Lilac Dream |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð ferhyrnd peysa með gatamynstri og stuttum ermum úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-28 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman í 1 tvíbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. 3 ÞRÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 3 þríbrugðna stuðla saman í 1 þríbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 þríbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 þríbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins, heklið 1 þríbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. FJÓRBRUGÐNIR STUÐLAR: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, sækið þráðinn undir loftlykkjubogann, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu/næst lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja á heklunálinni. 3 FJÓRBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 3 fjórbrugðna stuðla saman í 1 fjórbrugðinn stuðul þannig: Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fjórbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins. Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki og út. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Cotton Light og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrsta loftlykkju. Heklið í hring eftir mynsturteikningu A.1. Eftir 2 umferð í A.1 er heklað þannig: Heklið A.2 1 sinni, endurtakið A.3 alls 3 sinnum og endið með A.4. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar ferningurinn hefur verið heklaður eru 54 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hverri hlið og 6 loftlykkjur í hverju horni. Ferningurinn mælist ca 34 x 34 cm. Klippið frá. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og LESIÐ ÞAÐ SEM EFTIR ER AF KAFLA Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM! Byrjið í einu horni og heklið í hring eins og útskýrt er í A.5, þ.e.a.s. * heklið A.5A 1 sinni, endurtakið A.5B þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, heklið A.5C 1 sinni *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. ATH: Umferð merkt merð stjörnu í mynsturteikningu sýnir síðustu umferð á ferningi (A.2-A.4), þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð. Til að mynstrið gangi jafnt upp með réttum fjölda loftlykkjuboga og mynstureiningar verður jafna til umferðir merktum með ör í mynsturteikningu til rétta fjölda stuðla eins og útskýrt er að neðan. ÖR-1: Jafnið til 74 stuðla meðfram hverri hlið meðtöldum stuðlum í hornum (þ.e.a.s. heklið ca 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 10 + 14). ÖR-2: Jafnið til 94 stuðla meðfram hverri hlið meðtöldum stuðlum í hornum (þ.e.a.s. heklið ca 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga – lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 10 +14). Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru endurteknar síðustu 4 umferðirnar í A.5. JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til í hverri umferð með stuðlum þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 10 +14 meðfram hverri hlið (mynstureining eykst með 2 stuðlahópum á breidd í hvert skipti sem hún er endurtekin á hæðina – ATH: Með réttum lykkjufjölda þá kemur hver umferð eftir umferð með stuðlum að vera hekluð þannig (með byrjun í horni): 1 fastalykkja + 6 loftlykkjur + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni, * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 4 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* þar til 4 stuðlar eru eftir í horni, hoppið yfir þessa 4 stuðla, heklið 1 fastalykkju + 6 loftlykkjur + 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni. Haldið svona áfram meðfram öllum hliðum á ferning. JAFNFRAMT þegar ferningurinn mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm heklið nú handveg þannig: Heklið A.5 eins og áður fram að fyrsta horni, heklið um loftlykkjubogann í horni eins og áður. Heklið nú loftlykkjur fram að miðju á næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli fyrsta og annars horns) þannig: heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/stuðul sem hoppað var yfir. Heklið síðan mynstur eins og áður fram að miðju á milli 3. og 4. horns. Heklið nú loftlykkjur fram að 4. horni þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/stuðul sem hoppað var yfir, heklið um loftlykkjubogann í horni og síðan umferðina út eins og áður. Í næstu umferð er heklað A.5 eins og áður aftur yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. að