Sunshine Road |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat með köðlum, stroffprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 223-25 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við ystu 4 lykkjurnar í hvorri hlið við handveg. Þessar 4 lykkjur eru prjónaðar frá kanti þannig (séð frá réttu): 2 kantlykkjur í garðaprjóni yst við handveg og síðan 2 lykkjur í sléttprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 KANTLYKKJUM ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 KANTLYKKJUM ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4 kantlykjum og prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Prjónað er í stroffprjóni með köðlum og blaðamynstri á framstykki og stroffprjóni á bakstykki. Þegar handvegurinn byrjar, prjónið framstykki og bakstykki fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka. Stykkið er saumað saman á öxlum. Síðan er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 178-202-226-250-274-298 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 30-36-42-48-54-60 lykkjur (= 5-6-7-8-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2 (= 32 lykkjur), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 19-22-25-28-31-34 mynstureiningar með 6 lykkjum) og endið með 1 lykkju slétt Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir fyrstu 94-106-118-130-142-154 lykkjur (prjónamerkin sitja á milli 2 lykkja í hvorri hlið á fram- og bakstykki og það eru 84-96-108-120-132-144 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, en stillið af að næsta umferð sé oddatala í umferð í A.2 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðli frá röngu þegar framstykkið og bakstykkið er prjónað áfram fram og til baka á hringprjóna). Í næstu umferð eru prjónaðar 4 umferðir GARÐARPJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10 lykkjurnar í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin) – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í fyrstu umferð eftir 4 umferðir garðaprjón er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið eins og áður yfir næstu 88-100-112-124-136-148 lykkjur, fellið af 6 lykkjur (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið eins og áður yfir næstu 78-90-102-114-126-138 lykkjur og fellið af síðustu 3 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls. FRAMSTYKKI: = 88-100-112-124-136-148 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 2 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-12-12-22-20-30 sinnum og síðan í 4. herri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-6-6-2-4-0 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 41-42-44-45-47-48 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – stillið af að fyrsta umferð sé oddatala í umferð A.2, en forðist að byrja á úrtöku fyrir hálsmáli í kaðlaumferð og ef úrtaka í hálsmáli lítur út fyrir að byrja í miðju á blaði, forðist að byrja á blaði á undan úrtöku fyrir hálsmáli, þ.e.a.s. prjónið brugðið frá réttu/slétt frá röngu yfir þessa lykkju fram að úrtöku fyrir hálsmáli. Í fyrstu umferð (rétta) setjið miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður yfir axlalykkjur, fækkið lykkjum fyrir handveg frá réttu eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli eru 13-13-18-18-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 78-90-102-114-126-138 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við handveg – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 0-2-0-12-10-20 sinnum, í 4. hverri umferð alls 0-11-13-7-9-5 sinnum og í 6. hverri umferð alls 7-0-0-0-0-0 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður yfir axlalykkjur, haldið áfram með úrtöku fyrir handveg eins og áður ef úrtöku er ekki lokið og fellið jafnframt af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og hálsmái eru 13-13-18-18-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 96 til 112 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með Muskat. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), en passið uppá að lykkjurnar passi fallega yfir lykkjur í A.2 mitt að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 18-18-18-20-20-20 cm – eða við óskaða lengd, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið hálsmálið niður tvöfalt að röngu og saumið með smáu, lausu spori. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Karine wrote:
Ma ei saanud aru kuidas tuleb kahandada käeauku?
02.07.2022 - 17:51DROPS Design answered:
Tere Karine! Käeaugud kahandatakse pärast kehaosa jagamist esi- ja seljaosaks. Kahandatakse mõlemal küljel 4 ääresilmuse kõrval nagu mainitud kahandamise nipis juhendi alguses. Head kudumist!
08.07.2022 - 21:44Kerstin wrote:
Liebes Drops-Team,\r\nIch habe eine Frage zu A2: Bei der 5. Masche in Reihe 3 , sollen 5 Maschen aus einer gestrickt werden. Es gibt dafür keine angegebene Videohilfe. Soll ich dabei wirklich rechts und links im Wechsel stricken? So ist es angegeben oder statt der linken Masche einen Umschlag? Mit lieben Grüßen von Kerstin
31.03.2022 - 22:23DROPS Design answered:
Liebe Kerstin, dieses Video zeigt, wie man 5 Mal dieselbe Masche stricken soll - nun sollen Sie hier diese 5 Maschen stricken, wie im Diagram geschrieben, und nicht wie danach im Video gezeigt wird (anderes Muster). Viel Spaß beim stricken!
01.04.2022 - 07:59Emilie wrote:
Récolte de blé mûr
15.01.2021 - 13:54Monica Belotti wrote:
Il collo è favoloso! Non so perché ma mi ispira il nome (titolo di un libro) "Americanah"
12.01.2021 - 17:18Helen wrote:
Spring Sun
11.01.2021 - 10:40Carola Wijma wrote:
For my granddaughter
08.01.2021 - 06:59