DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Bay Jacket

Prjónuð peysa með blaðamynstri, garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð börn 3-14 ára

DROPS Children 27-24
DROPS Design: Mynstgur nr vs-002-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164
Efni: DROPS BELLE frá Garnstudio
200-250-250-300-350-400 g nr 15, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón (prjónfesta með garðaprjóni: 21 l x 42 umf verði 10 x 10 cm).
DROPS TALA, BLÓM (hvít), NR 600; 5-5-6-6-7-7 st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri í umf). Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan, þ.e.a.s. kantur að framan í lok umf séð frá réttu. 1 hnappagat = prjópnið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan):
STÆRÐ 3/4: 2, 8, 14, 22 og 28 cm.
STÆRÐ 5/6: 2, 8, 14, 22 og 28 cm.
STÆRÐ 7/8: 2, 8, 14, 22, 28 og 36 cm.
STÆRÐ 9/10: 2, 8, 14, 22, 28 og 36 cm.
STÆRÐ 11/12: 2, 8, 14, 22, 28, 36 og 42 cm.
STÆRÐ 13/14: 2, 8, 14, 22, 28, 36 og 42 cm.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI.
Fitjið upp 87-87-94-94-101-101 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Belle. Fellið af fyrir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), A.1 þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Í umf með uppslætti í A.1 er endað með 1 l sl á undan kanti að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: 5 l garðaprjón, A.2 (= 7 l), endurtakið A.2 alls 11-11-12-12-13-13 sinnum, endið með 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFSTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 197-197-214-214-231-231 l á prjóni, stykkið mælist ca 10 cm. Haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l mitt í hverri mynstureiningu (= 11-11-12-12-13-13 l fleiri), aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo að það myndist gat. Endurtakið útaukningu með 1-1-1½-1½-2-2 cm millibili 0-1-1-2-1-2 sinnum til viðbótar = 208-219-238-250-257-270 l. Prjónið 1 umf slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 210-222-234-250-262-276. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm. Prjónið síðan frá þannig (frá réttu): Prjónið fyrstu 36-38-40-42-44-45 l (= framstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 62-66-70-74-78-82 l (= bakstykki), setjið næstu 38-40-42-46-48-52 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 36-38-40-42-44-45 l sem eftir eru (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 146-154-162-170-178-184 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og garðaprjóni á köntum að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 5-6-7-8-9-10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 162-170-178-186-194-200 l. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 24-27-30-33-36-37 cm, prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 = 38-40-42-46-48-52 l. Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-46-48-52-54-58 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Stykkið er nú mælt héðan. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 7-5-5-4-4-4 cm millibili 2-3-3-5-5-7 sinnum til viðbótar = 38-38-40-40-42-42 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 21-24-26-29-32-35 cm, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.2 og leiðrétting í texta. BERUSTYKKI: Fitjið upp 87-87-94-94-101-101 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Belle. Fellið af fyrir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá skýringu að ofan. Prjónið 5 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan (= kantur að framan), A.1 þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Í umf með uppslætti í A.1 er endað með 1 l sl á undan kanti að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannit: 5 l garðaprjón, A.2 (= 7 l),
Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2016
Leiðrétting: Texti í mynstri - tákn nr 6
Yfirfarið á vefsvæði: 10.11.2017
ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri í umf). Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt/br
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Marie wrote:

Hei ,jeg er ferdig med A1, men hvordan skal jeg økes for å bli fra 94 til 214 det har ikke forklaring til ,og hva dere mente A2(=7m)gjente .takk på forhånd

01.03.2019 - 20:58

DROPS Design answered:

Hei Marie, Når du er ferdig med A.1, begynner du med A.2 (med 5 masker rille på begge sider). A.2 er gjentatt 12 ganger i bredden og økningene på bærestykket er inkludert i A.2. Hver A.2 øker 10 masker i løpet av høyden og siden du har 12 gjentagelser i bredden, blir det en økning på 120 masker totalt. Da har du 214 masker på pinnen. God fornøyelse!

