DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Early Nap Pants

Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 36-5
DROPS Design: Mynstur bm-114-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
ATH: Vegna klukkuprjóns verður flíkin mjög teygjanleg og kemur því til með að dragast saman miðað við mál á teikningu.

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-150-150-150 (150-200) g litur 42, bensín

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 46 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Byrjun umferðar er fyrir miðju að aftan.

BUXUR:
Fitjið upp (132) 144-156-180-192 (204-216) lykkjur á hringprjón 2 með BabyMerino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn.
Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið upphækkun að aftan þannig:
Prjónið (32) 35-38-44-47 (50-53) lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið (64) 70-76-88-94 (100-106) lykkjur stroff til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (58) 64-70-82-88 (94-100) lykkjur stroff, snúið, herðið á þræði, prjónið (52) 58-64-76-82 (88-94) lykkjur stroff til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna 6 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (28) 34-40-40-46 (52-58) lykkjur. Nú er stykkið prjónað áfram í hring frá réttu.
Skiptið yfir í hringprjón 2,5 og prjónið A.1 yfir allar lykkjur.
Þegar fyrsta umferðin hefur verið prjónuð eru (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóns mynstri eftir A.1a.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist (12) 14-15-16-17 (18-19) cm mitt að framan, stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt, prjónið þannig:
Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), A.1a yfir næstu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður, A.2 yfir 2 lykkjur (= mitt að framan), A.1a yfir síðustu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm (útaukning ætti nú að vera lokið), fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur mitt að framan og mitt að aftan. Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig, setjið lykkjur fyrir aðra skálmina á þráð.

SKÁLM:
= (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur. Skiptið lykkjum niður á 4 sokkaprjóna nr 2,5 og haldið áfram með A.1a hringinn. Þegar skálmin mælist ca (9) 11-12-15-18 (23-28) cm (e.t.v. að óskaðri lengd, nú eru eftir ca (4) 6-8-8-8 (8-8) cm), skiptið yfir á sokkaprjón 2 og prjónið stroff með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður saman við lykkjuna). Þegar skálmin mælist ca (13) 17-20-23-26 (31-36) cm frá skiptingu, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið eins og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma við hverja aðra.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.03.2020
Mynsturteikning á tákni nr.4 hefur verið bætt við (= brugðin lykkja).
Yfirfarið á vefsvæði: 08.10.2020
Leiðrétting: BUXUR:... Þegar stykkið mælist (12) 14-15-16-17 (18-19) cm mitt að framan, stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt, prjónið þannig...
Yfirfarið á vefsvæði: 29.10.2020
Leiðrétting: BUXUR:..Þegar stykkið mælist (12) 14-15-16-17 (18-19) cm mitt að framan, stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem lykkjur eru prjónaðar slétt, prjónið þannig:
Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), A.1a yfir næstu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður, A.2 yfir 2 lykkjur (= mitt að framan), A.1a yfir síðustu (42) 46-50-58-62 (66-70) lykkjur eins og áður.
Yfirfarið á vefsvæði: 19.01.2021
Mynsturteikning A.2 hefur verið uppfærð í öllum stærðum

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem var prjónað í af prjóninum, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn 1 sinni til viðbótar slétt saman, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Gogniat wrote:

J’ai beau essayer et réessayer il me semble qu’il y a un problème avec A1 en effet ce rang est supposé diminuer le nombre de maille, cependant le résultat est le même nombre de maille. Ensuite le motif souhaité apparaît sur l’envers et non sur l’endroit… en soit il suffit de retourner le tricot à la fin mais c’est tout de même étrange. Si vous avez l’explication, je suis preneuse! Merci!

23.12.2021 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gogniat, effectivement, le 1er rang de A.1 va diminuer le nombre de mailles car vous tricotez 2 mailles ensemble à l'envers, le jeté de la 1ère maille de A.1 ne compte pas dans le nombre de maille car il appartient à la maille glissée, ainsi, à la fin de ce 1er rang, vous avez: 1 jeté + sa maille glissée, 1 maille envers (donc bien 2 mailles sur les 3 d'auparavant). Ces côtes anglaises sont réversibles, et le résultat est donc le même sur l'endroit et sur l'envers - cf cette vidéo. Bon tricot!

