DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simply Sweet Singlet

Prjónaður bolur fyrir börn í stroffprjóni, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára

DROPS Baby 25-31
DROPS Design: Mynstur nr bm-054-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(50) 100-150-150-150 (150-200) gr litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNA EÐA HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 34 l og 32 umf með stroffprjóni verði 10 x 10 cm (24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm).
DROPS PERLUTALA, NR 521: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l hvoru megin við 4 laskalínur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 l sl í hverri laskalínu (séð frá réttu). Uppslátturinn er prjónaður jafnóðum inn í stroffprjón, þ.e.a.s. þær 2 fyrstu br frá röngu, næstu 2 sl frá réttu o.s.frv - ATH: Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn (þ.e.a.s. það eiga að myndast göt hvoru megin við 2 l sl í laskalínu).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn (fellt er af fyrir hnappagötum frá röngu).
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ (fyrirburar): 1 og 3 cm.
STÆRÐ 0/1 mán + 1/3 mán: 1 og 4 cm.
STÆRÐ 6/9 mán + 12/18 mán: 1 og 4½ cm.
STÆRÐ (2 ára + 3/4 ára): 1 og 5 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna fyrir op í hálsmáli, síðan er stykkið prjónað í hring á sokkaprjóna / hringprjóna til loka.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp (54) 60-60-64-74 (74-74) l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur Baby Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið síðan upphækkun að aftan við hnakka þannig (1. umf = rétta):
Prjónið sl þar til (6) 8-8-8-10 (10-10) l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til (6) 8-8-8-10 (10-10) l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræðii og prjónið sl þar til (12) 16-16-16-20 (20-20) l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til (12) 16-16-16-20 (20-20) l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til (18) 24-24-24-30 (30-30) l eru eftir, snúið við og prjónið sl þar til (18) 24-24-24-30 (30-30) l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan slétt, prjónið br yfir næstu (42) 48-48-52-62 (62-62) l JAFNFRAMT er aukið út um (32) 26-42-38-44 (60-60) l jafnt yfir þessar l og endið á 6 kantlykkjum að framan slétt (munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan) = (86) 86-102-102-118 (134-134) l á prjóni.
NÆSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG:

STÆRÐ (fyrirburar + 0/1 mán):
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl og 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan.

STÆRÐ 1/3 mán + 6/9 mán + 12/18 mán:
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-5 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl og 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan.

STÆRÐ (2 ára + 3/4 ára):
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, ** endurtakið frá **-** alls 2 sinnum, (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 9 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), ** 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl **, endurtakið frá **-** alls 2 sinnum og endið á 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), (7) 7-7-11-11 (11-11) sinnum til viðbótar (= alls (8) 8-8-12-12 (12-12) útaukningar hvoru megin við hverja laskalínu).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (4) 5-5-6-6 (7-7) cm endar kantur að framan og stykkið er síðan prjónað í hring þannig (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu):
Setjið stykkið saman með l frá hægri kanti að framan efst (þannig að kantarnir að framan liggja ofan á hvorum öðrum og hnappagötin eru yst). Prjónið 1 umf í hring JAFNFRAMT eru 6 l frá hægri og vinstri kanti að framan prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið út umf, klippið frá og byrjið á næstu umf við miðju að aftan.
Haldið áfram með stroffprjóni og mynstur hringinn JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu í laskalínu eins og áður, en þær 6 l við miðju að framan eru prjónaðar þannig: 2 l br, A.1 (= 2 l) og 2 l br.
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru (144) 144-160-192-208 (224-224) l á prjóni. Prjónið (0) 2-2-2-2 (2-2) umf til viðbótar eins og áður, stykkið mælist ca (7) 8-8-10-11 (11-11) cm frá öxl.
Í næstu umf eru felldar LAUST af (32) 32-32-40-48 (48-48) l á milli hverra prjónamerkja yfir ermar í stroffprjóni= (40) 40-48-56-56 (64-64) l eftir á fram- og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (80) 80-96-112-112 (128-128) l. Í næstu umf til baka eru fitjaðar upp (8) 16-12-12-16 (16-20) LAUSAR l undir hvorri ermi = (96) 112-120-136-144 (160-168) l á fram- og bakstykki - HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með stroffprjón hringinn eins og áður (= 2 l sl, 2 l br) með A.1 að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist (10) 13-17-17-18 (21-24) cm frá handvegi er prjónað stroffprjón yfir allar l (þ.e.a.s. prjónið 2 l sl í stað A.1 á framstykki). Þegar stykkið mælist (13) 16-20-20-21 (24-27) cm frá handvegi (allt stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (35-38) cm frá öxl), fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkju sem prjónuð var yfir hinar 2 lykkjurnar þannig að lykkjan liggi utan um 2 síðustu lykkjur á hægri prjóni (= 1 lykkja færri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Ranvá wrote:

