DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Pearl Jacket

Prjónuð peysa í garðaprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS 187-38
DROPS Design: Mynstur ai-121
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir kanta með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 35 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-8-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð í A.3 og A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri).

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar berustykki mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 6-6-7-7-7-7 næstu með ca 8-8-7½-7½-8-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 86-90-94-98-102-106 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 25 lykkjur jafnt yfir með uppslætti (ekki er aukið út yfir fyrstu og síðustu 5 lykkjur = kantur að framan) = 111-115-119-123-127-131 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Lesið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig:
Prjónið síðan yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja), A.2 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-5-5-5-5-10 lykkjur (= 1-1-1-1-1-2 sinnum á breidd), A.3 (= 1-2-3-4-5-1 lykkjur).
Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.4 (= 16 lykkjur), A.5 (= 5 lykkjur), A.4 yfir 16 lykkjur.
Prjónið yfir bakstykki þannig: Prjónið A.6 (= 2-3-4-5-1-2 lykkjur), A.2 yfir 10-10-10-10-15-20 lykkjur, A.3 yfir 1-2-3-4-5-1 lykkjur.
Prjónið yfir hægri ermi þannig: Prjónið A.4 yfir 16 lykkjur, A.5 yfir 5 lykkjur, A.4 yfir 16 lykkjur.
Prjónið yfir hægra framstykki þannig: Prjónið A.6 yfir 2-3-4-5-1-2 lykkjur, A.2 yfir 5-5-5-5-10-10 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.3, A.5 og A.6 (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.4 = alls 8 lykkjur fleiri í hverri umferð frá réttu). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það eiga ekki að myndast göt. Kantlykkjur að framan er prjónaðar í garðaprjóni til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mynsturteikning A.1, A.2 og A.4 eru endurteknar á hæðina. Þegar A.3, A.5 og A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina halda útaukningar áfram og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður.
Aukið út hvoru megin við A.4 alls 14-16-19-21-24-27 sinnum (meðtalin útaukning í A.3, A.5 og A.6) = 223-243-271-291-319-347 lykkjur. Haldið síðan áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsmáli.
Nú skiptast ermar og fram- og bakstykki frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 32-34-37-41-46-52 lykkjur brugðið (= vinstra framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 63-67-73-81-91-103 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur undir ermi, prjónið 32-34-37-41-46-52 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 153-165-177-193-213-233 lykkjur.
Prjónið nú áfram stykkið í sléttprjóni, en með rönguna út, þ.e.a.s. prjónið slétt frá röngu og brugðið frá réttu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Setjið 1 prjónamerki 41-44-47-51-56-61 lykkjur inn frá hvorri hlið á stykki (= framstykki = 71-77-83-91-101-111 lykkjur á bakstykki).
Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4 cm millibili alls 6-6-7-7-6-6 sinnum = 177-189-205-221-237-257 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum er skipt yfir á hringprjón 4,5 og prjónaðar eru 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls ca 56-58-60-62-64-66 cm frá kanti í hálsmáli.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki mitt undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur.
Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, þær 8-10-10-10-10-8 nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 5½-4-2½-2-2-2 cm millibili alls 6-8-12-12-14-12 sinnum = 39-43-43-45-45-49 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 5 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki er prjónað áfram í sléttprjóni frá röngu, þ.e.a.s. snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur frá röngu í hring.
Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-31 cm skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) í hring frá röngu, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-1-1-0-0-1 lykkju = 39-42-42-45-45-48 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið af með 1 númeri grófari prjónum. Stykkið mælist alls 63-64-64-64-65-65 cm frá kanti í hálsmáli. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu, brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag DUVAL MT wrote:

Comment puis-je transcrire le modèle pour la taille XL afin de le réaliser avec des aiguilles droites car je n'arrive pas à utiliser des aiguilles circulaires ?

14.09.2019 - 09:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duval, seules les manches de ce modèle se tricotent en rond, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

16.09.2019 - 08:56

country flag Karme wrote:

Hola, yo he llegado a los 14,5 cm y tego 243 puntos en las agujas. Ahora he de dejar de aumentar y seguir tejiendo como se presentan los puntos ? hasta los 22 cm? Gracias, por su pronta respuesta. un saludo. karme

02.09.2019 - 18:10

DROPS Design answered:

Hola Karme. Si tu estás trabajando la talla S, tienes que aumentar para el raglán hasta que la labor mida 14 cm y después trabajar sin aumentos como se presentan los puntos hasta 20 cm, Si estás trabajando otra talla consulta el patrón para las medidas correspondientes.

