DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Peach

Sett með prjónuðu poncho fyrir börn með hettu og prjónaðar tátiljur úr DROPS Snow eða DROPS Wish

DROPS Baby 16-1
PONCHO:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
250-250-300 (300-350) g nr 30, pastelbleikur.

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
200-200-250(250-250) gr nr 02, hvít þoka.

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 10 – fyrir snúru.

TÁTILJUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) g nr 30, pastelbleikur.

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
50-50-50 (100-100) gr nr 02, hvít þoka.

DROPS PRJÓNAR NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl.
Endurtakið umf 2.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan).
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Byrjað er á hettunni.

Fitjið upp 37-39-41 (45-47) l á hringprjóna nr 8 með Snow eða Wish. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka með 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 19-21-23 (25-27) cm prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3 (7-7) l jafnt yfir (ekki er l fækkað yfir 3 l garðaprjón í hliðum) = 34-36-38 (38-40) l.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið (séð frá réttu) þannig: 1. prjónamerki eftir 4 l, 2. prjónamerki eftir 13-14-15 (15-16) l, 3. prjónamerki eftir 21-22-23 (23-24) l og 4. prjónamerki eftir 30-32-34 (34-36) l.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt frá röngu.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 l garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í umf 1 frá réttu er aukið út þannig – sjá ÚTAUKNING: Aukið út á EFTIR 1. prjónamerki, á UNDAN 2. prjónamerki, á EFTIR 3. prjónamerki og á UNDAN 4. prjónamerki (= 4 útaukningar). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 16-18-19 (21-22) sinnum til viðbótar = 98-108-114 (122-128) l.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-7-8 (9-10) cm prjónið áfram hringinn á hringprjóna í sléttprjóni – þær 6 l við miðju að framan eru prjónaðar brugðið í umf 1, síðan í sléttprjóni. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar er prjónuð 1 umf sléttprjón yfir allar l. Eftir það er prjónað perluprjón hringinn yfir allar l í 4-4-5 (5-6) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hettuna saman efst – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

SNÚRA:
Heklið ll-snúru ca 1 meter með 2 þráðum Snow eða 2 þráðum Wish og heklunál nr 10. Þræðið snúruna upp og niður ca á milli hverra l í umf á eftir umf með garðaprjóni neðst á hettunni. Hnýtið hnút á hvorn enda.
----------------------------------------------------------

TÁTILJA:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá tá að hæl.

Fitjið upp 16-16-18 (18-20) l á prjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið, þar til stykkið mælist ca 4-4½-5 (6-6½) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf eru prjónaðar 2 l í hverja og eina af 2 miðju-l (þetta er gert til að tátiljan verði hærri ofan á fæti) = 18-18-20 (20-22) l, prjónið 1 umf br til baka. Setjið síðan fyrstu 9-9-10 (10-11) l (frá réttu) á þráð.

FYRRI HLIÐ: Prjónið 1 umf yfir þær 9-9-10 (10-11) l sem eftir eru á prjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og fitjið upp 5-6-6 (7-7) nýjar l í lok umf – þessar nýju l á að prjóna slétt í hverri umf til loka, hinar l eru prjónaðar eins og áður = 14-15-16 (17-18) l. Prjónið áfram þannig: * 1 umf yfir fyrstu 5-6-6 (7-7) l, snúið við og prjónið til baka, 1 umf yfir allar l, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 10-11-12 (14-16) cm á hliðinni sem er lengst, fellið af.

SEINNI HLIÐ: Setjið til baka l af þræði á prjóninn, prjónið 1 umf slétt frá réttu og fitjið upp 5-6-6 (7-7) nýjar l í lok umf = 14-15-16 (17-18) l. Prjónið áfram eins og á fyrri hlið þar til stykkið mælist 10-11-12 (14-16) cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Leggið tátiljuna tvöfalda og saumið saman við miðju að aftan og undir fæti – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þræðið þráð í gegnum bogana í uppfitjunarkanti = tá, herðið að og festið enda.

