Mr. Bunny |
|
|
|
Prjónað leikfang, kanína / héri í buxum, peysu og með slaufu úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 25-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað með þessari aðferð: Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingur. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið inn prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu l sem gerð var) *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru á prjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er í mynstri – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum svo að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 4 umferðir í litnum ljós mynta, 4 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KANÍNA / HÉRI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kanínan er prjónuð í stykkjum og saumuð saman. HÖFUÐ: Stykkið er prjónað í hring á sokkprjóna frá nefi og aftur fyrir. Gerið GALDRAHRINGUR með litnum ljós beige – sjá útskýringu að ofan = 6 l á prjóni. Skiptið l á 3 sokkaprjóna nr 3 (prjónið með fjórða prjóninum) og prjónið í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. UMFERÐ 3: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 l. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: * 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 11-12: Prjónið slétt = 36 l. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 l í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir næstu 6 l. Aukið síðan út um 1 l innan við 2 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 útaukningar í hvorri hlið) = 42 l. UMFERÐ 18-19: Prjónið slétt = 42 l. UMFERÐ 20: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 21: Prjónið slétt. UMFERÐ 22: * 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 23: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l (án þess að draga saman). Saumið út augu, munn og nef með litnum svartur, fyllið höfuðið með vatti, herðið að og festið enda (= miðja aftan á höfði). EYRA: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Fitjið upp 8 l með litnum ljós beige og skiptið l niður á 2 sokkaprjóna (prjónið með þriðja prjóninum). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l á prjóni. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l á prjóni. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 20 l á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 5½ cm. Fækkið lykkjum síðan þannig: UMFERÐ 1: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram að fella af í annarri hverri umf þar til 4 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku eru prjónaðar 2 l færri á milli úrtöku í hvorri hlið). Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l, herðið að og festið. Brjótið uppá hvora hlið neðst niðri á eyranu inn við miðju svo að það myndist smá brot mitt í eyranu. Saumið saman neðst niðri með nokkrum sporum og saumið eyrað fast á höfuðið. Prjónið hitt eyrað á sama hátt og saumið niður. BÚKUR: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fitjið upp 16 l með litnum ljós beige og skiptið niður á 4 sokkaprjóna (prjónið með þeim fimmta). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5½ cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur og prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið síðan 8 umf sléttprjón. Fellið nú af þannig: UMFERÐ 1: * 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l á prjóni (án þess að draga saman). Fyllið búkinn með vatti, dragið þráðinn saman og festið vel. Saumið höfuðið við búkinn (ljós gula stykkið á að snúa niður (= buxur). FÓTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3 cm. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 10 l sl, prjónið 8 næstu l slétt saman 2 og 2, 10 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 26 l. UMERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5 l br, fellið af næstu 14 l, 5 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 6 l eftir í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 fyrstu l á prjóni og síðan 6 næstu l á prjóni (þær 14 l br l mynda nú “gat” í miðju stykki). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir 12 l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fæturnir mætast ca 8 cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur, prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið þú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 23 l. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br en kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 34 l. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til fóturinn mælist ca 12 cm, fellið af. Saumið saman op við miðju ofan á fæti með lykkjuspori. Saumið saman fótinn við miðju undir og haldið áfram upp við miðju að aftan – saumið yst í lykkjubogann. Fyllið fótinn með vatti. Þræðið þráð upp og niður í gegnum affellingarkantinn efst á fæti (á því gula). Herðið að svo affellingarkanturinn verði aðeins pokalaga. Prjónið hinn fótinn á sama hátt og saumið báða fæturna við búkinn. Heklið blúndukant með heklunál nr 3 með litnum ljós gulur neðst niðri á buxum á hvorum fæti þannig (heklað er í br lykkjuna): 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu br l á buxum *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. HENDI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 10 l með litnum ljós beige og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til hendin mælist 9 cm. Klippið frá (klippið niður nægilega langt til þess að geta saumað hendina saman), þræðið þráðinn í gegnum allar l á prjóni (= neðst niðri á hendi), herðið að og saumið síðan saman hendina yst í lykkjubogann. Fyllið hendina með vatti og saumið niður efst uppi á búk við háls (neðan við höfuð). Prjónið hina höndina á sama hátt og saumið niður í gagnstæða hlið. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp við handveg síðan er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 60 l með litnum ljós mynta. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 9 cm – passið að síðasta umf er rönd með litnum ljós mynta verði eftir, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 24 l, fellið af næstu 6 l fyrir handveg og prjónið síðustu 24 l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l með litnum ljós mynta. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR í hring. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umf með röndum (þ.e.a.s. að síðasta umf með rönd með litnum ljós mynta er eftir), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið næstu 14 l. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (án þess að prjóna l) = 76 l á prjóni. Byrjið umf frá réttu við miðju að aftan á fram- og bakstykki og haldið áfram með rendur þannig (1. umf = natur): UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l sl saman, 2 l snúnar slétt saman, 20 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 9 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 68 l. Prjónið síðan stykki fram og til baka frá miðju að aftan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 8 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 18 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60 l. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós mynta og prjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni, 7 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 16 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 7 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 52 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 14 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44 l. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu. Klippið frá og festið enda. SLAUFA: Fitjið upp 5 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós gulur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm, fellið af. Saumið saman skammhliðar yst í lykkjubogann svo að það myndist hringur. Klippið frá og festið enda. Takið annan þráð, snúið honum nokkrum sinnum utan um slaufuna og festið slaufuna við hálsinn á peysunni. Klæðið kanínuna / hérann í peysuna og saumið peysuna fasta við búkinn í gegnum bæði stykkin upp við hálsinn að aftan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Vitaline wrote:
Bonjour,\r\nC’est le 1er ouvrage DROPS que je fais. Il a fallu que je me familiarise avec les explications. Le petit lapin est trop mighon. Je suis contente du résultat. Pour un 1er essai je l’ai fait avec une laine différente. Maintenant, je vais en faire un autre bien plus facilement avec la laine DROPS BABY MERINO que j’ai commandée. Merci beaucoup pour ce modèle adorable que j’ai eu envie de réussir et que j’ai réussi.👌❤️😘😘😘😘
06.04.2023 - 13:17Vitaline wrote:
Bonjour, Quand vous dites « 1 m lis au point mousse de chaque côté », cela veut dire : tricoter une maille endroit au début du rang et une maille endroit à la fin du rang ?
