DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS SS24

Fox Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk, DROPS Kid- Silk og DROPS Glitter með víðu hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 150-7
DROPS Design: Mynstur nr bs-047
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
250-250-300-300 gr litur nr 8465, milligrár
Og einnig:
DROPS KID- SILK frá Garnstudio
100-100-125-125 gr litur nr 10, grár
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
4 rúllur í allar stærðir litur nr 02, silfur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði á hverri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 168-192-216-240 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig: Prjónið A.1 yfir allar l (= 12 mynstureiningar á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 1 eftir 7.- 8.- 9.- 10. l og 1 eftir 91.- 104.- 117.- 130. l (= prjónamerki í hvorri hlið) fram/bakstykki = 84-96-108-120 l). Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 152-176-200-224 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 168-192-216-240 l. Þegar stykkið mælist 38-38-37-37 cm fellið af 14-16-18-20 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 70-80-90-100 l eftir á bakstykki/framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-48-54-60 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið A.1 yfir allar l (= 3 mynstureiningar á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf(= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5-4-3-2 cm millibili, 6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-9-10 útaukningar) = 56-64-72-80 l.
Þegar stykkið mælist 41-38-34-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið A.1 yfir allar l (= 4 mynstureiningar). ATH! Byrjið fyrstu mynstureininguna af A.1 7-8-9-10 l frá prjónamerki! Í síðustu umf í A.1 eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerki)= 42-48-54-60 l eftir á prjóni (= 3 heilar mynstureiningar af A.1). Ermin mælist nú 46-44-41-39 cm.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 224-256-288-320 l. Prjónið A.1 yfir allar l (= 16 mynstureiningar á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað áfram með A.2 yfir A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 96-128-160-192 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 22-50-68-92 l jafnt yfir = 74-78-92-100 l. Prjónið nú upphækkun að aftan í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í miðju l (= miðja að aftan), klippið frá og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skiptið sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að aftan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. Berustykkið mælist ca 20-24-27-31 cm (fyrir miðju að framan) og öll peysan mælist ca 58-62-64-68 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.09.2013
ERMI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi)...Þegar stykkið mælist 41-38-34-31 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið A.1 yfir allar l (= 4 mynstureiningar). ATH! Byrjið fyrstu mynstureininguna af A.1 7-8-9-10 l frá prjónamerki! Í síðustu umf í A.1 eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerki)= 42-48-54-60 l eftir á prjóni...
Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2016
Leiðrétting í mynstri í stærð XXL, röð 34 og 38. Leiðrétting í mynstri í stærð S/M, röð 26

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (206)

country flag Malene wrote:

Jeg strikker denne i Alpakka air (C) og har nå begynt på ermerne, men siden mønsteret er siksak nederst ved ermet og det går opp der hvor merket er, så er jeg usikker på hvor jeg skal måle fra....er redd de skal bli for lange eller for korte dersom jeg måler på feil sted.

09.01.2017 - 12:32

DROPS Design answered:

Hej Malene. Maal paa det laengste stykke - pröv eventuelt aermet paa - saa er du paa den sikre side.

09.01.2017 - 14:41

country flag Maren Hvidsten Lien wrote:

Hei, er det mulig å få lengde og maskeantall for å strikka gensaren i ein garntype med strikkefasthet på 23 m?

02.01.2017 - 19:00

DROPS Design answered:

Hej Maren. Jeg kan desvaerre ikke hjaelpe med individuele tilpasninger paa opskriften.

09.01.2017 - 15:22

country flag Paola wrote:

Devo iniziare gli aumenti del busto: nei suggerimenti l'aumento va fatto con un gettato, per cui dovrò fare un gettato prima e uno gettato dopo il segno?

21.12.2016 - 06:57

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Sì esatto, deve fare 1 gettato prima e uno dopo il segno. Al giro successivo, lavora il gettato ritorto per evitare che si formi un buco. Buon lavoro!

21.12.2016 - 08:49

country flag Paola wrote:

Altra domanda: sul ferro di ritorno (anche se lavorato in tondo) i gettati che ho lavorato all'andata, li devo lavorare a diritto ritorto o a diritto normale? Parlate di diritto ritorto sui gettati solo per gli aumenti, ma per i gettati fatti seguendo lo schema A1?

24.11.2016 - 13:17

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. I gettati dei diagrammi, vanno lavorati a dir normale per formare il buco del motivo. Buon lavoro!

24.11.2016 - 14:14

country flag Anna wrote:

Potete spiegarmi cosa devo fare sui ferri di ritorno? Rovescio su ferro di rovescio o diritto su ferro di rovescio? Grazie

24.11.2016 - 11:27

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. La lavorazione è in tondo, quindi lavora sempre sul diritto del lavoro. Nei giri pari, le caselle bianche sono a dir, quelle con la “X” a rov. Buon lavoro!

24.11.2016 - 11:28

country flag Paola wrote:

Nei ferri di ritorno devo lavorare un punto diritto o rovescio non capisco

24.11.2016 - 10:51

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. La lavorazione è in tondo, quindi lavora sempre sul diritto del lavoro. Nei giri pari, le caselle bianche sono a dir, quelle con la “X” a rov. Buon lavoro!

24.11.2016 - 11:26

country flag Paola wrote:

Non riesco a postare domande mi dice che sto scrivendo parole proibite

24.11.2016 - 10:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola, questo commento si vede. Probabilmente stanno lavorando sul sito, riprovi più tardi. Grazie per la segnalazione.

24.11.2016 - 10:53

country flag Helena Pusch wrote:

Guten Morgen, könnten Sie mir eventuell sagen, wie der Garnverbrauch nur für die Ärmel liegt, nicht nur für den kompletten Pullover? Vielen Dank

17.11.2016 - 09:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pusch, leider haben wir nur Garnverbrauch für den kompletten Pullover, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie genügend Garne haben. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2016 - 10:47

Louise wrote:

Bonjour, je suis arrivée à l'étape juste après A.2, c'est-à-dire où il faut réduire de 96 mailles à 74. Comment suggérez-vous de le faire de manière "égale et régulière" ? J'ai beaucoup compter dans tous les sens, la solution m'échappe. Un tout grand merci :)

12.10.2016 - 18:17

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, Vous trouverez ici comment répartir des diminutions à intervalles réguliers. Bon tricot!

13.10.2016 - 07:44

country flag Sara wrote:

Salve nell'avviare le maglie devo usare 3 gomitoli differenti? Quindi anche per tutta la lavorazione dovrò usarne tre? In alternativa posso usare anche solo un tipo di filato? Grazie mille

29.08.2016 - 10:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Sara. Può controllare la risposta che le abbiamo dato sotto. Per l'avvio e la lavorazione usa 2 capi di Glitter e un capo di ognuna delle altre due qualità di filato indicate. Buon lavoro!

29.08.2016 - 12:18