DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Seashore Memories

Heklaður toppur úr DROPS Paris með sólfjöðrum, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 190-23
DROPS Design: Mynstur w-692
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-200-200-200-250 g litur 48, bensín

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 tvíbrugðnir stuðlar/fastalykkjur og 9 umferðir í mynstri-2 verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blá) NR 621: 5-5-5-6-6-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.2 sýnir hvernig flíkin er notuð.

MYNSTUR-2:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 fastalykkja í hvern tvíbrugðinn stuðul.
UMFERÐ 2 (= rétta): 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja fastalykkju.
Endurtakið síðan umferð 1 og 2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli út með 4 loftlykkjum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 tvíbrugðinn stuðul með því að hekla 2 tvíbrugðna stuðla í sömu fastalykkju.
Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sama tvíbrugðna stuðul.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. Fyrst eru heklaðar 2 lausar brjóstaskálar. Síðan eru 2 brjóstaskálarnar heklaðar saman. Toppurinn er lokaður við miðju að aftan – sjá A.2.

BRJÓSTASKÁL:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Paris og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 4-4-4-5-5-5 fastalykkjur um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Snúið og heklið 2 tvíbrugðna stuðla í hverja fastalykkju = 8-8-8-10-10-10 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan MYNSTUR-2 og aukið jafnframt út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 11-13-14-16-18-20 sinnum = 30-34-36-42-46-50 lykkjur – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 12-14-16-18-20-22 cm.
Haldið áfram fram og til baka án útaukninga þar til stykkið mælist 15-16-17-19-20-22 cm – stillið af að endað sé eftir eina umferð með tvíbrugðnum stuðlum (= frá röngu). Klippið frá og festið enda.
Heklið aðra brjóstaskál til viðbótar á sama hátt.

Heklið nú 2 brjóstaskálarnar saman í eitt efra stykki. ATH: Passið uppá að hekla yfir báðar brjóstaskálarnar séð frá röngu!
Heklið 30-34-36-42-46-50 lausar loftlykkjur, heklið síðan 1 fastalykkju í hvern af 30-34-36-42-46-50 tvíbrugðnu stuðlum neðst niðri á annarri brjóstaskálinni, heklið 1 fastalykkju í hvern af 30-34-36-42-46-50 tvíbrugðnu stuðlum neðst niðri á hinni brjóstaskálinni, heklið síðan 30-34-36-42-46-50 lausar loftlykkjur í lok umferðar = 120-136-144-168-184-200 lykkjur.
Snúið og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja lykkju, endið umferð með 6 loftlykkjum (= lykkja fyrir tölu) = 120-136-144-168-184-200 tvíbrugðnir stuðlar. Haldið áfram með mynstur-2 eins og áður, en endið hverja umferð sem er hekluð með tvíbrugðnum stuðlum með 6 loftlykkjum (fyrir lykkjur) þar til heklaðar hafa verið alls 4-4-4-5-5-6 lykkjur). Þegar allar lykkjur hafa verið heklaðar til loka, heklið eina umferð með fastalykkjum JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-0-0-2-4 fastalykkjum jafnt yfir = 120-138-144-168-186-204 fastalykkjur. Klippið frá og byrjið næstu umferð frá röngu.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá röngu): Heklið A.1c, A.1b alls 18-21-22-24-29-32 sinnum á breidd og A.1a. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda.
Heklið síðan kant á hvoru bakstykki (í efri kant á baki), heklið svona á bakstykki með lykkjum: Festið enda með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju, heklið 6 loftlykkjur (= lykkja), heklið 1 fastalykkju í sömu loftlykkju, haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja og eina af 29-33-35-41-45-49 loftlykkjum sem eftir eru sem fitjaðar voru upp. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 fastalykkju í hverja af 30-34-36-42-46-50 loftlykkjum á hinu bakstykkinu. Klippið frá og festið enda.

