DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 28160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 180-9
DROPS Design: Mynstur an-051
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 100 cm.
Lengd: ca 156 cm.

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600 g litur 5610, brúnn
200 g litur 5310, ljós brúnn
200 g litur 0619, beige
200 g litur 4300, ljós fjólublár
200 g litur 4276, púðurbleikur
200 g litur 0206, ljós beige
200 g litur 7120, ljós grágrænn
200 g litur 7130, sægrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 8 stuðlar verði 10 cm á breidd, 1 ferningur mælist 12 x 12 cm, 1 átthyrningur mælist 28 cm að þvermáli (mælt frá hlið að hlið).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 28160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.3 og A.4 sýna frágang.

LITIR Í ÁTTHYRNING:
Heklið alls 15 átthyrninga með eftirfarandi litasamsetningum:

ÁTTHYRNINGUR-1 (3 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós beige
UMFERÐ 2: púðurbleikur
UMFERÐ 3-5: ljós brúnn
UMFERÐ 6: brúnn

ÁTTHYRNINGUR-2 (3 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós beige
UMFERÐ 2: púðurbleikur
UMFERÐ 3-5: ljós fjólublár
UMFERÐ 6: brúnn

ÁTTHYRNINGUR-3 (2 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós grágrænn
UMFERÐ 2: sægrænn
UMFERÐ 3-5: púðurbleikur
UMFERÐ 6: brúnn

ÁTTHYRNINGUR-4 (2 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós brúnn
UMFERÐ 2: beige
UMFERÐ 3-5: ljós grágrænn
UMFERÐ 6: brúnn

ÁTTHYRNINGUR-5 (2 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós brúnn
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3-5: sægrænn
UMFERÐ 6: brúnn

ÁTTHYRNINGUR-6 (3 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós fjólublár
UMFERÐ 2: ljós beige
UMFERÐ 3-5: beige
UMFERÐ 6: brúnn

LITIR FERNINGAR:
Heklaðir eru alls 20 ferningar í eftirfarandi litasamsetningum:
KVADRAT-A (6 st)
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós grágrænn
UMFERÐ 2: sægrænn
UMFERÐ 3: brúnn

KVADRAT-B (6 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós beige
UMFERÐ 2: ljós brúnn
UMFERÐ 3: brúnn

KVADRAT-C (4 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: ljós beige
UMFERÐ 2: púðurbleikur
UMFERÐ 3: brúnn

KVADRAT-D (4 st):
UPPFITJUN + UMFERÐ 1: púðurbleikur
UMFERÐ 2: ljós fjólublár
UMFERÐ 3: brúnn

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit, þá er skipt um lit þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn á síðustu lykkjunni í umferð, dragið þráðinn með nýja litnum í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Festið enda jafnóðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið samanstendur af 15 átthyrningum og 20 ferningum í mismunandi litasamsetningum. Þessir hekluðu hyrningar eru síðan settar saman í lokin. Síðan er heklaður kantur utan um allt teppið.

ÁTTHYRNINGUR:
Heklið í hring eftir mynsturteikningu A.1 með heklunál 9. Lesið LITIR ÁTTHYRNINGUR og LITASKIPTI að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Einn átthyrningur mælist 28 cm að þvermáli, mælt frá hlið að hlið.

KVADRAT:
Heklið í hring eftir mynsturteikningu A.2 með heklunál 9. Lesið LITIR KVADRAT og LITASKIPTI að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!. Einn ferningur mælist 12 x 12 cm.

FRÁGANGUR:
Leggið hekluðu hyrningana með réttu númeri eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3
Heklið saman með heklunál 9 með litnum brúnn – sjá mynsturteikningu A.4. Heklið saman í lengjur á breidd – sjá breiða línu. Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju í gegnum bæði lögin. Heklið síðan átthyrningana/ferningana saman eins og útskýr er á strikuðu línunni. Heklið 1 keðjulykkju þar sem 2 samskeyti mætast – sjá hring, 1 fastalykkja um hornboga og 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri af 10 fastalykkjum í gegnum bæði lögin, 1 fastalykkja um hornbogann.

KANTUR:
Heklið kant utan um allt teppið með heklunál 10 með litnum brúnn – sjá mynsturteikningu A.4. Heklið 1 umferð með stuðlum í kringum allt teppið með því að hekla 1 stuðul í hverja fastalykkju og um loftlykkjubogana er heklað þannig: Þar sem kemur horn út (sjá ör-1), heklið 2 stuðla, 2 loftlykkjur og 2 stuðla um loftlykkjuboga. Þar sem kemur horn inn (sjá ör-2), heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga á fyrsta ferningnum/átthyrningnum og heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga á hinum ferningnum/átthyrningnum. Umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuhring
symbols = 3 þríbrugðnir stuðlar heklaðir saman þannig: Heklið 3 þríbrugðna stuðla í lykkju – en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin á öllum þessum þríbrugðnu stuðlum, síðan er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Nathalie Leclerc wrote:

Bonjour, à l’assemblage, je ne comprends ou débute le travail lorsqu’on dit crocheter 1 maille coulée au niveau où les 2 épaisseurs se rejoignent – voir cercle, 1 maille serrée autour de l’arceau du coin et 1 maille serrée dans le brin arrière de chacune des 10 mailles serrées en piquant dans les 2 épaisseurs, 1 maille serrée autour de l’arceau du coin.

