DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Warm Waves

Settið samanstendur af: Prjónuðum hálsklút, húfu og handstúkum með röndum og ölumynstri í garðaprjóni úr DROPS Delight.

DROPS 180-32
DROPS Design: Mynstur de-174
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 200 g af hverjum lit í allar stærðir DROPS Delight.

HÁLSKLÚTUR:
Mál:
Lengd: 150 cm.
Breidd: 35 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150 g litur 05, beige/grár/bleikur
150 g litur 18, haustskógur

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 05, beige/grár/bleikur
50-50 g litur 18, haustskógur

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - L/XL
Mál:
Ummál: ca 17-19 cm.
Lengd: ca 16-17 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 05, beige/grár/bleikur
50-50 g litur 18, haustskógur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 28 lykkjur og 30 umferðir með öldumynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir garðaprjón.

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 28 lykkjur og 30 umferðir með öldumynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Hálsklútur: Sjá mynstureiningu A.1.
Húfa: Sjá mynstureiningu A.1 til A.5.
Handstúkur: Sjá mynstureiningu A.6. Veljið mynstureiningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH! Prjónið slétt í hverri umferð.

RENDUR:
* Prjónið 2 umferðir með litnum beig/grár/bleikur, prjónið 2 umferðir með litnum haustskógur *, endurtakið frá *-* til loka.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón með RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 96 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum beige/grár/bleikur. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, A.1 – lesið MYNSTUR að ofan, yfir næstu 90 lykkjur (= 5 mynstureiningar 18 lykkjur), endið með 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 150 cm, fellið af, lesið AFFELLING.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. Stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

HÚFA:
Fitjið upp 136-152 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með litnum beige/grár/bleikur. Prjónið 4 cm. Prjónið 1 umferð og aukið út 10-12 lykkjur jafnt yfir = 146-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið síðan eftir mynstureiningu A.1 – lesið MYNSTUR að ofan (= 8-9 mynstureiningar á breidd), með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkjurnar halda áfram til loka). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16 cm er prjónuð 1 mynstureining A.2 á hæðina = 130-146 lykkjur. Prjónið síðan eftir mynstureiningu A.3. Þegar stykkið mælist ca 20 cm, prjónið 1 mynstureiningu A.4 á hæðina = 114-128 lykkjur. Prjónið síðan eftir mynstureiningu A.5. Þegar stykkið mælist 25-26 cm eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 57-64 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu 2 umferðum er prjónuð 1-0 lykkja slétt, síðan eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 einu sinni til viðbótar = 15-16 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman við miðju að aftan, saumið innan við 1 kantlykkju.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.
Stykkið er prjónað með GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 44-48 lykkjur á prjón 3,5 og prjónið mynstur þannig: Prjónið 26-28 lykkjur garðaprjón, prjónið A.6 (= 18-20 lykkjur) – lesið MYNSTUR að ofan. Haldið svona áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-17 cm (mælt yfir garðaprjón í byrjun), fellið af – lesið AFFELLING að ofan. Saumið saman í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur.
Prjónið aðra handstúku á sama hátt, nema spegilmynd.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur í eina lykkju
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjóni 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 4 lykkjur færri).
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag ROBERTA wrote:

Mi potete indicare la disposizione dei colori ferro per ferro?gazie

02.12.2023 - 20:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Roberta, si lavorano 2 ferri per colore. Buon lavoro!

04.12.2023 - 16:58

country flag Jeanette Sørensen wrote:

Hej. Jeg er gået i gang med halstørklædet. Det står at mans skal strikke 3 ret og så A1 over maskerne imellem og så slutte med 3 ret. Men jeg får 2 masker til overs? Er det ikke korrekt forstået at man begynder A1 med at strikke to masker i samme maske og slutter A1 med det også og derfor får man to af de masker ved siden af hinanden når man begynder og slutter A1? (Altså 2 masker hvor der er strikket to i samme maske )

03.01.2023 - 15:53

DROPS Design answered:

