DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Dragonfly Wings Jacket

Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri, sjalkraga og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-27
DROPS Design: Mynstur ai-253
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-450-500-500 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Kókoshneta, NR 515: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu.
Passið uppá að fækka ekki lykkjum mitt í gatamynstri, þ.e.a.s. ef það er gatamynstur sem er byrjað nákvæmlega þar sem úrtakan á að vera, fækkið fyrst lykkjum þegar gatamynstrið hefur verið prjónað til loka.
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu.
Hægra framstykki:
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt.
Vinstra framstykki:
Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu:
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Öll affelling fyrir hnappagötum er gerð í umferð frá réttu.
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 14, 23, 31 og 39 cm
M: 5, 14, 23, 32 og 41 cm
L: 5, 14, 23, 32 og 41 cm
XL: 5, 13, 21, 29, 36 og 43 cm
XXL: 5, 13, 21, 29, 36 og 43 cm
XXXL: 5, 13, 21, 29, 37 og 45 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, þar er fellt af fyrir handveg og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 190-202-218-222-246-262 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur og fækkið 13-11-13-11-13-11 lykkjur jafnt yfir þar til 6 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón yfir kanta að framan = 177-191-205-211-233-251 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT á hægra kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.
Setjið 1 prjónamerki 47-51-54-56-61-66 lykkjur inn frá hvorri hlið, prjónamerkin merkja hliðar á stykki og það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið (= 83-89-97-99-111-119 lykkjur á bakstykki).
Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig:
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), 0-0-0-3-0-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 5 lykkjur), prjónið A.2 (= 14 lykkjur) yfir 154-168-182-182-210-224 lykkjur (= 11-12-13-13-15-16 sinnum á breidd), A.3 (= 6 lykkjur), 0-0-0-3-0-2 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón yfir kant að framan. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Lykkjum er fækkað í hvorri hlið, lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli og það eru felldar af lykkjur fyrir handveg þannig:
Ef gatamynstrið gengur ekki jafnt upp á breiddina, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM Í HLIÐUM ÞANNIG:
Þegar stykkið mælist 12 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-5-5-5½-5½ cm millibili alls 7 sinnum.
FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR V-HÁLSMÁLI ÞANNIG:
Þegar stykkið mælist 39-41-41-43-43-45 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig:
Fækkið um 1 lykkju innan við 6 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 6-5-7-7-8-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 8-11-8-9-8-9 sinnum (= alls 14-16-15-16-16-17 lykkjur færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR HANDVEG ÞANNIG:
Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig:
Fellið af 3-4-5-5-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6-8-10-10-10-12 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið).
Stykkin eru nú prjónuð til loka hvert fyrir sig (haldið áfram að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki). Klippið frá.
Látið lykkjur fyrir framstykki hvíla á prjóninum, á meðan prjónað er yfir lykkjur á bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 63-67-73-75-87-93 lykkjurnar. Haldið áfram með gatamynstur eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið einungis gatamynstur sem gengur jafnt upp á breiddina, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 25-27-27-27-29-29 lykkjur í næstu umferð frá réttu (= 19-20-23-24-29-32 lykkjur á hvorri öxl).
Ef gatamynstur er byrjað er það prjónað til loka á hæðina, en ekki eru prjónaðar fleiri mynstureiningar á hæðina – lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Axlirnar eru nú prjónaðar til loka hvor fyrir sig.
Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-21-22-27-30 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli á framstykki, eins og útskýrt er að ofan. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið gatamynstur sem e.t.v. eru byrjuð á hæðina til loka, en ekki prjóna fleiri mynstureiningar á hæðina – lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 23-24-27-28-33-36 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af fyrstu 17-18-21-22-27-30 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 6 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir 6 lykkjur þar til sjalkraginn mælist ca 6-7-7-7-9-9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað yfir fyrstu 6 lykkjur eins og áður, fellið af þær 17-18-21-22-27-30 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Haldið áfram með mynstur yfir 6 lykkjur fyrir sjalkraga í ca 6-7-7-7-9-9 cm, stillið af við vinstra framstykki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Fitjið upp 62-66-66-66-70-70 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-6-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-60-62-64-64 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 0-1-1-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.2 alls 4 sinnum á breidd, 0-1-1-2-3-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón.
Endurtakið mynstur á hæðina. Þegar ermin mælist 16 cm, aukið út 0-0-1-1-1-1 lykkjur í hvorri hlið á stykki innan við 1 kantlykkju (= 0-0-2-2-2-2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 0-0-1-2-3-4 sinnum = 58-60-62-66-70-72 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 47-46-45-44-43-41 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki innan við 1 kantlykkju í byrjun ánæstu umferð – prjónamerki merkir hvar botninn á handveg byrjar.
Nú eru ekki prjónuð fleiri gatamynstur, þau sem eru e.t.v. byrjuð eru prjónuð til loka. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Fellið af þegar ermin mælist alls 49-49-48-47-46-45 cm – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu.
Saumið saman ermasauma, en skiljið eftir smá op 3-3-3-3-4-4 cm efst á ermi (þ.e.a.s. að prjónamerki á ermi).
Saumið opið saman efst á ermi við botn á handveg og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Aly Kiers wrote:

