DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 158-47
DROPS Design: Mynstur nr an-025
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: 22 – 24 - 26 cm

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
300-300-300 gr litur nr 6420, turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR og PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA DÖKK, NR 536: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

MYNSTUR 2:
UMFERÐ 1 (= rétta): * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 2 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið umf 2

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kanturinn er prjónaður fyrst neðst niðri á ökkla, síðan er sokkurinn prjónaður. Að lokum er laust stroff prjónað þversum við ökkla.

STROFF VIÐ ÖKKLA:
Fitjið upp 37-37-39 l á sokkaprjóna nr 6 með Andes. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – lesið útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist ca 4 cm, endið eftir 1 umf br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

SOKKUR:
Prjónið nú fram og til baka.
Haldið eftir fyrstu 10 l á prjóni, hinar 27-27-29 l eru settar á þráð. Prjónið nú stykki ofan á fæti eftir MYNSTUR 2 – lesið útskýringu að ofan, yfir 10 l – JAFNFRAMT í lok næstu 2 umf er fitjuð upp 1 ný kantlykkja (kantlykkjan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan) = 12 l. Þegar stykki ofan á fæti mælist 7-8½-10 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 10 l. Setjið l af þræði aftur til baka á prjóninn og prjónið upp 12-14-16 l hvoru megin við stykki ofan á fæti (innan við 1 kantlykkju) = 61-65-71. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 10 l ofan á fæti (= fyrir miðju framan á tá) og 1 prjónamerki í l aftan á hæl, nú eru 30-32-35 l á milli prjónamerkja í hvorri hlið. Stykkið er nú prjónað í hring í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm eru prjónaðar 2 l slétt saman hvoru megin við hvort prjónamerki í annarri hverri umf (= 4 l færri í hverri umf). Haldið áfram með úrtöku þar til stykkið mælist 5-5-6 cm. Fellið af restina af l. Saumið saum undir fæti yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

LAUST STROFF PRJÓNAÐ ÞVERSUM:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 22 l á prjóna nr 6 með Andes. Prjónið 8 umf garðaprjón JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 6 l jafnt yfir = 28 l. Prjónið eftir A.1 (= 28 l) þar til stykkið mælist ca 35-36-38 cm. Prjónið 8 umf garðaprjón JAFNFRAMT Í 1. umf er fækkað um 6 l jafnt yfir = 22 l. Fellið af.
Leggið affellingarkantinn yfir uppfitjunarkantinn og saumið 3 tölur til skrauts í gegnum garðaprjón á stroffi.

FRÁGANGUR:
Saumið lausa stroffið sem er prjónað þversum við uppfitjunarkantinn á stroffi (þ.e.a.s. uppfitjunarkantinn á stroffi sem er í byrjun á uppskrift). Saumið lausa stroffið þannig að tölurnar verða staðsettar í ytri hlið á tátiljunni og að opið snúi aftur að hæl – saumið frá röngu svo að saumurinn sjáist ekki.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt, passið uppá að opið á stroffi verði í gagnstæðri hlið.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Monica wrote:

On this slipper pattern and all knitted patterns on your site, how do you read the diagrams, from right to left or left to right? I've never used a diagram and I am a risky novice :) Thank you!!!

02.11.2015 - 05:16

DROPS Design answered:

Dear Monica, you will find here more informations about diagrams. Happy knitting!

02.11.2015 - 09:52

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: I was wondering if there is a specific yarn that I am to be using to make the slipper boots or can I use what yarn I have available. The yarn that I am currently using is the Bernat Super Saver yarn, Thank you again for all your help Amy

31.10.2015 - 22:48

DROPS Design answered:

Dear Amy, these slippers are worked in DROPS Andes - see also - find a DROPS store there. Happy knitting!