BAND / HLÝRI Á ÖXL:
Heklið loftlykkjur þar til myndast hefur snúra sem mælist ca 100 cm. Klippið frá og festið enda, gerið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum loftlykkjuhringinn í byrjun á stykki.
Gerið aðra snúru til viðbótar og endurtakið í hinni hlið á toppnum.
Saumið tölur í vinstri hlið að aftan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2018
BRJÓSTASKÁL:..Haldið áfram fram og til baka án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-17-19-20-22 cm – stillið af að endað sé eftir eina umferð með tvíbrugðnum stuðlum (= frá röngu). Klippið frá og festið enda. Heklið aðra brjóstaskál til viðbótar alveg eins.

Heklið nú 2 brjóstaskálarnar saman í eitt efra stykki. ATH: Passið uppá að hekla yfir báðar brjóstaskálarnar séð frá röngu!

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð
symbols = 1. umferð byrjar hér
symbols = heklið keðjulykkjur fram að miðju á loftlykkjuboga, eftir það eru heklaðar 4 loftlykkjur
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Hubert VOUILLOT wrote:

Bonjour. Je suis comme Madame Pasquet j'arrive avec plus de 20 cm au final avec échantillon correcte au départ ? Mais comment peut-on avoir 10 cm avec 16 doubles brides et 15 avec 34. Je ne comprends pas????? Merci pour vos conseils.

30.05.2021 - 17:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mr Vouillot, je ne comprends pas votre question - ni de quels 15 cm vous parlez; pourriez-vous la reformuler? Merci pour votre compréhension.

31.05.2021 - 08:19

country flag Julia wrote:

Hallo, ich bin mir nicht sicher, wie ich die Häkelinformation hier umsetzen soll in Verbindung mit den Maschenzunahmen im Teil zum Brustcup. Wenn ich in 13 Reihen jedes mal 2x zunehme, aber die ersten Maschen jeweils durch Luftmaschen ersetze, habe ich doch nicht ausreichend Zunahmen um auf 34 Maschen zu kommen? Oder zählen eine Reihe fM und eine Reihe Doppelstäbchen zusammen als eine Reihe? Und nehme ich immer die zweite Masche von der Nadel aus zu, wenn ich die erste durch LM ersetze?

19.05.2021 - 13:59

DROPS Design answered:

Liebe Julia, am Anfang der Reihe haben Sie 4 Lm (= 1. Doppelstäbchen) + 1 Doppelstäbchen in die 1. Masche, am Ende der Reihe häkeln Sie 2 Doppelstäbchen in die letzte Masche = 8+2 Zunahmen = 10 Doppelstäbchen. Häkeln Sie weiter so, mit 2 Zunahmmen bei jeder der nächsten 12 Reihen = 10+24 Zunahmen = 34 Doppelstäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

19.05.2021 - 15:41

country flag Lisa wrote:

Jeg forstår ikke hvordan diagrammet leses. Skal jeg starte med to luftmasker som ikke er festet til noe, og maske 3 er en fastmaske i fastmaskene som nettopp er fullført (da også nr 3)? Jeg forstår heller ikke «hekle A.1c, A.1b totalt c ganger i bredden og A.1a». Slik jeg ser det er det to rader nederst med mønster fra diagram A1, men jeg klarer ikke å lese det.

25.05.2020 - 10:33

DROPS Design answered:

Hei Lisa. Du har allerede heklet cupene og et stykke nedover, nå skal du hekle etter diagram A.1. 1. rad i diagrammet har du allerede heklet (markert med stjerne i diagrammet) og du skal starte ved 1.pil. Hekle 2 lm, 1 fm i 2. fm, 3 l, hopp over 2 m, 1 fm i neste m, 2 lm, hopp over 1 m (nå har du heklet A.1c. Nå skal du hekle A.2b 18 ganger (=1 lm, hopp over 1 m, 1 fm i neste m, 3 lm, hopp over 2 m, 1 fm i neste m, 2 lm, hopp over 1 m). Deretter hekles det A.1a slik: 1 lm, hopp over 1 m, 1 fm i neste m, 3 lm, hopp over 2 m, 1 fm i neste m, 1 lm, 1 fm i neste m. Så hekles det 2. rad av diagrammet. God Fornøyelse!

