DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sparrow Song

Prjónuð peysa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, blaðamynstri og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-11
DROPS Design: Mynstur no-042
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 g litur 07, ljós beige

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5698.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 4,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-20-21-22 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-40-42-44 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-60-63-66 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-80-84-88 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-100-105-110 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-120-126-132 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-116-120-124-130-134 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með Nord. Prjónið A.1 hringinn.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 25-29-40-44-44-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNIN = 135-145-160-168-174-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið A.2 hringinn (= 27-29-32-28-29-30 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 351-377-416-448-464-480 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-15-15-17-17-17 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Nú er A.3 prjónað hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð í A.3 eru auknar út 5-7-0-18-22-36 lykkjur jafnt yfir = 356-384-416-466-486-516 lykkjur.
Prjónið A.3 þar til berustykkið mælist ca 19-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað brugðið JAFNFRAMT sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 52-57-61-69-73-79 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 74-78-86-96-98-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 104-114-122-137-145-158 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 74-78-86-96-98-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið brugðið yfir síðustu 52-57-61-68-72-79 lykkjur (= ½ bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 220-240-260-290-310-340 lykkjur.
Byrjið umferð í hlið – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið A.4 hringinn (= 22-24-26-29-31-34 mynstureiningar með 10 lykkjum).
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 29 cm frá skiptingu. Nú er eftir ca 1 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 74-78-86-96-98-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-84-94-104-108-112 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 0-2-2-2-4-1 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 yfir næstu 80-80-90-100-100-110 lykkjur (= 8-8-9-10-10-11 mynstureiningar með 10 lykkjum) og endið með 0-2-2-2-4-1 lykkju sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 15-16-19-23-24-25 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-42-40-41-39-38 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Nú er eftir ca 1 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 44-43-41-42-42-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til 5 lykkjur eru á prjóni (= 4 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu, prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur. Steypið síðan 2. lykkju á hægri prjóni yfir fyrstu lykkjuna, steypið 3. lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna, steypið 4. lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og steypið að lokum 5. lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna (= 4 lykkjur færri), prjónið áfram
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur snúnar brugðið saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sparrow Song

Leire Barbero, Spain

Sparrow Song

Christine Rivière, France

Sparrow Song

Colleen, United States

Sparrow Song

Lena, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Leroux Michèle wrote:

Bonjour, j'aimerais savoir comment faire car tous les modèles que je fais, font des roulottes dans le bas du coups, ce n'est pas joli.?

22.04.2024 - 08:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leroux, si la bordure du bas de votre pull se retourne/s'enroule, vous pouvez le bloquer ou simplement le laver (suivez attentivement les consignes d'entretien de la laine choisie) en ajoutant des épingles si besoin. Bonne continuation!

22.04.2024 - 09:06

country flag Paule Hourdebaigt wrote:

Je reviens vers vous par rapport aux échantillons. Ce pull est fait en laine Nord, 24 m pour 10 cm, 170 mètres de fil.\r\nFlora est également annoncée 24m pour 10cm mais 210 mètres de fil. \r\nJe pense qu\'il y a une incohérence dans le nombre de mailles données pour les échantillons. il en est de même pour Fabel (205 m) avec laquelle je tricote beaucoup de chaussettes. Mon échantillon pour cette laine est de 32 mailles.

03.01.2024 - 20:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hourdebaigt, en fonction de sa composition, le métrage peut varier d'une laine à l'autre, pour le même poids, toutefois, ce qui compte pour obtenir le résultat final, c'est bien la tension, si vous avez 32 mailles au lieu de 24 pour ce modèle, votre pull sera beaucoup trop petit, il vous faudra donc utiliser des aiguilles plus grosses pour obtenir les 24 mailles demandées ici et ainsi obtenir les mesures finales indiquées dans le schéma. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:46

country flag Paule Hourdebaigt wrote:

Bonjour. Pour faire ce pull j\'ai acheté la qualité Flora. J\'ai fait comme d\'habitude un échantillon. Pour 24 m j\'obtiens 7,5 centimètres en aiguilles 3 et en aiguilles 3,5 pour 24 m j\'obtiens 8 cm. Je ne comprends cette énorme différence et pourtant je suis une tricoteuse expérimentée. Avez vous déjà eu ce problème? Je ne sais pas quoi faire avec cette laine et suis bien déçue.

