DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Through the Ages

Prjónað vest / slipover úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og tilfærslum á lykkjum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-31
DROPS Design: Mynstur li-125
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 5310, ljós brúnn

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu:
Aukið út um 1 lykkju innan við 4 lykkjur í hverri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Að lokum er prjónað stroffprjón í hálsmáli.

FRAMSTYKKI:
Vinstri öxl:
Fitjið upp 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hringprjón 4,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 3 lykkjur) yfir næstu 18-18-21-21-21-21 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 2 lykkjur garðaprjón (= við handveg). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið.

Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hringprjón 4,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur þannig: 2 lykkjur garðaprjón (= við handveg), A.1 yfir næstu 18-18-21-21-21-21, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.

Þegar stykkið mælist 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hægri öxl, fitjið upp 32-38-38-38-44-44 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 23-23-26-26-26-26 lykkjur á vinstri öxl = 78-84-90-90-96-96 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hálsmáli er prjónað brugðið).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 10-13-16-16-19-19 lykkjur, A.2 yfir næstu 58 lykkjur, mynstur eins og áður yfir næstu 10-13-16-16-19-19 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina, prjónið með A.1 yfir allar lykkjur (og garðaprjón í hliðum eins og áður).

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-20-21-18-15-11 cm, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-6-6-12-18-24 sinnum = 84-96-102-114-132-144 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 5 nýjar lykkjur fyrir handveg = 94-106-112-124-142-154 lykkjur. Prjónið síðan A.1 eins og áður og yfir ystu 7 lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm frá þar sem handvegi lauk (= ca 68-70-72-74-76-78 cm alls mælt frá öxl og niður).

Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 7 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 7 lykkjur garðaprjón = 120-136-144-160-184-200 lykkjur (allar lykkjur slétt hafa nú verið auknar til 2 lykkjur).
Í næstu umferð (frá röngu) prjónið mynstur eins og áður og uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff frá réttu þannig: 7 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 7 lykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Vestið mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Fitjið upp 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hringprjón 4,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 3 lykkjur) yfir næstu 18-18-21-21-21-21 lykkjur, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 2 lykkjur garðaprjón (= við handveg). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá röngu. Klippið frá og geymið stykkið.

Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hringprjón 4,5 með Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur þannig: 2 lykkjur garðaprjón (= við handveg), A.1 yfir næstu 18-18-21-21-21-21 lykkjur, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.

Þegar stykkið mælist 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig:
Prjónið eins og áður yfir 23-23-26-26-26-26 lykkjur á hægri öxl, fitjið upp 32-38-38-38-44-44 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 23-23-26-26-26-26 lykkjur á vinstri öxl = 78-84-90-90-96-96 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður (yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli er prjónað brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og prjónið A.1 yfir allar hinar lykkjurnar (ekki er prjónað A.2 eins og á framstykki). Þegar stykkið mælist 22-20-21-18-15-11 cm, aukið út fyrir handvegi í hvorri hlið. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-6-6-12-18-24 sinnum = 84-96-102-114-132-144 lykkjur. Stykkið er nú prjónað til loka á sama hátt og á framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hlið – byrjið undir ermi og saumið ca 10-11-12-13-14-15 cm niður yfir hliðarsaum (= 38-39-40-41-42-43 cm klauf í hlið). Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 112-148 lykkjur í kringum hálsmál með hringprjón 3,5 og Lima – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Þegar prjónaðar hafa verið upp lykkjur yfir 32-38-38-44-44 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hálsmáli að framan og aftan, prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju slétt og 2 lykkjur í hverja lykkju brugðið. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) – stillið af að það koma 2 lykkjur slétt yfir allar 2 lykkjur slétt frá A.1 og 2 lykkjur brugðið yfir hverja lykkju brugðið frá A.1 og að stroffið gangi jafnt upp á milli kanta í hálsmáli að framan og að aftan. Þegar stroffið mælist 13 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.12.2020
Leiðrétting á lit: Litur 5310, ljós brúnn (ekki 5610, brúnn)
Yfirfarið á vefsvæði: 26.03.2021
Leiðrétting hefur verið gerð á öxlum á framstykki og bakstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er fyrri uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið og seinni uppslátturinn er prjónaður brugðið (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er fyrri uppslátturinn prjónaður brugðið og seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Eva Åberg wrote:

Framstycke; när jag ska påbörja A2 blir det en förskjutning i mönstret. Enligt diagrammet ska jag efter 13 maskor (påbörja A2) alltså göra en avigmaska över en rät, vilket ser konstigt ut och hela mönstret blir förskjutet i mitten av axeln. Det ser inte ut så på bilden. Vad gör jag för fel?