02.03.2019 - 09:55

country flag Marie wrote:

Hei ,jeg er ferdig med A1, men hvordan skal jeg økes for å bli fra 94 til 214 det har ikke forklaring til ,og hva dere mente A2(=7m)gjente .takk på forhånd

01.03.2019 - 20:57

DROPS Design answered:

Hei Marie. A.2 går over 7 masker på den første raden i diagrammet. Det er det (=7 masker) betyr. Du skal ha 214 masker på pinnen når A.2 er ferdig (ikke A.1). Om du ser på diagram A.2 ser du at det økes 2 masker på omgang 7, 9, 11, 13 og 15 (med kast på midten). Det økes derfor totalt 10 masker i hver rapport av A.2, og A.2 skal gjentas 12 ganger på omgangen. Når du er ferdig med A.2 har du derfor økt 12 x 10 masker = 120 masker økt. 94 + 120 = 214 masker på pinnen. God fornøyelse

04.03.2019 - 13:03

country flag Anette Sväd wrote:

Efter A2 så får jag det till 187 maskor och det blir bara 10 löv. Jag gör storlek 5-6 år. ??????

24.02.2019 - 10:47

DROPS Design answered:

Hej. Du ska sticka A.2 11 gånger på ett varv . När A.2 har stickats 1 gång på höjden har det totalt ökats 110 m. (Du ökar på varv 8,10,12,14,16, dvs 22 m (=2x11) ökade per varv på dessa varv.) Lycka till!

08.03.2019 - 08:31

country flag Susana Jourdan wrote:

Bonjour, J'ai perdu beaucoup de temps avant de comprendre que la grille est à l'envers! Il faut commencer par la partie du bas. C'est normal que la grille soit à l'envers? Merci pour ce site magnifique qui m'a donné envie de reprendre le tricot après 15 ans! Susana

11.02.2019 - 08:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jourdan, tout à fait, on tricote le gilet de haut en bas, et on lit toujours les diagrammes de bas en haut = on commence avec moins de mailles (côté col) et on augmente pour l'empiècement (= haut du diagramme). Bon tricot!

11.02.2019 - 11:42

country flag Denise Eichstädt wrote:

Ups, zu schnell abgeschickt, auch waren die angegebenen Abnahmen an den Ärmeln viel zu eng, ich habe schon 2 weniger gemacht und es passt kein dünnes Sweatshirt mehr drunter ( und Mei. Kind ist sehr schlank)

04.02.2019 - 14:47

country flag Denise Eichstädt wrote:

Habe mich genau an die Wolle, Nadeln und Maße gehalten, und trotzdem reichten 250g Wolle nicht, brauchte 300g. Habe die Größe 7/8 gestrickt.

04.02.2019 - 14:43

Aliya Adrus wrote:

Hi! Thank you for your reply.. can you tell me what is 1.Stocking stitch 2. WS 3. P 4. psso 5. K/P Thank you!

09.11.2018 - 15:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Adrus, this video shows how to work stocking st back and forth and this one how to work in the round. WS = wrong side of piece (RS = right side of piece). psso is explained here and there - P4 means purl 4 stitches. K = knit 1 stitch, P = purl 1 stitch. Happy knitting!

12.11.2018 - 08:03

Aliya Adrus wrote:

Hi! I'm from Malaysia. I'm interested to learn how to crochet the Sweet bay jacket (leaf jacket cardigan) for girls. I'm only the beginner, so I don't understand how to read the diagram. If you have a full tutorial how to make the leaf jacket cardigan, can you email it to me? Thank you and have a nice day!

09.11.2018 - 06:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Adrus, start reading diagram from the bottom corner on the right side towards the left from RS (= row 1 in A.1 = K all sts / row 1 in A.2 = white square = K from RS) and read the WS rows from the left towards the right (= row 2 in A.1 = K all sts from WS - row 2 in A.2 = K3, P1, K3). Happy knitting!

09.11.2018 - 09:00

country flag Betty wrote:

Bonjour ! Je désire réaliser ce modèle en 5/6, mais mon fil est plus gros que requis (gr C). Est-il possible de diminuer la largeur du motif, de 2 m, par exemple, en utilisant des broches circulaires 5 et 5,5, ce qui donnerait un motif de feuille plus mince et avec combien de mailles devrais-je débuter A.1 pour avoir 11 x le motif en A.2 ? Merci !

30.07.2018 - 18:35

DROPS Design answered:

Bonjour Betty, ce modèle est prévu pour un fil du groupe B et 21 m x 28 rangs jersey = 10 x 10 cm, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande, n'hésitez pas à demander de l'aide auprès du magasin où vous avez acheté votre laine. Bon tricot!

31.07.2018 - 09:48

country flag Evelyn wrote:

Sorry - habe mir das auf Excell ausgedruckt und statt 13x nur 7x eingetragen... MEIN FEHLER!!!

30.04.2018 - 15:44