DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-9
DROPS Design: Mynstur nr ne-227
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S – M – L
Höfuðmál: 54/56 – 58/60 – 60/62 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
50-50-50 g litur nr 4399, dökk fjólublár
50-50-50 g litur nr 0500, ljós grár
50-50-50 g litur nr 8910, hindber
50-50-50 g litur nr 0100, natur
50-50-50 g litur nr 3720, millibleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál:
Ummál að ofan: 65-69 cm.
Ummál að neðan: 102-115 cm.
Hæð: 33-33 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
50-100 g litur nr 3720, millibleikur
50-50 g litur nr 0100, natur
100-100 g litur nr4399, dökk fjólublár
100-100 litur nr 0500, ljós grár
100-100 litur nr 8910, hindber

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 st x 8 umf verði 10 x 10 cm.

VETTLINGAR:
Stærð: S – M/L

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100 g litur nr 0500, ljós grár
50-50 g litur nr 4399, dökk fjólublár
50-50 g litur nr 8910, hindber
50-50 g litur nr 3720, millibleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. umf endar með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl, haldið eftir fyrstu fl með 1 ll. umf endar með 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.

LITAMYNSTUR (heklað í hring):
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st.
Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn í þeim lit sem ekki á að hekla með lagður yfir l frá fyrri umf, heklað er utan um litinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. Passið uppá að þræðirnir dragi ekki stykkið saman!
Fyrsti st kemur í stað 3 ll, um síðasta st frá fyrri umf og fyrsta st í næstu umf er í mismunandi litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, 1 kl í 3. ll í byrjun umf, heklið síðan 3 ll (= byrjun umf).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir liti á húfu, hálsskjóli og vettlingunum. 1 rúða í mynstri = 1 st.

ÚRTAKA (á við um vettlinga):
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

3 ST SAMAN (á við um vettlinga):
Heklið 3 st saman þannig: Heklið 1 st í ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 st í sömu ll alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni.

2 FL HEKLAÐAR SAMAN (á við um vettlinga):
Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig. * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður.

HÚFA:
Heklið 5 ll með litnum hindber með heklunál nr 4,5 og tengið saman í hring með einni kl í fyrstu ll.
Heklið síðan í hring og eftir mynstri A.1 – LESIÐ LITAMYNSTUR, þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 14-15-16 st um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 28-30-32 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42-45-48 st.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56-60-64 st.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 70-75-80 st.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 4 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 84-90-96 st. Stykkið mælist ca 7 cm.

Heklið síðan áfram með 1 st í hvern st og mynstri A.1 eins og áður (= 14-15-16 sinnum á breiddina). Í síðustu umf í A.1 er aukið út um 0-2-0 st jafnt yfir = 84-92-96 st. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 17 cm. Heklið síðan A.2 (= 4 st) alls 21-23-24 sinnum á breiddina. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (stykkið mælist ca 25 cm) heklið 0-0-2 umf með litnum hindber. Snúið stykkinu (þ.e.a.s. heklað er frá röngu), heklið 1 fl í hvern st með hindber. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 25-25-27 cm.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 96-103 ll með heklunál nr 5,5 með litnum hindber og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 84-90 st. Heklið A.3 alls 14-15 sinnum hringinn – LESIÐ LITAMYNSTUR. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í 5., 8. og 10 umf er aukið út um 12 st jafnt yfir = 120-126 st. Í hvert skipti sem aukið er út, endurtakið A.3 alls 2 sinnum oftar á breiddina. Í 12. og 19. umf er aukið út um 6-12 st jafnt yfir = 132-150 st. Í hvert skipti sem aukið er út, endurtakið A.3 alls 1-2 sinnum oftar á breiddina.
Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, snúið við (þ.e.a.s. heklið frá röngu), heklið 1 fl í hvern st með litnum millibleikur. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 32 cm.

KANTUR:
Heklið 1 kant í ll-umf efst í hálsi með litnum dökk fjólublár. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja ll sem þar sem st voru heklaðir í fyrstu umf. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

VETTLINGUR:
Heklið 33-39 ll með heklunál nr 4,5 með litnum hindber og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja af fyrstu 5-4 ll, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 30-35 st.