28.04.2023 - 02:42

DROPS Design answered:

Cf réponse ci-dessous en espérant qu'elle vous sera utile.

28.04.2023 - 10:27

country flag Nathalie Leclerc wrote:

Bonjour, au niveau assemblage, je ne comprends pas le plan A.4. Ou le travail débute et termine lorsqu’on dit: Crocheter 1 maille coulée au niveau où les 2 épaisseurs se rejoignent – voir cercle, 1 maille serrée autour de l’arceau du coin et 1 maille serrée dans le brin arrière de chacune des 10 mailles serrées en piquant dans les 2 épaisseurs, 1 maille serrée autour de l’arceau du coin. De plus, il y a 3 épaisseurs en référence à “voir cercle”. Merci

28.04.2023 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leclerc, suivez d'abord les traits en gras pour assembler les motifs entre eux, par ex de bas en haut, vous assemblez 1 carré avec un hexagone, puis un côté de l'hexagone du bas avec l'hexagone du haut etc..; à ce niveau, suivez uniquement les traits en gras. Quand ces lignes diagonales sont faites, crochetez les motifs entre eux en suivant les lignes en pointillés: par ex, tout en bas, assemblez le carré avec l'hexagone en terminant par 1 maille coulée = cercle = transition entre le carré et les 2 hexagones. Bon assemblage!

28.04.2023 - 10:26

country flag Ida-Eline Engh wrote:

Hei! Jeg har bestilt garn etter oppskriften for teppet Gipsy Wagon men fargene ser ikke ut til å stemme med bildet. Jeg har nå to nyanser rosa, to nyanser blå og fire nyanser brunt / beige, mens på bildet er det to rosa, to blå, to brun / beige og to kaki / grønt...

14.01.2021 - 00:23

DROPS Design answered:

Hei Ida-Eline. Sjekk fargenr. du har på garnnøstene om det stemmer med det som står i oppskriften. Ut ifra det du skriver på hva du har fått, syns jeg det stemmer. Jeg kan ikke se noen kaki/grønn farge på teppet. Dette kan ha noe med fargeinnstillingene på de enkelte skjermene. mvh DROPS design

15.01.2021 - 13:11

country flag Sharon wrote:

Many thX for another lovely Pattern. I made mine :30cm and 13.5cm (blocked sizes) and used I only used 90g of light beige and >500g dark brown. I used the 6th brown for extra border ( BP HDC ) I recommend using 3410 amethyst instead of the old pink if you want a more uplifting colourway with slightly more contrast, the photo shows more contrast between colours than is actual, so changing the pink would remedy this as well. I hope you consider putting amethyst on your color list as an option .

28.02.2020 - 11:16

DROPS Design answered:

Dear Sharon, thanks for your suggestion - you are welcome to send us your link for our #dropsfan gallery - Read more here. Happy crocheting!

28.02.2020 - 14:23

country flag Sharon wrote:

For the octagon, I made first two rows with 7mm hooks and the rest with an 8mm. I dont understand that in the video the stitches are a lot looser crocheted than mine even though a 9mm is apparently used. like the dutch commentator, I also had to make the square with a 6mm hook to get 12cm, and also would have ended up with a much smaller octagon had I used the same size hook . Andes is a lovely yarn and I have Lots left for a cushion or two. There isnt as much constrast as the photo though

23.02.2020 - 23:40

DROPS Design answered:

Dear Sharon, everyone has its own tension, some crochet tight some other loose, you should try to check out which crochet hook size you would require to get the tension and maybe try to tighten your stitches in height if necessary - a href="https://www.garnstudio.com/faq.php?show=patterns&cid=19#question1">Read more here about tension. Happy crocheting!

24.02.2020 - 10:04

country flag Katie Garlic wrote:

Drops, Thank you for your answer. I saw cast on at the beginning of COLOURS OCTAGON: I read the whole pattern and saw it was crochet. Sorry aboutthat. I should have read the whole pattern.

05.07.2019 - 14:58

country flag Katie Garlic wrote:

Hi. Pattern says crochet. Why are the directions in knitting terms? Am I missing something?

03.07.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Hi Katie, please check your pattern once more as both our versions (in Brittish English and in US English as well) are correct and instructions are for crocheting. Happy crafting!

04.07.2019 - 00:22

country flag Suzie Korte wrote:

This is absolutely stunning

25.08.2018 - 23:10

country flag Dorothy J Baker wrote:

Absolutely Beautiful

25.08.2018 - 06:18

country flag Sofia Broborg wrote:

Hej! Går allt garn åt i alla färger till modell nr 180-9 eller är garnåtgången uträknad exakt? Funderar på om ev rest räcker till t ex ytterligare en rad...

23.10.2017 - 12:00

DROPS Design answered:

Hei Sofia. Vi har desverre ikke det nøyaktige garnforbruket som er tilbake, men du kan jo fint veie kvadratene (etter hver fargebytte) underveis når du hekler. Om du da ikke er ferdig med alle iflg oppskriften. Bare husk å nok til montering og kanten. God Fornøyelse!

23.10.2017 - 13:58