Als ik het eerste patroonrij wil breien, begin ik met 10 tricotsteken . \r\nDat betekent dus, dat ik het eind van de pen 3 steken over houdt. Klopt dit?\r\n\r\nElke patroonlijn heeft dus 21

17.02.2021 - 15:44

DROPS Design answered:

Dag Aly,

Je breit eerst 6 voorbiessteken (2 ribbelsteek, 2 recht, 2 averecht), dan 0-0-0-3-0-2 steken in tricotsteek, dan A.1, daarna herhaal je A.2 steeds in de breedte (over het aantal steken zoals aangegeven in jouw maat). Tot slot brei je A.3 ,dan 0-0-0-3-0-2 steken in tricotsteek en weer 6 voorbiessteken.

21.02.2021 - 11:04

country flag Jenni Dorndorf wrote:

Hallo, zeigt das Diagramm nur die Hinrunde oder auch die Rückrunde? Wenn nur die Hinrunde, stricke ich die Maschen in der Rückrunde so wie sie erscheinen?

22.01.2021 - 05:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dorndorf, die Diagramme zeigen alle Reihen, die Hin- sowie die Rückreihen. Rückreihen lesen Sie links nach rechts. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

22.01.2021 - 08:13

country flag Ann Jakobsson wrote:

Nu har jag stickat 12 cm och maskat av i sidorna. Det innebär ju att jag har färre maskor på stickan när jag ska sticka nästa rad hålmönstrar i diagrammet. Framsidan stämmer men sen kommer hålmönstrat närmare hålmönstrat under. Då kommer de ju inte att ligga mitt i mellan varandra? Jag ska minska flera gånger i sidan och då kommer väl hålmönstrat att ligga rakt över varandra tillslut?

05.10.2020 - 07:13

DROPS Design answered:

Hej Ann, hulmønsteret skal være der det hele tiden har været, når du ikke har nok masker til et hulmønster i siden, så skal disse masker slätstickas. God fornøjelse!

07.10.2020 - 10:27

country flag Edith wrote:

I need help understanding this part of the pattern: Work 2 stitches in garter stitch, knit 2, purl 2 (= band), knit and decrease 13-11-13-11-13-11 Does this mean I decrease a stitch every 13 and 11 stitches?

23.09.2020 - 07:04

DROPS Design answered:

Dear Edith, you work this row as follows: 2 sts in garter stitch, knit 2, purl 2, then knit the next stitches until 6 sts remain but decrease evenly 11 or 13 sts (see your size) over these stitches (see how to decrease evenly here), and work the last 6 sts = purl 2, knit 2, 2 sts in garter stitch. Happy knitting!

23.09.2020 - 08:23

country flag Sabrina wrote:

Thank you for your response, but I am still unclear. If I decrease one stitch on each side of the markers as instructed, it leaves me with 81 stitches in the middle and 46 stitches on each side. Neither of these numbers can fit any of the lace pattern equally?