09.08.2023 - 14:43

DROPS Design answered:

Hej Eva, A2 skal stemme over A.1 og förskjutningen sker ifølge idagrammet från rad 5 :)

16.08.2023 - 10:26

country flag Sharon Hunt-Edwards wrote:

Hei! Should I use A1 or A2 to test for gauge? Thank you.

05.08.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you can use either, A.1 is fine. Happy knitting!

06.08.2023 - 21:36

country flag Judith Adler wrote:

Your comment was not responsive to my question. I know how to read the pattern, but it is extremely small, and I find all patterns hard to follow. I can translate it into written instructions myself, I was just hoping someone had gotten there before me.

18.04.2022 - 20:23

country flag Judith Adler wrote:

Has anyone transcribed A.2 pattern into writing instead of the chart?

18.04.2022 - 04:18

DROPS Design answered:

Dear Judith, all of our patterns are in a mixed format, with some parts explained in writing and others in charts. If you need help understanding the charts, you can check our lesson on reading knitting charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

18.04.2022 - 19:51

country flag Maarit Marttila wrote:

Miksi en saa auki ohjeeseen tehtyä korjausta

23.01.2022 - 10:25

DROPS Design answered:

Korjauksen pitäisi aueta ilman ongelmia.

07.03.2022 - 17:44

country flag Sara-Elisabeth Smith-Ånesland wrote:

Når det står at arbeidet skal måle 22 cm (small) før det leges opp til ermhule, er de 22 cm inkludert skuldrene eller ikke?

13.10.2021 - 18:53

DROPS Design answered:

Hei Sara-Elisabeth, Det er fra toppen av skuldrene. God fornøyelse!

14.10.2021 - 07:01

country flag Abadah wrote:

Jeg synes også når jeg strikker (venstre skulder) så er der ikke 2 masker efter A1 diagram (1 maske RETSTRIK, 21 masker A1 og 1 maske tilbage = 23 masker) hvordan får jeg 2 masker til sidst efter A1?

14.03.2021 - 23:19

DROPS Design answered:

Hej Abadah, den næstsidste maske skal være sidste maske i A.1 og sidste er kantmasken i retstrik. God fornøjelse!

17.03.2021 - 15:33

country flag Charlotte wrote:

Selv efter at have læst svar til Krista fra 15/1/21 kan jeg stadigvæk ikke få det til at blive to retmasker sidst på pinden fra retsiden?

12.03.2021 - 20:16

DROPS Design answered:

Hej, næst sidste er ifølge diagrammet og sidste er kantmasken. God fornøjelse!

17.03.2021 - 15:31

country flag Jane Munkesø wrote:

Er der mon en fejl i mønstret. Strikker en str small og jeg kan ikke få mønster og maske antal A1 ens på begge skuldrer efter jeg begynder på mønster A2 Bliver ved med at have 3 mere af A1 på Venstre skulder og 3 mindre på højre skulder

20.02.2021 - 14:51

country flag Krista wrote:

Strikker str L Når jeg starter med Venstre skulder 1 retstrik A1 24 m. Slutter med en vrang ( 2 ret, 1 vrang) 1 retstrik Det går fint op med de 26 masker, men der sluttes jo ikke med 2 retstrik som der står i opskriften. Jeg slutter med en vrang og en retstrik. Det virker som om at A1 skal strikker fra Venstre mod højre. Jeg går ud fra at de to stykker skal være ens både mod ærmegab og midte?

06.01.2021 - 22:05

DROPS Design answered:

Hej Krista, jo på venstre skulder (når du har den på) strikker du fra retsiden fra halsen mod ærmegabet, det vil sige at A.1 slutter med 1 m retstrik + kantmasken i retstrik mod ærmegabet. God fornøjelse!

15.01.2021 - 14:18