DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 168-11
DROPS Design: Mynstur nr vs-025
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S – M/L – XL/XXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
300-350-400 g nr 02, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð.
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni = 1 fl , heklið 3 ll, heklið síðan 11 st um lykkjuna, endið með 1 kl í þriðju ll. Heklið síðan eins og útskýrt er frá í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í umf er skipt út fyrir 1 ll. Endið umf með einni kl í fyrstu ll.
Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf með einni kl í þriðju ll.
Fyrsta tbst í umf er skipt út fyrir 4 ll. Endið umf með einni kl í fjórðu ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

4-TBST:
Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum fyrsta st í umf og dragið þráðinn í gegnum fyrsta st, * bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 2 næstu l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 1 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Toppurinn er heklaður í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í hliðum og á öxlum, síðan er heklaður kantur neðst niðri.

FRAMSTYKKI:
Framstykkið er heklað í hring, síðan í ferhyrning frá miðju að framan. Gerið GALDRAHRINGUR með heklunál nr 4 með Belle - sjá útskýringu að ofan = 12 st um hringinn. Heklið síðan A.1, A.1 er heklað 3 sinnum utan um galdrahringinn.
ATH! Keðjulykkja sem er útskýrð í byrjun á A.1 er hekluð í lok umf. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 147 st í hringnum. Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st = 148 st.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu 8 st, 1 hst í hvorn af næstu 2 st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 tbst í hvern af næstu 3 st, 1 3-tbst í hvern af næstu 3 st, 1 4-tbst – sjá útskýringu að ofan, í næsta st, 5 ll, 1 4-tbst í næsta st, 1 3-tbst í hvern af næstu 3 st, 1 tbst í hvern af næstu 3 st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 hst í hvorn af næstu 2 st, 1 fl í hvern af næstu 7 st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja l, um ll-bogann í hvert horn er hekla 3 st + 3 ll + 3 st = 172 st (= 43 st í hvorri hlið). Stærð S/M: Endið ferhyrning hér.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja l, um ll-boga í hverju horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st = 196 st (= 49 st í hvorri hlið). Stærð L/XL: Endið ferhyrning hér.
UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hverja l, um ll-boga í hverju horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st = 220 st (= 55 st í hvorri hlið). Stærð XL/XXL: Endið ferhyrning hér. Ferhyrningurinn mælist ca 28-30-32 cm. Klippið frá.

Heklið nú meðfram hlið 2, 3 og 4 frá heklaða ferhyrningi (sjá mynsturteikningu): Byrjið í öðru horninu á ferningnum, heklið 3 st um ll-bogann, heklið 1 st í hvern st fram að næsta horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st, heklið 1 st í hvern st fram að næsta horni, heklið 3 st + 3 ll + 3 st, heklið 1 st í hvern st fram að síðasta horni, heklið 3 st um ll-bogann. Nú eru 49-55-61 st í hverja og eina af 3 hliðunum. Heklið fram og til baka, heklið nú eftir A.2, endið á 1 st í síðasta st á undan horni, í hvort horn af þessum tveimur er heklað 3 st + 3 ll + 3 st, nýjar l eru heklaðar jafnóðum inn í A.2.
Haldið svona áfram í ca 7-10-15 cm, stykkið mælist nú 42-50-62 cm frá hlið 2 að hlið 4, stillið af eftir óskuðu yfirmáli. Heklið síðan klauf hvoru megin á toppnum þannig: Byrjið meðfram hlið 2 þannig (frá réttu): Heklið 1 fl í hvern st þar til 52 st eru eftir, heklið 1 hst í hvern af næstu 8 st, 1 st í hvern af næstu 8 st, 1 tbst í hvern af næstu 12 st, 1 3-tbst í hvern af næstu 12 st, 1 4-tbst í hvern af síðustu 12 st. Klippið frá í stærð XS/S og M/L.
STÆRÐ XL/XXL: Snúið við og heklið 1 4-tbst í hvern 4-tbst, 1 3-tbst í hvern 3-tbst, 1 tbst í hvern tbst, 1 st í hvern st, 1 hst í hvern hst og 1 fl í hverja fl. Klippið frá .
Allar stærðir: Heklið klauf alveg eins meðfram hlið (heklið frá efri kanti og niður = frá röngu). Klippið frá.

