DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Starry Night

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður og húfu með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-24
DROPS Design: Mynstur nr u-768
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 53, koksgrár
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 72, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/57 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár
50 gr litur nr 53, koksgrár
50 gr litur nr 72, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með mynsturprjónið verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað i hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Öll útaukning er gerð frá réttu þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að sleppa við gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig. Öll útaukning er gerð frá réttu þannig:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að sleppa við göt.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og fyrir miðju undir ermi):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 l eru eftir í umf (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og endið á 2 l sl.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 48 og 58 cm
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 51 og 60 cm
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 51 og 60 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 35, 49, 53 og 62 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 110-116-116-118-122-124 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með litnum koksgrár þar sem aukið er út um 3-9-9-19-23-33 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 113-125-125-137-145-157 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá röngu: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrstu l í A.1 og endið á 6 kantlykkjum að framan. Haldið áfram með mynstur og aukið út í 4. umf eins og útskýrt er í mynstri (einnig er aukið út á undan síðustu l á undan kanti að framan þannig að mynstrið byrji og endi eins innan við kant að framan í hvorri hlið) = 26-29-29-32-34-37 l fleiri og 139-154-154-169-179-194 l í umf – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), prjónið 1 umf slétt frá réttu með litnum koksgrár þar sem auknar eru út 2-3-3-4-2-3 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 141-157-157-173-181-197 l í umf. Prjónið 1 umf br frá röngu með koksgrár (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til 7 l eru eftir í umf (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 16-18-18-20-21-23 mynstureiningar 8 l), prjónið fyrstu l í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið) og endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 269-301-301-333-349-381 l í umf og stykkið mælist ca 17-17-17-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið eina umf br frá röngu og síðan 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-4-4-8-10-2 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 275-305-305-341-359-383 l.

Næsta umf er prjónuð frá röngu með litnum koksgrár þannig:
Prjónið fyrstu 43-47-49-55-60-65 l (= hægra framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 75-83-87-99-109-119 l (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 m (= ermi), setjið eitt prjónamerki og prjónið þær 43-47-49-55-60-65 l sem eftir eru (= vinstra framstykki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3 þar til 11 l eru eftir á prjóni, prjónið 5 fyrstu l í A.3 (þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið) og endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 3-3-4-3-4-5 sinnum – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki er alltaf prjónuð með litnum koksgrár.
Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 299-329-337-365-391-423 l í umf og stykkið mælist ca 22-22-23-24-25-27 cm frá öxl.
Prjónið nú næstu umf frá röngu þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): Prjónið fyrstu 46-50-53-58-64-70 l (= hægra framstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóninn (= á hlið á fram- og bakstykki), prjónið næstu 81-89-95-105-117-129 l (= bakstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóninn (= hlið á fram- og bakstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi) og prjónið næstu 46-50-53-58-64-70 l eins og áður (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 189-205-221-241-269-293 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki 50-54-58-63-70-76 l inn frá hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram fram og til baka eins og áður með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 og 6 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni – ATH: Mynstur frá berustykki heldur síðan áfram – þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hliðum á fram- og bakstykki eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er lykkjum fækkað hvoru megin við prjónamerki í hliðum á fram- og bakstykki – LESIIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-3-3-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 173-189-205-229-257-281 l – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm endar A.3 og prjónað er með litnum koksgrár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-19-21-23-23 cm (stykkið mælist ca 40-40-42-45-48-50 cm frá öxl), aukið hvoru megin við prjónamerkin í hliðum á fram- og bakstykki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 189-205-221-241-269-293 l. Þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-39 cm (stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 8 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 4. Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l í lok fyrstu umf = 71-78-78-82-85-89 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l (= mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! ATH: Mynstrið frá berustykki heldur áfram – þær l sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar með litnum koksgrár. Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-2-2-2-2-1½ cm millibili alls 11-14-14-15-16-17 sinnum = 49-50-50-52-53-55 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 4-4-4-6-6-6 cm endið á A.3 og prjónið síðan með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-39-37 cm (nú eru eftir 2 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið LAUST af, ermin mælist ca 41-41-41-41-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.4 til A.6. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Ef óskað er eftir styttra máli en í uppskrift þá er hægt að prjóna þar til 4 cm eru eftir að óskaðri lengd og síðan að fella af eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við miðju 3 l í A.5 eins og útskýrt er í mynstri. Byrjið 1 l á undan A.5, prjónið 2 l slétt saman með litnum ljós perlugrár, 1 lykkja með litnum koksgrár, 1 lykkja með litnum ljós perlugrár, 1 lykkja með litnum koksgrár (= 3 miðjulykkjur í A.5), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl með litnum ljós perlugrár, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 104 l á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan 6 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 er lokið mælist stykkið ca 4½ cm. Prjónið nú mynstur hringinn þannig: * Prjónið A.5 (= 5 l), prjónið a.6 (= 21 l) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar umf sem er merkt með ör í mynstri A.6 er prjónuð byrjar úrtaka efst á húfu. Fækkið um 1 l hvoru megin við miðju 3 l í A.5 – LESIÐ ÚRTAKA og sjá mynsturteikningu (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3 sinnum og síðan í hverri umf alls 7 sinnum = 24 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum koksgrár þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.11.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI:..ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 269-301-301-333-349-381 l í umf og stykkið mælist ca 17-17-17-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið eina umf br frá röngu og síðan 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-4-4-8-10-2 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 275-305-305-341-359-383 l.

