The Pearl |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og v-hálsmáli úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3 og A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) mínus lykkjur sem ekki á að fækka yfir (t.d. 2 kantlykkjur með garðaprjóni) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 7,8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju með garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Prjónað er gatamynstur á framstykki. Bakstykki er prjónað í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni, fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-114-124-134-144-159 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-15-17-21-21-24 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kantlykkjur í garðaprjóni) – lesið ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 91-99-107-113-123-135 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 16-17-12-18-20-13 cm millibili alls 3-3-4-3-3-4 sinnum = 85-93-99-107-117-127 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-43-45-45-48-47 cm fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-2-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-3-2 sinnum = 75-75-79-83-83-87 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-57-60-61-65-65 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 25-25-25-25-25-27 lykkjur í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur eru felldar af miðju 19-19-19-19-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Nú eru 28-28-30-32-32-33 lykkjur fyrir hvora öxl. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 3 lykkjur garðaprjón að hálsmáli og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 56-60-63-64-68-68 cm fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 105-115-129-133-143-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 5-10-15-15-20-25 lykkjur, 3 lykkjur slétt, A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 32-32-34-36-36-38 lykkjur), A.2 (= 23 lykkjur), A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 32-32-34-36-36-38 lykkjur), (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 5-10-15-15-20-25 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Nú eru 91-101-115-119-129-143 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-13-18-18-23-28 lykkjur jafnframt sem fækkað er um 0-1-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir (= 8-12-14-15-20-24 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.3 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.4 (= 21 lykkja), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.3 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir næstu 8-13-18-18-23-28 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 0-1-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir (= 8-12-14-15-20-24 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið), 1 kantlykkja í garðaprjóni = 91-99-107-113-123-135 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 16-17-12-18-20-13 cm millibili alls 3-3-4-3-3-4 sinnum = 85-93-99-107-117-127 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-43-45-45-48-47 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki. Prjónið þannig: Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 4-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, L og XL: Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til fyrstu 8 umferðir í A.4 hafa verið prjónaðar til loka. Prjónið síðan A.5 (veljið mynsturteikningu fyrri þína stærð = 21 lykkja) yfir A.4 (þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í mynstri eins og áður). Í síðustu umferð í A.5 er aukið út um 1 lykkju í miðju lykkju í mynsturteikningu. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Stærð M, XXL og XXXL: Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur, en prjónið A.5 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 21 lykkjur) yfir A.4. Í síðustu umferð í A.5 er aukið út um 1 lykkju í miðju lykkju í mynsturteikningu. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka, setjið fyrri helminginn af lykkjum á prjóninn (séð frá röngu) á þráð fyrir hægra framstykki. Þær lykkjur sem eftir eru = vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka frá réttu – ATH: Affelling fyrir handveg heldur áfram eins og á bakstykki. Prjónið mynstur eins og áður fram að A.5, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan skiptingu fyrir hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur garðaprjóni (= að hálsi). Prjónið til baka frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 9-9-9-9-9-10 sinnum. Þegar öll úrtaka/affelling fyrir hálsmáli og handveg er lokið eru 29-29-31-33-33-34 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til handvegur mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (stykkið mælist alls 56-60-63-64-68-68 cm frá öxl og niður), JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 28-28-30-32-32-33 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur frá þræði á hringprjón og prjónið fram og til baka frá réttu – ATH: Affelling fyrir handveg heldur áfram eins og á bakstykki og vinstra framstykki. Prjónið 3 lykkjur garðaprjón (frá hálsi), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur fram að A.3 og haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 9-9-9-9-9-10 sinnum. Þegar öll affelling/úrtaka fyrir fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 29-29-31-33-33-34 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til handvegur mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (stykkið mælist alls 56-60-63-64-68-68 cm frá öxl og niður), JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 28-28-30-32-32-33 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! ERMI: Fitjið upp 45-50-50-55-55-60 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11-8-13-10-14 lykkjur jafnt yfir = 38-39-42-42-45-46 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-11-11-7-4 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6 -5-4-3-3-3 cm millibili alls 6-7-8-10-11-12 sinnum = 50-53-58-62-67-70 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 43-43-43-42-41-40 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 3-4-2-3-5-6 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 12-13-14-16-17-18 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51-52-52-52-53-53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Maria Kassalia wrote:
Hallo liebes team ich habe nicht verstanten in welcher höhe bei größe XL beginnd der V-Ausschnit vielen dank
18.01.2022 - 18:02DROPS Design answered:
Liebe Frau Kassalia, wenn A.4 insgesamt 5 Mal in der Höhe gestrickt wurde, stricken Sie A.5 über die A.4, bei der letzten Reihe nehmen Sie 1 Masche zu. Nach der letzten Reihe teilen Sie die Arbeit für die 2 Hälfte/Halsausschnitt, siehe unter ALLE GRÖSSEN. Viel Spaß beim stricken!
19.01.2022 - 08:30Catherine wrote:
Bonjour! Pour le devant du pull, dois-je tricoter les 8 mailles avant et après les diagrammes, comme elles se présentent sur chaque rang (c'est-à-dire la maille endroit sur l'endroit deviendra maille envers sur l'envers) ou dois-je contrarier ces mailles selon l'endroit ou l'envers du rang? Merci pour votre réponse!