Heklið síðan fram og til baka frá hlið 1 á ferhyrning þannig – frá réttu:
Byrjið einni umf á undan ferhyrning (þ.e.a.s. í fyrstu umf sem hekluð var yfir 3 hinar hliðarnar), heklið 3 st um ysta st í umf, heklið 3 st um hornið á ferhyrning, 1 st í hvern st, 3 st um hornið á ferhyrning og 3 st um ysta st í næstu umf = 55-61-67 st. Heklið síðan fram og til baka eftir A.2 (endið á 1 st).
Þegar stykkið mælist 7-9-11 cm heklið einungis yfir fyrstu 13 st í umf (= vinstri öxl). Heklið A.2 (endið með 1 st við háls) eins og áður yfir þessar l þar til stykkið mælist 17-19-21 cm, klippið frá og festið enda. Heklið nú yfir síðustu 13 st í umf (= hægri öxl), heklið alveg eins og vinstri öxl. Þær 29-35-41 st fyrir miðju = háls.

BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og framstykki. Þegar stykkið mælist 15-17-19 cm er einungis heklað yfir fyrstu 13 st í umf (= hægri öxl). Heklið A.2 eins og áður yfir þessar l þar til stykkið mælist 17-19-21 cm, klippið frá og festið enda. Heklið nú yfir síðustu 13 st í umf (= vinstri öxl), heklið á sama hátt og hægri öxl. Nú eru 29-35-41 st fyrir miðju = hálsmál.

FRÁGAGNGUR:
Saumið axlasauma og hliðarsauma.

KANTUR NEÐST:
Heklið 1 kl í annað hornið neðst á toppnum, heklið 1 st í hvern st meðfram neðrikanti á toppnum, um 4 tbst í hliðum eru heklaðir 4 st, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að hann verði deilanlegur með 48. Heklið nú þannig: Heklið A.3A, endurtakið A.3B þar til 12 st eru eftir, heklið A.3C. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið á milli handvegs og fram- og bakstykki. Heklið 1 fl, * hoppið fram ca 2 cm, heklið 7 st um næsta st, hoppið fram ca 2 cm, heklið 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-* og endið með einni kl í byrjun umf. Endurtakið í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL:
Byrjið í hlið í hálsmáli á bakstykki. Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið fram ca 1 cm, heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í byrjun umf.

Mynstur

symbols = gerið GALDRALYKKJA - sjá í uppskrift
symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl í st
symbols = fl um ll-boga
symbols = hst
symbols = st í st
symbols = st um ll-boga
symbols = tbst í st/um ll-boga
symbols = 7 st heklaðir í sama st
symbols = þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
symbols = picot: Heklið 3 ll, 1 st í fyrstu ll
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Elvira in DROPS Belle

Un Soldino Di Cacio, Italy

Elvira - top ad uncinetto

Maglia...ed altre piccole passioni, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Raquel Albuquerque wrote:

Gostaria de saber o nome do fio, link p q posso ver a especificação do tex, composição p eu achar algo semelhante! Obrigada

13.01.2018 - 02:37

DROPS Design answered:

O nome do fio é Belle. A composição é única e não existe outro fio com a mesma composição. Bons trabalhos,

16.01.2018 - 15:31

country flag Sandra Hoffmann-klein wrote:

Also der Pullover ist so wunderschön, aber die Anleitung sehr widersprüchlich angegeben, so dass ich nun zum 3 Mal alles aufribbeln mußte. Widersprüchlich insofern, als man versteht, dass bei M1 insgesamt 4 Rapporte gehäkelt werden müssen anstelle 3. Daher erklärt sich auch, warum man in der letzten Reihe auf 196 Maschen anstatt 147 kommt.

03.01.2018 - 08:18

country flag Maritza wrote:

Hola. No entiendo la instrucción para la espalda. Donde menciona que la pieza debe medir 15 cm para comenzar a tejer los hombros?

31.10.2017 - 21:37

DROPS Design answered:

Hola Miritza. Se refiere a la parte del escote. En el delantero comenzamos a formar el escote cuando la labor mida 7-9-11 cm medidos desde la sisa, y en la espalda - 15-17-19 cm. A partir de aquí trabajamos solamente sobre los puntos que forman el hombro a cada lado.

