DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Starry Night Jumper

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-23
DROPS Design: Mynstur nr u-769
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 53, koksgrár
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 72, ljós perlugrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 40, ljós bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað i hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til þess koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og fyrir miðju undir ermi):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 98-104-104-106-110-112 l á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf sl með litnum koksgrár þar sem auknar eru út 2-8-8-18-22-32 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 100-112-112-124-132-144 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur í hring eftir mynstri A.1 – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Aukið út í umf 4 eins og útskýrt er í mynstri (= 25-28-28-31-33-36 l fleiri og 125-140-140-155-165-180 l í umf).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), prjónið 2 umf slétt með litnum koksgrár og aukið út um 3-4-4-5-3-4 l jafnt yfir í 1. umf = 128-144-144-160-168-184 l í umf. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 16-18-18-20-21-23 mynstureiningar ca 8 l). Haldið svona áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 256-288-288-320-336-368 l í umf og stykkið mælist ca 17-17-17-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið 1 umf sl með litnum koksgrár þar sem aukið er út um 8-6-6-10-12-4 l jafnt yfir = 264-294-294-330-348-372 l. Næsta umf er prjónuð þannig (með litnum koksgrár): Prjónið 75-83-87-99-109-119 (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 75-83-87-99-109-119 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú mynstur í hring eftir mynstri A.3. Eftir 1 umf með mynstri í A.3 er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umf alls 3-3-4-3-4-5 sinnum – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en 1 l hvoru megin við prjónamerki er alltaf prjónuð með litnum koksgrár.
Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 288-318-326-354-380-412 l í umf og stykkið mælist ca 22-22-23-24-25-27 cm frá öxl.
Næsta umf er prjónuð þannig (mynstur heldur áfram eins og áður): Prjónið fyrstu 81-89-95-105-117-129 l (= bakstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóni (= undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-117-129 l (= framstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóni (= undir ermi).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 178-194-210-230-258-282 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 – ATH: Mynstrið heldur síðan áfram frá berustykki – þær l sem ekki ganga upp í mynstri í hliðum á fram- og bakstykki eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fækkið lykkjum hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-3-3-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 162-178-194-218-246-270 l – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm endar A.3 og prjónað er með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 18-18-19-21-23-23 cm (stykkið mælist ca 40-40-42-45-48-50 cm frá öxl), aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 178-194-210-230-258-282 l. Þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-39 cm (nú eru eftir 2 cm til loka – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 8 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón í hring með mynstri eftir mynsturteikningu a.3 (mynstrið heldur síðan áfram frá berustykki og l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri fyrir miðju undir ermi eru prjónaðar með litnum koksgrár). Að auki eru fitjaðar upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l í lok fyrstu umf = 71-78-78-82-85-89 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l (= mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-2-2-2-2-1½ cm millibili alls 11-14-14-15-16-17 sinnum = 49-50-50-52-53-55 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 4-4-4-6-6-6 cm endið á A.3 og prjónið síðan með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-39-37 cm (nú eru eftir 2 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið garðaprjón og fellið LAUST af, ermin mælist ca 41-41-41-41-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = koksgrár
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = ljós perlugrár
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Sarah Thiessen wrote:

Das kraus gestrickte Bündchen unten klappt sich immer nach außen. Was habe ich da falsch gemacht?

23.02.2022 - 21:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Thiessen, Sie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!

24.02.2022 - 10:23

country flag Ela wrote:

A ja zrobilam rok temu sweter, czapkę, rękawice i skarpety w tym wzorze dla córki jest zachwycona. Dziękuję Ci jesteś wspaniała!

11.08.2021 - 14:38

country flag Marian wrote:

No entiendo cuando hay que hacer los aumentos o cada cuantos puntos, en la vuelta 6 y siguientes

15.07.2021 - 18:09

DROPS Design answered:

Hola Marian, los aumentos están incluidos en el diagrama A.2. En la vuelta 6, el diagrama empieza con 1d, lazada, 6d y otra lazada... En la siguiente vuelta, las lazadas se trabajan retorcidas para evitar que se formen agujeros. Después, se vuelve a aumentar en la 10ª vuelta.

19.07.2021 - 20:23

country flag Miriam Glass wrote:

Beautiful

31.12.2020 - 14:11

country flag Birthe Nielsen wrote:

Mangler der ikke udtagning på række 6 i mønster 2A

24.06.2019 - 19:31

DROPS Design answered:

Hei Birthe. Det er 2 kast på omgang 6 i A.2: 1 etter første maske og 1 før siste maske. De er litt vanskelig å se innimmellom tegnene for "koksgrå", men de er der. God fornøyelse

26.06.2019 - 08:04

country flag Else Marit BERG wrote:

Maskeantallet stemmer ikke da a 2 er ferdig hva er galt??

13.02.2018 - 09:05

DROPS Design answered:

Hej Else Marie, det er svært at se hvor det er gået galt. Du skal have 16 masker i hver rapport når du har afsluttet A.2. Sæt gerne et mærke mellem hver rapport, så du er sikker på at få alle udtagninger med. God fornøjelse!

21.02.2018 - 15:38

country flag Hanne Gunnertoft wrote:

Overvejer at bruge hue mønstret på nederste 2/3 af blusen. Kan man det?

31.01.2017 - 01:09

DROPS Design answered:

Hej Hanne. Det lyder som det kunne blive rigtig flot, saa det tror jeg sagtens du kan. Du skal sörge for at faa placeret mönstret saa det er paent (centreret) og strik eventuelt en pröve med mönster saa du har en strikkefasthed - mönsterstrik kan nogen gange traekke lidt mere sammen end ren glat.

31.01.2017 - 15:29

country flag Anita Kastrup østerberg wrote:

Når der tages ud (første gang i A2) er det så: 1r slå om 6 r slå om 2 r slå om 6 r osv pinden rundt?

19.01.2016 - 17:15

DROPS Design answered:

Hej. Ja det är riktigt. Lycka till!

26.01.2016 - 14:35

country flag Ritva Piili wrote:

Neuloin kyseisen mallin, ohje ihan ok! mutta lankojen menekissä huomauttaisin ettei vaaleaa helmiäisharmaata sävyä kulu koossa "S" kuin vajaa 100gr. Terveisin Ritva Piili

05.01.2016 - 11:54

country flag Coyane wrote:

Bonjour, Merci pour votre réponse. Je me suis mal exprimée. Je tricote a l'endroit pour avoir du jersey mais le rendu est inversé : il y du point mousse sur l'endroit des manches (partie visible extérieure), le point Jersey est dans l'intérieur des manches ???) Merci pour votre aide

04.11.2015 - 13:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Coyane, quand on tricote du jersey en rond (sur doubles pointes ou circulaire), on tricote tous les tours à l'endroit - cf vidéo ci-dessous. Pour du jersey envers, on tricoterait tous les tours à l'envers, pour la bordure point mousse du bas de la manche, c'est 1 tour end/1 tour env pour 1 côte mousse (comme indiqué ce matin). J'espère avoir bien compris votre question. Bon tricot!

04.11.2015 - 14:39