Jeg er ved at strikke str 6/9 mdr og har problemer lige efter bærestk. Ifølge opskriften skal der være 102 m på når mønsteret begynder, men hver gang jeg har forsøgt at strikke 1. mønsterpind, har jeg 4 m tilovers. Ligeledes når jeg tæller maskerne op fra opskriften så giver det kun 98 m på 1. mønsterpind, der skal strikkes. Hvad gør jeg forkert?

15.04.2015 - 09:21

DROPS Design answered:

Hej Ranvá. Jeg tror du maa misse et par masker. Du har 102 masker og strikker for 6/9 mdr saadan her: 6 kant-m i RETSTRIK, 2 r, 2 vr, A.1 (= 2 m), 2 vr, 2 r, 2 vr, 2 r (sæt 1 mærke midt mellem disse 2 m = raglan-linje), * 2 vr, 2 r *, gentag fra *-* totalt 3 gange, 2 vr, 2 r (sæt 1 mærke midt mellem disse 2 m = raglan-linje), * 2 vr, 2 r *, gentag fra *-* totalt 7 gange, 2 vr, 2 r (sæt 1 mærke midt mellem disse 2 m = raglan-linje), * 2 vr, 2 r *, gentag fra *-* totalt 3 gange, 2 vr, 2 r (sæt 1 mærke midt mellem disse 2 m = raglan-linje), 2 vr, 2 r, 2 vr, A.1 (= 2 m), 2 vr, 2 r og 6 kant-m i RETSTRIK. Jeg kommer da ud paa 102 m.

15.04.2015 - 15:56

country flag Martina wrote:

Ich hab nochmals eine frage. Wenn ich die blenden zusammenstricke und dann den faden abschneide, habe ich dann ja im prinzip eine arbeit, die sich rund (auf der rundstricknadel) stricken lässt. Ist es richtig, dass ich trotzdem mit hin- und rückrunden weiterfahre und wenn ja, entsteht dann nicht eine öffnung, die man dann zusammennähen muss. Oder muss ich ab ende der blende rund weiterstricken? Ich steh auf dem schlauch ...

31.03.2015 - 21:53

DROPS Design answered:

Ja, Sie stricken die Arbeit nach der vorderen Blende in Runden weiter, der Runden-Beginn ist nun ab der hinteren Mitte, daher wird der Faden abgeschnitten und neu angesetzt.

02.04.2015 - 10:01

country flag Martina wrote:

Ich habe noch nie Raglan gestrickt und bin deshalb etwas unbeholfen. WO und WIE beginne ich mit der Arbeit? Nach der Überschrift RAGLAN oder nach GRÖSSE?

29.03.2015 - 15:39

DROPS Design answered:

Die Anleitung beginnt unter der gestrichelten Linie unter "PULLUNDER". Als erstes beginnen Sie mit der Beschreibung unter "RAGLAN", dort wird genannt, wie viele M Sie anschlagen müssen. Raglan ist einfach eine Art der Zunahme, es ergeben sich dann schräge Ärmelansätze, wie Sie auf dem Bild sehen können. Das, was über der gestrichelten Linie steht, sind Erläuterungen, auf die im weiteren Verlauf der Anleitung hingewiesen wird - wenn so ein Hinweis kommt ("siehe oben" o.Ä.) schauen Sie über der gestrichelten Linie nach, wie Sie vorgehen sollen. Das Muster zeigt alle R, Hin- und Rück-R.

