DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Angelina

Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað með áferðamynstri, köðlum og laskalínu. Stærð XS - XXL.

DROPS 226-32
DROPS Design: Mynstur an-067
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-700-700-800-900-1000 g litur 0100, natur

DROPS TALA, Marble NR 630: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: lengd 80 cm fyrir kant í garðaprjóni.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með áferðamynstri (A.1) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 49 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 21) = 2,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca hverja og aðra hverja lykkjur og aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN A.3/A.4:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3/A.4, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR A.3/A.4:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir ermar. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir laskalínu og aukið er út fyrir kraga.
Eftir laskaúrtöku er kraginn tilbúinn. Að lokum er kraginn saumaður við hálsmál aftan í hnakka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 105-113-121-129-137-153 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með DROPS Andes. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Setjið 1 prjónamerki í 30-32-34-36-38-42 lykkju inn frá hvorri hlið = í hliðar á fram- og bakstykki. Nú eru 45-49-53-57-61-69 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á bakstykki og prjónamerkin sitja í lykkju sem er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Þegar stykkið mælist 10 cm, fitjið upp lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.
Nú eru eftir ca 40-42-44-46-48-50 cm að loka máli. Prjónið e.t.v. að óskaðri lengd áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermar.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 18-20-22-24-26-30 lykkjur í hægra framstykki, prjónið A.2 yfir næstu 5 lykkjur, fellið af lykkju með prjónamerki í, fitjið upp 57-59-63-65-69-71 nýjar lykkjur á prjóninn (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 5 lykkjur, haldið áfram með A.1 yfir næstu 35-39-43-47-51-59 lykkjur á bakstykki, prjónið A.2 yfir næstu 5 lykkjur, fellið af lykkju með prjónamerki í, fitjið upp 57-59-63-65-69-71 nýjar lykkjur á prjóni (= ermi), prjónið A.2 yfir næstu 5 lykkjur, haldið áfram með A.1 yfir næstu 18-20-22-24-26-30 lykkjur á vinstra framstykki og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 229-241-257-269-285-305 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT eru prjónaðir kaðlar, fellið af fyrir hnappagötum og kantur að framan er prjónuð jafnóðum yfir fleiri lykkjur. Þetta er gert samtímis og er gert eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann MYNSTUR, LASKALÍNA, HNAPPAGAT og KANTUR AÐ FRAMAN/KRAGI áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:
Í næstu umferð (rétta) byrja kaðlarnir sem prjónaðir eru í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Prjónið A.3 yfir A.2 á milli hægra framstykkis/hægri ermi (þegar flíkin er mátuð) og á milli bakstykkis/vinstri ermi og prjónið A.4 yfir A.2 á milli hægri ermi/bakstykki og vinstri ermi/vinstra framstykki. Endurtakið A.3 og A.4 á hæðina.

LASKALÍNA:
JAFNFRAMT í sömu umferð frá réttu og A.3 og A.4 byrjar, fækkið lykkjum fyrir laskalínu, en takið vel eftir að lykkjum er fækkað mismunandi á framstykki/bakstykki og á ermum. Fækkið lykkjum eins og útskýrt er að neðan.
BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu): alls 13-12-12-10-10-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-4-6-10-12-19 sinnum.
FRAMSTYKKI:
Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð alls 12-12-12-10-10-7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 0-2-4-8-10-17 sinnum (þ.e.a.s. fækkað er 2 sinnum færra á hæðina en á bakstykki).
ERMAR:
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 26-27-29-29-31-32 sinnum.

HNAPPAGAT:
Þegar stykkið mælist 15 cm og 25 cm, er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

KANTUR AÐ FRAMAN/KRAGI:
Þegar stykkið mælist 25 cm, prjónið kant að framan yfir 2 lykkjur fleiri í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónaðar eru 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið í stað 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni). Endurtakið þessa tilfærslu með 8-8-9-9-10-10 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 12 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þessar 12 lykkjur eru nú lykkjur fyrir kraga.

HÁLSMÁL:
Þegar búið er að fækka öllum lykkjum fyrir laskalínu, eru 73-73-73-77-77-77 lykkjur eftir í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 12 lykkjur garðaprjón fyrir kraga eins og áður, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 49-49-49-53-53-53 lykkjur og fækkið jafnframt um 21-17-17-13-13-9 lykkjur jafnt yfir þessar 49-49-49-53-53-53 lykkjur – sjá ÚRTAKA, prjónið að lokum 12 lykkjur garðaprjón fyrir kraga eins og áður. Snúið, prjónið 12 lykkjur garðaprjón eins og áður og setjið þær á þráð fyrir kraga, fellið af næstu 28-32-32-40-40-44 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið 12 lykkjur garðaprjón eins og áður. Síðan er kragi prjónaður eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI KRAGI:
Skiptið yfir á hringprjón 8. * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 8 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 9-10-10-12-12-14 cm innst þar sem stykkið er minnst – leggið e.t.v. kragann innan í hálsmál og athugið mál mitt að aftan. Strekkja á aðeins á kraganum þegar hann er saumaður á. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRI KRAGI:
Setjið 12 lykkjur af þræði á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar 12 lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 8 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 9-10-10-12-12-14 cm innst þar sem stykkið er minnst – stillið af eftir hægri kraga. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið kragann saman mitt að aftan innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn snúi inn þar sem kraginn er brotinn niður.
Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan og aftan í stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Carine wrote:

Bonjour, je souhaite tricoter ce modèle en taille S. 1 - Je voudrais utiliser Drops Sky en double, ainsi que Kid Silk. Est-ce bien compatible ainsi ? 2 - J'ai 7 pelotes de Drops Sky en coloris 13 - Bleu jeans clair - Si je prends 3 pelotes de Kid Silk, est-ce suffisant ? La couleur de Kid Silk à retenir est-elle plutôt la "Bleu jeans clair" (n° 08) ou la "Bleu clair" (n° 07) ? Merci beaucoup.

