DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 211-25
DROPS Design: Mynstur l-157
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Þvermál á hálfhring: ca 35 cm. Hæð án axlarólar: ca 30 cm. Axlaról: ca 40 cm.

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200 g litur 03, ljós beige

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 26, beige

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8½ umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2904.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 (A.w til A.z sýnir hvernig umferðin í A.2 og A.3 byrjar og endar).

LEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju/stuðli/tvíbrugðnum stuðli á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkjuna sé dregin aðeins upp á heklunálina þannig að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar verða of stífar, þá kemur mynstrið til með að verða of stíft í einingum þar sem eru margar loftlykkjur.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 11. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að hekla 10. og 11. hverja fastalykkju saman þannig: Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Taskan er fyrst hekluð fram og til baka í 2 stykkjum sem líkjast hálfum hring. Þessi tvö stykki eru saumuð saman meðfram boga lengst út. Síðan er heklaður kantur í kringum opið efst á töskunni til enda. Að lokum er hekluð ein axlaról. Ólin er hekluð fram og til baka og er fest hvoru megin við opið.

HÁLFUR HRINGUR:
Byrjið með heklunál 5 með Bomull-Lin eða Paris, heklið 5 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð – sjá LEIÐBEININGAR!
Heklið mynsturteikningu A.1 (A.1 = 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu).
Þegar báðar umferðirnar í A.1 hafa verið heklaðar til loka, heklið næstu umferð þannig: Heklið A.w yfir fyrstu lykkjuna (A.w sýnir hvernig umferðin byrjar frá réttu og endar frá röngu), heklið mynsturteikningu A.2 alls 7 sinnum á breiddina og endið með A.x yfir síðustu lykkjuna (A.x sýnir hvernig umferðin endar frá réttu og byrjar frá röngu).
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 42 loftlykkjubogar í umferð.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki.
Nú er heklað það sem á að verða botninn á töskunni, þ.e.a.s. heklið A.y yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.3 alls 21 sinnum á breiddina og endið með A.z yfir síðustu lykkjuna. Klippið frá og festið enda þegar A.3 hefur verið heklað til loka. Heklið annan hálfan hring alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið báða hálfu hringina meðfram boganum lengst út – saumið kant í kant með smáu, fallegu spori.

KANTUR Í KRINGUM OPIÐ:
Byrjið við sauminn í annarri hliðinni á töskunni, heklið 1 keðjulykkju, heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli) og heklið síðan ca 109 stuðla í kringum kantinn efst á töskunni (til að fá jafna skiptingu á stuðlum, heklið ca 2 stuðla um hvern stuðul og 1 stuðul um hverja fastalykkju) = ca 110 stuðlar.
Sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið í hring þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 28 cm frá prjónamerki.
Heklið 1 umferð með fastalykkjum og fækkið jafnframt um 10 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = ca 100 fastalykkjur. Heklið síðan fastalykkjur hringinn í 2 cm, með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Taskan mælist ca 30 cm frá prjónamerki.

AXLARÓL:
Byrjið í annarri hliðinni á töskunni og heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af miðju 8 fastalykkjunum í hliðinni. Heklið fastalykkjur fram og til baka yfir þessar 8 fastalykkjur þar til ólin mælist ca 40 cm (eða að óskaðri lengd).
Heklið ólina niður í gagnstæðri hlið á töskunni með 1 fastalykkju í hverja og eina af miðju 8 fastalykkjum í hliðinni (heklið í gegnum bæði lögin). Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = byrjið hér: Heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = 1 loftlykkja, ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = 1 keðjulykkja í 4. loftlykkju í 1. umferð/í 1. loftlykkju í 2. umferð
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuhring
symbols = í byrjun á umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur
symbols = 1 stuðull um loftlykkju
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = í byrjun á umferð er fyrstu lykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = heklið 2 stuðla saman í 1 lykkju þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða bandinu um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar í sömu lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 2 stuðla saman um 1 loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar um sama loftlykkjuboga, en þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = sýnir síðustu umferð í A.2, þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjaðu á næstu umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Garden Paths

Daisy, Portugal

Garden Paths

Neulottiin, Finland

Garden Paths

NeedlesWLove, Portugal

Garden Paths

Neşe, Turkey

Garden Paths

Mena Rodrigues, Portugal

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Elisa wrote:

Ciao! Non riesco a capire perché per iniziare il fondo della borsa devo partire dal segnapunti a metà delle maglie invece che dalla fine del semicerchio. Grazie! Elisa

05.03.2021 - 18:06

DROPS Design answered:

Buonasera Elisa, la costruzione è corretta. Buon lavoro!

