DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sandstone Wrap

Prjónað sjal úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klukkuprjóni í tveimur litum.

DROPS 203-16
DROPS Design: Mynstur z-877
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 53 cm
Breidd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 192 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 6309, turkos/grár
100 g litur 7139, grágrænn
50 g litur 2020, ljós kamel
50 g litur 7120, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 40 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
18 lykkjur á breidd og 42 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RÖND 1:
UMFERÐ 1 = ljós grágrænn.
UMFERÐ 2 = turkos/grár.
UMFERÐ 3 = ljós grágrænn.
UMFERÐ 4 = turkos/grár.
UMFERÐ 5 = ljós grágrænn.
Endurtakið síðan umferð 2-5.

RÖND 2:
UMFERÐ 1 = grágrænn.
UMFERÐ 2 = turkos/grár.
UMFERÐ 3 = grágrænn.
UMFERÐ 4 = turkos/grár.
UMFERÐ 5 = grágrænn.
Endurtakið síðan umferð 2-5.

RÖND 3:
UMFERÐ 1 = ljós kamel.
UMFERÐ 2 = grágrænn.
UMFERÐ 3 = ljós kamel.
UMFERÐ 4 = grágrænn.
UMFERÐ 5 = ljós kamel.
Endurtakið síðan umferð 2-5.

AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR:
Útaukning er gerð frá réttu í sléttri lykkju með uppslætti þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en sleppið ekki uppslættinum af vinstra prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman. Nú er lykkjunni sleppt af vinstri prjóni. Í næstu umferð frá réttu eru þessar lykkjur prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftir fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið uppsláttinn brugðinn. Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Nú hefur 1 lykkja slétt orðið 2 lykkjur slétt með tveimur uppsláttum og 1 lykkja brugðið á milli sléttra lykkja = 2 lykkjur fleiri.

AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR:
Útaukning er gerð frá réttu í sléttri lykkju með uppslætti þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en sleppið ekki uppslættinum af vinstra prjóni. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna aftur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum af vinstra prjóni. Í næstu umferð frá réttu eru þessar lykkjur prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftir fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið. * Prjónið uppsláttinn brugðinn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Nú hefur 1 lykkja orðið 3 lykkjur slétt með uppslætti og 1 lykkja brugðið á milli hverrar sléttrar lykkju = 4 lykkjur fleiri.

LEIÐBEININGAR-1:
Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því að skoða kantlykkjuna.

LEIÐBEININGAR-2:
Allur lykkjufjöldi sem gefinn er þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja (ef ekki annað er gefið upp).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.
Stykkið samanstendur af einingum með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og röndum með klukkuprjóni í tveimur litum.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 7 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.
Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 11 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Haldið svona áfram með að auka út 4 lykkjur í annarri hverri umferð þannig (innan við 1 kantlykkju og hvoru megin við miðju lykkju) þar til alls 35 lykkjur eru í umferð – uppslátturinn frá síðustu útaukningu er alltaf prjónaður snúinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum ljós grágrænn og turkos/grár – SJÁ RÖND 1 í útskýringu að ofan og prjónið þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 slétta kantlykkju.
Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2 í útskýringu að ofan.

UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 slétta kantlykkju. Snúið stykkinu þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu.

UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman og prjónið 1 slétta kantlykkju.
Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu.

UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 slétta kantlykkju, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 slétta kantlykkju. Snúið stykkinu þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.

Fyrir áframhaldandi útaukningu eru sett prjónamerki í næstu 3 lykkjur slétt frá réttu í stykki þannig: Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð, setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna (þetta er sama lykkjan sem var með prjónamerki í byrjun á stykki) og setjið 1 prjónamerki í næst síðustu lykkjuna. Síðan eru lykkjur auknar út í lykkjur með prjónamerki og prjónað er frá réttu þannig:

UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 slétta kantlykkjur, í næstu lykkju er aukið út um 2 LYKKJUR – sjá útskýringu að ofan. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn og takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* fram að miðju lykkju með prjónamerki í (= slétt lykkja með uppslætti). Í næstu lykkjur er aukið út um 4 LYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, í næstu lykkju eru aukið út um 2 LYKKJUR. Endið með 1 sléttri kantlykkju. Ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar til á prjóninum þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu.

Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR í miðju lykkju.
Prjónið svona þar til eining með klukkuprjóni mælist ca 10 cm, stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé eins og 4. umferð og að næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá þráðinn með ljós grágrænn – turkos/grár er síðan notaður. Prjónið MILLI EINING í útskýringu að neðan.

