DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Fairy

Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-22
DROPS Design: Mynstur li-097
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 2923, gulur

Eða notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur B)
500-550-600-650-700-800 g litur 15, sinnepsgulur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
1 mynstureining með A.2 (18 lykkjur) mælist ca 7½ cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff og kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 216 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 54.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 53. og 54. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er það gert með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 54. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki í hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndast göt. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað í hring til loka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 196-216-238-252-280-300 lykkjur á hringprjón 4 með Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-18-17-21-20-25 mynstureiningar með 14-12-14-12-14-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-0-6-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 196-216-232-252-276-300 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 98-108-116-126-138-150 lykkjur (= í hliðum). Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þau þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 184-204-220-240-264-288 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 31-30-32-34-33-35 cm (mælt frá neðst í bogum í A.1).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 2-3-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 88-96-104-114-122-132 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út um 2-12-4-12-4-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING (= framstykki), fellið af 4-6-6-6-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 88-96-104-114-122-132 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út um 2-12-4-12-4-12 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki), fellið af þær 2-3-3-3-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Nú eru 90-108-108-126-126-144 lykkjur á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan.

ERMI:
Fitjið upp 48-52-56-56-60-60 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar fækkað er um 6-8-10-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-8-11-11-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Það á að nota prjónamerkið þegar auka á út mitt undir ermi.
Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1½-1½ cm millbili alls 13-13-19-19-19-19 sinnum = 68-70-84-84-88-90 lykkjur (skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar aukið hefur verið nægilega út fyrir ermum). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 40-38-38-38-36-36 cm (útaukningu mitt undir ermi á nú að vera lokið og það er styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 76-78-96-96-100-102 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-3-3-3-5-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 72-72-90-90-90-90 lykkjur (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar með 18 lykkjum) og endið með 2-3-3-3-5-6 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til síðasta umferð í A.2 er eftir. Síðasta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 2-3-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu umferð í A.2 yfir næstu 72-72-90-90-90-90 lykkjur og fellið af þær 2-3-3-3-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Ermin mælist ca 44-42-42-42-40-40 cm ofan frá og niður. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 324-360-396-432-432-468 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 hringinn (= 18-20-22-24-24-26 mynstureiningar með 18 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 252-280-308-336-336-364 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 hringinn (= 18-20-22-24-24-26 mynstureiningar með 14 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 126-140-154-168-168-182 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 30-40-50-56-56-62 lykkjur jafnt yfir = 96-100-104-112-112-120 lykkjur eftir í umferð. Berustykkið mælist nú ca 19-22-22-22-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar saman. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm
Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.12.2019
Teikning með málum hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Golden Fairy

@ms_blueberry, Germany

Golden Fairy

Jill, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Christine PRADEL wrote:

Bonjour, j'ai juste besoin d'une petite mise au point. Dans la légende des diagrammes, vous dites que le triangle noir correspond à : glisser 1 m à l'endroit, tricoter 2 m ensemble à l'endroit et passer la m glissée par dessus les m tricotées ensemble. ok. Classique. Sauf que dans les commentaires (21/01/2020 Mme Marterer) vous dites q ce serait plutôt : glisser 2 m ensemble, tricoter la 3eme à l'endroit puis rabattre les 2 m glissées sur la 3eme. Je dois faire quoi ? Merciiii bcp

19.04.2024 - 12:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pradel, il semble que la réponse de 2020 était erronée, conformément aux explications originales, on a bien ici un surjet double: on glisse 1 m à l'endroit, on tricote les 2 m suivantes ensemble à l'endroit et on passe la maille glissée par-dessus les mailles tricotées ensemble. Bon tricot!

19.04.2024 - 12:37

country flag Jan Steele wrote:

I have joined the sleeves to the body of the garment (second size 360 stitches. I am about to commence the pattern at \"Work A.3 in the round..... When A.3 has been completed thee ae 280 stiches on the needle.\" \r\nAs I read A.3 graph I can\'t see where I am required to make reductions. Can you please explain the process as in A.4 I can clearly see reductions in stitches .\r\nregards Jan

20.12.2023 - 11:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Steele, if you look at diagram A.3 you start with 18 sts and work the lace pattern (2 yarn overs compensated by one double decrease in the middle of diagram), but on row 15 and on next ot last row in diagram you will only decrease without making the both yarn overs, this means the number of sts in each A.3 decrease first to 16 sts then 14 sts in each A.3 x 20 repeats in 2nd size = 280 sts. Work then 20 repeats of A.4 (14 sts), and again decrease just as shown in diagram on rows 9, 17 and 23 , there are now 7 sts in each A.4 x 20 repeats = 140 sts left. Happy knitting!

