Purple Way |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð húfa og sjal úr DROPS Alpaca með mosaik mynstri og garðaprjóni.
DROPS 197-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Sjal: Sjá mynsturteikningu A.3 til A.6. MOSAIK MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 fyrir húfu og A.3 og A.6 fyrir sjal og sjá útskýringu á aðferð að neðan. Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (þ.e.a.s. að þér og ennþá frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Passið uppá að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki! Til þess að fá betri yfirsýn yfir mynstur er hægt að setja prjónamerki á milli hverra mynstureininga. Mynstrið er prjónað í garðaprjóni. A.1/A.3 = sýnir hvaða lit á að prjóna umferðina með. Í hverri mynsturumferð sem byrjar og endar með svartri rúðu í A.1/A.3 (litur B), eiga allar lykkjur með lit B að prjónast slétt og allar lykkjur með lit A er lyft af prjóni. Í hverri mynsturumferð sem byrjar og endar með auðri rúðu í A.1/A.3 (litur A), eiga allar lykkjur með lit A að prjónast slétt og allar lykkjur með lit B er lyft af prjóni. ÚRTAKA (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur), mínus kantlykkjur (= 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 10. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 9. og 10. hverja lykkju saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. HÚFA: Fitjið upp 112-122 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum bleikfjólublár. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur – sjá MOSAIK MYNSTUR, þannig: Prjónið A.1 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 11-12 lykkjur) yfir næstu 110-120 lykkjur (= 10-10 sinnum á breidd) og A.1 yfir síðustu lykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 17-18 cm. Stykkið er síðan prjónað í garðaprjóni með litnum bleikfjólublár. Fækkið nú lykkjum þannig: Fækkið 11-12 lykkjur jafnt yfir í 4. hverri umferð – sjá ÚRTAKA, alls 9 sinnum = 13-14 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, dragið saman og festið vel. Húfan mælist ca 25-26 cm. Saumið húfuna saman innan við 1 kantlykkju með litnum bleikfjólublár. ------------------------------------------------------- SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, á ská frá horni að horni í stykkjum í garðaprjóni, röndum og mosaik mynstri. SJAL: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós kamel. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. STYKKI-1 (garðaprjón í litnum ljós kamel): UMFERÐ 1 (rétta): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið bilið á undan næstu lykkju á vinstri prjón snúið slétt (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja fleiri og 1 lykkja færri). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til 63 lykkjur eru á prjóni (= alls 122 umferðir með garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 56 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. STYKKI-2 (rendur): Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónaðar eru rendur þannig: Klippið þráðinn frá þegar það verða meira en 4 umferðir garðaprjón áður en sami litur er notaður aftur. Prjónið * 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 18 umferðir garðaprjón) = 72 lykkjur á prjóni. Prjónið rendur þannig: * Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 40 umferðir garðaprjón) = 92 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 88 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. STYKKI-3 (mosaik mynstur með dökk bleikur og ljós kamel): Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið mynstur þannig: Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur = 93 lykkjur. Prjónið síðan MOSAIK MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með litnum dökk bleikur og litnum ljós kamel þannig: Prjónið A.3 (= 1 lykkja), A.4 (= 18 lykkjur), prjónið A.5 (= 12 lykkjur) yfir næstu 72 lykkjur (= 6 sinnum á breidd), A.6 (= 1 lykkja) og A.3 yfir síðustu lykkju (þetta er lykkjan sem prjónaðar eru 2 lykkjur í frá réttu. Frá röngu er fyrri lykkjan prjónuð eins og A.3 og 2. lykkjan er prjónuð inn í mynstur A.6). Bilið sem er prjónað upp á milli 2 lykkja í hverri umferð frá röngu er prjónað inn í A.6. Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 24 umferðir garðaprjón) eru 105 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 100 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. STYKKI-4 (rendur): Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið rendur þannig: Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir með garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár, 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár (= 22 umferðir garðaprjón) = 116 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 110 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu. STYKKI-5 (mosaik mynstur með litnum bleikfjólublár og natur): Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið mynstur þannig: Prjónið 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár = 117 lykkjur. Prjónið síðan mosaik mynstur með litnum bleikfjólublár og natur þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu lykkju, A.4 yfir næstu 18 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 96 lykkjur (= 8 sinnum á breidd), A.6 yfir 1 lykkju og A.1 yfir síðust lykkju (þetta er lykkjan sem prjónaðar eru 2 lykkjur í frá réttu. Frá röngu er fyrri lykkjan prjónuð eins og A.3 og 2. lykkjan er prjónuð inn í mynstur A.6). Bilið sem prjónað er upp á milli 2 lykkja í hverri umferð frá röngu er prjónað inn í A.6. Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynstrið endurtekið á hæðina, í hvert skipti sem mynstrið er endurtekið er prjónuð 1 fleiri mynstureining af A.5 á breiddina. Þegar A.3 til A.6 hefur verið prjóna 2 sinnum á hæðina (= 96 umferðir garðaprjón) eru 165 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 135 cm, mælt meðfram fyrstu lykkju frá réttu (nú eru eftir ca 3 cm). Ef óskað er eftir að hafa sjalið stærra er hægt að endurtaka mynstur A.3 til A.6 á hæðina að óskuðu máli. STYKKI-6 (rendur): Haldið áfram að auka út og fækka lykkjum eins og áður, en prjónið rendur þannig: Prjónið 4 umferðir garðaprjón með litnum ljós kamel, 2 umferðir garðaprjón með litnum dökk bleikur, 2 umferðir garðaprjón með litnum bleikfjólublár og fellið síðan af með litnum bleikfjólublár. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, felli e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (51)
Christine wrote:
I love the stitch pattern and colour combination
05.06.2018 - 20:50