DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 163-20
DROPS Design: Mynstur nr ee-539
Garnflokkur E + E + E
----------------------------------------------------------

Mál: ca 132 cm að þvermáli

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
1700 gr litur nr 37, safír

DROPS HEKLUNÁL NR 12 – eða þá stærð sem þarf til að 5 st verði 10 cm á breidd með 3 þráðum Snow.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með st byrjar á 3 ll (ll koma ekki í stað fyrsta st) og enda á 1 l kl í 3. ll frá byrjun umf.

KÚLA:
Heklið 1 tbst aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern af næstu 3 st alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 5 l á heklunálinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning A.5 sýnir hvernig umf byrjar og endar.
ATH: Í mynstri A.2-A.4 er fyrsta umferð í mynsturteikningu síðasta umferð frá fyrri mynsturteikningu, þessi umferð er ekki hekluð, en sýnir hvernig á að hekla áfram.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

MOTTA:
Heklið 5 ll með heklunál nr 12 með 3 þráðum Snow og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, eftir mynsturteikningu A.1 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 12 st um hringinn, endið á 1 kl í 3. ll.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st aftan í lykkjubogann á hverjum stuðli = 24 st.
UMFERÐ 3: Heklið * 2 st aftan í lykkjubogann á fyrsta st, 1 st aftan í lykkjubogann á næsta st *, endurtakið frá *-* út umf = 36 st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið síðan A.2 (= A.5 sýnir byrjun og enda á umf) alls 6 sinnum hringinn þannig:
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, * 1 st í báða lykkjubogana á fyrsta/næsta st, 1 ll, 1 st í báða lykkjubogana á sama st, 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, * 1 fl um fyrstu/næstu ll, 3 ll, 1 fl um sömu ll, 7 ll, hoppið yfir 3 ll + 1 fl + 3 ll *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 3 ll, * 7 st um fyrsta/næsta ll-boga (= 3 ll-bogar), 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga (= 7 ll-bogar), 3 ll *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 6 st-hópar í umf.
UMFERÐ 7: Heklið 3 ll, * hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 3 st og 3 ll, 7 st í næstu fl, 3 ll *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 6 st-hópar í umf.
UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, * 4 st um fyrsta/næsta ll-boga, 1 st aftan í lykkjubogann í hvern af næstu 7 st, 4 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 90 st.
UMFERÐ 9: Heklið 3 ll, * 2 st aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, 1 st aftan í lykkjubogann í hvern af næstu 10 st, 2 st aftan í lykkjubogann á næsta st, 1 st aftan í lykkjubogann í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 102 st.
UMFERÐ 10: Heklið 3 ll, * 1 st aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í báða lykkjubogana á næsta st, 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í báða lykkjubogana á næsta st, 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í báða lykkjubogana á næsta st, 4 ll, hoppið yfir 4 st *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 24 ll-bogar.
UMFERÐ 11: Heklið 3 ll, * 1 ll, 4 st um fyrsta/næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 23 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 96 st og 24 ll.

Heklið síðan A.3 (A.5 sýnir byrjun og lok umf) alls 12 sinnum hringinn þannig:
UMFERÐ 12: Heklið 4 ll, * 3 ll, heklið 1 KÚLU – sjá útskýringu að ofan – í næstu/fyrstu 4 st, 6 ll, 1 kúla í 4 næstu st, 3 ll *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 24 kúlur.
UMFERÐ 13: Heklið 3 ll, 3 st um fyrsta ll-boga, * 6 st um næsta ll-boga, 7 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 10 sinnum til viðbótar, 6 st um næsta ll-boga, 4 st um síðasta ll-boga, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 156 st.
UMFERÐ 14: Heklið 3 ll, * 2 st aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, 1 st aftan í lykkjubogann í hvern af næstu 12 st *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 168 st.
UMFERÐ 15: Heklið 3 ll, * 1 st aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, 1 ll, 1 st aftan í lykkjubogann á næsta st, ** 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st aftan í lykkjubogann á næsta st **, endurtakið frá **-** 4 sinnum til viðbótar, 1 ll, 1 st aftan í lykkjubogann á næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 96 st og 96 ll.
UMFERÐ 16: Heklið 3 ll, 1 st aftan í lykkjubogann í hvern st og 1 st aftan í lykkjubogann í hverja ll = 192 st.
Heklið síðan A.4 (A.5 sýnir byrjun og lok umf) alls 48 sinnum hringinn þannig:
UMFERÐ 17: Heklið 3 ll, * 3 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í báða lykkjubogana á næsta st *, endurtakið frá *-* 47 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48 ll-bogar.
UMFERÐ 18: Heklið 3 ll, * heklið 5 st í miðju ll, 1 fl í fyrsta/næsta st *, endurtakið frá *-* 47 sinnum til viðbótar, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48 st-hópar.
Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í st
symbols = fl í miðju st
symbols = fl um ll-boga
symbols = st aftan í lið á l
symbols = st um ll-boga/hring
symbols = st í báða liði á lykkju
symbols = umf byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll
symbols = umf byrjar á 1 ll og endar á 1 kl í fyrstu ll
symbols = 1 fl um ll, 3 ll, 1 fl um sömu ll
symbols = 7 st um ll-boga
symbols = 7 st í fl
symbols = KÚLA:
Heklið 1 tbst aftan í lykkjubogann á fyrsta/næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst í hvern og einn af 3 næstu st alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni.
symbols = 5 st í miðju ll
symbols = umf byrjar á 4 ll og endar á 1 kl í 4. ll
symbols = 5 ll, 1 kl í fyrstu ll
symbols = síðasta umf frá fyrri umf, þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Natalie Sivertsen wrote:

Kan de 3 lm i starten av hver omgang være en st.? Blir ett strek som følger hele matten opp

04.04.2024 - 10:00

DROPS Design answered:

Hei Natalie, Ja, 3 lm tilsvarer en stav. God fornøyelse!

