - 18:51

Renell wrote:

Hello again, I had counted the second row which is 165 do. When I work the 3 rows, it doesn't add up. I got this - 4dc + 6dc +6dc (23 times) and I got 2 =4 not 3 = 6 7dc +4 dc = 159 not 165. I had repeatedly 3 times and didn't get it right. What I am doing wrong? Thank you!

01.10.2018 - 02:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Renell, after you have the 165 dc, work pattern as follows: A.1 (= 4 dc), A.2 (= over next 6 dc), repeat A.3 (= over 6 sts) a total of 24 times and finish with A.4 (= over the next 7 dc) and A.5 (= 4 dc) : 4+6+ 24x6 + 7 + 4 = 165 sts. Do not hesitate to add markers between each repeat to make sure you are crocheting the correct number of repeats in width. Happy crocheting!

01.10.2018 - 09:55

Renell wrote:

Hi there. Can you help me with this one please. I am doing this pattern. Please see on page 2 - jacket. I had done 207 chains and work 1dc in the 4th ch from hook and that make 2 dc. Now I don't understand the first two sentences saying 'Read crochet info, 1 dc in each 3,5,3,1 ch'. I ended up 166 dc not 165 doc. What I am doing wrong and can you explain. Thank you!

23.09.2018 - 05:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Renell, in the first size crochet 207 chains, then crochet 1 dc in 4th ch from hook (= 2 dc = as under CROCHET INFO you replace first dc with 3 ch), then crochet 1 dc in each of the next 4 ch (= 4 dc over 4 ch) repeat a total of 40 times (skip 1 ch, 1 dc in each of the next 4 ch) (= you work 4 dc over 5 chains): 2 dc + 4 dc + (40 x 4 dc ) = 165 dc. Happy crocheting!

24.09.2018 - 09:19

Penny wrote:

Hi there. Love the pattern. My question is beginning the 2nd row, the pattern says to follow the chart at the arrow. The arrow is at the TOP of the chart? How can this be correct? It also states to repeat A.3 until 11 trebles remain, work A.4 over the next 7 tr, and finish A.5. A.4 has 9 tr and A.5 has 4tr. It doesn't add up. What am I missing.

13.12.2017 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Penny, you are right number of sts may have to be checked, just work: A.1, A.2, repeat A.2 until 13 sts remain and finish with A.4 and A.5, number of sts will add up. Happy crocheting!

14.12.2017 - 08:51

country flag J. T. wrote:

I have done first row and have 165 double crochets. I started with second row by the arrow and had to repeat A3 more often than 25 times. What am I doing wrong?

02.10.2017 - 14:20

DROPS Design answered:

Dear J.T., A.3 is worked over 6 dc, so that in the first size you will repeat A.3 a total of 24 times in other words over the next 144 dc. So that you will have from the beg: A.1 over the first 4 dc, A.2 over the next 6 dc, A.3 a total of 24 times over the next 144 dc, A.7 over the next 7 dc and A.5 over the last 4 dc = 4 + 6 + 144 + 7 + 4 = 165 dc. Happy crocheting!

03.10.2017 - 08:47

country flag Name wrote:

How to know how many skeins of yarn to purchase to make any/all of the sizes?? P.S. - I love the design & the sleeves, not as easy to find nice crochet tops that include the sleeves

05.07.2017 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Sender, The original modell is made of DROPS Paris yarn, which comes in 50 gramm skeins, therefore you would need 13 skeins for size S/M, 16 skeins for size L / XL, 18 skeins for size xxl, and 20 skeins for size XXXL. I hope this helps. Happy Crocheting!

06.07.2017 - 00:44

Lorraine wrote:

Hi - I would like to use a 4 ply cotton to make this jacket. Can I double the beginning chains? Will the pattern work out? Many thanks Lorraine

10.08.2016 - 15:25

DROPS Design answered:

Dear Lorraine, this pattern has been written for a cotton 10 ply - see here. You will have to make a swatch and recalculate the pattern matching your gauge. Happy crocheting!

10.08.2016 - 16:17

country flag Benedetta wrote:

Grazie,preziose come sempre!Buona giornata!

29.07.2016 - 14:06