30.03.2015 - 10:48

country flag Stina wrote:

Und ich nochmal... Ich verstehe nicht warum man, nachdem man die Blenden zusammengestrickt hat, den Faden abschneiden und von hinten weiter stricken soll...? Man kann doch einfach weiter in Runden stricken, "spart" ein Mal Faden vernähen...

28.02.2015 - 13:24

DROPS Design answered:

Wenn man den Faden nicht abschneidet, müsste der Rundenbeginn, soweit ich das sehe, vorne liegen. Das vermeidet man in der Regel, zumal sich vorne ja das Muster befindet. Hinten fällt der Rd-Beginn nicht auf.

09.03.2015 - 10:38

country flag Stina wrote:

Werden die verkürzten Reihen am Anfang in Krausrippe gestrickt? Dankeschön!

27.02.2015 - 16:41

DROPS Design answered:

Ja genau, es wird jede R bei den verkürzten R re gestrickt.

03.03.2015 - 17:02

country flag Sanne wrote:

Hvilke type udtagninger anbefaler I at man laver i halskanten (efter forhøjningen)? Hvordan skal diagrammet læses? Skal det læses nedefra, så man tager ud, så to masker bliver til tre? Kan ikke få det til at passe, at man skal strikke tre ret på 2. pind i diagrammet. Tak for hjælpen

04.02.2015 - 20:09

DROPS Design answered:

Hej Sanne, Her efter forhøjningen tager du ud ved at strikke 2 m i 1 maske. Ja du strikker altid diagrammerne fra nederste højre hjørne. God fornøjelse!

05.02.2015 - 13:49

country flag Sissel Jensen wrote:

Jeg står fast på oppskriften til undertrøyen, under dette punktet: Str 1/3, 6/9, 12/18mnd. Jeg strikker i str 1/3. Det er rett og slett ikke masker nok til å utføre disse angivelsene, eller så er angivelsene feil ?

10.01.2015 - 21:05

DROPS Design answered:

Jo det stemmer, se her: 6, 14,(4x3=12), 4,(4x7=28) 4, (4x3=12), 4,12,6 = 102m God fornøjelse!

02.02.2015 - 15:41

Adela Beatriz Nassif wrote:

Ayer lo terminé, quedó perfecto.No se dónde comprar tus productos:acceder a la pag rápidamente y pedir desde Argentina: agujas lanas etc, Me gustria saberlo.Saludos .Adela

12.12.2014 - 14:21

Adela Beatriz Nassif wrote:

Podes indicarme dónde comprar todos tus productos: agujas , lanas ? De una manera precisa ,para no buscar en tantos links? Tene en cuenta que estoy en Argentina .Gracias Adela

12.12.2014 - 14:14

DROPS Design answered:

Hola Adela Beatriz! Aquí tienes el link de la Superstore española: http://crochet10.com/categoria-de-producto/todos-los-hilos-y-lanas-drops/. Te aparecen en el lado izquierdo de la pantalla de inicio en la parte más inferior por si quieres mirar la americana.

13.12.2014 - 11:06

country flag Adela Beatriz wrote:

Cómo tejo en redondo desde la mitad de la espalda y que no se haga un agujero justo ahí dónde se comienza a tejer el cuerpo en redondo.? y ...se tejen en redondo los puntos A1 del cuerpo? como? Yo los teji desde el lado derecho haciendo por ej: pderecho lo que esta en P reves ; si hay una manera especial por favor decime. HABLO DEL MODELO DROPs BEBE 25 -31 Por favor contestame. Gracias y hasta pronto

05.12.2014 - 15:48

DROPS Design answered:

Hola Adela. Debajo del patrón hay instrucciones sobre como interpretar el diagrama. Los cuadrados vacíos se trabajan de derecho por el LD y de revés por el LR. Para evitar que se formen agujeros al trabajar las vtas/filas acortadas ver el siguiente video:

DROPS Knitting Tutorial: How to knit short rows in garter st - basic from Garnstudio Drops design on Vimeo.

05.12.2014 - 16:16