21.09.2020 - 19:31

DROPS Design answered:

Dear Sabrina, you have to line up the pattern worked on each piece (front piece/back piece/front piece) ie skip the decreased sts as if they were worked in pattern (but work them in stocking stitch if you cannot work them with the lace pattern = every yarn over should be compensated by a decrease). This means you will work lace pattern over the stitches as before, but on the side, pattern will not fit anymore, the number of sts between each repeat will be here different, most important is that it fits in height. Which size are you working on?

22.09.2020 - 11:22

country flag Inger J wrote:

Har 233 maskor på stickan till st. X XL hur får jag mönstret att stämma ?? Nu vill jag ha klara besked hur jag skall sticka så allt stämmer, har frågat två återförsäljare men ingen vill hjälpa, jag har kanske missat något som jag inte ser nu nät jag har försökt i flera veckor ? Hjälp snarast!

21.09.2020 - 10:27

DROPS Design answered:

Hei Inger. Om du strikker str XXL skal du ha 233 masker når du bytter til rundpinne 5,5. Og når mønstret skal strikkes strikker du 2 masker i riller, 2 rett og 2 vrang (=6 masker), så strikker du A.5 (=5 masker), deretter strikkes det A.2 over 210 masker (1 rapport av A.2 = 14 masker), så A.3 (=6 masker) og tilslutt 2 vrang + 2 rett + 2 masker i riller = 233 masker. N<år du har strikke diagrammene 1 gang i høyden, fortsetter du på 1. rad i diagrammene igjen. God Fornøyelse!

21.09.2020 - 15:24

country flag Sabrina wrote:

Hi, I decreased the four stitches on the body at 12 cm per the pattern, but now I’m back to working the pace pattern a couple rows above and because of the decrease, the pattern seems to not be centered/there are not enough stitches for the pace pattern in any of the back section? I am able to get the lace pattern centered on the two sides beyond the two thread markers, but can’t adjust the lace pattern to fit any of the middle back section? Is there something I’ve got wrong?

18.09.2020 - 16:23

DROPS Design answered:

Dear Sabrina, the 4 sts decreased at 12 cm are decreased on the sides, ie2 sts decreased on each side, then you continue working the lace patterns as before but it won't fit on the sides anymore - on the sides, work the sts in stocking stitchif there are not enough sts to work a whole lace pattern. Happy knitting!

21.09.2020 - 08:05

country flag Inger Jansson wrote:

Jag förstår det ni svarade Ann Jacobsen men på XXXL så får jag 12 maskor kantmadkor men då finns det 14 masker kvar? Ja

16.09.2020 - 18:08

country flag Ann Jakobsson wrote:

Jag är ganska van vid att sticka mönster men här fastnade jag nästan redan i början. I början av arbetet då jag börjat mönsterstickningen ska jag upprepa A.2 12 ggr. Avslutar med A.3 en gång. ”Fortsätt mönstret så” skriver ni. Men sen när jag stickat 7 varv slätstickning och ska sticka nästa hål, ska jag sticka A.2 då också 12 ggr? Känns som att inte det blir rätt? Eller jag ska upprepa hela raden A.1 A.2 A.3? Varje varv?

13.09.2020 - 08:33

DROPS Design answered:

Hei Ann. Ja, du skal gjenta stolpen + A.1 + A.2 (12 ganger) + A.3 + stolpen hver rad . Når du har strikket alle 3 diagram i høyden (24 pinner), gjentar du alle diagrammene i høyden. Husk fellingene til v-hals og ermehull, se i oppskriften når. God Fornøyelse!

14.09.2020 - 13:32

country flag Janina wrote:

Ich verstehe nicht so ganz wie ich das Muster trotz der Abnahmen bei den Makierungsfäden umsetzen soll, so dass es gleichmässig aussieht

13.06.2020 - 00:21

DROPS Design answered:

Liebe Janina, wenn Sie nicht genügend Maschen für ein komplettes Rapport auf beiden Seiten haben, dann stricken Sie lieber die Maschen glatt rechts. Das Muster stricken Sie wie zuvor weiter, dh wenn das Muster nicht mehr an den Seiten anpasst, soll es immer in der Höhe wie zuvor wiederholt sein. Viel Spaß beim stricken!

15.06.2020 - 08:18