DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nova

Peysa með stuttum ermum fyrir börn, prjónuð í garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð frá hlið úr DROPS BabyMerino

DROPS Baby 20-14
DROPS Design: Mynstur nr BM-005-by
--------------------------------------------------------

Stærð: 6/9 - 12/18 - 24 mánaða (3/4 - 5/6) ára
Stærð í cm: 62/68 - 74/80 - 86/92 (98/104 -110/116)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) gr litur nr 05, ljós bleikur
50-50-50 (50-50) gr litur nr 01, hvítur

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 51 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir heklaðan kant.

DROPS PERLUTALA NR 521: 3 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Þegar snúið er við í miðri umf er 1. l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og haldið áfram eins og áður. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjað er að prjóna vinstra framstykki, síðan er haldið áfram að ermi, bakstykki, að hinni erminni og að lokum hægra framstykki.

PEYSA:
Fitjið laust upp 62-68-78 (88-96) l á prjóna nr 2,5 með litnum ljós bleikur Baby Merino og prjónið 8 umf sléttprjón sem kant að framan (umf 1 = rétta).
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 41-45-52 (60-65) l sl, yfir næstu 15 l er prjónað slétt JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir (aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn), prjónið síðustu 6-8-11 (13-16) l slétt = 70-76-86 (96-104) l. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. Prjónið nú þannig: Prjónið 41-45-52 (60-65) l sem prjónaðar eru slétt í hverri umf, M.1 (= 23 l), 6-8-11 (13-16) l sem prjónaðar eru slétt í hverri umf. JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR: * Prjónið yfir fyrstu 30-32-38 (42-47) l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 46-50-57 (65-70) l (hér er snúið við, í öllum stærðum, eftir 5 l í M.1), snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 64-70-80 (90-98) l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir allar 70-76-86 (96-104) l, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 16-18-19 (20,5-22) cm frá uppfitjunarkanti mælt þar sem er breiðast (= neðrikantur). Klippið frá. Setjið síðan síðustu 41-45-52 (60-65) l við neðrikant á þráð (= síðan) = 29-31-34 (36-39) l eftir á prjóni. Prjónið nú stuttar umferðir (umf 1 = frá réttu) þannig: * Prjónið yfir fyrstu 23-25-28 (30-33) l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir allar 29-31-34 (36-39) l, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 16-17-18 (18-20) cm frá þeim stað sem l voru settar á þráð, mælt þar sem stykkið er breiðast (= neðrikantur). Klippið frá. Setjið til baka þær 41-45-52 (60-65) l af þræði í hlið á prjóninn og setjið prjónamerki í stykkið. Haldið áfram að prjóna frá neðri brún á stykkinu eins og áður frá *-* alveg eins og á framstykki (umf 1 = frá réttu). Þegar stykkið mælist 28-31-35 (37-40) cm frá prjónamerki, mælt þar sem stykkið er breiðast (= neðrikantur) klippið frá. Setjið síðustu 41-45-52 (60-65) l frá neðri brún á þráð (= hlið). Haldið áfram að prjóna alveg eins og útskýrt er í uppskrift á seinni ermi þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umf á ermi eins og á fyrri ermi. Klippið frá. Setjið til baka þær 41-45-52 (60-65) l af þræði í hlið á prjóninn og haldið áfram eins og áður frá neðri brún á stykki. Þegar prjónaðar hafa verið jafn margar umf á hægra framstykki eins og á vinstra framstykki (ekki telja kant að framan með) prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 41-45-52 (60-65) l sl, yfir næstu 23 l er prjónað slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir (fækkað er um 1 lykkju með því að prjóna saman 2 l sl), prjónið síðustu 6-8-11 (13-16) l slétt = 62-68-78 (88-96) l. Prjónið nú kant að framan þannig: Prjónið 3 umf slétt yfir allar l. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagötum (þ.e.a.s. frá neðri brún og upp við hálsmál) þannig: Prjónið 41-45-53 (61-65) l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, prjónið 7-8-9 (10-12) ls l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, prjónið 7-8-9 (10-12) l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og endið á 1 l sl. Snúið við og prjónið sl til baka yfir allar l, prjónið síðan 5 umf slétt yfir allar l áður en fellt er laust af.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðst á peysunni og neðst á ermum með heklunál nr 3 með litnum hvítur þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í fyrstu af þeim 3 ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-*. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.01.2011
VESTI: ...* Prjónið yfir fyrstu 30-32-38 (42-47) l, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 46-50-57 (65-70) l (hér er snúið við, í öllum stærðum, eftir 5 l í M.1),
Yfirfarið á vefsvæði: 26.10.2011
Efni: DROPS BABY MERINO frá Garnstudio 100-150-150 (150-200) gr litur nr 05, ljós bleikur

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman, prjónið aftan í lykkjubogann
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (200)

country flag Margaret Tigchelaar wrote:

I asked the question yesterday, but I think I have the answer: use all the short rows the pattern suggests. That seems to make the most sense to me. Will you let me know if I am correst? I love your patterns!