20.12.2023 - 16:03

country flag Margaret wrote:

Hi, Prachtige sweater! ik begrijp niet hoe er word er geminderd in de pas van 432 naar 336 steken? Patron drops 195-22

19.12.2023 - 14:46

DROPS Design answered:

Dag Margaret,

Als je het telpatroon gewoon volt, minder je automatisch, want daarin zijn de minderingen al opgenomen.

20.12.2023 - 18:57

country flag Hannie Weststrate wrote:

Klopt het dat A2 wel op de mouwen maar niet op het lijf gebreid wordt?

01.03.2023 - 14:17

DROPS Design answered:

Dag Hannie,

Ja, dat klopt; A.2 wordt alleen op de mouwen gebreid.

01.03.2023 - 20:22

country flag Golden Fairy 195-22 wrote:

Eg lurer på om det er rett i oppskriften. På armen så står det at ein skal strikka vrangbord, men etter vrangborden så skal ein fella 10 maskar. Er det rett? Ein bruker jo heller å øke maskar då. Mitt spørsmål

24.10.2022 - 11:04

DROPS Design answered:

Hei Golden Fairy, Vi anbefaler flere masker i vrangborden slik at den ikke er stram. Disse er felt av når man begynner på resten av ermet. God fornøyelse!

25.10.2022 - 07:11

country flag Susanne wrote:

Hej jeg er i gang med at strik model nr 097 i Lima garn jeg kan ikke få mønste til at passer jeg har pille op i gen igen jeg slut med to m hvor jeg skal have 4 m til bage

19.06.2020 - 08:01

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Vi skal hjlpe deg så god vi kan, men hvilken størrelse strikker du og hvor i diagrammet mener du mønstret ikke passer? mvh DROPS design

22.06.2020 - 11:18

country flag LOPEZ Marie Claude wrote:

Je ne vois pas à quel endroit tricoter le diagramme numéro 2 ?

07.03.2020 - 18:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lopez, le diagramme A.2 se tricote en haut de la manche, après avoir ajusté le nombre de mailles à 76-102 (cf taille). Bon tricot!

09.03.2020 - 10:52

country flag Louise wrote:

I have knitted this pattern but the yoke part looks like a bigger size than the bottom half. The patterned yoke is much fuller and looks like it’s been gathered. What have I done wrong? I’m thinking of re-knitting from the patterned part on a smaller needle and size - what do you think? I can send a photo.

31.01.2020 - 15:00

DROPS Design answered:

Dear Louise, lace patterns , with yarnovers can become a little looser, than stockinett stitch. Everyone knits differently, if the difference is too big and bothers you, it is a good idea to knit it with smaller needles. Happy Crafting!

31.01.2020 - 15:24

country flag Danielle Marterer wrote:

Je viens d’envoyer une question et puis j’ai vu les photos en bas de page... j’ai pu agrandir ces photos et voir le détail du point : c'est juste parfait ! Ce modèle est vraiment superbe . Je le réalise en Alpaca drops coloris jean mix (vu que le fil est chiné on voit peut-être moins le point). Merci en tout cas pour votre site : c’est une vraie mine pour une tricoteuse au long cours dans mon genre : j’ai 73 ans et j’ai dû commencer vers 7-8 ans ! Cordialement

21.01.2020 - 23:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marterer, oups la réponse est partie avant la lecture de votre deuxième message, merci encore et bonne continuation!

22.01.2020 - 09:42

country flag Danielle Marterer wrote:

Dans le diagramme le point figuré par un triangle noir : ne serait -ce pas plutôt : glisser 2m ensemble, tricoter la 3eme endroit, rabattre les 2m glissée sur la 3eme ? Il me semble que cela ferait plus une « lugne » verticale (on ne voit pas bien le motif sur la photo - on ne peut pas l’agrandir) merci de votre avis !

21.01.2020 - 23:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marterer, c'est bien ainsi que cette diminution doit être faite, mais si vous préférez la faire autrement, vous pouvez tout à fait, vous pouvez essayer les deux techniques sur un échantillon pour bien voir la différence avant de vous décider. Bon tricot!

22.01.2020 - 09:17