DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shell Seeker Sweater

Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-3
DROPS Design: Mynstur vs-103
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-750-850 g litur 26, perla

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
2 mynstureiningar með A.2 = ca 8½ cm á breidd.
1 mynstureining með A.5 = ca 10 cm á breidd.
18 fastalykkjur á breidd og 18 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju, heldur kemur sem viðbót.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

MÆLING:
Öll mál sem vísað er í uppskrift eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi. Það er vegna þess að mynstrið teygist þegar flíkin er mátuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. Ermarnar eru heklaðar fram og til baka, neðan frá og upp. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Í lokin er heklaður einfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Heklið 102-122-122-142-142-162 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 101-121-121-141-141-161 fastalykkjur + 1 loftlykkja – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 8-10-10-12-12-14 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar 2 fyrstu umferðirnar (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 4 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 18 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.4, heklið A.5 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar að neðan), heklið A.6. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist ca 28-30-30-32-31-33 cm – lestu MÆLING og þú ert núna í umferð einungis með loftlykkjubogum og fastalykkjum, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið, þetta er gert þannig: Klippið þráðinn, snúið stykkinu, hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjuboga (3 loftlykkjubogar + 3 fastalykkjur) í mynstri (= 1/2 mynstureiningar í A.5), heklið A.5 eins og áður yfir næstu 24-30-30-36-36-42 loftlykkjuboga (byrjið og endið umferð með A.4/A.6 eins og áður), þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 3 loftlykkjur í umferð (= 1/2 mynstureiningar í A.5). Haldið áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist ca 42-44-45-47-48-50 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur.
Þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu – munið eftir MÆLING, heklið öxl þannig:
Heklið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar (byrjið og endið umferð með A.4/A.6 eins og áður). Klippið þráðinn og þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið öxl á sama hátt í hinni hliðinni á stykkinu (ekki er heklað yfir miðju 10-10-12-12-14-14 loftlykkjubogum = hálsmál).

FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. Nú eru heklaðir loftlykkjubogar / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli mitt að framan þannig: Byrjið frá réttu og heklið eins og áður yfir fyrstu 10-13-12-15-14-17 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í A.7, snúið og heklið til baka (A.7 sýnir einungis stærð S, en úrtakan er alveg eins í öllum stærðum, þannig að heklið þann fjölda loftlykkjuboga sem stendur í þinni stærð og fylgið A.7 fyrir úrtöku fyrir hálsmáli). Þ.e.a.s. það er heklað yfir 1 loftlykkjuboga færri í lok annarrar hverrar umferðar við hálsmál alls 3 sinnum eins og útskýrt er í A.7 = 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar eftir á öxl. Haldið áfram að hekla loftlykkjuboga þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið.
Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Heklið 82-82-82-82-102-102 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 81-81-81-81-101-101 fastalykkjur + 1 loftlykkja.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjurnar, heklið A.2 alls 6-6-6-6-8-8 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 2 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 11 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið A.4, heklið A.5 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjur í A.2), heklið A.6 = 24-24-24-24-30-30 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.

STÆRÐ S, M, XXL og XXXL:
Þegar stykkið mælist ca 47-43-41-37 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 52-48-46-42 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

STÆRÐ L og XL:
Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 loftlykkjuboga yst í annarri hlið á stykki með því að hekla 1 loftlykkjuboga + 1 fastalykkju aukalega í fyrsta bogann í umferð. Endurtakið útaukningu í síðasta boganum í umferð þegar stykkið mælist ca 28 cm = 26-26 loftlykkjubogar í umferð.
Þegar stykkið mælist ca 44-40 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 49-45 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykkið að bakstykki með röngu á móti röngu og heklið aðra öxlina á framstykki saman með samsvarandi öxl á bakstykki þannig: * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* meðfram allri öxlinni, endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið.
Heklið hina öxlina saman á sama hátt.

Heklið hliðarsauma saman þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju á framstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju á bakstykki, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju á framstykki, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju á bakstykki *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni.
Heklið hinn hliðarsauminn á sama hátt.

Heklið ermarnar saman frá neðri kanti þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í annarri hliðinni á erminni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í hinni hliðinni á erminni, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju í annarri hliðinni á erminni, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á hinni hliðinni á erminni *, heklið frá *-* þar til ca 5 cm eru eftir efst á erminni. Klippið þráðinn og festið.

Heklið niður ermakúpuna við handveginn alveg eins og ermin var hekluð saman, þ.e.a.s. * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki / bakstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á ermakúpu, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram allri ermakúpunni / handvegi. Síðan er klaufin hekluð efst á erminni niður við botninn á handvegi alveg eins – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu á annarri öxlinni, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju / loftlykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum hálsmál, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja til að snúa við með
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan / 1 stuðull um loftlykkjubogann
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 5 fastalykkjur um loftlykkjuboga
symbols = 1 kúla í lykkjuna fyrir neðan – kúlan er hekluð þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í fastalykkjuna fyrir neðan, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna (báðir uppslættirnir er dregnir eins langt og hægt er = ca 1,5 cm) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 6 lykkjur + 1 lykkja á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar lykkjurnar + lykkju (= 1 lykkja eftir á heklunálinni)

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í / um lykkjurnar fyrir neðan
symbols = 1 mynstureining
symbols = heklið d við D og e við E
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Ms Debora Pultrone wrote:

I’m not understanding the assembly of the sweater very well. Is it possible to do a video of assembling or a video that has the type of assembling that is the same so I can watch and follow

27.10.2023 - 11:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pultrone, this video we show how to crochet two pieces together almost the same way as explained in this pattern, expect crocheting in the stitches from previous row crochet in the chain spaces as explained in this pattern and crochet only 2 chains instead of 4 here. Happy crocheting!