Heklið A.4 alls 6-7 sinnum hringinn – LESIÐ LITAMYNSTUR. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 10 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið síðan áfram með litnum ljós grár. Í næstu umf er aukið út um 1 st fyrir þumal hvoru megin við fyrsta st í umf (= 2 st fleiri) – aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. Endurtakið útaukningu hvoru megin við þessa l í hverri umf alls 5 sinnum = 40-45 st (þumallykkjur = 11 st). Stykkið mælist ca 17 cm alls.

Heklið 1 kl í hvern og einn af 11 fyrstu st (= þumallykkjur) í byrjun umf, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern st, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 29-34 st og 1 ll í umf. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st og í ll í lok umf eru heklaðir 3 ST SAMAN- sjá útskýringu að ofan = 30-35 st. Heklið A.5 alls 6-7 sinnum hringinn.

Eftir 6 umf í A.5 er heklað og l fækkað þannig – sjá mynstur:
UMFERÐ 7: * Heklið fyrstu/næstu 2 st saman (= 1 st færri – LESIÐ ÚRTAKA, heklið 1 st í næsta st, heklið næstu 2 st saman (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* alls 6-7 sinnum = 18-21 st.
UMFEÐR 8: * Heklið 1 st í næsta/fyrsta st, heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 6-7 sinnum = 12-14 st.
UMFERÐ 9: Heklið alla st 2 og 2 saman = 6-7 st.

Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l efst á vettlingnum, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Heklið með litnum ljós grár.
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu af 11 þumallykkjur, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern af 10 st, * heklið 2 st til viðbótar um ll aftan við þumal *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 14 st.
UMFERÐ 2-3: Heklið 1 st í hvern st = 14 st.
Mátið vettlinginn, nú er eftir ca 1 cm til loka á þumli. Heklið e.t.v. 1 umf til viðbótar með 1 st í hvern st.
UMFERÐ 4: Heklið 2 og 2 st saman = 7 st.
UMFERÐ 5: Heklið 2 og 2 fl saman – LESIÐ 2 FL HEKLAÐAR SAMAN.
Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l efst á þumli, herðið að og festið vel.

KANTUR:
Í kringum ll-umf í byrjun á vettling er heklaður 1 kantur með litnum hindber frá röngu þannig: Heklið 1 fl í hverja ll þar sem st voru heklaðir í fyrstu umf, þ.e.a.s. ekki er heklað í ll þar sem hoppað var yfir í fyrstu umf. Klippið frá og festið enda.

Heklið annan vettling, en útaukning fyrir þumal er gerð hvoru megin við síðustu l í umf, þá er ekki heklaðar kl yfir fyrstu 11 l.

Mynstur

symbols = hindber
symbols = millibleikur
symbols = ljós grár
symbols = dökk fjólublár
symbols = natur
symbols = heklið 2 st saman með hindber
symbols = útauknings umferð - sjá uppskrift
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Loes wrote:

Ik mis de symbolen voor de kleuren

20.07.2019 - 10:36

DROPS Design answered:

Dag Loes,

De symbolen staan er wel bij. Mogelijk dat de afbeeldingen tijdelijk niet goed geladen werden door je browser. Hopelijk is het inmiddels gelukt.

22.07.2019 - 11:06

country flag Anita Stassen wrote:

Volgens mij klopt het telpatroon A1 van DROPS 172-9 niet ik mis hier hokjes buj het begin van het patroon voor de murs

03.12.2016 - 20:13

DROPS Design answered:

Hoi Anita. Het klopt wel. Je herhaalt het telpatroon over de st op de toer. In toer 1 heb je 14, 15 of 16 stk om de ring = 14, 15 of 16 herhalingen van het patroon. Toer 2 heb je 28-30-32 stk = 14, 15 of 16 herhalingen van het patroon in de rondte. Enzovoort.

06.12.2016 - 15:25

country flag Rebecca Gibbs wrote:

So beautiful and cheery what a wonderful way to brighten some ones winter. what is even better is what a perfect idea for a Christmas gift for one that is loved! a perfect way to give them a warm hug each time they put it on.

15.06.2016 - 05:56

country flag Lauren McRoberts wrote:

One of my favorites! Love the colors and that it is a complete set. Please include!

12.06.2016 - 01:27