Prjónið aðra tátilju alveg eins.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Peach

Vicki, United States

Little Peach

danifrani, United States

Little Peach

bmg32759, United States

Little Peach

Ellisine, France

Little Peach

Susan, United States

Red Riding Hood

Lisa, United States

b16-1 Little Peach Poncho

Gladys, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (388)

country flag Jessy Whited wrote:

Sorry, I didn't ask it correctly. My question is about the stitches I pick up from the stitch holder. If I add 6 to the 9 I picked up from the stitch marker which end of the RS do I add the 6 to? Thank you

17.09.2020 - 14:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Whited, on the 2nd part of slippers, if you worked from RS the 9 sts before slipping them on a thread, cast on the new 6 sts first then work the 9 sts from WS (= the 6 new sts should be at the end of the row, see from RS). Happy knitting!

17.09.2020 - 16:28

country flag Jessy Whited wrote:

I am working on the booties and am confused with the adding 6 stitches on the second half. Do they need to be on the side of RS that is near the body of the booties or at the end of the row near the split? thank you

17.09.2020 - 13:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Whisted, from RS you work the first 9 or 10 sts (see size) and slip them on a thread/stitch holder - then work the remaining 9 or 10 sts on needle, turn and work WS row, at the end of this WS row cast on the 6 new sts, turn and from RS work the first 6 sts in garter stitch and the remaining sts in stocking stitch as before (with short rows over the sts in garter st). Happy knitting!

17.09.2020 - 13:41

country flag Joy Elizabeth HELMAN wrote:

Is this poncho able to be knitted on straight needles?

30.07.2020 - 07:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Helman, you will find here how to adapt a pattern into straight needles. Happy knitting!

30.07.2020 - 09:26

country flag Tamara wrote:

Quando metto la divisione con i segna punti non dovrebbero essere 4 , 16, 23, 36, e 4? E poi perché facendo il calcolo le maglie sono di più rispetto a quelli che segnato maglie totali dopo la diminuzione?

09.06.2020 - 17:28

DROPS Design answered:

Buongiorno Tamara. Le maglie vanno contate dall'inizio del ferro. Dopo l'ultimo segno, rimangono 4 maglie. Buon lavoro !

09.06.2020 - 21:50

country flag Alicia Whittaker wrote:

How can you tell me what thickness of wool I need to use please

05.06.2020 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Whittaker, this poncho is made in DROPS Eskimo - click here to read more about the yarn and order. Happy knitting!

08.06.2020 - 07:30

country flag Diane wrote:

I loved this pattern and knitted it up. When I posted a picture of the hooded poncho to a knitting group on Facebook there was a comment about the ties being dangerous for a baby and that they should be omitted. What do you know about this?

03.06.2020 - 11:48

DROPS Design answered:

Dear Diane, we can't see why they should be dangerous, but if you are worried, you could perhaps remove the ties and sew a button on.

04.06.2020 - 08:30

country flag Catherine Heppes wrote:

Is the yarn for this pattern a chunky or super bulky weight. Is it No. 5 or No. 6? When I purchased this pattern, I was given No. 4 worsted 100% cotton yarn to be used with this pattern. I don’t think it is going to work. Should I be using a chunky weight yarn?

14.05.2020 - 06:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Heppes, this pattern is worked with DROPS Eskimo which is a yarn 14 ply /superbulky - read more here on its shadecard. Our pattern are free, did you buy a kit? Please contact the store where you bought the yarn to get more informations about the yarn they sold you, pattern should be free. Happy knitting!

14.05.2020 - 08:17

country flag Michaela wrote:

Hej! Jag skulle så hemskt gärna vilja sticka denna med tunnare garn. För våren/hösten. Kan jag få hjälp att omvandla till garn ca: 22m? Vore så tacksam då jag inte hittar något mönster med tunnare garn som jag klarar av.

23.04.2020 - 15:42

DROPS Design answered:

Hej Vi har dessvärre inte möjlighet att räkna om detta mönster, men vi har t.ex. mönster DROPS Baby 17-5 som är med ett tunnare garn som du kanske skulle kunna göra. Mvh DROPS Design

24.04.2020 - 10:05

country flag DEBORAH MARIA BLANCO MOLINA wrote:

NO VEO EL PATRÓN DE LA CAPUCHA, DONDE PUEDO ENCONTRARLO?

08.04.2020 - 12:33

DROPS Design answered:

Hola Deborah. La realización del modelo comienza con la capucha, se trabaja de arriba abajo.

14.04.2020 - 21:37

country flag Inna wrote:

Ich habe schon den Poncho die Nummer 5 geschrtick ,natürlich von verschiedene,dicke Wolle.Sie sind immer gut und mit vielen freunde angekommen.

09.03.2020 - 17:16