DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Renaissance Memories

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köðlum og trompetermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 222-41
DROPS Design: Mynstur sk-122
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 18, daufbleikur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 220 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 6,1.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 lykkju brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerkið situr hér, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Endurtakið við hvert og eitt af þeim prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur færri).

V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki og ermar er prjónað í hring á hringprjón upp að berustykki. Síðan eru öll stykkin sett inn á sama hringprjón. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að V-hálsmáli, síðan er afgangur af berustykki prjónað fram og til baka. Að lokum er kantur í hálsmáli prjónaður á öxlum og aftan í hnakka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 220-240-264-284-312-348 lykkjur á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-40-44-48-52-60 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 184-200-220-236-260-288 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið nú sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-27-27-27-26-26 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 42-46-50-54-59-64 lykkjur í umferð (= hálft bakstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-100-108-118-128 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 8-8-10-10-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær 42-46-50-54-59-64 lykkjur sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 112-112-119-119-126-133 á hringprjón 4 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3.
UMFERÐ 1: Prjóni (2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið) umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur umferðina hringinn.
UMFERÐ 3: Prjónið (2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið) og fækkið jafnframt allar 5 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið – sjá ÚRTAKA-2 = 96-96-102-102-108-114 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5 cm, eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað til 3 lykkjur brugðið = 80-80-85-85-90-95 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 9 cm, eru allar 3 lykkjur brugðið fækkað til 2 lykkjur brugðið = 64-64-68-68-72-76 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12 cm, eru allar 2 lykkjur brugðið fækkað til 1 lykkju brugðið = 48-48-51-51-54-57 lykkjur.
Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til 48-50-54-58-58-60 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón í 1-1-1-1-3-2 cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi).
Í næstu umferð byrjar útaukning undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-16-16-17-18 sinnum = 70-78-86-90-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-43-39-38-36-34 cm, fellið af 8-8-10-10-12-16 lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-5-5-6-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 62-70-76-80-80-80 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 292-324-352-376-396-416 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið á milli framstykkis, bakstykkis og erma, en prjónamerkin færast til þannig að 1-1-1-2-4-6 lykkjur í hvorri hlið á framstykki og bakstykki koma í hvorri hlið á ermum.
Þ.e.a.s. það verða 82-90-98-104-110-116 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki og 64-72-78-84-88-92 lykkjur fyrir hvora ermi. Byrjið umferð mitt að aftan og haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í 3. umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan og í 3.-3.-6.-8.-14.-16. umferð er prjónað v-hálsmál á framstykki eins og útskýrt er að neðan.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 2-1-1-1-3-4 sinnum og í annarri hverri umferð 22-27-30-33-33-34 sinnum (= alls 24-28-31-34-36-38 sinnum).

V-HÁLSMÁL:
Í 3.-3.-6.-8.-14.-16. umferð, prjónið A.1 yfir miðju 10 lykkjurnar á framstykki – stillið af að fyrsta umferðin í A.1 sé prjónuð í umferð með úrtöku (laksalína), þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúningur á kaðli komi í umferð frá röngu þegar prjónað er fram og til baka.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið til baka að byrjun á umferð mitt að aftan.
Klippið þráðinn frá.
Nú skiptist framstykkið mitt í A.1 (= mitt að framan) og síðan er prjónað fram og til baka með byrjun frá réttu, við V-hálsmál á framstykki þannig:
Prjónið A.2 yfir fyrstu 5 lykkjur frá skiptingu mitt á framstykki, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón (haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður) þar til 7 lykkjur eru eftir við skiptingu mitt á framstykki í gagnstæðri hlið, fækkið um 1 lykkju – munið eftir V-HÁLSMÁLI, prjónið A.3 yfir síðustu 5 lykkjurnar.
Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 6-3-4-2-3-3 sinnum og í 4. hverri umferð 6-9-9-11-11-12 sinnum (= alls 12-12-13-13-14-15 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið).

Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og laskalínu hefur verið gerð til loka, eru 76-76-78-78-80-82 lykkjur í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 16 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 34-34-36-36-38-40 lykkjur á bakstykki jafnframt því sem fækkað er um 11 lykkjur jafnt yfir, prjónið 16 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu 3 lykkjur slétt = 63-63-65-65-67-69 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur til baka frá röngu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Skiptið yfir á hringprjón 3.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Setjið eitt prjónamerki mitt að aftan. Setjið síðustu 4 lykkjur á prjóni á þráð og prjónið fram og til baka yfir fyrstu 4 lykkjur fyrir kant í hálsmáli, jafnframt því sem kantur í hálsmáli er prjónaður saman við þær lykkjur sem eftir eru á ermi og hálsmáli á bakstykki þannig:
Prjónið frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
UMFERÐ 2: Snúið og prjónið brugðnar lykkjur yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið brugðnar lykkjur yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 5-8: Prjónið alveg eins og 3. og 4. umferð.
Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur í kanti í hálsmáli.

