Astoria |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með hringlaga berustykki og gatamynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,5. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.1a og A.2a útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Byrjið með heklunál 5 og Paris, heklið 100-103-109-115-121-124 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan. Heklið 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 3-0-0-0-0-3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 15-16-17-18-19-19 sinnum til viðbótar = 84-86-91-96-101-104 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum og aukið út um 24-30-29-32-31-40 tvíbrugðnum stuðlum jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 108-116-120-128-132-144 tvíbrugðnir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8-9-10-11-11-13 nýja tvíbrugðna stuðla. Setjið 2. prjónamerki eftir 38-40-40-42- 44-46 nýja tvíbrugðna stuðla, 3. prjónamerki eftir 16-18-20-22-22-26 nýja tvíbrugðna stuðla og 4. prjónamerki eftir 38-40-40-42-44-46 nýja tvíbrugðna stuðla. Nú eru 8-9-10-11-11-13 tvíbrugðnir stuðlar eftir við miðju að aftan. Heklið mynstur A.1b (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. A.1 útskýrir hvernig umferðin byrjar og endar). JAFNFRAMT er aukið út um tvíbrugðna stuðla jafnt yfir 38-40-40-42-44-46 lykkjur í hvorri hlið. Lykkjufjöldinn á milli 2 prjónamerkja fyrir miðju að framan og við miðju að aftan við háls er stöðugur (= 16-18-20-22-22-26 lykkjur). Aukið út eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S og M: Aukið út 14-17 lykkjur hvoru megin við 2. og 5. umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-18 lykkjur í 6.-8. hverri umferð = 196-220 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið í mismunandi stærðum. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Aukið út 14-16-18-19 lykkjur hvoru megin við 2., 5. og 8. hverri umferð í A.1b, síðan er aukið út um 16-16-20-21 lykkjur hvoru megin við 9.-9.-11.-11. umferð í A.1b = 236-256-280-300 lykkjur. ATH: Sjá umferð merkta með ör þegar berustykki er lokið í mismunandi stærðum. Heklið næstu umferð í öllum stærðum þannig: ATH: Í stærð S og XL er heklað um loftlykkjurnar í stað í loftlykkjurnar. Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af fyrstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 54-60-64-70-78-86 lykkjum, heklið 4-4-6-6-6-8 loftlykkjur undir ermi, hoppið yfir 44-50-54-58-62-64 lykkjur fyrir ermi, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af næstu 27-30-32-35-39-43 lykkjum sem eftir eru í umferð. Stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm mælt frá kanti í hálsi og niður á hæðina. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 þríbrugðinn stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 4-12-0-8-12-12 þríbrugðna stuðla jafnt yfir = 120-140-140-160-180-200 þríbrugðnir stuðlar. Klippið frá. Til að mynstrið verði staðsett samhverft við miðju að framan og við miðju að aftan á toppnum er byrjunin á umferðinni færð til þannig: Hoppið yfir fyrstu 15-5-5-15-5-15 þríbrugðnu stuðlana í umferð og festið endann með 1 fastalykkju í næsta þríbrugðna stuðul. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar). Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um stuðla. Til að mynstrið verði samhverft við miðju framan og aftan á stykkinu, verður að auka út um jafn marga stuðla á hvorri hlið. Aukið út um 20 stuðla á hvorri hlið jafnt yfir á milli miðju að aftan og sólfjöður í mynstri við miðju framan á toppnum. Aukið út um 40 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 160-180-180-200-220-240 stuðlar. Heklið síðan 2. umferð í A.2a og A.2b (= 8-9-9-10-11-12 mynstureiningar í umferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er hekluð 2. og 3. umferð 1 sinni til viðbótar. Stykkið mælist ca 62-63-65-66-68-69 cm frá kanti í hálsi við miðju að framan og niður. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að aftan í hnakka og festið enda með 1 fastalykkju. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju, en heklið bara í loftlykkjur sem þar sem stuðlar eru heklaðir í = 84-86-91-96-101-104 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið við miðju undir handvegi og heklið 4 loftlykkjur (= tvíbrugðinn stuðull). Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um ystu lykkju í skiptingunni á milli berustykkis og fram- og bakstykkis JAFNFRAMT er fækkað um 13-15-16-14-12-11 tvíbrugðna stuðlar jafnt yfir í umferð – LESIÐ ÚRTAKA = 41-45-50-56-62-67 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (53)
Alejandra Cecilia Ruiz Diaz wrote:
¿Por qué se inicia con 115 cadenas si se trabajan 96 puntos altos en la primera vuelta?
01.10.2019 - 20:58DROPS Design answered:
Hola Alejandra. A menudo en las labores a ganchillo la cadeneta de montaje tiene más puntos que la labor principal, eso permite evitar que el borde de montaje quede tenso.