03.01.2022 - 08:20

country flag Agnes wrote:

Hej! Jag stickar storleken 0/1. Jag förstår inte mönstret när jag kommer till A.2. Ska jag sticka bara det första varvet på A.1a efter att ha ökat fem maskor eller ska jag sticka A.2 fyra varv - alla fyra varv på A.1a - A.2 fyra varv? Vad ska jag göra efter meningen ”A.1a över de sista 46 maskorna som förut”? Sticka bara A.2 enligt diagram eller fortsätta med A.2 - A.1a- A.2 - A.1a???

02.12.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Hej Agnes. Du stickar det varvet som det står dvs A2 1 gång (2 maskor), A.1a 23 gånger (46 maskor), A2 1 gång (2 maskor), A.1a 23 gånger (46 maskor). Nästa varv stickar du på samma sätt men nu har du ju då fler antal maskor i diagram A2. Så varv 2 blir A.2 1 gång (6 m), A1 23 gånger (46 m) osv. Du fortsätter sedan på detta sätt uppåt i diagrammet tills hela diagram A2 är stickat. Mvh DROPS Design

03.12.2021 - 11:10

country flag Charlotte Thomsen wrote:

Jeg er i gang med at strikke Drops Early Nap Pants. I opskriften står der, at jeg efter at have strikket mønster A.1 skal have 104 masker i stedet for de oprindelige 156. Jeg har stadig 156 masker på pinden efter at have strikke A.1 og kan ikke se i mønsteret, hvor jeg skal tage alle de masker ind, for i A.1 (helpatent ) bevarer man jo samme maskeantal - hvad gør jeg forkert?

27.10.2021 - 05:20

DROPS Design answered:

Hej Charlotte. På rad 1 i diagram A.1 stickar du 2 m vrang sammen, så det innebär att du feller totalt 52 m på den raden. Mvh DROPS Design

27.10.2021 - 13:18

country flag Ida wrote:

Jag undrar hur det blir en minskning från 180 m till 120 m efter ett varv med mönster A1?

21.10.2021 - 20:58

DROPS Design answered:

Hej Ida. På första varvet i A.1 så stickar du ihop 2 maskor (symbol för 2 maskor aviga tillsammans), vilket innebär att du kommer minska 60 m på det varvet. Mvh DROPS Design

22.10.2021 - 08:19

country flag Ida wrote:

Hej! Jag förstår mig inte på diagrammet A1. Förstår det som att jag ska börja med ett omslag, lyfta en maska, sedan sticka två maskor avigt tsm. Därefter sticka omslaget och den lyfta maskan räta tsm? För jag ska väl läsa mönstret från höger till vänster, nedifrån och upp? Och A1a är väl bara en del av A1? Tacksam för hjälp!

23.09.2021 - 18:33

DROPS Design answered:

Hej Ida. Ja du stickar diagrammet från höger till vänster nedifrån och upp. Första raden stickas: 1 omslag, lyft 1 maska, sticka 2 m aviga tills. Detta upprepas hela varvet. varv 2 stickas: omslaget och maskan stickas räta tills, 1 omslag, lyft 1 maska. Detta upprepas varvet ut. A.1a är en del av A.1. När du stickat hela A.1 en gång på höjden så upprepar du endast A.1a på höjden (dvs inte första varvet i diagrammet). Se gärna vår video om hur du stickar helpatent runt. Mvh DROPS Design

24.09.2021 - 08:47

country flag Rena wrote:

Having completed the short rows (knitting 3rd size and so have reached 40 stitches on the short row elevation) should I change to 2.5mm needles immediately (i.e. at the end of the last short row) and begin knitting A1? OR should I carry on with 2mm needles and k1 p1 rib until I reach the end of the round (indicated by the cast on tail)?