03.06.2020 - 10:03

country flag Jennifer wrote:

Danke! Ein wunderschönes und sehr einfach und schnell zu häkelndes Top. Ich werde es mit einem Höschen kombinieren, das ich bereits nach einer Anleitung von dieser Seite gehäkelt habe (178 74, Micaela). Für dieses Top habe ich mir auch das Originalgarn besorgt und es ist schön weich. Ein kleiner Tippfehler hat sich in der Maßskizze eingeschlichen: Der Abstand für die beiden Spitzen der Cups wird in Größe M mit 211 angegeben. Ich denke, da ist eine 1 zu viel gelandet. :)

11.01.2020 - 01:34

country flag Pirek wrote:

Hi! -It is hard to obtain the required row gauge, so I used treble (UK) instead of double treble (UK) -Working the cups together:the pattern calls for 1 dc in each of the 30-34-36-42-46-50 dtr crochets at the bottom of each cup, but this is the crochet count after 12-14-16-18-20-22 cm - after the required cup length the count is bigger as pattern suggests

19.07.2019 - 10:22

country flag Wiesje wrote:

Ja inderdaad heb ik niet goed gelezen. Bedankt voor je snelle reactie. Het komt nu vast helemaal goed.

19.03.2019 - 19:01

country flag Wiesje wrote:

Hoe kan het dat er zo'n groot verschil zit tussen de lengte en breedte die in de beschrijving staat. Ik kom uit op 28 cm!!!-ipv 12 cm bij 11 x meerderen en en 30 steken. Ik begrijp niet waar dit grote verschil in zit.

16.03.2019 - 21:42

DROPS Design answered:

Dag Wiesje,

Dat is meer dan 2 keer zo veel. als je patroon 2 volgt, moet je zowel op toer 1 als op toer 2 meerderen. Kan het zijn dat je per ongeluk het dubbele aantal toeren hebt gemaakt?

18.03.2019 - 14:10

country flag Pasquet Luce wrote:

… d'autre part vous dites que pour les augmentations dans le point fantaisie 2 il faut faire une augmentation de chaque côté du rang de double-brides. Mais nous ne dites rien pour le rang des mailles serrée. Je suppose qu'il faut aussi faire une augm. de chaque côté du rang de mailles serrées.

13.07.2018 - 15:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pasquet, on augmente soit 1 double-bride (= sur les rangs de double-brides comme c'est le cas pour la 1ère augmentation), soit 1 ms (= sur les rangs de ms) comme indiqué sous AUGMENTATIONS, donc on augmente bien tous les rangs. Bon crochet!

13.07.2018 - 15:54

country flag PASQUET wrote:

Bjr, pour le modèle en taille S, je n'arrive pas à comprendre comment on peut arriver à 12 cm après avoir fait toutes les aug pour obtenir 30 doubles-brides. J'arrive à 20 cm. J'ai changé mon crochet et j'ai refait le même travail avec un cochet n° 4 et là au même endroit j'ai 16 cm. Impossible de diminuer encore la taille du crochet, le fil PARIS n'est pas facile à crocheter, il se dédouble constamment

13.07.2018 - 15:36

DROPS Design answered:

Bonjour Madame Pasquet, avez-vous fait votre échantillon? Vous devez avoir 16 double-brides/maillles serrées en largeur et 9 rangs du point fantaisie-2 en hauteur = 10 x 10 cm. N'hésitez pas à prendre un crochet plus petit si besoin. Bon crochet!

13.07.2018 - 15:50

country flag Veronica wrote:

Brystcupene avsluttes med en rad fastmasker.. Neste del av heklingen er å hekle sammen, men da står det at det skal hekles fastmasker i dobbelstavene nederst på cupen!? Skal det hekles fra vrangen isteden for fra retten? Da vil jo også hempene havne på andre siden?

03.07.2018 - 20:48

DROPS Design answered:

Hei Veronica. Du skal fortsette etter mønster 2 som før. Det ser ut som det er litt uklart forklart i oppskriften, og den er nå blitt sendt til designavdelingen for gjennomgang. Men for øyeblikket: om du avslutter med en rad dobbelstaver fra retten skal du hekle de 2 koppene sammen med en rad fastmasker fra vrangen – slik at mønster 2 fortsetter som vanlig. Om du ser nøye på bildet kan du se at det er slik det er gjort. Det som er viktig er at begge koppene er avsluttet etter samme rad, slik at de blir like. Takk for beskjed og god fornøyelse.

05.07.2018 - 09:42