Mynstur

symbols = koksgrár
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = ljós perlugrár
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat
symbols = 2 l slétt saman með ljós perlugráum
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl með ljós perlugráum, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

166-24 Starry Night Hat

Charlotta, Sweden

Starry Night Hat

Rigmor, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Elly wrote:

Nog een vraag over de pas: wordt er met de raglan gestart in dezelfde naald waarin met telpatroon A3 wordt begonnen? Of start ik met de raglan in de daarop volgende naald aan de goede kant? (Dus in de derde naald van telpatroon A3.) B.v.d., Elly

30.08.2015 - 14:12

DROPS Design answered:

Hoi Elly. Ja, je begint met het meerderen voor de raglan TEGELIJKERTIJD als je het patroon A.3 breit.

01.09.2015 - 17:04

country flag Elly wrote:

Ik ben bij de pas, bij telpatroon A3 en de raglan. Er staat 'brei de gemeerdere steken in patroon'. Moet ik bij de raglan dan niet steeds 5 antracietgrijze steken tussen de witte steken breien? Klopt het dat ik bij de raglan moet 'smokkelen' om in de rest van het vest een regelmatig patroon in de witte steken te hebben? Bij voorbaat dank, met vriendelijke groet, Elly

30.08.2015 - 13:55

DROPS Design answered:

Hoi Elly. Ik begrijp je verwarring. Maar zoals ik het zou doen zou ik de panden/mouwen als 5 verschillende "delen" zien: voorpand, mouw, achterpand, mouw, voorpand. Je hebt het patroon gebreid over alle steken en gaat nu meerderen 1 st aan elk voorpand, 2 op de mouwen en het achterpand. Bij elk overgang moet je dan de nieuwe st meebreien in het patroon - en dan nu "afzonderlijk en niet gewoon achter elkaar zoals in de eerste naald. Op deze manier hou je ook de symmetrie middenvoor een op de mouwen.

01.09.2015 - 17:09

country flag Elly wrote:

Mooi patroon. Ik ga eraan beginnen. Voor het eerst met rondbreinaalden!

21.08.2015 - 18:46

country flag José wrote:

Prachtig patroon. Mooi fijn werk.

13.06.2015 - 16:32

Mirka wrote:

Milujem "vypletance" ! Práca pribúda ani neviem ako.

01.06.2015 - 15:26