Lost in Lavender |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með útaukningu fyrir axlarsæti úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 11. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 : Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-3 (ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki mitt undir ermi. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga ekki að myndast göt. LEIÐBEININGAR: Þar sem allt stykkið er prjónað úr 3 þráðum, þá verður að nota í nokkrum stærðum þráðinn bæði innan í og utan með þeirri dokku sem er eftir. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Á berustykki eru lykkjur auknar út fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 3 þráðum KId-Silk – sjá LEIÐBEININGAR. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-68-72-72-76-76 lykkjur á hringprjón 5 með 3 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið áfram með stroff hringinn í 4 cm, í síðustu umferð eru auknar út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 72-72-76-76-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Teljið 12-12-12-12-12-12 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 24-24-24-24-24-24 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 12-12-12-12-12-12 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er prjónað áfram með A.1 yfir lykkjur á framstykki (= 4 mynstureiningar með 6 lykkjum á breidd) og bakstykki (= 4 mynstureiningar með 6 lykkjum á breidd) og sléttprjóni yfir lykkjur á axlarsæti/ermi. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð er aukið út alveg eins í hverri umferð alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 120-120-132-132-144-144 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: ATH: Lykkjur eru ekki auknar út í stærð XXXL, haldið áfram með útaukningu á berustykki í þessari stærð. STÆRÐ S-M-L-XL-XXL: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-4-5-4-3 sinnum = 140-136-152-148-156 lykkjur. Stykkið mælist ca 14-12-15-13-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ALLAR STÆRÐIR: ÚTAUKNING: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjunum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 20-18-22-18-20-14 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-2. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á fram- og bakstykki og sléttprjón á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-12-12-15-16-19 sinnum = 212-232-248-268-284-296 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 26-28-30-33-34-34 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 33-36-38-41-44-47 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 40-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 lykkjur undir ermi, prjónið 66-72-76-82-88-94 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 40-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 33-36-38-41-44-47 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-176-192-208 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með A.1 yfir allar lykkjur, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-19-18-17-17-19 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 40-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 6. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-10 nýjum lykkjum undir ermi = 44-48-54-58-62-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að auka út lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu svona með 3 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 56-60-66-70-74-76 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-21-20-18-18-19 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 0-0-2-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 56-60-68-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 26-25-24-22-22-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Anna wrote:
Hello, is it possible to knit the back in plain stocking stitch instead of the pattern?
28.10.2022 - 12:36DROPS Design answered:
Dear Anna, sure you can work stocking stitch instead. Happy knitting!
28.10.2022 - 13:27Anna wrote:
Hello. Where the increased stitches are worked into A.1, are they accounted for immediately as the first stitch of the A.1 diagram?
29.04.2022 - 23:17DROPS Design answered:
Dear Anna, please see answer below.
30.04.2022 - 21:59Anna wrote:
Hello. Where the increased stitches are worked into A.1, are they accounted for immediately as first stitch of A.1?
29.04.2022 - 23:16DROPS Design answered:
Dear Anna, as you increase for the saddle-shoulders, sleeves and yoke, you will increase the amount of repeats of A.1 (= 6 stitches), as many as the new increased stitches will allow you. These increased stitches are worked in A.1. Those that do not fit into a repeat are worked in stocking stitch. Happy knitting!
30.04.2022 - 21:59Ale wrote:
Ciao, negli aumenti per lo sprone dove bisogna spostare esattamente i 4 segnapunti? Qual è la la corretta distribuzione dei punti tra un segnapunto e l'altro? Grazie mille
30.12.2021 - 17:51DROPS Design answered:
Buonasera Ale, i segnapunti vengono posizionati come indicato e seguono il lavoro, non si spostano. Buon lavoro!
30.12.2021 - 22:09Delfina wrote:
Come fare per realizzare maniche a chimono o a pipistrello con ferri 3?
09.05.2021 - 06:41DROPS Design answered:
Buonasera Delfina, per le maniche deve seguire le istruzioni indicate. Per un'assistenza più personalizzata, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
09.05.2021 - 17:14Mette wrote:
Jeg strikker den i str S. Når jeg sætter de 4 mærker på bærestykket, så kommer de ikke til at sidde ens i forhold til ret og vrang masker i ribkanten. Dvs. En sidder mellem en ret og en vrangmaske og en sidder mellem 2 vrang masker osv. Kan det godt passe?
24.02.2021 - 22:48DROPS Design answered:
Hej Mette, det gør ikke noget, du strikker kun ribben i halskanten, så det bliver et helt andet mønster nedenfor :)
25.02.2021 - 14:14Rosa Olimpia Fuschino De Chacon wrote:
Tienen versión en español ?
09.02.2021 - 18:12DROPS Design answered:
Hola Rosa, si, mira AQUI. Buen trabajo!
09.02.2021 - 18:23Karolina wrote:
"Flower symphony"?
16.01.2021 - 22:03Annika wrote:
Lavender dreams
16.01.2021 - 10:10Cristina wrote:
Sweet Lilac
14.01.2021 - 17:58