mynstrið er stillt af yfir handveg svo að umferðin verði rétt). Haldið áfram með A.5 hringinn þar til ferningurinn mælist ca 72-74-76-78-80-82 cm x 72-74-76-78-80-82 cm (þ.e.a.s. ca 18 cm frá handveg í öllum stærðum) – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum og að lykkjufjöldi meðfram hverri hlið sé deilanleg með 10 + 6 (meðtaldir stuðlar í horni). Klippið frá og setjið 1 prjónamerki í stykkið (á milli fyrsta og annars horns). FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu og heklið fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH! Framstykki er heklað án útaukninga. Heklið A.6 frá fyrsta horni, þ.e.a.s. heklið þannig: A.6A (= 1 lykkja), endurtakið A.6B þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með A.6C (= 5 lykkjur). Haldið áfram með mynstur eins og sýnt er í mynsturteikningu og endurtakið A.6 þar til heklað hefur verið fram og til baka í ca 22-23-24-25-26-27 cm frá prjónamerki (endið eftir einni umferð með loftlykkjubogum). Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins í hinni hliðinni á stykki (þ.e.a.s. heklið fram og til baka á milli þriðja og fjórða horni. KANTUR: Byrjið frá réttu og heklið eina umferð með loftlykkjubogum í kringum allt stykkið þannig: Heklið * 6 loftlykkjur, hoppið fram ca 2½ cm, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, en í hvert horn er hekluð 1 fastalykkja, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð beint út frá handveg á fram- og bakstykki. Heklað er fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Byrjið frá röngu mitt undir ermi (byrjið á umferð 3 í A.6 – þ.e.a.s. í einni umferð með litlum loftlykkjubogum): Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, heklið A.6A 1 sinni, endurtakið A.6B alls 6-7-7-8-8-8 sinnum og endið með A.6C 1 sinni. Haldið áfram með A.6 fram og til baka (á eftir næstu umferð eru 66-76-76-86-86-86 stuðlar í umferð). Stillið nú af að næsta umferð með stuðlum sé 56-66-66-76-76-76 stuðlar í umferð og að lokum 46-56-56-66-66-66 stuðlar í umferð. Þegar ermin mælist ca 21 cm í öllum stærðum – endið eftir eina umferð með stuðlum í mynstri, heklið fyrst eina umferð með loftlykkjubogum alveg eins og í umferð á eftir einni stuðlaumferð í A.6. Snúið stykkinu og heklið síðustu umferð þannig: 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* út umferðina, heklið 2 loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju í umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Lisanne wrote:
Ik heb een vraag over het haken van het voorpand, in de omschrijving staat stop na toer met lossenlussen. Maakt het uit welk van de twee, die met 5 lossen per boogje of 4? Bedankt
22.06.2018 - 17:03DROPS Design answered:
Dag Lisanne, Nee, dat maakt niet uit. Het gaat erom dat je eindigt op een toer met lossenlussen en niet op een toer met stokjes o.i.d.
27.06.2018 - 21:17Lisanne wrote:
Ik heb het vanuit het patroon verkeerd begrepen. Bedankt!
10.05.2018 - 12:12Lisanne wrote:
Ik ben op het punt aanbeland waar ik in A5 bij de stokjes aan ben gekomen. In de omschrijving dat het aantal stokjes per zijde deelbaar moet zijn door 10 en 14, maar 74 is niet deelbaar door beiden! Hoe moet ik nu verder? Alvast bedankt.
07.05.2018 - 22:06DROPS Design answered:
Dag Lisanne, Het aantal moet deelbaar zijn door 10+14, waarmee bedoelt wordt is dat het deelbaar moet zijn door 10 plus 14 extra steken. Dus 74-14 steken is 60. En 60 is deelbaar door 10.
10.05.2018 - 11:30Pia Persson wrote:
Finns denna med långa ärmar?
25.07.2017 - 06:50DROPS Design answered:
Tyvärr finns den inte med långa ärmar.
26.07.2017 - 14:14Bonnie McC wrote:
I believe the symbol chart has an error. The | symbol is listed as double crochet around a chain I believe it should be a double treble around a chain. It looks like a very long stitch on the garment.
04.02.2017 - 00:52DROPS Design answered:
Dear Bonnie McC, it looks like you are right pattern should be edited soon. Thank you!
06.02.2017 - 13:37Fini wrote:
Deze is ook prachtig, hopelijk wordt deze ook geplaatst.
20.01.2017 - 16:38Victoria Romero wrote:
Hola soy Chilena y me encanta su pagina,este chaleco es uno de mis favoritos por su patrón no se nota muy difícil y sobre todo el color,justo ahora que en mi país empezó el verano,ansiosa de poder hacerlo gracias a ustedes. Saludos y felices fiestas para todos.
21.12.2016 - 19:29Lauren McRoberts wrote:
I love this one. Too many others to vote for it, but please include!
14.12.2016 - 14:53