DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14058.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

After the Blizzard

Prjónuð peysa og húfa úr 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-16
DROPS Design: Mynstur fa-482
Garnflokkur A + C + C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: 54/56 - 54/56 - 56/58 - 56/58 - 58/60 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 912, súkkulaði
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
325-375-400-425-475-525 g litur 01, natur

PEYSA:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-300-350 g litur 912, súkkulaði
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-325-350-400-425-475 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 - 58/60

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 912, súkkulaði
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
50-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8:

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14058.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 75 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,7.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur og kantlykkjur að framan.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál á peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið fyrstu 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar á peysu):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið 1 kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri) og prjónið 1 kantlykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

TVEIR ÞRÆÐIR (á við um húfu):
Ef prjónað er með 2 þráðum frá 1 dokku, notið þráðinn bæði innan úr og utan með dokkunni.

ÚRTAKA-3 (á við um húfu):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona við öll prjónamerkin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og prjónað er neðan frá og upp.
Þegar öll stykkin hafa verið prjónuð til loka, er stykkið sett saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 69-75-81-87-97-107 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-20-22-22-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok umferðar = 52-56-60-66-72-80 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok umferðar = 53-57-61-67-73-81 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 1-1-2-4-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 51-55-57-59-61-65 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 16-18-18-19-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-54-56-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (= 51-55-57-59-61-65 lykkjur í umferð). Setjið nú 11 miðju lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl (= 20-22-23-24-25-27 lykkjur), eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5-6-6 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 16-18-18-19-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-44-46-46-50-50 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 34-34-36-36-38-38 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með ca 8-6½-6-5-4½-3½ cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-49-48-46-45-43 cm, eða að óskaðri lengd fyrir ermakúpu (nú eru eftir ca 1-1-2-4-5-7 cm á ermakúpu að loka máli).
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar og er notað þegar sauma á ermina við handveg.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg og kant með affellingu meðfram ermakúpu.
Saumið botninn á handvegi – prjónamerkin sem voru sett í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki – sjá teikningu.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til 12 cm eru eftir neðst í hvorri hlið á fram- og bakstykki fyrir klauf.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 46 til 66 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk (= 3 þræðir). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Í næstu umferð eru allar 1 lykkja brugðið aukið út til 2 lykkjur brugðið = ca 69 til 99 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt þar til kantur í hálsmáli mælist ca 12 cm. Fellið af – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið upp 64-68-72 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Alpaca Silk (= 3 þræðir) – sjá TVEIR ÞRÆÐIR.
Prjónið 1 umferð brugðið.
Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1
= 54-56-58 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið síðan sléttprjón hringinn í 13-15-17 cm (stykkið mælist alls ca 27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð, setjið næsta prjónamerki eftir 6-7-8 lykkjur, setjið næstu 6 prjónamerki með 7 lykkjur á milli prjónamerkja í öllum stærðum, nú eru eftir 6-7-8 lykkjur í umferð á milli síðasta prjónamerki og fyrsta prjónamerki í umferð.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-3.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 3 sinnum = 30-32-34 lykkjur.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 15-16-17 lykkjur eftir.
Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til eftir er 1-0-1 lykkja í umferð, prjónið 1-0-1 lykkjur slétt = 8-8-9 lykkjur eftir.
Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel.
Húfan mælist ca 34-36-38 cm frá uppfitjunarkanti (= 25-27-29 cm með 9 cm uppábroti).

Mynstur

symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Iwona wrote:

Dzień dobry To jest mój debiut z Drops Design. Nie rozumiem zapisu: przerobić 1 rząd na prawo na prawej stronie robótki, równomiernie zamykając 10-10-10-10-12-12 oczek – pamiętać o ZAMYKANIU OCZEK-1 = 34-34-36-36-38-38 oczek. Konkretnie co oznacza 10-10-10 itd. Bardzo proszę o pomoc :)) pozdrawiam

05.03.2024 - 12:19

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, cały ciąg liczb dotyczy wszystkich rozmiarów. Jeśli przerabiasz rozmiar S, wybierasz zawsze 1-szą cyfrę z ciągu 6 cyfr rozdzielonych myślnikami, rozmiar M drugą cyfrę itd. Podstawy czytania naszych wzorów znajdziesz w kursie DROPS TUTAJ. W razie pytań śmiało pisz. Pozdrawiamy!

05.03.2024 - 15:47

country flag Dom wrote:

Bonjour, pourrier-vous me dire quelles couleurs de laine ont éténutilisées pour le modèle illustré ? Merci

04.01.2023 - 20:08

DROPS Design answered:

Bonjour Dom, retrouvez les références des couleurs et les quantités pour chaque taille dans l'en-tête, en même temps que les tailles, les aiguilles et l'échantillon. Bon tricot!

05.01.2023 - 10:58

country flag Marie-No wrote:

Bonjour, y a-t-il moyen de tricoter en rond après les côtes pour le corps, et en rond les manches ? Merci de votre aide.

24.12.2021 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Merie-No, c'est tout a fait possible. Bon tricot!

28.12.2021 - 13:03

country flag Kate wrote:

I’m not a spammer. I submitted a genuine question but it was blocked

26.10.2021 - 12:48

country flag Kate Smith wrote:

On the double neck part - what does - all purl -1 to purl -2 mean

26.10.2021 - 12:45

DROPS Design answered:

Dear Kate, to "increase all purl -1 to purl -2" means that we have to add 1 stitch to every purl stitch (so purl 1 becomes purl 2). We can do this increasing in various ways, for ex. by YO - see our video tutorials under the pattern. Happy knitting!

26.10.2021 - 16:44

country flag Sonja wrote:

Winter in Stockholm

13.08.2021 - 12:29

country flag Beate Nolte wrote:

Name: Frozen Fog

03.08.2021 - 19:25