05.04.2024 - 06:58

country flag Wilma wrote:

Klopt het dat de 4 beginlossen van toer 12 de ruimte tussen de eerste en laatste bobbel in tweeen deelt? Ik vind dat niet zo mooi staan

19.10.2022 - 10:25

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

Ja klopt, er komt wat een onderbreking in de breedte van het patroon. Misschien is het een oplossing dat je na de 4 beginlossen gelijk 6 lossen haakt voor het boogje en aan het eind van de toer 3 dubbele stokjes haakt en de bij de laatste doorhaling de haaknaald ook door de 4e losse van de 4 beginlossen steekt, zodat deze bij de laatste bobbel komen?

26.10.2022 - 09:22

country flag Carole Gagné wrote:

Que veux dire la barre oblique entre deux explications ? Merci!*1 B sous les 2 brins de la 1ère B/de la B suivant

02.09.2021 - 17:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gagné, la première fois que vous allez crocheté cette bride,/maille serrée, ce sera dans/autour de la première maille, (= avant le premier *), mais lorsque vous répèterez de *-*, vous crochèterez cette bride/maille serrée dans/autour de la maille suivante. Bon crochet!

03.09.2021 - 07:15

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Je souhaite réaliser ce modèle en coton avec un crochet numéro 8 et n'utiliser qu'un seul fil. Pouvez-vous me conseiller sur la qualité de coton que je peux utiliser? Travailler avec 3 fils et un crochet numéro 12 me semble trop compliqué. Par contre j'aimerais garder la même taille de tapis (environ 1 m.). Est-ce possible? Merci d'avance de votre réponse.

20.04.2021 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, malheureusement non, ce modèle a été crocheté avec un crochet 12 (et 3 fils) et une tension de 5 brides = 10 cm; si vous utilisez un crochet de taille différente, vous n'aurez pas le même échantillon et nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Consultez nos autres modèles de tapis qui se réalisent avec un crochet 8, cela pourra peut-être vous inspirer. Bon crochet!

21.04.2021 - 07:15

country flag Maren Platou wrote:

Hej når jeg kommer til 11 række så er det altid 25 lm hvad er der galt ?

16.03.2020 - 14:01

country flag Marianne Heimdal wrote:

Hei. Jeg står fast på omg 15, får det ikke til å stemme

07.04.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Du hekler etter A.3. På omg 15 (4 rad i diagrammet, ikke inkludert raden med hvit stjerne) hekles det annenhver st og lm over hele omgangen. Du hekler først 3 lm, videre hekler du 1 st, 1 lm og 1 st = 3 første symbolene i A.3. Så skal du gjenta neste avsnitt 4 ganger: 1 lm, hopp over 1 st, 1 st i bakre ledd av neste st (altså 1 st og 1 lm) = de neste 8 symbolene i A.3. Så hekler du1 lm, 1 st i neste st, 1 lm, 1 st i neste st 1 lm = de siste 5 symbolene i A.3. Slik forstetter du over hele omgangen. Hvert symbol i A.3 hekles akkurat slik det står, og st hekles i st rett under, på forrige rad. God fornøyelse

09.04.2019 - 11:13

country flag Aline wrote:

Bonjour, je voulais savoir si on veut laver ce tapis il feutre ou pas car cette laine est prévue pour cela je crois. Et si on veut feutrer ce tapis combien faut-il de grammes de laine esquimo en plus pour avoir la même taille. Merci

22.05.2018 - 08:55

DROPS Design answered:

Bonjour Aline, vous trouverez les consignes d'entretien sur le nuancier de DROPS Eskimo et également quelques généralités sur l'entretien des laines ici. Ce tapis n'est pas feutré, il nous est donc difficile de donner la quantité nécessaire pour le même en version feutrée, vous trouverez ici quelques indications complémentaires sur le feutrage. Votre magasin DROPS pourra vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon crochet!

22.05.2018 - 09:57

country flag Åse Marit Hage wrote:

Finnes det noen instruksjonsvideo på mønster a2? Jeg evner ikke å få dette til..

04.03.2018 - 21:28

DROPS Design answered:

Hej Åse, det har vi desværre ikke, vi kan skrive det på ønskelisten. Prøv at spørge i butikken hvor du har købt dit DROPS garn, de kan helt sikkert hjælpe dig videre. Held og lykke!

06.03.2018 - 16:58

Bibi wrote:

Bedankt voor dit patroon. Ik heb Het als Pdf kunnen bewaren bij mijn iBooks op mijn iPad.

27.02.2018 - 19:31

Noha wrote:

Bonjour je voulais savoir si le matériel est Cotton ou laine et qu'elle est la meilleure pour les tapis. Merci beaucoup pour tout ces belles choses que vous nous faites.

11.02.2018 - 10:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Noha, ce tapis a été réalisé en Laine (= DROPS Eskimo), si vous voulez le réaliser en Cotton, vous trouverez ici quelques informations et conseil à propos des alternatives. Bon crochet!

12.02.2018 - 09:13