DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS 171-34
DROPS Design: Mynstur nr de-160
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd fyrir miðju: ca 47 cm.
Breidd efst: ca 180 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
200 g litur nr 18, haustskógur
Og einnig:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200 g litur nr 8903, svartur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 41 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR:
Fyrir hvert skipti sem snúið er við, snúið stykkinu, takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið áfram, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 4 með Alpaca.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum og endið með 1 l garðaprjón = 11 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 l garðaprjón, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þetta er gert til að stykkið verði eins á báðum hliðum), 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1 rautt prjónamerki, 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1 blátt prjónamerki, 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 2 l garðaprjón = 14 l (= 2 prjónamerki).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ (= rétta): Prjónið 1 l garðaprjón, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * prjónið garðaprjón fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri, þ.e.a.s. aukið er út á undan prjónamerki) * , endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 3 l fleiri alls), endið með 2 l garðaprjón.
Endurtakið umf 4 og 5, þ.e.a.s. aukið út um 3 l í hverri umf frá réttu þar til stykkið mælist 8 cm mælt meðfram miðju, passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l garðaprjón, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í hvora af næstu 2 lykkjum (= 2 l fleiri) * prjónið garðaprjón fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 5 l fleiri alls), endið með 2 l garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

1. HLUTI:
Skiptið yfir í Delight.
Prjónið 1 umf slétt yfir allar l frá réttu og aukið út þannig: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið sl að rauðu prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri, þ.e.a.s. aukið út á eftir prjónamerki), prjónið sl að bláa prjónamerkinu, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri, þ.e.a.s. aukið út á eftir prjónamerki), prjónið sl þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 1 l garðaprjón. Prjónið 1 umf slétt til baka (= frá röngu). Haldið svona áfram með útaukningu JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf og fleygur þannig:

ATH: Þegar prjónaðar eru stuttar umf er einungis aukið út við prjónamerkin sem prjónast yfir, þ.e.a.s. það verður að prjóna yfir 1 l á eftir prjónamerki til að hægt sé að auka út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Útaukning á eftir 2 kantlykkjum heldur áfram eins og áður í hverri umf frá réttu.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið stuttar umf JAFNFRAMT er prjónaður fleygur.
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir, snúið við (ekki er lengur prjónað yfir þessar l).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl til baka – LESIÐ LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til eftir eru 8 l (meðtaldar fyrstu 4 l), snúið við (ekki er lengur prjónað yfir þessar l).
UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka.
Prjónið yfir 4 l færri í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þar til eftir eru 5 til 7 l, það eiga að vera eftir 4 eða fleiri l í umf í síðasta skipti sem snúið er við. Síðasta umf er prjónuð frá röngu.
FLEYGUR:
Prjónaður er 1 fleygur á hægri hlið á stykki (séð frá réttu) með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1-4: Prjónið stuttar umf og aukið út eins og áður.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið og aukið út eins og áður þar til 10 l eru eftir á undan rauða prjónamerkinu, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl til baka.

Vegna stuttu umferða er ekki alltaf mögulegt að prjóna fleyg. Fleygurinn er einungis prjónaður þar sem stuttar umferðir eru yfir 10 l á undan rauða prjónamerkinu.
Endurtakið útaukningu, stuttar umferðir og fleyg. Þegar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka er næsti hluti prjónaður þannig:

2. HLUTI:
Skiptið yfir í Alpaca. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l frá réttu og aukið út þannig:
Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl að rauða prjónamerkinu, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri, þ.e.a.s. aukið út á undan prjónamerki), prjónið sl að bláa prjónamerkinu, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri, þ.e.a.s. aukið út á undan prjónamerki), prjónið sl þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 2 l sl. Haldið svona áfram með útaukningu JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf og fleygur þannig:

Útaukning kemur á ská ef miðað er við hluta 1. ATH: Þegar prjónaðar eru stuttar umf er einungis aukið út við prjónamerkin sem prjónast yfir, þ.e.a.s. það verður að prjóna yfir 1 l á eftir prjónamerki til að hægt sé að auka út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Útaukning á eftir 2 kantlykkjum heldur áfram eins og áður í hverri umf frá réttu.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið stuttar umf JAFNFRAMT er prjónaður fleygur.
STUTTAR UMFERÐIR:

STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sl þar til eftir eru 6 l, snúið við (ekki er lengur prjónað yfir þessar l).
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl til baka og aukið út eins og áður.
UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til 12 l eru eftir (meðtaldar fyrstu 6 l), snúið við (ekki er lengur prjónað yfir þessar l).
UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka og aukið út eins og áður.
Prjónað er yfir 6 l færri í hverri umf frá röngu (= önnur hver umf) þar til eftir eru 7 til 11 l, það eiga að vera eftir 6 eða fleiri l í umf í síðasta skipti sem snúið er við. Síðasta umf er prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l.
FLEYGUR:
Prjónaður er 1 fleygur á vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1-4: Prjónið stuttar umf og aukið út eins og áður.
UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið og aukið út eins og áður þar til 10 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu, snúið við.
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið sl til baka.

Endurtakið útaukningu, stuttar umferðir og fleyg. Þegar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka er næsti hluti prjónaður þannig:

3. HLUTI:
Skiptið yfir í Delight.
Prjónið eins og hluti 1, en þegar prjónaðar eru stuttar umferðir er prjónað yfir 8 l færri í annarri hverri umf þar til eftir eru 9 til 15 l, nú eiga að vera eftir 8 eða fleiri l í síðasta skipti þegar snúið er við.

4. HLUTI:
Skiptið yfir í Alpaca.
Prjónið eins og hluti 2, en þegar prjónaðar eru stuttar umferðir er prjónað yfir 10 l færri í annarri hverri umf þar til eftir eru 11 til 19 l, nú eiga að vera eftir 10 eða fleiri l í síðasta skipti þegar snúið er við.

5. HLUTI:
Skiptið yfir í Delight.
Prjónið eins og hluti 1, en þegar prjónaðar eru stuttar umferðir er prjónað yfir 12 l færri í annarri hverri umf þar til eftir eru 13 til 23 l, nú eiga að vera eftir 12 eða fleiri l í síðasta skipti þegar snúið er við.

6. HLUTI:
Skiptið yfir í Alpaca.
Prjónið eins og hluti 2, en þegar prjónaðar eru stuttar umferðir er prjónað yfir 14 l færri í annarri hverri umf þar til eftir eru 15 til 27 l, nú eiga að vera eftir 14 eða fleiri l í síðasta skipti þegar snúið er við.

Stykkið mælist nú ca 46 cm (mælt frá miðju að aftan).

Prjónið 2 umf garðaprjón með Delight og aukið út eins og áður í umf frá réttu.
Fellið síðan laust af.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Katharina wrote:

Ich möchte diese Form des Tuches in einem einfarbigen Garn stricken. Würde sich da die Anleitung verändern (wegen der verkürzten Reihen) oder können Sie eine andere gute Anleitung für diese Tuchform empfehlen?

21.11.2023 - 11:02

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, aber hier finden Sie alle unsere Tücher, gerne schmökern Sie alle Modellen, Filtern können auch helfen. Viel Spaß beim stricken!

21.11.2023 - 16:00

country flag Catia Nicoli wrote:

Ho dimenticato di inserire l'indirizzo per la notifica. Catia Nicoli

09.11.2023 - 08:48

country flag Catia Nicoli wrote:

Buongiorno, nella parte 1 delle spiegazioni si legge: Lavorare 4 m in meno ad ogni ferro .... finché non rimangono da 5 a 7 m, devono restare 4 o più m dopo aver girato il lavoro l’ultima volta." In tal modo non mi restano maglie per eseguire il tassello, arrivando a 10 m dal segno rosso. Quindi, le 5-7 maglie, si intendono dal ferro blu o è necessario prima lavorare su tutti i ferri accorciati, riprendendoli? Grazie per la risposta, Catia

09.11.2023 - 08:46

DROPS Design answered:

Buonasera Catia, c'è la possibilità che non si riesca a lavorare il tassello. Buon lavoro!