03.01.2024 - 20:36

country flag Julia Schwarz wrote:

Bei mir rollen sich die Saumabschlüsse (Krausrippen) nach oben. 😔 Wie kann ich das korrigieren? Liebe Grüße

16.12.2023 - 08:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schwarz, ie können den Pullover mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.

18.12.2023 - 08:17

country flag Rene Tepper wrote:

Many thanks for your prompt reply! Regards.

11.12.2023 - 14:49

country flag Rene Tepper wrote:

Good day! Thank you for your previous reply. Now I have another question: I'm starting the sleeves now and I am not certain about the 2 STOCKING STITCH stitches on either side of the underarm. In other words do I knit one row and purl the next over these 4 stitches? If so, what significance would this have or can I just knit those stitches? Thank you for your time. Kind regards.

09.12.2023 - 10:57

DROPS Design answered:

Dear Rene, these are to ensure the pattern fits in the sleeve stitches. The sleeves are worked in the round, so you don't work in rows. Therefore, when working in stocking stitch, you will knit all rounds. So you will always knit these stitches. Happy knitting!

10.12.2023 - 21:22

country flag R Tepper wrote:

Goodday! Hope this is not a silly question. I am knitting the large size in this pattern and I am nearly finished with A2 - 416 sts. A3 no increased sts for this size. A3 is a 6 st repeat which is not evenly divisible into 416sts. As it is just 3 knit rows and 1 purl row, should I just carry on or am I missing something? Thank you for your assistance,

20.10.2023 - 17:42

DROPS Design answered:

Dear R Tepper, as you can see, all stitches in the same round of A.3 are worked in the same way. You knit 3 rounds and purl the 4th one and repeat as necessary. So, even though we chose to represent as a 6-stitch pattern, since all stitches are worked in the same way, it doesn't matter that 416 isn't divided by 6. Simply knit all stitches on the first 3 rounds and purl them on the 4th one. Happy knitting!

22.10.2023 - 23:21

country flag Pam Schmidt wrote:

I am interested in knitting the "Sparrow Song". Lovely design. I am curious if you would have the pattern in written form rather than as a knitting diagram? Reading a diagram is visually difficult to follow even with enlarging the pattern. Thank you

28.07.2022 - 00:25

DROPS Design answered:

Dear Pam, all patterns are only available in the format they are published in. We don't make custom patterns. Happy knitting!

28.07.2022 - 13:25

country flag Myriam DEVAUCHELLE wrote:

Bonjour, la réhausse se tricote t'elle quand on a fini le col avant d'entamer l'empiècement? Merci d'avance de votre réponse

23.06.2022 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Devauchelle, tout à fait, vous la tricotez quand le col est fait. Puis, quand la réhausse est terminée, vous tricotez l'empiècement. Bon tricot!

23.06.2022 - 16:14

country flag Silke Steding wrote:

Die Krausrippen laufen in der hinteren Mitte am Ende der Runde nicht aufeinander zu, sondern es entsteht eine Stufe. Kann ich das vermeiden?

16.04.2022 - 22:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Steding, Sie können mal versuchen, den Faden etwas fester zu ziehen, wenn Sie die erste Masche der nächsten Runde (mit rechten Maschen) stricken. Ihr DROPS Laden hat vielleicht noch mehr Tipps für Sie, gerne könnnen Sie dort mal - auch telefonisch oder per E-Mail fragen. Viel Spaß beim stricken!

19.04.2022 - 10:58