Setjið til baka 4 lykkjur af þræði á hringprjón 3 og prjónið frá röngu þanngi:
UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
UMFERÐ 2: Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 3 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri).
UMFERÐ 4: Snúið og prjónið sléttar lykkjur yfir 4 lykkjur.
UMFERÐ 5-8: Prjónið alveg eins og 3. og 4. umferð.
Endurtakið umferð 1-8 þar til prjónað hefur verið fram að prjónamerki mitt aftan í hnakka. Fellið af 4 lykkjur í kanti í hálsmáli. Saumið saman affellingarkantinn í 2 köntum í hálsi mitt aftan í hnakka. Klippið þráðinn frá og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.11.2021
V-HÁLSMÁL:...prjónið næstu 3 lykkjur slétt = 63-63-65-65-67-69 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Ines Biernath wrote:

Hallo!\r\nIch habe alle Kommentare gelesen, verstehe aber immer noch nicht, wie das mit der Halsblende funktionieren soll. Gibt es ein Video dazu? Anhand der geschriebenen Anleitung kann ich den schönen Pullover nicht zu Ende führen.\r\nLieben Gruß, \r\nInes

29.04.2023 - 18:42

country flag Ursula wrote:

Hallo, ich stricke den Pullover in Gr. M. Bei der Maschenprobe habe ich 31 Reihen anstatt 28 Reihen. Damit der Raglan und Halsauschnitt stimmt, stricke ich dann 3 jeweils zusätzliche Reihen auf 10 cm? Viele Grüße Ursula

18.02.2023 - 17:19

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, also ja genau, Sie sollen regelmäßig verteilt extra Reihen zwischen den Reihen mit den Abnahmen stricken stricken. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2023 - 09:36

country flag Susi wrote:

Wird die Halsblende bei diesem Ausschnitt etwa wie eine I-Cord Kante gestrickt ? \r\nSonst verstehe ich es einfach nicht. :-(

16.02.2023 - 13:06

DROPS Design answered:

Liebe Susi, ja genauso wird die Halsblende mit der I-Cord Technikk abgekettet/gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2023 - 14:04

country flag Riky wrote:

Hallo, leider komme ich nicht mit der Anleitung der Halsblende klar. 4 Maschen über 8 Reihen aber doch die Maschen für die Ärmel bis zur hinteren Mitte mitstricken? Ich bin völlig 😕

20.09.2022 - 20:37

DROPS Design answered:

Liebe Riky, diese 4Maschen stricken Sie als Halsblende bis zur hinteren Mitten, dh die 8 Reihen wiederholen Sie so daß alle Maschen auf der Nadel werden zusammen mit den 4 Maschen der Halsblende gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

21.09.2022 - 09:33

country flag Leonie wrote:

Ik snap de uitleg van de hals rand niet, kunnen jullie het wat beter voor mij omschrijven?

14.12.2021 - 17:58

DROPS Design answered:

Dag Leonie,

Het is denk ik een beetje verwarrend doordat er eerst staat dat je de laatste 4 steken op een hulpdraad moet zetten. Volgens mij kun je dit achterwege laten en gelijk met 'NAALD 1" beginnen. Op de goede kant brei je dan eigenlijk steeds de 4e en 5e steek samen, je keert het werk en breit terug aan de verkeerde kant (naald 2). Dit doe je tot de markeerdraad midden achter en daarna pak je de andere kant, waarbij je steeds op de verkeerde kant steek 4 en 5 samen breit.

15.12.2021 - 17:16

country flag Leonie wrote:

Ik snap het punt in de v hals niet. NA A1 moet je verder met A2 maar dan staat er ga zo verder heen en weer en minder voor de v hals iedere 2e naald 4 keer en iedere 4e naald 9 keer in totaal 13 steken vermindert aan beide kanten. Ik snap hier niks van

03.12.2021 - 21:06

DROPS Design answered:

Dag Leonie

Nadat je A.1 hebt gebreid, brei je niet langer in de rondte, maar brei je heen en weer. Je breit dan aan het begin van de naald (aan de goede kant gezien) A.2 en aan het eind van de naald brei je A.3. Hierdoor heb je in de halslijn aan de goede kant steeds 3 recht en 2 averecht. (De rest van het werk is in tricotsteek)

08.12.2021 - 10:44

country flag Leonie De Lang wrote:

Bij de v hals start ik met 306 steken en brei je de volgende naalden:\r\n1. A2 mindering, verder recht en raglan A3\r\n2. A3, verder averechts, A2\r\n3. A2 mindering, verder recht en erg kan A3\r\n4. A3, averechts, A2\r\nHoe ga ik verder? Ik snap de zin niet minder iedere 2e naald 4 keer en iedere 4e naald 9 keer =13 steken reminders voor de v hals aan beide kanten. Hoe kom ik uiteindelijk op 78 steken over? Doe ik het wel goed?

01.12.2021 - 16:06

country flag Marie wrote:

N'y a-t-il pas une erreur dans la fin des explications de l'encolure V ? Si on diminue les 11mailles comme indiqué il reste alors 64 mailles et non 74. Faut-il ou non diminuer ces 11 mailles ? Merci de bien vouloir m'éclairer.

28.11.2021 - 21:41

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, merci pour votre retour, il restera effectivement 63-63-65-65-67-69 mailles (on diminue 13 mailles au total). La correction a été faite, bonne continuation!

30.11.2021 - 09:10

country flag Nicole wrote:

Ihr Lieben! Wenn ich nach allen Ausschnitt- und Raglanabnahmen (74 M auf der Nadel) den Anweisungen für die nächste Hinreihe folge, habe ich aber nicht wie angegeben 74 Maschen sondern nur noch 63 auf der Nadel (76-1-11-1=63). Kann es sein, dass ihr da einen Fehler drin habt oder habe ich einen Denkfehler? Liebe Grüße von Nicole

06.10.2021 - 13:06

Nicole answered:

Sorry, 76 Maschen natürlich! 76 minus 1 minus 11 minus 1 = 64 statt 74 wie angegeben.

06.10.2021 - 13:09

country flag Ingrid wrote:

Tack för snabbt svar

10.05.2021 - 15:55