DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 36-7
DROPS Design: Mynstur bm-115-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærð jafngildir ca hæð á barni í cm:
56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 (100-100) g litur 34, ljung

HÚFA:

STÆRÐ:
1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm: 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (100-100) g litur 34, ljung

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir klukkuprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

SMEKKUR:

STÆRÐ:
Stærð 1/9 - 9/18 mánaða
Hæð: Lengd fyrir miðju = ca 10-12 cm
Breidd: Lengd á efri hluta = ca 35-42 cm

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 34, ljung

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir klukkuprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 1 st í báðar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KLUKKUPRJÓN – á við um smekk:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur og 2 lykkjur er eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2.

ÚTAUKNING-1:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (= frá röngu) prjónið útauknar lykkjur í klukkuprjóns mynstri, en lykkjurnar eru prjónaðar án uppsláttar.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (= frá röngu) prjónið útauknar lykkjur í klukkuprjóns mynstri, en lykkjurnar eru prjónaðar án uppsláttar.

KLUKKUPRJÓN – á við um húfu:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 uppslætti, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur og 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚRTAKA:
Við 1. prjónamerki er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 3 lykkjur slétt saman (uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja, þ.e.a.s. 2 lykkjur færri).

Við 7. prjónamerki er prjónað þannig:
Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (uppslátturinn er ekki talinn sem eigin lykkja, þ.e.a.s. 2 lykkjur færri).

Við 3. og 5. prjónamerki er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 5 lykkjur og 3 uppslætti (= alls 8 lykkjur) saman þannig: Lyftið yfir fyrstu 3 lykkjurnar og 2 uppslætti á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur og 1 uppslátt slétt saman, lyftið 5 lausu lykkjunum (meðtalinn uppsláttur) frá hægri prjóni yfir lykkjur sem prjónaðar voru saman (þ.e.a.s. 4 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og aukið er út í klukkuprjóns lykkjum í hvorri hlið og í miðju á stykki.

SMEKKUR:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu, þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið stykkinu og setjið 3 prjónamerki í stykkið þannig (= frá réttu): 1. prjónamerki í 2. lykkju í umferð, 2. prjónamerki í 4. lykkju í umferð og 3. prjónamerki í 6. lykkju í umferð. Prjónið þannig – frá réttu:
1 kantlykkja í garðaprjóni, aukið út 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-1, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, aukið út 4 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-2, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið lykkju eins og prjóna eigi brugðið, aukið 2 lykkjur í næstu lykkju og uppslátt – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 15 lykkjur í umferð. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færð, 1. prjónamerkið er sett í fyrstu klukkuprjóns lykkjuna í umferð (eftir kantlykkju), 2. prjónamerki er sett í miðjulykkjuna í umferð (miðjulykkjan af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju) og 3. prjónamerki er sett í síðustu klukkuprjóns lykkju í umferð (= á undan kantlykkju).

Í næstu umferð (= frá röngu) er prjónað KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar án uppsláttar í fyrstu umferð.

Haldið áfram með klukkuprjón og útaukningar, aukið út í 4. hverri umferð í hliðum (prjónamerki 1 og 3) og í 8. hverri umferð í miðju (prjónamerki 2). Færið prjónamerkin eftir hverja útaukningu, þannig að alltaf er aukið út í miðjulykkjuna og í lykkjum við kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 10-12 cm (eða að óskuðu máli), er fellt af.

Festið tölu í annan endann á smekknum (hneppið tölunni á milli kantlykkju og fyrstu lykkju í klukkuprjóni í hinum endanum).

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

HÚFA:
Fitjið upp 17 lykkjur í öllum stærðum á prjón 2,5 með Baby Merino.

Prjónið fyrstu umferð með KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Snúið stykkinu og setjið 7 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna): 1. prjónamerki í 3. lykkju, 2. prjónamerki í 5. lykkju, 3. prjónamerki í 7. lykkju, 4. prjónamerki í 9. lykkju, 5. prjónamerki í 11. lykkju, 6. prjónamerki í 13. lykkju, 7. prjónamerki í 15. lykkju.

Það á að auka út lykkjum við prjónamerki 2, 4 og 6 síðar og fækka lykkjum við prjónamerki 1, 3, 5 og 7.