01.10.2019 - 22:43Jennifer M wrote:
I'm working on the body, and it says to cut the yarn and skip some stitches and fasten with a sc, then begin 2nd round on the diagram. My question is do I start round one in the same stitch as the sc, or the next one?
23.07.2019 - 00:28DROPS Design answered:
Dear Jennifer, the rounds start now with the stitch where you worked the sc, just continue working A.2a from the stitch where you joined the yarn, the repeat A.2b in the round from next stitch. Happy crocheting!
06.08.2019 - 09:38ANA wrote:
Grata pela resposta, mas a pergunta não é sobre o que é um ponto alto, mas sim o que quer dizer: (...)em cada um dos 3-0-0-0-0-3 pontos corrente seguintes, *saltar 1 ponto corrente, 1 ponto alto duplo em cada um dos 5 pontos corrente seguintes*, repetir de * a * mais 15-16-17-18-19-19 vezes = 84-86-91-96-101-104 pontos altos duplos. Obrigada
05.06.2019 - 19:53DROPS Design answered:
Bom dia, Não compreendemos a sua dúvida... Deve fazer o ponto alto duplo como indicado. entre os asteriscos (*). Depois, repete o que fez mais o número de vezes indicado para o seu tamanho. Esperamos tê-la ajudado com a resposta! Bom Croché!
11.06.2019 - 13:06Ana wrote:
Boa noite, Não consigo interpretar as explicações para iniciar o meu modelo que adoro É a primeira vez. Podem explicar o que quer dizer o (: Um ponto alto duplo em cada um dos 3-0-0-0-0-3. O modelo é W-623. Muito obrigada.
31.05.2019 - 23:01DROPS Design answered:
Bom dia, Um ponto alto duplo é um ponto alto em que se fazem mais laçadas para ficar mais alto. Pode ver nas explicações, por baixo da foto, todos os vídeos que a ajudam a fazer este bonito modelo. Aqui fica o link do vídeo que mostra como fazer 1 ponto alto duplo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=28&lang=pt Bom croché!
04.06.2019 - 11:05Zara Pemberton wrote:
How many balls of wool does this require?
07.04.2019 - 19:10DROPS Design answered:
Dear Zara, depending on the size you want to make, this piece needs between 9-14 piece of 50 gramms balls of DROPS Paris yarn. Happy Crafting!
07.04.2019 - 19:42Joyce Pierik wrote:
Ik de beschrijving staat in de 2de toer haak 1 dubbel stokje in elk van de volgende 3-0-0-0-0-3 lossen, * sla 1 losse over, haak 1 dubbel stokje in elk van de volgende 5 lossen *, wat wordt er bedoeld met 3-0-0-0-0-3? Graag uw hulpm
03.04.2019 - 16:49DROPS Design answered:
Dag Joyce,
De reeks getallen met streepjes ertussen slaan op de maten; dus 3 is voor maat S, 0 is voor maat M, enzovoort.
04.04.2019 - 08:08Amy wrote:
I am confused about the "double double" crochet stitch as listed in the yoke section. Can you please describe how to do this stitch?
03.04.2019 - 03:09DROPS Design answered:
Dear Amy! I think you mean 'double treble crochet'. Please see the video: HERE. Happy crocheting!
05.04.2019 - 19:00Theres wrote:
Diagram och skiss saknas på svenska
29.03.2019 - 10:10Monica wrote:
Hei. Jeg får ikke maskeantallet til å stemme med økningene på bærestykket. Det står at jeg, i str. M skal ha 220 masker når jeg er ferdig med økningene men jeg har bare 216. Det står at jeg skal øke over de 40 maskene i hver side, på 2. og 5. omg 34 masker og 36 masker på 6.-8. omg. 40+34+34+36+36+36 er 216 masker. Jeg vil da få for lite masker da jeg skal dele inn i bol og ermer. Hva er det jeg ikke har fått med meg?
27.03.2019 - 13:18DROPS Design answered:
Hei Monica. Her var det en feil i maskeantallet: Du øker 17 masker i hver side (totalt 34 masker) på omgang 2 og 5, og du øker 18 masker i hver side (totalt 36 masker) på omgang 8. Dette er nå blitt rettet i oppskriften. Du vil da ha de 116 maskene fra før + 34 + 34 + 36 = 220. God fornøyelse
03.04.2019 - 09:32Nadja Brolin wrote:
Hej Var finns diagrammet till detta mönster? Hälsningar Nadja Brolin
14.03.2019 - 19:30DROPS Design answered:
Hej. Du hittar det längst ner på sidan, precis över måttskissen. Lycka till!
18.03.2019 - 10:32