03.09.2023 - 22:32

country flag Margaret Tigchelaar wrote:

Hello!(second size) continue from bottomedge in pattern "and with shortened rows as for front," so I do 32 sts.in row 1, 50 sts in row 2, etc. or do I do only the short rows in the yoke par of the pattern, e.g. 31 in row 1, etc.?I love knitting this pattern, but just have that question. I have also knitted # 213-21 and love it!

02.09.2023 - 17:49

DROPS Design answered:

Dear Margaret, yes, you work all the short rows. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:22

country flag Jeanette wrote:

I den danske udgave står denne linie kun 1 gang. “strik over alle 70-76-86 (96-104) m, vend og strik tilbage” I den norske udgave står den skrevet 2 gange. Og dette er korrekt for at mønsteret bliver færdiggjort med spids. Jeg har strikket mit arbejde foredrag 3 gange før det gik op for mig, at der mangler en linie i den danske udgave og sikkert også på de andre sprog, fir jeg kan se, at mange får samme problem.

10.08.2023 - 10:13

country flag Jayne McClenaghan wrote:

Very confused. When you turn is that a new row on the pattern or the same row in reverse? So for example when I work 46 I have completed the first 5 stitches of the pattern and then turn, do I then go to the second row of the pattern or the first town in reverse?

11.03.2023 - 12:52

DROPS Design answered:

Dear Jayne, when turning and working the "return row" you work the next row in the chart. You can also check the following video for more details: https://www.garnstudio.com/video.php?id=187&lang=en. Happy knitting!

12.03.2023 - 17:12

country flag Catherine wrote:

So ein schönes Modell aber auch mit Videotutorial nicht zu schaffen. Warum springt man mitten im Muster immer auf die Linie davor? Schade ☹️

13.02.2023 - 19:48

country flag Keth wrote:

Bonjour Je ne comprends pas l’explication suivante pour l’épaule : tricoter les 23-25-28 (30-33) premières m, tourner et tricoter le rang suivant à l'end ; tricoter toutes les 29-31-34 (36-39) premières m, tourner et tricoter le rang suivant à l'end*. Faut-il tricoter toutes les mailles à l’endroit quand on tourne ou faut-il respecter M1.

12.05.2022 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Keth, effectivement, il faut continuer à tricoter comme avant, point mousse et M.1 pendant ces rangs raccourcis, la mention "à l'endroit" a été supprimée, merci pour votre retour. Bonne continuation!

13.05.2022 - 07:57

country flag Janet Odell wrote:

Hello ! Is there an English version of this lovely pattern please?

10.04.2022 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Janet, you can select the language under the photos of the pattern. Here is the link to the Eng/UK version: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=4910&cid=19 (there is another version with the US terms as well). Happy knitting!

10.04.2022 - 19:50

country flag Gerda Verheecke wrote:

Heel mooi model Heb de uitleg 2 à 3 keer moeten lezen alvorens ik de volledige breimethode begreep! Maar dan ging het vanzelf! Ik heb het in streepjes gebreid, om de 16 rijen een andere kleur met 5 verschillende kleuren! ( allemaal restjes wol!) Jammer dat ik hier geen foto kan mee sturen! Het is voor mijn kleindochterje, kindje van mijn dochter en haar Rwandeese echtgenoot: dus met een bruin huidje! Daardoor komen de kleuren nog beter tot hun recht! Bedankt voor dit gratis patroon 👍

28.02.2022 - 10:18

country flag Katja wrote:

Tut mir leid, war zu voreilig - Ich hab's "geknackt". Alles in Ordnung mit dem Diagramm ;-)

03.02.2022 - 20:09

country flag Katja wrote:

Irgendwie verstehe ich das Diagramm nicht... 1 M re in Hin-R, 1 M li in Rück-R 1 M li in Rück-R, 1 M re in Hin-R - sind hier möglicherweise Rück-R und Hin-R verwechselt worden?

03.02.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Liebe Katja, oops es sieht so aus, daß das 2. Symbol nicht richtig sieht, diese Masche (mit Kreuz) sollten Sie links bei Hin-Reihen und rechts bei Rückreihen stricken - so stricken Sie die 2 Maschen beidseitig krausrecht und die 2 Maschen beidseitig vom Lochmuster glatt links. Danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

04.02.2022 - 08:28