MILLI EINING:
Prjónið frá réttu þannig:
Prjónið 1 slétta kantlykkju, * prjónið 1 lykkja slétt í uppslátt sem tilheyrir sléttu lykkjunni, prjónið 1 lykkju slétt í sléttu lykkjuna, prjónið 1 lykkju slétt í brugðnu lykkjuna *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum (nú hefur verið aukið út um 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjurnar). Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkjur eru eftir í lok umferðar, ** prjónið 1 lykkju slétt í brugðnu lykkjuna, prjónið 1 lykkju slétt í uppsláttinn sem tilheyrir sléttu lykkjunni og prjónið 1 lykkju slétt í sléttu lykkjuna **, prjónið frá **-** alls 10 sinnum og prjónið 1 slétta kantlykkju (nú hefur verið aukið út um 10 lykkjur yfir ystu 21 lykkjurnar).
Nú á að prjóna stuttar umferðir. Það verður að reikna þær út, þar sem lykkjufjöldinn er ekki gefinn upp. Teljið fjölda lykkja fram að miðju lykkju (ekki telja miðju lykkjuna með).
Deilið síðan þessum fjölda með 9. Fjöldann sem þú færð er ca sá fjöldi lykkja sem á að vera á milli hversu oft snúið er við í stuttu umferðunum. Þessi fjöldi er í texta þar sem orðið SNÚNINGSLYKKJUR er notað.
Prjónið með byrjun frá réttu þannig:

UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju (ekki prjóna miðju lykkjuna), snúið stykki.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 1. stutta umferðin).
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til SNÚNINGSLYKKUR eru eftir á undan fyrri snúning, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 2. stuttu umferðinni). Haldið áfram að prjóna eins og umferð 3 og 4 þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir (= 20 umferðir garðaprjón og 10 lykkjur fleiri yst að hlið á stykki).
Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur í hverja og eina af ystu 2 lykkjum, prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina frá röngu.
Prjónið með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju (ekki prjóna miðju lykkjuna), snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 1. stuttu umferðinni).
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til SNÚNINGSLYKKJUR eru eftir frá fyrri snúningi, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann) og snúið stykkinu (nú er lokið 2. stuttu umferðinni).
Haldið áfram að prjóna eins og umferð 3 og 4 þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir (= 20 umferðir garðaprjón og 10 lykkjur fleiri yst að hlið).
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur með því að prjóna 2 lykkjur í hverja og eina af ystu 2 lykkjum, prjónið síðan sléttar lykkjur út umferðina frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum turkos/grár og grágrænn – sjá RÖND 2 og prjónið umferð 1-5 eins og útskýrt er að ofan.
Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR alltaf í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR alltaf í miðju lykkjuna.
Prjónið svona þar til klukkuprjón mælist ca 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé eins og 4. umferð og næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá. Skiptið yfir í ljós grágrænn og prjónið MILLI EINING.

Prjónið nú áfram í klukkuprjóni í tveimur litum ljós kamel og grágrænn – sjá RÖND 3 og prjónið umferð 1-5 eins og útskýrt er að ofan.
Endurtakið síðan umferð 2-5, en passið uppá að auka út 2 LYKKJUR alltaf í ystu lykkju slétt í hvorri hlið á stykki og auka út 4 LYKKJUR alltaf í miðju lykkju.
Prjónið svona þar til eining í klukkuprjóni mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð sé eins og 4. umferð og næsta umferð sé frá réttu. Klippið frá. Skiptið yfir í litinn turkos/grár og prjónið MILLI EINING.
Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Mette Stephens wrote:

Hej Kan man lave sjalet mindre end 192cm bredt? Med venlig hilsen Mette

09.02.2024 - 12:03

country flag Malena Palm wrote:

Hej, Jag vill gärna sticka denna med de färger som är rekommenderade men det verkar som att 7120 ljus grågrön har utgått i Drops alpacka. Då det är svårt att se på små färgkartor på en dator undrar jag vilken färg ni rekommenderar som ersättningsfärg som ligger närmast 7120.

14.03.2023 - 07:26

DROPS Design answered:

Hej Malena, de DROPS Alpaca 7139 og 7120 var næsten ens, så enten bruger du også 7139 i den anden rand eller så kan du bruge 7323 som også passer til de andre farver i sjalet :)

15.03.2023 - 14:33

country flag Kristin wrote:

Tre av disse garnene heter noe annet i fargelisten. Regner med numrene er rett?

29.10.2021 - 12:23

country flag Djuni Hansen wrote:

Mangler opskrift - ønskes sendt via mail På forhånd tak 😄

21.09.2020 - 13:22

country flag Celine wrote:

Bonjour, je rejoins Martine sur la question du rang 2 des cotes anglaises où dans la video on les vois tricoter a l envers et dans les explications c indiqué de le faire a l endroit , je pense qu il y a une erreur sur les explications. Bonne journée

12.12.2019 - 10:58

country flag EB wrote:

Creo que la hilera 2 no está bien explicada, me parece que cuando hay que tejer el punto junto con la lazada es del revés, no del derecho como explica. De hecho, en el vídeo explicativo los teje del revés.

20.11.2019 - 14:00

DROPS Design answered:

Hola EB. Si, es correcto. Tienes que trabajar la lazada y el punto juntos de revés. Ha sido una errata de la traducción. Gracias por el aviso.

24.11.2019 - 23:32

country flag Claire wrote:

Y a-t-il moyen d'avoir le patron de ce châle même s'il n'est pas sélectionné?

02.09.2019 - 07:37

country flag Claire wrote:

J'adore!!!

01.09.2019 - 09:44

country flag Catmat31 wrote:

Un peu de brioche?

26.08.2019 - 15:04