Prjónið 2. umferð með klukkuprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur með 2., 4. og 6. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 = 29 lykkjur. Eftir útaukningu eru prjónamerkin færið að miðju af 5 lykkjum sem prjónaðar voru í 1 lykkju. Haldið áfram með klukkuprjón, JAFNFRAMT er aukið út við þessi 3 prjónamerki. Aukið í 8. hverri umferð alls 7-8-9-10-11 sinnum = 101-113-125 (137-149) lykkjur.

Haldið áfram með klukkuprjón, en nú á að fækka lykkjum í viðbót við útaukningar. Fækkið um 2 lykkjur við 1. og 7. prjónamerki og fækkið 4 lykkjur við 3. og 5. prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Fækkið lykkjum og aukið út í 8. hverri umferð, lykkjufjöldinn er sá sami (fækkið um 12 lykkjur og aukið út 12 lykkjur). Haldið áfram með klukkuprjón, útaukningu og úrtöku þar til stykkið ælist ca 12-13-14 (16-17) cm, eða að óskuðu máli (nú eru eftir 2 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Þræðið þráðinn í gegnum uppfitjunarkantinn, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman mitt að aftan, innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, leggið þráðinn framan við stykkið (að þér), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur aftan við stykkið (frá þér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið svona áfram í öllum umferðum.
Nú myndast hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru alveg eins. Saumið snúruna neðst í hvora hlið á húfunni.

DÚSKUR:
Gerið dúsk ca 4 cm að þvermáli og festið efst á húfuna.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.08.2020
Leiðrétting: Búið að bæta við málum á smekk.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.02.2022
HÚFA:..Haldið áfram með klukkuprjón, útaukningar og úrtöku þar til stykkið ælist ca 12-13-14 (16-17) cm, eða að óskuðu máli...

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Simona Brescacin wrote:

Salve, sto lavorando il modello nella taglia più piccola, ma non riesco a capire come possa il lavoro misurare in totale 12 cm se questa misura la raggiungo non terminando neanche gli aumenti ( 7 volte ogni 8 ferri). Possibile che ci sia un errore di traduzione all italiano e che le diminuioni.si debbano iniziare subito e non dopo aver terminato gli aumenti? Perché per come è scritto il lavoro, anche in taglia piccola misurerebbe ben più di 20 cm..

26.03.2024 - 12:53

DROPS Design answered:

Buonasera Simona, non ci sono errori nelle misure del modello. Buon lavoro!

28.03.2024 - 19:19

country flag Christine Braumandl wrote:

Leider habe ich schon wieder ein Problem mit der Anleitung. Ich habe die Markierungsfäden gesetzt und die Zunahmen gestrickt bis 113 Maschen. Hier soll man wieder einen Markierungsfaden setzen , die Arbeit wird nun ab hier gemessen. Dann sollen sowohl Zu- wie auch Abnahmen gestrickt werden bis 13 cm ab Markierungsfaden. Die Mütze ist nun ca 23 cm lang. Das ist doch nicht richtig?

05.10.2023 - 10:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Braumandl, die deutsche Anleitung wird hier korrigiert, man soll hier keinen Markierungsfaden setzen. Viel Spaß beim stricken!

06.10.2023 - 08:37

country flag Christine Braumandl wrote:

Hallo, müssen die Abnahmen am 3. und 5. Markierungsfaden immer genau übereinander gemacht werden ( so wie bei den Zunahmen) oder sind diese versetzt. D.h. immer nach dem Markierungsfaden .

04.10.2023 - 13:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Braumandl, sie sollen immer übereinander liegen, so nach jeder Abnahmen setzen Sie den Markierungsfaden richtig ein. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2023 - 14:05

country flag Isabell wrote:

När jag minskar på mössan sitter stickmarkören ju i maskorna. Ska jag minska efter markören eller är markören någonstans i mitten av de angivna antalet maskor? Ex. minskning vid markör 1, är det alltså maska 3 (med markör), 4, 5 som minskas, eller maska 2, 3, 4? Och samma vid markör 7, är det de tre sista maskorna på varvet eller tre maskor med markör 7 "i mitten"?