05.09.2019 - 20:51

country flag Karme wrote:

Los graficos que se empiezan de izquierda a derecha por el derecho?

31.08.2019 - 17:52

DROPS Design answered:

Hola Karme. Los graficos se leen de abajo arriba y de derecha a izquierda por el lado derecho y de izquierda a derecha por el lado revés.

31.08.2019 - 19:16

Oksana wrote:

There is no short rows on back of the neck, but there is difference of 4 cm between neck of the back and front seen on diagramm. Could you please specify on which account it appeares. Thanks!

27.08.2018 - 10:51

DROPS Design answered:

Hello! The difference from the back of the neck to the front of the neck is on the width (i.e, the back of the neack is wider than the front of the neck). The height (4 cm) is the same for both front and back of the neck. Happy Knitting!

30.08.2018 - 13:27

country flag Nanna wrote:

En meget smuk trøje, som strikkes i L. Er dog i tvivl om udtagningers på bærestykket, da resultat er 241 og ikke 271? Er der flere udtagninger end i mønster. Synes ikke dette fremgår klart af opskriften.

14.08.2018 - 16:45

DROPS Design answered:

Hej Nanna, ja er den ikke fin :) Du starter med 94 masker, tager 25 masker ud jævnt fordelt på første pind i str 5,5. Tager 8 masker ud 19 gange (152 m) = ialt 271 m - God fornøjelse!

15.08.2018 - 08:17

country flag Krista De Backer wrote:

Ik zou graag de telpatronen A3,A5 en A6 verder uittekenen. Kunt u mij zeggen met welk programma Drops de telpatronen uittekent? Groetjes

24.07.2018 - 15:34

country flag Krista De Backer wrote:

Hoe wordt de omslag in het telpatroon gebreid: gedraaid rechts of gedraaid averechts?

22.07.2018 - 13:45

DROPS Design answered:

Dag Krista, In dit geval worden deze gedraaid averecht gebreid.

07.08.2018 - 09:40

country flag FURSTENBERGER Michèle wrote:

Bonjour, j\'ai essayé de tricoter le haut du gilet, sans succès, je me perd toujours dans les diagrammes. Auriez-vous la gentillesse de me décrire en détail ou par une vidéo le haut de ce gilet jusqu\'à la séparation des manches .

23.04.2018 - 15:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Furstenberger, pour toute assistance complémentaire, je vous invite à contacter le magasin où vous avez acheté votre laine ou à vous enregistrer sur le forum DROPS où l'on pourra vous aider plus en détail. Bon tricot!

24.04.2018 - 09:30

country flag FURSTENBERGER Michèle wrote:

Bonjour, j'ai encore besoin de vos lumières, je n'arrive pas à faire le point fantaisie et choisir le diagramme à tricoter jusqu'à la séparation devant dos manches ainsi que le raglan, en fait tout le haut. Merci de m'indiquer en détail pour une taille XL, car le gilet me plais énormément.

19.04.2018 - 12:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Furstenberger, les cases blanches se tricotent toujours à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers. Celles avec une croix se tricotent à l'endroit sur l'envers = point mousse. A.4 = 16 m = Rang 1 (endroit): 16 m end. Rang 2 (envers): (1 m env, 2 m end) x 5, 1 m env. Répétez ces 2 rangs. A.1 se tricote en jersey endroit. Tricotez A.2, A.3 et A.5 comme pour A.4, mais tricotez les jetés torse (= pas de trou) au rang suivant soit à l'end (= si croix), soit à l'env (= si case blanche) au rang suivant. Suivez bien les diagrammes A.2, A.3 et A.6 indiqués pour la taille XL. Bon tricot!

19.04.2018 - 13:35

country flag FURSTENBERGER Michèle wrote:

Bonjour, Je vous ai adressé un autre message pour le modele 187-35 je n'ai pas eu de réponse, je vous demandais de bien vouloir m'expliquer l'empiècement de ce gilet en m'indiquant quels sont les diagrammes pour une taille xxl , à partir de quel rang je dois mettre les marqueurs et surtout les augmentations à faire. Je vous remercie beaucoup de reponse, je serais tellement contente de réussir ce gilet. A bientot de vous lire.

11.04.2018 - 09:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Furstenberger, nous n'avons aucune question de votre part sous le modèle du sac DROPS 187-35>/a>, pour votre question relative à ce modèle, vous trouverez la réponse ci-dessous. Bon tricot!

11.04.2018 - 13:48