08.03.2021 - 20:13

country flag Linda Hanson wrote:

Are the Aw and Ay replacing the stitch or in addition to the 7 xs in the round. In other words my rounds are x7 plus the 2 extra on either side (Aw 7 Ay) or not in each row of A2? I am reading your answers and some seem to indicate yes and others no. This is messing with my count at the end to get 42 spaces.

20.01.2021 - 21:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hanson, at the beginning of the row from RS replace first stitch with A.w and end the row from RS with A.x - from WS replace the first stitch as shown in A.x and end the row with the stitch in A.w. In between repeat 7 times A.2 in width: at the end of A.1 you should have 7 times 1-ch-space, you will work A.2 in each of these chains = 7 times and end with a dc (A.x) in the last stitch on row. Happy crocheting!

21.01.2021 - 08:05

country flag LC wrote:

Where do I find the quantity of Paris yarn required for this pattern?

07.01.2021 - 16:38

DROPS Design answered:

Dear LC, you will find the amount of DROPS Paris required under the header, ie 250 g DROPS Paris/50 g a ball = 5 balls. Happy crocheting!

07.01.2021 - 16:43

country flag Claudia wrote:

Hallo, eine Frage zu A2 Runde 4. Nach dem 2. DStb werden 2 M übersprungen? Im Wechsel immer 1 M und dann 2 M überspringen? Danke

23.08.2020 - 10:30

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, also ja genauso wie im Diagram muss man wiederholen: *1 Doppel-Stb in die nächste Masche, 3 Luftmaschen, 1 Masche überpsringen, 1 Doppel-Stb in die nächste Masche, 3 Luftmaschen, 2 Maschen überspringeng*, von *-* insgesamt 7 Male wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!

24.08.2020 - 08:37

country flag Matilda wrote:

Har jag tolkat diagrammet rätt om jag i A.2 ersätter första maskan i varvet med vad som anges i A.w och sista maskan med A.x? Jag är nybörjare på att läsa diagram och känner mig lite förvirrad eftersom instruktionerna kring samma moment skiljer sig åt mellan olika delar av mönsterbeskrivningen.

20.08.2020 - 10:44

DROPS Design answered:

Hej Matilda, ja A.w visar hur varvet börjar från rätsidan och slutar från avigsidan. Ax visar hur varvet slutar från rätsidan och börjar från avigsidan. LYcka till :)

27.08.2020 - 13:38

country flag Jane wrote:

Do you have this pattern in English instead of symbols? Thank you.

12.08.2020 - 23:31

DROPS Design answered:

Hi Jane, We are sorry, but there are no written instructions for this pattern at the moment. Happy crocheting!

13.08.2020 - 07:13

country flag Isabelle wrote:

Hej, jag förstår inte riktigt hur jag ska virka botten på väskan. Virkas det längst sista raden på A2?

30.07.2020 - 12:24

DROPS Design answered:

Hej Isabelle, Ja det stemmer, den første rad med pilen er allerede hæklet. God fornøjelse!

05.08.2020 - 15:29

country flag Anja wrote:

Klopt het dat je bij dit patroon van de tas links en rechts van de halve cirkel niet gelijk is ? Bijvoorbeeld in A.2 begin je met 3 lossen en daarna 3 stokjes om de losse. En in diezelfde toer eindig je met 1losse en daarna 1 stokje. Waardoor beide zijden Van de cirkel (links en rechts) niet gelijk zijn?

25.07.2020 - 08:31

DROPS Design answered:

Dag Anja,

Ja, het klopt inderdaad dat de halve cirkel links en rechts niet precies gelijk is. Als je goed kijkt kun je dit ook zien op de foto.

21.11.2020 - 18:17

country flag Karin wrote:

A.w rad 1: har symbolen 3 luftmaskor som ersätter första stolpen. Sedan säger A.2 rad 1: 3 stolpar. Betyder detta 3 luftmaskor + 3 stolpar eller 3 luftmaskor+2 stolpar?

06.07.2020 - 14:54

DROPS Design answered:

Hej Karin, det betyder 3 luftmaskor+ 2 stolpar :)

07.07.2020 - 10:12

country flag Karin wrote:

En fråga till: A.2 4:e varvet slutar med 2 stolpar i en maska. Sen säger A.w 1 stolpe i maskan. Ska A.w stolpen göras i maskan efter de 2 stolparna? Dvs. ska det se ut som tre stolpar efter varandra?

04.07.2020 - 17:35

DROPS Design answered:

Hei Karin. Ja, i siste fastmaske på 4.rad hekles det 2 staver sammen (A.2) og det avsluttes med 1 stav i luftmasken(A.w). God Fornøyelse!

06.07.2020 - 13:33