29.05.2021 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Rena, when you worked (28) 34-40-40-46 (52-58) stitches with the short rows, change the needles to 2,5 mm, and continue from teh right side with A.1 pattern. Happy Knitting!

29.05.2021 - 22:44

country flag Sabrina wrote:

Hallo! Ich komme zu A2. Diese erste Runde verstehe ich. Wenn ich zur 2. Runde von A2 komme: stricke ich dann die ersten 6 Maschen ab hinterer Mitte (= Rundenanfang) wie in der Strickschrift beschrieben und alle folgenden Maschen wieder wie A1a, um an der vorderen Mitte nochmal die 6 Maschen aus dem A2 Muster (Runde 2) zu stricken? Oder wiederhole ich bei Muster A2 ab Runde 2 immer die 6 Maschen, wie sie im Muster angegeben sind? Danke für eure Hilfe :)

21.05.2021 - 20:09

country flag Sabrina wrote:

Hallo! Ich komme zu A2. Diese erste Runde verstehe ich. Wenn ich zur 2. Runde von A2 komme: stricke ich dann die ersten 6 Maschen ab hinterer Mitte (= Rundenanfang) wie in der Strickschrift beschrieben und alle folgenden Maschen wieder wie A1a, um an der vorderen Mitte nochmal die 6 Maschen aus dem A2 Muster (Runde 2) zu stricken? Oder wiederhole ich bei Muster A2 ab Runde 2 immer die 6 Maschen, wie sie im Muster angegeben sind? Danke für eure Hilfe :)

21.05.2021 - 20:08

DROPS Design answered:

Liebe Sabrina, A.2 wird nur über die mittleren 2 Maschen beim Rückenteil und beim Vorderteil gestrickt, alle anderen Maschen werden im Patent wie zuvor gestrickt. Wenn A.2 fertig ist haben Sie 4 Mal (= erste 4 Größe) oder 6 Mal (letzte 3 Größe) in jedem A.2 zugenommen und es sind 120 bis 192 M auf der Nadel (siehe Größe). Viel Spaß beim stricken!

25.05.2021 - 07:22

country flag Aino Aliisa wrote:

Hei teen näitä housuja ja olen vasta alussa menossa, mutta en ymmärrä, että miten silmukka määrä pienenee piirroksen A.1 osion ensimmäisen kierroksen jälkeen. Silmukkamäärähän pysyy samana, koska ensin luodaan uusi silmukka puikolle, nostetaan seuraava silmukka ja kudotaan seuraavat 2 silmukkaa nurin yhteen. Eli silmukkamäärä pysyy samana. Onko jotain, mitä en vaan ole huomannut ohjeesta?

12.05.2021 - 19:49

DROPS Design answered:

Hei, silmukkamäärä vähenee, koska patenttineuleen langankiertoja ei lasketa mukaan silmukkalukuun (ne kuuluvat aina viereisen silmukan kanssa yhteen).

19.05.2021 - 17:35

country flag Agathe Dufour wrote:

Encore moi! Après mon rang avec diminution aux 2 mailles, il me reste 120 mailles comme prévu. Sauf que lorsque je fais les côtes anglaises je termine mon rang envers avec une maille glissée... et il reste une dernière maille avant de débuter le second tour : le jeté+maille à tricoter. Dois-je faire ma dernière maille du rang à l'endroit? Merci encore de votre aide.

12.04.2021 - 19:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dufour, lorsque l'on tricote des côtes anglaises en rond, on va terminer tous les 2 tours par (1 jété, 1 maille glissée), et la 1ère maille se présente de la même façon, après avoir tricoté (= glissé + 1 jeté) la dernière maille, tricotez la 1ère maille du tour: tricotez-la ensemble à l'endroit avec son jeté. Cette vidéo va vous aider à comprendre comment tricoter des côtes anglaises en rond. Bon tricot!

13.04.2021 - 07:24