02.11.2015 - 07:57

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: I was wondering when I am knitting the 12 stitches do I knit both ends of the row in garter stitch or just the last stitch of the row. Thank you in advance for your help Amy

31.10.2015 - 16:27

DROPS Design answered:

Dear Amy, when you are working the 12 sts for mid upper part, work the 1st and last st in garter st. See also the video in previous answer. Happy knitting!

31.10.2015 - 18:20

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: I was wondering when i go to pick up the 12 sts around the top part of the foot do I need to attach a new piece of yarn or how do I add them.

31.10.2015 - 02:43

DROPS Design answered:

Dear Amy, the video below shows how to pick up sts without the working yarn - pick up 12 sts on each side of mid part, slip sts from thread back onto needle = you will have 61 sts and be ready to continue as in this video - time code 5:18). Happy knitting!

31.10.2015 - 18:06

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: The problem I am having is I have the 10 stitches on my needle for the top portion of the slipper but when I reach the 7 cm am I suppose to increase on those 10 stitches to reach the number 61 stitches that I need or do I start increasing after after the 7 cm. It says to pick up 12 stitches after I reach the 7 cm on either side of the edge stitch. That is where I am having the problem. Thank you again for your help

29.10.2015 - 04:56

DROPS Design answered:

Dear Amy, after you have worked the 7 cm over the mid sts, and 10 sts left, pick up 12 sts along both side of the upper foot (along right side of the middle part + along left side of the middle part) + slip sts from thread back on needle = you have a total of 61 sts on needle and your work looks like as in video, time code 5:18 approx. Happy knitting!

29.10.2015 - 09:32

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: I am still confused as to how many rows I need because there is no explanation for when I go to start the pattern 2 portion of the slipper part and how many increases I need to reach the required amount of sts as well. I tried to watch the video but it was hard to follow when the sped up the knitting part. Thank you again for your help Amy

28.10.2015 - 16:04

DROPS Design answered:

Dear Amy, wijth pattern 2 portion of the slipper part, do you mean the edge around leg? Work first 4 ridges in garter st (= 8 K rows) but on the 8th K row increase 6 sts evenly - see here how to increase evenly. Then work following A.1 until 35-38 cm, work 4 ridges (8 K rows), but on the 1st of these 8 rows, decrease 6 sts evenly. Happy knitting!

28.10.2015 - 18:26

country flag Amy De Veas wrote:

Amy 25.10.2015 kl. 00:38: To whom it may concern: I am currently working on the slipper boot pattern and am wondering how I am suppose to do the heel of the slipper when it doesn't say how many rows to do it just say to work back and forth on the needles. If you could let me know it would be appreciated Thank you in advance for your help

25.10.2015 - 15:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Veas, you work in stocking st for sole dec on mid front and mid back for 3-4 cm (see size), number of rounds/decrease will depend on your tension of height (how many rows you need to reach the required measurements) - see also video below. Happy knitting!

26.10.2015 - 11:25

country flag Amy wrote:

Amy 25.10.2015 kl. 00:38: To whom it may concern: I am currently working on the slipper boot pattern and am wondering how I am suppose to do the heel of the slipper when it doesn't say how many rows to do it just say to work back and forth on the needles. If you could let me know it would be appreciated Thank you in advance for your help

25.10.2015 - 15:33

country flag Amy wrote:

To whom it may concern: I am currently working on the slipper boot pattern and am wondering how I am suppose to do the heel of the slipper when it doesn't say how many rows to do it just say to work back and forth on the needles. If you could let me know it would be appreciated Thank you in advance for your help

25.10.2015 - 00:38

country flag Edyta wrote:

Bonjour, j'aimerais faire ce chaussons, est il possible de le tricoter uniquement avec les aiguilles classiques ou circulaires? Je n'ai pas des aiguilles double pointe:( Merci d'avance pour votre réponse.

16.10.2015 - 18:49

DROPS Design answered:

Bonjour Edyta, vous pouvez tout à fait remplacer les aiguilles doubles pointes par une circulaire grâce à la technique du magic loop - cf vidéo. Bon tricot!

17.10.2015 - 14:24