19.11.2023 - 19:45

country flag Gerda Wittrup wrote:

Tak for hurtigt svar på mit spørgsmål, om der både skulle strikkes forkortede pinde og kiler i del 3-6 eller kun forkortede pinde. K Desværre kunne jeg ikke bruge svaret. På ingen af billederne ligger sjalet strakt ud, så jeg han se teknikkerne. Men jeg kan jo spørge igen. Venlig hilsen Gerda

13.08.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Hei Gerda. Du skal strikke del 3-6 slik som del 1 og 2, og i del 1 og 2 er det beskrevet at man skal strikke både forkortede pinner og kile. Så svar på ditt spørsmål fra 08/08 og 13/08 er ja, det strikkes både forkortede pinner og kile. mvh DROPS Design

15.08.2022 - 11:12

country flag Gerda wrote:

Skal der strikkes kile i alle dele.? Eller er det kun forkortede pinde efter de første to. Et foto af sjalet udstrakt eller en tegning ville have været en hjælp. Venlig hilsen

08.08.2022 - 23:28

DROPS Design answered:

Hej Gerda, du ser det udstrakte sjal på billede nummer 2 :)

09.08.2022 - 11:00

country flag Doris Schmid wrote:

Wo ist der Strickanfang (Mitte Rücken oder auf der Seite)? Wäre hilfreich zu wissen. Habe meine Arbeit schon viermal aufgetrennt, da asymetrisch. Muss das so sein, oder habe ich was falsch gemacht? Ein Foto wäre hilfreich. Stricke zum ersten Mal diagonal, ansonsten grössere Erfahrung im Stricken. Danke für Ihre Hilfe.

17.06.2022 - 16:20

DROPS Design answered:

Liebe Doris, die Arbeit wird ja zuerst asymetrisch aussehen, weill Sie verkürzten Reihen stricken, dh schauen Sie mal das 2. Bild oben, ganz oben (ca die Mitte) = Anfang in Schwarz, dann stricken Sie die verkürzten Reihen an einer Seite mit Delight, dann verkürzten Reihen an der anderen Seite mit Alpaca usw Bilder von anderen Strickerinnen können Sie mal aufs Ravelry sehen. Viel Spaß beim stricken!

20.06.2022 - 07:29

country flag Elena wrote:

Non capisco cosa devo fare nella parte 1, sotto TASSELLO. Non capisco come devo fare i ferri da 1 a 4 e ferro 5. Non ci sono riferimenti. Grazie

30.10.2021 - 12:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena, deve ripetere i 4 ferri descritti sopra. Buon lavoro!

30.10.2021 - 14:19

country flag Charlotte Dalum Nielsen wrote:

Jeg har strikket forkortede pinde til der nu er 10 masker tilbage, før den røde mærketråd. Men forstår ikke, for der står først, at der skal være mellem 5 og 7 masker tilbage. Når man så skal lave kilen, har man så samme maske antal resten af pinden? Hele det afsnit giver desværre ikke mening. Kan man evt lave en video med hele den del af arbejdsgangen med de forkortede pinde samt kile?

27.10.2021 - 16:42

DROPS Design answered:

Hej, Vi skriver kilen og de forkortede pinde på ønskelisten over videoer. Har du set tidligere spørgsmål og svar?

28.10.2021 - 15:31

country flag EMILY wrote:

Hi again, When we work 6th row of the first gusset we continue with the other colour , or we repeat short rows and gusset , so many times as it is needed until t 5-7 stc sremain in the needle . ifit is not difficult a video would be very helpful to us. thanks in advance

18.10.2019 - 10:47

DROPS Design answered:

Dear Emily, Part-1 is worked with Delight, ie you work short rows and gusset with Delight; then you will change to Alpaca when working Part-2. Happy knitting!

18.10.2019 - 11:41

country flag EMILY wrote:

PLEASE CAN YOU EXPLAIN ME HOW DO WE KNIT THE GUSSET ROWS. ALSO I;M CONFUSED IF YO IS BEFORE OR AFTER RED MARKER, AND BLUE MARKER.

18.10.2019 - 10:25

DROPS Design answered:

Dear Emily, when you work the gusset on the first part, work as follows: Row 1 to 4 = short rows, Row 5: work and increase as before until 10 sts remain before red marker, Row 6: work return row. Repeat these 6 rows. You will work row 5 and 6 only when you work at least the 10 stitches before red marker. Happy knitting!

18.10.2019 - 11:39