Inside Out |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 193-3 |
|||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 15. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 14. og 15. hver lykkja slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.2/A.4 þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.2/A.4 þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.2/A.4 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.2/A.4 þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 13-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með gagnstæðum lit við lykkju með prjónamerki í, prjónið lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með gagnstæðum lit við lykkju með prjónamerki í (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. Annar sokkurinn er prjónaður með litnum ljós perlugrár í grunnlit og hinn sokkurinn er prjónaður með litnum appelsínugulur í grunnlit. SOKKUR MEÐ GRUNNLIT, LJÓS PERLUGRÁR: Fitjið upp 60-60-70 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum appelsínugulur. Prjónið 2 cm stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með litnum appelsínugulur þar sem fækkað er um 4-0-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 56-60-60 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.1A yfir fyrstu 50 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) = 51 lykkjur ofan á fæti, prjónið A.2A yfir næstu 4-8-8 lykkjur og prjónið A.2B yfir síðustu lykkju (= miðja að aftan). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 3-3-4 sinnum á hæðina eru 35 miðjulykkjur ofan á fæti settar á þráð = 21-25-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið A.2 fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm (passið uppá að mynstrið haldi áfram eins og áður yfir 5-9-9 miðjulykkjur að aftan). Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerki á að nota síðar til að mæla lengdina á fæti. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.2 yfir 13-15-15 hællykkjur, prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.1 yfir 35 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 72-76-76 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með A.1 yfir 35 lykkjur ofan á fæti og A.2 yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir hvoru megin við 35 lykkjur ofan á fæti innan við ystu lykkju í A.2 þannig (byrjið eftir 35 lykkjur mitt ofan á fæti): Prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, hún heldur áfram í litnum appelsínugulur, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman (með næsta lit í mynstri), prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.1 – prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (með næsta lit í mynstri) og prjónið síðustu lykkju í A.2 (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, hún heldur áfram í litnum appelsínugulur). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-10-8 sinnum á hvorri hlið = 56-56-60 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með A.1 og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist ca 17-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5-5-6 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd, en stillið af að endað sé eftir heila eða hálfa mynstureiningu af A.1 á hæðina). Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur undir fæti). Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju í hvorri hlið þannig að það verða 27-27-29 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti á milli lykkja með prjónamerki í. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – lesið ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-5 sinnum = 20-20-20 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. SOKKUR MEÐ GRUNNLIT, APPELSÍNUGULUR: Fitjið upp 60-60-70 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum appelsínugulur. Prjónið 2 cm stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með litnum appelsínugulur þar sem fækkað er um 4-0-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 = 56-60-60 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.3A yfir fyrstu 50 lykkjur (= 5 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) = 51 lykkjur ofan á fæti, prjónið A.4A yfir næstu 4-8-8 lykkjur og prjónið A.4B yfir síðustu lykkju (= miðja að aftan). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað alls 3-3-4 sinnum á hæðina eru 35 miðjulykkjur ofan á fæti settar á þráð = 21-25-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið A.4 fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm (passið uppá að mynstrið haldi áfram eins og áður yfir 5-9-9 miðjulykkjur að aftan). Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerki á að nota síðar til að mæla lengdina á fæti. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.4 yfir 13-15-15 hællykkjur, prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.3 yfir 35 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 72-76-76 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með A.3 yfir 35 lykkjur ofan á fæti og A.4 yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir hvoru megin við 35 lykkjur ofan á fæti innan við ystu lykkju í A.4 þannig (byrjið eftir 35 lykkjur mitt ofan á fæti): Prjónið fyrstu lykkju í A.4 (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, hún heldur áfram í litnum appelsínugulur, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman (með næsta lit í mynstri), prjónið A.4 þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.3 – prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (með næsta lit í mynstri) og prjónið síðustu lykkju í A.4 (þessi lykkja á ekki að vera með í úrtöku, hún heldur áfram í litnum appelsínugulur). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-10-8 sinnum á hvorri hlið = 56-56-60 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með A.3 og A.4 eins og áður þar til stykkið mælist ca 17-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5-5-6 cm til loka lengdar, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd, en stillið af að endað sé eftir heila eða hálfa mynstureiningu af A.3 á hæðina). Prjónið A.4 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi fallega áfram yfir lykkjur undir fæti). Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju á hvorri hlið þannig að það verða 27-27-29 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti á milli lykkja með prjónamerki í. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – lesið ÚRTAKA-2 = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-5 sinnum = 20-20-20 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 10 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Doreen McCrate wrote:
I started to knit this pattern but even the largest size is not big enough. How would you increase the size without losing the pattern? I think I can increase the pattern I units 10 and maintain the pattern but I am unsure how to decease to work heel and instep. Any advice would be appreciated as I really would like to knit these for my son- in - law who is 6’3” and wears size 13 wide shoes.
13.01.2022 - 01:19DROPS Design answered:
Dear Mrs McCrate, do you have the correct tension? These socks are worked for a gauge of 22 sts x 30 rows = 10 x 10 cm in stocking stitch as well as when working the stranded pattern. Maybe it can help. Happy knitting!
13.01.2022 - 09:01Eva Stjernholm wrote:
Hur slitstarkt är rekommenderat garn till modellen 193-3 häl/under fot? Vad rekommenderar ni annars för garn likvärdigt modellen Mvh Eva
27.07.2020 - 11:15DROPS Design answered:
Hej Eva, de mest slitstarka sockor är i DROPS Fabel eller dubbel tråd DROPS Fabel. Sök på sockor och välj mellan dem i DROPS Fabel. :)
28.07.2020 - 11:12Lone Hansen wrote:
Opskriften er ikke lige let at forstå! Hvad mener man med “ de midterste 35 masker” ud af 60 masker ialt!? Og igen længere henne i opskriften skal der sættes en mærketråd i de midterste masker i hver side? Jeg forstår det simpelhen ikke...men det er et fint mønster...
25.03.2019 - 06:50Lora Huey wrote:
On the Inside Out socks is A.3A worked 3.5 times for the top of the sock after you pick up the 13 stitches at the side of the heel ?
26.11.2018 - 11:58DROPS Design answered:
Dear Mrs Huey, yes correct, you will repeat A.3 a total of 3,5 times for the top of foot after heel. Happy knitting!
26.11.2018 - 13:56Nelly wrote:
Enkelt mønster:) Men datt av då eg kom til hælen pga. eg veit ikkje korleis eg skal strikka striper uten at trådane går over kvarandre. Strikka vanlig hæl og tok med den kvite tråden på baksida av hælen og mønster framme.
15.11.2018 - 19:13Conny wrote:
Hallo Zusammen, es gibt bei Euch ja so viele schöne Socken, Muster und Ideen. Wenn ich Socken nach einer Anleitung von Garnstudio Drops stricke , darf ich die an einen Verein für krebskranke Kinder Spenden der Sie auf einem Markt verkauft? Ich dachte an etwa 20 Paar pro Jahr. Über eine Antwort würde ich mich freuen. Liebe Grüße Cornelia Knoblauch
26.09.2018 - 11:06DROPS Design answered:
Liebe Conny, gerne finden Sie alle Informationenen unter dem Copyright ganz unten nach der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!
26.09.2018 - 13:33Lora Huey wrote:
Can't wait for USA translation , getting ready to put on my knitting needles .. Love them !
26.07.2018 - 15:04