30.12.2022 - 19:24

DROPS Design answered:

Bonjour Carine, 2 fils du groupe B (Sky) = 1 fil du groupe D, si vous ajoutez 1 fil du groupe A (Kid-Silk), vous devrez d'abord vérifier votre échantillon pour être certaine que la tension est juste et que la texture vous convient bien - retrouvez plus d'infos sur les alternatives ici - votre magasin saura vous aider dans vos calculs et vous conseiller les couleurs idéales, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

02.01.2023 - 13:38

country flag Ouahida Lacheb wrote:

Salut la partie (rabattre la maille avec le marqueure te le montage des maille manche ) ?????

08.10.2022 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lacheb, pour ce modèle, on ne tricote pas les manches séparément avant de les reprendre pour l'empiècement (comme ici, sur un même tour vous allez rabattre 1 maille pour l'emmanchure que vous allez remplacer par les mailles de la manche (montez ainsi 57 à 61 m entre le devant et le dos puis entre le dos et le 2ème devant); Bon tricot!

10.10.2022 - 08:42

country flag Sara wrote:

Hi! How many stitches are decreased for each raglan section? Is it one for the front sections each time and two for the sleeves and back? Thank you!

01.08.2022 - 23:19

DROPS Design answered:

Hi Sara, You decrease for raglan both before and after each A.3/A.4 in each transition between the body and the sleeves. 8 stitches decreased on each decrease round, 1 on each front piece, 2 on each sleeve and 2 on the back piece. Happy knitting!

02.08.2022 - 06:51

country flag Jeanne wrote:

Bonjour, Pour les diminutions du raglan d'une taille L: -Dos : 10fs ts les 4rgs et 10fs ts les 2rgs = 2côtés*20=40dim. -Devants : 10fs ts les 4rgs et 8fs ts les 2rgs = 2*18=36dim. (pas 2fs mois que le dos) -Manches : 29fs*4= 116dim. Total : 40+36+116=192dim. J'avais 269m (taille L) +12 pour le col -192dim.= 89m (pas 77!) Où est ce que je me trompe ? Merci de m'aider

10.06.2022 - 12:54

DROPS Design answered:

Bonjour Jeanne, vous avez bien 269 mailles mais vous n'ajoutez pas les 12 mailles de col, vous devez avoir 269 m - 40 m (dos) - 2x18 m (devants) - 2 x 58 m (manches ) = 77 mailles. Les "augmentations" sous "BORDURE DES DEVANTS/COL:" ne sont pas des augmentations à proprement parler: vous intégrez 3 fois 6 mailles du point fantaisie A.1 des devants à la bordure des devants., ainsi vous avez autant de mailles pour les devants, mais moins en point fantaisie et plus au point mousse. Bon tricot!

10.06.2022 - 17:35

country flag Fiammetti Gianna wrote:

Bonjour , je ne comprend pas à quel moment dans les mailles de la manche je dois faire la diminution (fois 26 touts les 2 rangs, par manche). tenant compte du pont fantaisie et des diminutions raglan je n'arrive pas à comprendre. Je vous remercie de m'expliquer . Cordialement.

18.04.2022 - 19:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fiammetti, vous diminuez pour le raglan des manches, du dos et des devants avant/après les torsades A.3/A.4: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles avant la torsade, diminuez 1 maille, tricotez la torsade, diminuez 1 m - cf RAGLAN au début des explications, et répétez à chaque torsade: diminuez 1 maille avant la torsade et/ou 1 maille après la torsade; le point fantaisie des manches et du dos/devants va être "mangé" par les diminutions. Tricotez les mailles restantes en point fantaisie comme avant. Bon tricot!

19.04.2022 - 11:42

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Êtes vous sûr qu'il faut monter au départ 121 m pour la taille M ? Quand je fais mon rang où il faut monter les mailles pour les manches il me manque des m. Par contre avec 123 m ça tombe juste. Merci de bien vouloir m'aider.

17.02.2022 - 12:22

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, il faut bien 121 mailles en M: vous avez: 6 m de bordure devant, 22 M de A.1, 5 m de A.2; 1 m avec le marqueur qui doit être rabattue; 5 m de A.5 + 43 m de A.1 + 5 m de A.5, 1 m avec le marqueur qui doit être rabattue, 5 m de A.2, 22 m de A.1, 6 m de bordure devant (sans les manches) soit: 6+22+5+1+5+43+5+1+5+22+6=121 mailles + 3 m augmentées dans chaque A.2 (= 12) - les 2 m avec 1 marqueur + 2 x 63 mailles pour les manches = 257 mailles. Bon tricot!

17.02.2022 - 13:34

country flag Kristina wrote:

Hvordan ser den ud på rykken .?

26.11.2021 - 19:34

DROPS Design answered:

Hej Kristina, bortset fra knapkanten foran så ser ryggen ud som forstykket med samme strukturmønster som foran :)

29.11.2021 - 14:32