04.11.2017 - 13:23

country flag REBEYROL wrote:

J'ai terminé le diagramme A3C A3B A3A sauf .... le dernier rang ..... 4 B dans la même B ... 2 ml .... MAIS entre ces B, il y a des CERCLES ..... MERCI INFINIMENT .

28.07.2017 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Rebeyrol, le petit rond correspond à un picot (=12ème symbole de la légende), soit 3 ml, puis 1 B dans la 1ère de ces 3 ml. Bon crochet!

28.07.2017 - 15:31

country flag REBEYROL wrote:

BONJOUR .... Je suis au tout dernier rang du diagramme de la bordure en bas du top. Je comprends qu'il faut crocheter 4 brides mais entre, il y a un minuscule cercle. Que signifie cette légende ? Pouvez vous m'aider ? MERCI INFINIMENT.

28.07.2017 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rebeyrol, ce petit point noir signifie que ce rang a déjà été fait (= rang précédent du bas du top), commencez au rang suivant (= 1 ml, 1 ms, 5 ml, sautez 2 m, 1 ms dans la m suiv...). Bon crochet!

28.07.2017 - 14:13

country flag REBEYROL wrote:

J'ai mon ouvrage devant les yeux et les goussets sont en place. J'arrive donc à la pièce du haut côté 1. Si j'ai bien compris, je dois crocheter sur le premier rang mais, qui concerne seulement le carré, en laissant de côté, les parties crochetées 2 et 4 ?

25.07.2017 - 08:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rebeyrol, le 1er rang va se faire le long du carré, mais on le commence par 3 brides dans le 1er rang crocheté sur le côté droit (= côté 4) et on le termine par 3 brides dans le 1er rang crocheté sur le côté gauche (= côté 2). Bon crochet!

25.07.2017 - 09:49

country flag REBEYROL wrote:

MERCI INFINIMENT pour vos explications qui sont très claires. Lorsque j'arrive au diagramme A2, je vois que le premier tour a déjà été fait, est-ce que ça veut dire que je ne m'occupe que des 2 autres rangs en aller retour ?

22.07.2017 - 12:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rebeyrol, tout à fait, dans A.2, on répète les 2 derniers rangs seulement, le 1er rang (celui avec l'étoile) montre seulement le rang précédent, pour savoir où piquer les brides du 1er rang de A.2. Bon crochet!

24.07.2017 - 09:21

country flag REBEYROL wrote:

Je crois que j'ai compris .... Dans le rang côté 4, je dois crocheter les 26 premières ms et les 52 brides qui me restent, je commence la double B dans chacune des 8 B suivantes, 1 B dans chacune des 8 B suivantes et ainsi de suite ......

16.07.2017 - 16:39

country flag REBEYROL wrote:

Pouvez vous m'expliquez le premier rang pour réaliser le gousset .... ce que je ne comprends pas, c'est de crocheter 1 ms dans chaque bride jusqu'à ce qu'il reste 52 B ???? ..... J' ai 79 B sur mon rang côté 4 et autant de brides sur le côté 2.

16.07.2017 - 16:24

country flag REBEYROL wrote:

Mon ouvrage mesure 50 cm du côté 2 au côté 4 MAIS sur l'envers. J'ai donc coupé mon fil pour crocheter le gousset. Je ne comprends pas le début .... il doit me rester 52 brides sur le côté 2 et 52 brides sur le côté 4 ?

16.07.2017 - 11:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rebeyrol, pour le côté 2, commencez sur l'endroit, dans le coin en haut (celui entre le côté 1 et le 2): 1 ms dans chaque m jusqu'à ce qu'il reste 52 B, puis crochetez les 52 dernières m ainsi: 1 dB dans chacune des 8 B suivantes, 1 B dans chacune des 8 B suivantes, 1 DB dans chacune des 12 B suivantes, 1 triple B dans chacune des 12 B suivantes, 1 quadruple B dans chacune des 12 dernières B, coupez le fil. Pour le côté 4, commencez sur l'envers en bas et crochetez en sens inverse: quadruple B, triple B, double B, B, demi-B sur les 52 premières mailles et en ms sur les mailles restantes. Bon crochet!

17.07.2017 - 09:13