28.10.2023 - 08:13

country flag Manu wrote:

Hallo ich habe schon mehrere Anleitungen von Drops Design gehäkelt, immer mit Erfolg. Bei dieser sieht das anders aus wie auf den Bildern, ab A4, 5,6, wird das Teil viel weiter, die Luftmaschenbögen stimmen aber mit der Vorlage überein, ist das normal??? Grüße von Manu

15.09.2023 - 13:37

DROPS Design answered:

Liebe Manu, die ersten Diagramme A.1, A.2 und A.3 werden etwas fester gehäkelt - A.5 x 1 Mal in der Breite muss ca 10 cm sein,benutzen Sie eine kleinere Häkelnadel dafür wenn es nötig ist. Viel Spaß beim häkeln!

15.09.2023 - 15:53

country flag Liliane wrote:

Bonjour, J'ai fait le dos et le devant sans soucis. Je cherche une vidéo pas a pas pour faire les augmentations des manches Merci de me dire s'il existe un lien

14.07.2023 - 16:24

DROPS Design answered:

Bonjour Liliane, nous n'avons pas de video correspondante. Les augmentations des manches ne sont realisees que dans les tailles L et XL - vous devez augmenter 1 arceau d'un côté de l'ouvrage en crochetant 1 arceau + 1 maille serrée en plus dans le premier arceau au début du rang. Répéter cette augmentation dans le dernier arceau du rang quand la manche mesure 28 cm. Bon crochet!

17.07.2023 - 23:20

country flag Gitte wrote:

Hallo! Muss nochmal nachfragen. Habe Rücken- und Vorderteil fertig. Auf dem Foto sieht man 5 x Noppen in der Höhe, also A5. Ich komme beim Rücken auf 4 x Noppen und beim Vordergeil nur auf 3 x Noppen in der Höhe. Die Maße passen aber, also Gesamtlänge ca. 50 cm. Kann das sein? LG

22.06.2023 - 17:51

DROPS Design answered:

Liebe Gitte, es kann wegen Maschenprobe sein, aber so wichtig ist es aber nicht, das wichtigste ist, daß die Maßen richtig sind. Viel Spaß beim häkeln!

23.06.2023 - 07:34

country flag Gitte wrote:

Hallo zusammen. Habe schon einige Anleitungen von Euch gehäkelt. Aber bei dieser habe ich irgendwie Schwierigkeiten. Lt. Anleitung sollen ab ca. 44 cm keine Noppen mehr gehäkelt werden. Wenn ich das Foto ansehe, gehen diese aber bis oben hin. Muss ich nicht im Musterverlauf bleiben? Arbeite mit Nadelstärke 3. Bei 4 kamen die Maße nicht hin. Danke im Voraus. LG

20.06.2023 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Gitte, so wird es gehäkelt, damit man keine unfertige Noppen bei den Schultern hat, so sind die 6 letzten centimers bei den Schultern ohne Noppen - dh genauso wie beim Foto. Viel Spaß beim häkeln!

20.06.2023 - 15:43

country flag Diane wrote:

Goedemiddag ik ben bij het rugpand en nu moet ik beginnen aan het armsgat maar snap het niet.Moet ik opnieuw opstarten aan de kant waar ik geeindigt ben(heb draad afgeknipt).en moet ik dan in een lus beginnen of in de 4de vaste?

29.05.2023 - 12:14

DROPS Design answered:

Dag Diane,

Je knipt inderdaad de draad af en keert het werk. Dan sla je de eerste 3 lossenlussen over en hecht je aan met een halve vaste in de vaste. Je haakt nu ook weer A.4 en A.6 aan het begin/einde van de toer en in plaats van 1 stokje haak je nu 3 lossen aan het begin om het stokje te vervangen.

01.06.2023 - 13:04

country flag Els wrote:

Hoe komt het dat bij de mouwen l meer toeren nodig heeft dan xl dat lijkt mij onlogisch

28.05.2023 - 12:33

DROPS Design answered:

Dag Els,

Dat komt omdat maat xl een grotere pas heeft, waardoor de mouwen korter zijn.

29.05.2023 - 15:41

country flag Els wrote:

Je zegt proeflap 18 vasten op 18 toeren is 10 cm op 10 cm en voor maat xxl heb ik 141 vasten nodig voor de rug jullie zeggen dat ik dan op 60 cm moet uitkomen maar ik kom op 78 cm uit ook als ik het uitreken op mijn rekenmachine en voor maat s kom ik uit op 56cm in plaats van 40cm wat doe ik mis gelieve mij de helpen bedankt

24.05.2023 - 18:32

DROPS Design answered:

Dag Els,

Wanneer je begint met het haken van de telpatronen, krimpt het werk een beetje in elkaar omdat er boogjes ontstaan aan de onderkant. Op die manier kom je, als het goed is, alsnog op de juiste maat uit.

24.05.2023 - 21:08

country flag Goullier wrote:

Pour la mesure du dos c’est 28cm à partir de la chaînette de base ou après les 18 cm merci

20.05.2023 - 21:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goullier, les 28 cm pour l'emmanchure en taille S se mesurent à partir de la chaînette de base. Bon crochet!

22.05.2023 - 08:20

country flag Danielle Goullier wrote:

Pouvez vous me dire à quel tour de poitrine correspond la taille s je suis perdue merci

10.05.2023 - 09:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goullier, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme, et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page; vous pourrez ainsi choisir l'ampleur nécessaire en fonction de vos propres mesures. Retrouvez plus d'infos ici. Bon crochet!

10.05.2023 - 16:32