Hei Jeanette. Jo, det strikkes 2 masker i 1 maske ( i begynnelsen og slutten av A.1), MEN midt i diagrammet så felles det 2 masker. Se diagramikonet som går over 4 masker og som har denne forklaringen= ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 1 rett, løft den løse masken over masken som ble strikket, strikk 2 rett sammen (= 2 masker felt) . Du har derfor det samme maskeantallet hele veien når A.1 strikkes. mvh DROPS Design

05.01.2023 - 14:52

country flag Isa wrote:

Jag lyckades lösa det själv. :)

29.12.2022 - 11:41

country flag Isa wrote:

Hej, Jag stickar mössan L/XL och har kommit till när arbetet mäter 16 cm så ska jag sticka en rapport av A2 på höjden och sedan A3. Jag tolkar det som att jag ska börja varje varv med 1 rapport A2=18 maskor och sedan har jag fortsatt med A3 resten av stickan innan jag stickat bara räta på nästa sticka och sedan börjat om med A2 först och sedan A3 på nästa varv. Det går inte jämnt upp med rapporterna/maskorna. Ska det det? Hoppas ni kan hjälpa mig! Varma hälsningar, Isa

23.12.2022 - 21:55

DROPS Design answered:

Hei Isa. Vi har hatt julestengt, men ser at du fant ut at det selv. Så bra, da fikk du strikket videre i julen. God fornøyelse. mvh DROPS Design

02.01.2023 - 09:43

country flag El-Fady Soad wrote:

Je peut être livrée en 🇫🇷 France?????

30.11.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Soad, bien sûr, découvrez ici la liste des magasins DROPS en France, si vous n'avez pas la chance d'avoir un magasin près de chez vous, vous pouvez commander auprès des boutiques en ligne. Bon tricot!

01.12.2022 - 11:47

country flag Martina wrote:

Die angegeben Farben sehen etwas anders aus, als auf dem Bild. Werden für dieses Set die Farben 05 beige, grau rose und 18 herbstwald ? Die Farben sehen auf dem Bild etwas anders aus.

15.10.2022 - 11:14

DROPS Design answered:

Liebe Martina, genau so wird d as Set gestrickt - Bitte beachten Sie, dass die Farben je nach Bildschirmeinstellungen unterschiedlich aussehen können ebenso können die Farben je nach Farbbad leichte Unterschiede ausweisen. Viel Spaß beim stricken!

17.10.2022 - 09:13

country flag Kerstin wrote:

Der Schal wird mit einer Krausrippe begonnen und soll nach 150 cm einfach abgekettet werden. Sollte zum Schluss nicht auch wieder einer Krausrippe gestrickt werden, so dass beide Enden gleich aussehen oder fällt das nicht auf?

11.09.2022 - 19:13

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, der ganze Schal wird krausrechts gestrickt, so daß er mit 1 Krausrippe anfängt und endet. Viel Spaß beim stricken!

12.09.2022 - 11:17

country flag Claude wrote:

Merci ! J'ai compris maintenant ! :-)

07.07.2022 - 15:55

country flag Claude wrote:

Bonjour, J'ai une question concernant les manchettes. Pour la taille S, il faut monter 44 mailles et les instructions disent : "tricoter ainsi: 26-28 mailles au point mousse, A.6 (= 18-20 mailles)". Il ne faut donc tricoter le point fantaisie qu'une seule fois. Ne vaut-il pas mieux tricoter "13 mailles, A.6, 13 mailles", plutôt que "26 mailles, A.6" ? Merci !

07.07.2022 - 09:16

DROPS Design answered:

Bonjour Claude, en fait, c'est ainsi que les manchettes photographiées ont été réalisées: le dessous de la main est tricoté au point mousse et le dessus en suivant le diagramme A.6. À vous de voir si vous préférez les réaliser différemment bien sûr. Bon tricot!

07.07.2022 - 13:36

country flag Hanna Mourino wrote:

Hej! Spelar det någon roll om man skulle vilja sticka denna halsduk i slätstickning istället?

24.09.2021 - 17:33

DROPS Design answered:

Hej Hanna. Jag skulle tro att du får en annan stickfasthet om du stickar i slätstickning istället. Gör gärna en provlapp för att se hur det blir. Mvh DROPS Design

27.09.2021 - 08:55