08.09.2020 - 17:59DROPS Design answered:
Bonjour Catherine, si vous parlez des 8 mailles (en taille S) entre la maille lisière et A.1, elles se tricotent en côtes, autrement dit, sur l'envers, tricotez les comme elles se présentent. (de même en fin de rang après A.1 et avant la maille lisière). Bon tricot!
09.09.2020 - 09:04Latricoteuse24 wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas les légendes pour le diagramme. Pourriez-vous me les expliquer ?
13.09.2019 - 18:48DROPS Design answered:
Bonjour Latricoteuse24, vous retrouverez la signification de chaque symbole sous la légende, les diagrammes montrent tous les rangs (= sur l'endroit et sur l'envers), quand vous croisez un des symboles, référez-vous à la légende, par ex 1 case blanche se tricote en jersey endroit (= à l'end sur l'end, à l'env sur l'env) et un tiret en jersey envers (= à l 'env sur l'end, à l'end sur l'env) et ainsi de suite. Plus d'infos ici dans la FAQ. Bon tricot!
16.09.2019 - 13:07Inc1961 wrote:
The chart legend Has a triangle over two stitch is Purl two together. The chart though has the triangle slanting in the opposite direction? Is this still Purl two together, as the previous rows show Purl stictches, or because it’s a reversed symboled, is it knit two together? Thank you
26.05.2019 - 15:48DROPS Design answered:
Dear Inc1961, this symbol should be read as P2 tog, diagram/symbol will be edited to match. Thanks for your feedback. Happy knitting!
27.05.2019 - 11:19Elin Therese wrote:
Jeg strikker minste størrelse, og lurer på de to maskene som strikkes vrang mellom hver rapport, altså 1 kantmaske, 8 m rett, 2 MASKER VRANG, A.3, 2 MASKER VRANG, A.4, 2 MASKER VRANG osv. Skal disse maskene strikkes vrang fra vrangsiden også? Eller strikkes de som en vrangbord, og altså rett fra vrangsiden?
24.11.2018 - 20:17DROPS Design answered:
Hei Elin. De strikkes vrang fra retten og rett fra vrangen slik at de forblir vrang (sett fra rettsiden) hele veien opp. God fornøyelse
26.11.2018 - 11:30Fabiane Brettas wrote:
Olá. Fiz a receita seguindo as explicações para o tamanho M, porém as mangas não encaixam nas cavas. Existe alguma correção para esse tamanho?
24.06.2018 - 00:36DROPS Design answered:
Olá, Não existe qualquer correção para este modelo. Verificou bem se a sua amostra era igual à indicada? Usou o fio DROPS? Pois se usou um outro fio, a tensão do trabalho pode ser muito diferente!
25.06.2018 - 16:34Simone wrote:
Sorry, another question, is the whole jersey knitted in two strands and can I substitute with one strand in double knit yarn instead. Thank you,
18.06.2018 - 09:46DROPS Design answered:
Dear Simone, this pattern is worked entirely with 2 strands yarn group A (= Alpaca and Kid-Silk) and can be worked with a yarn group C - read more about alternatives here. Happy knitting!
18.06.2018 - 10:06Simone wrote:
Can I knit the front and back sections in the round?
17.06.2018 - 19:36DROPS Design answered:
Dear Simone, you can work body in the round until armhole if you like to, but remember designer choice might have some reasons so that piece worked in the round may not look as pattern shown. Happy knitting!
18.06.2018 - 09:02Elin wrote:
Er denne veldig vid i størrelsen? I henhold til målene på tegningen er omkretsen 98 cm rundt brystet i str. S. Det virker veldig stort. Kan man justere pinnestr. og dermed strikkefastheten, og sånn få et litt smalere plagg, eller vil dette påvirke dimensjonene ellers?
14.06.2018 - 19:39DROPS Design answered:
Hei Elin. Ja, denne modellen er litt løs. Ettersom strikkefastheten går på både lengde og bredde vil alle dimensjonenene i plagget bli påvirket at du endrer på dette. Det er selvføleglig ikke noe i veien for at du endrer på det så lenge du er klar over at det påvirker lengde, bredde og eventuelt garnmengde. God fornøyelse
19.06.2018 - 08:00Oksana wrote:
In the description for front piece is says: ... Now work pattern from the right side as follows: 1 edge stitch in garter stitch, knit the first 8-13-18-18-23-28 stitches at the same time as you decrease 0-1-4-3-3-4 stitches evenly over these stitches.... and then - Continue back and forth like this ... Question: in this row description you suggest to continue with there is decrease of the stiches. Should it be repeated every other row till the end of the work?
14.04.2018 - 10:01DROPS Design answered:
Dear Oksana, after the row with dec you continue with 8-12-14-15-20-24 sts in stocking st after the edge st at the beg of row and before the edge st at the end of row, you will then dec when piece measures 5 cm (as for back piece). Happy knitting!
16.04.2018 - 08:52