04.04.2023 - 07:31DROPS Design answered:
Bonjour Vitaline, cela veut dire - tricoter une maille endroit au début du rang et une maille endroit à la fin du rang, sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!
04.04.2023 - 07:44Vitaline wrote:
Bonjour, JAMBE : RANG 1 (= sur l’endroit) 1 m lis au POINT MOUSSE. RANG 2 (= sur l’envers)) 1 m lis au POINT MOUSSE. Vous dites - voir ci-dessus - (où ?). Je ne comprends pas comme faire ces mailles lisières .
31.03.2023 - 15:00DROPS Design answered:
Bonjour Vitaline, pour tricoter au point mousse, on doit tricoter les mailles à l'endroit, autrement dit, sur l'endroit on tricote toutes les mailles à l'endroit, mais sur l'envers la 1ère et la dernière maille se tricotent à l'endroit (et les mailles jersey à l'envers). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter en jersey avec 1 maille lisière au point mousse de chaque côté. Bon tricot!
11.04.2023 - 10:02Vitaline wrote:
Bonsoir,\r\nJe suis finalement arrivée à tricoter la tête. J’ai compris le montage avec les 6 premières mailles.\r\nPar contre, je trouve qu’au niveau des augmentations (jetés) mon travail n’est pas très net, il y a comme un petit trou. Pourtant je tricote bien la maille torse.\r\nJe vais recommencer.
27.03.2023 - 01:10Vitaline wrote:
Bonjour, Le rond magique se fait au crochet avec 6 premières mailles qui sont reprises aux aiguilles circulaires ? Merci pour votre réponse.
25.03.2023 - 06:57DROPS Design answered:
Bonjour Vitaline, non, les mailles sont bien montées aux aiguilles, cette vidéo devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!
27.03.2023 - 09:04Zuzana wrote:
Geniálny návod, do detailu prepracovaný.
23.12.2022 - 21:09Janne Jacobsen wrote:
Jeg har købt garn og printet opskrift til Mr Bunny fra Ritos hjemmeside, men jeg synes der mangler opskrift på bukserne.
28.02.2022 - 07:33DROPS Design answered:
Hej Janne, jo bukserne starter på benet, der hvor du skifter til lys gul :)
02.03.2022 - 11:57Lisa Crawshaw wrote:
Hi, What do you do with the 14 bind off stitches in the leg? This is my first toy I’m knitting, I’m not sure what bind off means. Many thanks - Lisa
25.10.2021 - 08:20DROPS Design answered:
Hi Lisa, To bind off is, when you have finished a piece, work 2 stitches, then lift the first stitch over the second, work another stitch and pass the first stitch over the new stitch worked and so on. This gives a neat finish and will not unravel. When you are left with 1 stitch, you cut the strand and thread it through this stitch, pull tight and fasten the strand. Happy knitting!
25.10.2021 - 08:50Barbara Hosking wrote:
Are the yellow pants underwear or his shorts? I want shorts turquoise. Do I just knit turquoise where your pattern says yellow?
29.09.2021 - 14:01DROPS Design answered:
See previous answer :)
30.09.2021 - 09:21Barbara Hosking wrote:
I’m making the pants bright turquoise and the jumper striped turquoise and white. Are the pants that are knitted in the waist area down the bunny’s underwear or are they his pants? If pants, then I think I should knit them turquoise where the pattern says yellow. Is this right? Thank you for such a quick answer to my previous question.
29.09.2021 - 13:38DROPS Design answered:
Dear Mrs Hosking, yes you are right, if you are working the pants turquoise, then you should work turquoise when pattern says to change/work with yellow. Happy knitting!
30.09.2021 - 09:21