09.02.2022 - 23:26

DROPS Design answered:

Hei Isabell. Les MINSKNINGSTIPS i begynnelsen av oppskriften. Når du feller pass på at det felles slik at den midterste patentmasken (med merke) kommer under en patentmaske, slik at patentmasken fortsetter som en "strek" nedover luen. Se på bildet (uten baby) og fellingen i høyre bilde, så ser det det godt. mvh DROPS Design

14.02.2022 - 09:43

country flag Guro wrote:

Er det riktig at det skal være 11 cm fra merket eller mer? På bildet er det bare fire runder med fellinger og det ser ut som avstanden er mye kortere enn 11 cm. Jeg tror heller ikke det er nok garn til å strikke 11 cm med fellinger og økninger. Er det ikke heller hele lengden på lua som skal være 11 cm?

02.02.2022 - 21:17

DROPS Design answered:

Hei Guro. En rettelse fra september 2021 er fjernet (Sett en merketråd her...) og i den minste str. skal arb. måle ca 12 cm før det gjenstår 2 cm av arbeidet. mvh DROPS Design

07.02.2022 - 11:38

country flag Andrea wrote:

Ich möchte die Mütze stricken. Nach dem ich 17 Maschen angeschlagen habe soll die erste Reihe des Vollpatent gestrickt werden. Hier gibt es eine separate Beschreibung. Kann es sein, dass hier etwas vergessen wurde? Müsste es nicht 1 masche rechts, 1 umschlag, eine Masche links abheben und dann den umschlag und die abgehobene masche rechts zusammenstricken sein? Sonst würde ich bereits in der 1 Reihe auf 24 Maschen zunehmen, was mit der weiteren Anleitung nicht zusammenpasst.

19.10.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, die Umschläge vom Vollpatent werden nicht als Maschen gezählt, sie gehörten zu den jeweiligen abgehobenen Maschen, dh nach der 1. Reihe Vollpatent sind es immer noch 17 M auf der Nadel (einsch. die 7 abgehobenen Maschen und den jeweiligen Umschlag). Viel Spaß beim stricken!

20.10.2021 - 07:36

country flag Dorte wrote:

Hej Jeg har svært ved at se, hvordan indtagningerne kommer til at se ud på huen. På højre side kommer de til at gå mod den midterste udtagning, altså “opad”, mens de på venstre side vil vende den anden vej- altså “ nedad” ???? Er det sådan det skal være? På forhånd tak

20.09.2021 - 22:22

DROPS Design answered:

Hej Dorte. Kanske dessa videor om hur det tages ud och tages ind i helpatent kan vara till hjälp. Mvh DROPS Design

24.09.2021 - 11:06

country flag Hanne Hansen wrote:

Hej når man påbegynder både ind/udt skal man så først måle de 11 derfra eller hvordan for det er jo allerede 11 cm, når man skal starte på begge del??

27.08.2021 - 21:32

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Under Luen har vi lagt til: Sett et merke - arbeidet måles nå herfra! Takk for at du gjorde oss oppmerksom på at dette manglet. mvh DROPS design

07.09.2021 - 10:24

country flag Adrienn wrote:

Kedves DROPS Csapat! Nem ertem ez a mondat pontosan mit jelent a tanacs a szaporitashoz resznel: A köv sorban (= FO) az új szemeket a mackókötésbe illesztve kötjük, de az új szemeket rh-sok nélkül kötjük. Pontosan hogyan kell kotni a 5 szemet? Mindet siman? Koszonom! Udvozlettel: Adrienn.

19.04.2021 - 14:01

DROPS Design answered:

Kedves Adrienn, a szemeket a mackókötésnek megfelelően simán, vagy fordítottan kell kötni, de az első sorban még nem lesznek hozzájuk tartozó ráhajtások, azok nélkül kötjük le őket. Sikeres kézimunkázást!

19.04.2021 - 18:06

country flag Louvelna wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le point de côtes anglaises... (J'en suis à l'échantillon 😑) On a un nombre paire de maille et pourtant le point que vous expliquez j'obtiens un nombre impair 🤔 Pourriez vous m'expliquer ? Merci.

27.02.2021 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Louvelna, les côtes anglaises comme expliqué dans le texte se tricotent sur un nombre impair de mailles - ainsi le début et la fin du rang sont identiques. Cette vidéo montre comment tricoter ce type de côtes anglaises et devrait pouvoir vous aider. Attention, les jetés qui se font par-dessus les mailles glissées ne comptent pas comme des mailles. Bon tricot!

01.03.2021 - 08:23