DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Chocolate Passion

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska með hringlaga framstykki og með köðlum. Stærð S - XXXL

DROPS 134-55
DROPS Design: Mynstur nr X-369
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:

DROPS ALASKA frá Garnstudio
700-750-850-950-1050-1100 gr litur nr 23, brúnn

DROPS PRJÓNAR nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3 – allar umf í mynstri eru sýndar frá réttu. Umf 1 í mynstri er prjónuð frá röngu.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Fækkið lykkjum frá réttu innan við 3 l.
Fækkið lykkjum Á EFTIR 3 l þannig: Prjónið 2 l sl saman.
Fækki lykkjum Á UNDAN 3 l þannig: Prjónið 2 l snúnar sl saman.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðir eru stuttar umferðir til að ná fram hringlaga sniði á stykkinu. Einnig er snúið við á milli kaðla í mynstri, þá getur verið aðeins erfitt að lesa mynstur – passið uppá að það verði alltaf 5 umf á milli í hvert skipti með köðlum.
Stuttar umferðir eru prjónaðir þannig:
UMFERÐ 1 og 2: Prjónið 10 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 3 og 4: Prjónið 16 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 5 og 6: Prjónið 20 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7 og 8: Prjónið 26 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9 og 10: Prjónið 28-28-29-29-31-30 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 11 og 12: Prjónið 31-31-32-32-34-33 l, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna 3 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir allar l. Nú eru prjónað 18-20-22-24-26-30 umf í garðaprjóni í ytri kanti og 2 umf garðaprjón innst. Endurtakið frá umf 1 alls 5 sinnum.
Bogalaga brúnin mælist nú ca 28-31-34-37-41-46 cm yst og 3 cm innst.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 68-74-80-88-98-108 l á prjóna nr 5 með Alaska.
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 10-13-16-20-25-30 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 6 l br, prjónið 2 l sl í hverja af þeim 4 næstu l (= 8 l sl), 6 l br *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 10-13-16-20-25-30 l í garðaprjóni. Nú eru 80-86-92-100-110-120 l á prjóni. Prjónið nú (umf 1 = ranga) þannig: Prjónið 10-13-16-20-25-30 l í garðaprjóni, M.1A (= 60 l) og 10-13-16-20-25-30 l í garðaprjóni. Eftir M.1A haldið áfram með M.1B 2 sinnum á hæðina, þar á eftir M.1C til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan).
Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili alls 3 sinnum = 86-92-98-106-116-126 l.
Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum, fellið af 3-4-5-6-7-8 l í byrjun á næstu 2 umf fyrir handveg. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í hverri umf frá réttu: 1 l 2-3-4-5-7-10 sinnum í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA! Það eru nú 76-78-80-84-88-90 l eftir á prjóni.
Þegar stykkið mælist 37-38-39-41-42-43 cm, prjónið 8 l yfir miðjan kaðal saman 2 og 2. Í næstu umf eru felldar af miðju 20-20-22-22-24-24 l fyrir hálsmáli = 26-27-27-29-30-31 l eftir á hvorri öxl. Prjónið 3 umf eins og áður, í næstu umf eru prjónaðar 8 l yfir kaðal saman 2 og 2 = 22-23-23-25-26-27 l. Fellið nú af allar l í næstu umf.
Stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm á hæðina.

HÆGRA KANTSTYKKI/FRAMSTYKKI:
Öll mál eru gerð í styttri hliðinni!
Fitjið upp 34-37-41-44-49-54 l á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 l sl, 2 l br. Prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l (= 6 l sl), 2 l br, 2 l sl, prjónið 2 l br í hverja af 3 næstu l (= 6 l) 2 l sl, 12-15-19-22-27-32 l í garðaprjóni. Nú eru 40-43-47-50-55-60 l á prjóni. Haldið áfram svona: Prjónið 12-15-19-22-27-32 l í garðaprjóni og M.2 (= 28 l) – umf 1 = ranga. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-26-29 cm eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – umf 1 er prjónuð frá réttu! Þegar allar stuttar umferðir hafa verið gerðar, setjið 1 prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram að prjóna yfir allar l eins og áður.
Þegar stykkið mælist 7 cm byrjar útaukning í hlið eins og á bakstykki (þ.e.a.s. í styttri hlið). Eftir útaukningu eru 43-46-50-53-58-63 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 20 cm, fellið af fyrir hálsmáli í hlið eins og á bakstykki (fellið af á sömu hlið og aukið var út).
Jafnframt þegar stykkið mælist 23 cm, byrjar útaukning fyrir kraga. Aukið er út um 1 l að innanverðu við M.2 með því að gera 1 uppslátt, í umf á eftir er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 10-10-12-13-14-14 sinnum – allar útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni.
Eftir alla úrtökur fyrir handveg og útaukningu fyrir kraga eru 48-49-53-55-58-59 l á prjóni.
Þegar stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm, passið uppá að næsta umf sé frá röngu, fellið af fyrstu 22-23-23-25-26-27 l í garðaprjóni fyrir öxl, prjónið út umf = 26-26-30-30-32-32 l eftir fyrir kraga. Prjónið nú þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf yfir einungis síðustu 18-18-20-20-26-26 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7½-7½-8-8 cm innst (hann kemur þá til með að mælast tvöfaldur yst). Í næstu umf eru prjónaðar allar 6 l yfir báða kaðlana saman 2 og 2 = 20-20-24-24-26-26 l. Fellið nú af.

VINSTRA KANTSTYKKI/FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki/framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að umf 2 er prjónuð þannig: Prjónið 12-15-19-22-27-32 l í garðaprjóni, 2 l sl, prjónið 2 l br í hverja af 3 næstu l (= 6 l br), 2 l sl, 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja af þeim 3 næstu l (= 6 l sl), 2 l br og 8 l sl.
Það eru nú 40-43-47-50-55-60 l á prjóni. Haldið áfram (umf 1 = ranga) þannig: M.3 (= 28 l), 12-15-19-22-27-32 l í garðaprjóni. Prjónið nú á sama hátt og í hægri hlið, nema þegar prjóna á stuttar umferðir, prjónið umf 1 frá RÖNGU!
Fellið af axlarlykkjur frá réttu svo að ekki þurfi að klippa frá til þess að prjóna kraga.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 42-42-44-44-46-48 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 10 cm í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2-2 cm millibili alls 9-11-11-13-14-15 sinnum = 60-64-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum, fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til ermin mælist 57 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið uppfitjunarkantinn á kantstykki við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan kantinn við neðri kant á bakstykki.
Saumið axlarsauma. Saumið hliðarsauma kant í kant. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – saumið þannig að rangan snúi út og saumið ermar í fram- og bakstykki.
Peysan er lokuð með nál eða nælu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = prjónið frá röngu þannig: setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-55

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (291)

country flag David Flores wrote:

If I was going to incorporate 2 button holes where would I put them in the pattern on the left side? And how far apart thank you

26.04.2023 - 21:01

DROPS Design answered:

Dear Mr Flores, we have no experience with buttonholes on this pattern, but if you like to add some, it could be a good idea to work first the front piece without buttonhole so that you can decide where you will have to create some on the other front piece. Happy knitting!

27.04.2023 - 08:08

country flag Cynthia wrote:

The pattern did not include buttonholes instructions

14.04.2023 - 18:57

DROPS Design answered:

Dear Cynthia, this pattern doesn't have any buttonholes, nor you need any buttons. The jacket is closed using a pin or something similar. Happy knitting!

16.04.2023 - 19:39

country flag David Flores wrote:

Right Edge piece question. The outermost 26 sts includes 2sts of the 6 cable sts do I just proceed? The cable will be off with the short rows added? Thank you for your time.

23.03.2023 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Flores, work the stitches as they appear, ie k over k and p over p and continue working the cables as before, you will turn just after the cable (M.2 is 28 sts and you will work the 26 first stitches only). Happy knitting!

24.03.2023 - 08:15

country flag David Flores wrote:

Right Edge piece question. The directions state - * work 2 rows over all sts, work 2 row only over outermost 26 sts repeat from * I'm unsure what this is asking me to do because the way it reads is not the way it is knitting. Thank you

22.03.2023 - 21:05

DROPS Design answered:

Dear David, over the edge stitches you basically knit short rows. You knit 2 rows on every stitch, turn, 26 stitch, turn,26 stitch again, and then on all stitches again. This gives you one longer edge and a shorter. I hope this helps. Happy Crafting!

23.03.2023 - 00:14

country flag David Flores wrote:

Right Edge piece question. The directions state - * work 2 rows over all sts, work 2 row only over outermost 26 sts repeat from * I'm unsure what this is asking me to do because the way it reads is not the way it is knitting. Thank you

22.03.2023 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Mr Flores, you will now work short rows to shape shawl collar, ie the outermost stitches will be worked on every row but the stitches towards the shoulder will be left unworked on eery ridge, so that you repeat these 4 rows. Happy knitting!

23.03.2023 - 10:42

country flag Filipa Oliveira wrote:

Bom dia. Vende linhas passion? Qual o valor? Envia por correio? Cumprimentos

05.11.2021 - 10:34

DROPS Design answered:

Bom dia, Poderá encontrar os nossos fios nas nossas lojas , no link abaixo: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=28&cid=28 Obrigado!

05.11.2021 - 10:38

country flag Phyllis Rhoades wrote:

I commend you on your beautiful patterns, however after all these years it seem like you could translate your patterns into English that was easily understood. It is so frustrating to get in the middle of a pattern and not be able to understand the directions because you have left out an important step,or that step is in the next paragraph or you simply don't explain it. I have been knitting for over 50 years and I must give up on you lovely patterns.

15.10.2021 - 23:28

country flag Phyllis Rhoades wrote:

The diagrams do not print out.

04.10.2021 - 23:12

country flag Dorothée wrote:

Sur la photo on voit des boutons, dans les explications il n'y a rien la dessus, est-ce une erreur? Merci

02.02.2021 - 08:53

DROPS Design answered:

Bonjour Dorothée, en fait il ne s'agit pas d'un bouton sur la photo mais d'une épingle, il n'y a effectivement pas de boutons prévus sur ce modèle, on le ferme soit avec une épingle, comme sur la photo, soit avec une broche, au choix. Bon tricot!

02.02.2021 - 10:42

country flag Susi wrote:

Sollte nicht theoretisch nach Abschluss der verkürzten Reihen eine 90 Grad Kurve entstanden sein? Bei mir sind es nicht einmal 45 Grad geworden. Ich stricke mit Baumwolle, Nadelstärke 4,5. Garn Name vergessen, aber die Maschenprobe stimmt halbwegs.

23.12.2020 - 17:22

DROPS Design answered:

Liebe Susi, ja ganz genau, dh genauso wie bei der Maßskizze sollte die verkürzten Reihen nach den 5 Wiederholungen aussehen (= d.h. nach 5 Mal 9-10-11-12-13-15 Krausrippe aussen). Viel Spaß beim stricken!

04.01.2021 - 07:30